Morgunblaðið - 10.09.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Skriðdýrasýning
í JL-húsinu
UM 130 skriðdýr eru til sýnis
á annarri hæð JL-hússins
þessa dagana og gefur þar
m.a. að líta eðlur, slöngur,
risaköngulær og sporðdreka.
Það eru Tælendingar sem
standa að sýningunni og eru
þeir með sérstaka sýningu á
eiturslöngum á klukkutíma
fresti, þar sem þeir sýna
hvernig eigi að handfjatla þær
án þess að vera bitinn.
Sýningin stendur yfir til 28.
september nk. og er opin frá
kl. 14 til 20 alla daga. Að-
gangseyrir er 800 krónur fyr-
ir fullorðna, en 600 krónur
fyrir börn.
Ro Stöhktu til nirlnvm
Dö nmorm 24. sept.
í 28 daga
frá kr. 29.932
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð þann 24. september
til Benidorm. Þú tryggir þér sæti í sólina í heilar 4 vikur
og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og látum þig
vita á hvaða hóteli þú gistir. Á Benidorm er yndislegt
veður í september og október og þú nýtur rómaðrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr. 29.932
M.v. hjón með 2 börn í íbúð,
24. sept., 28 nætur, flug, gisting,
ferðir til og frá flugvelli, skattar.
Verðkr. 39.960
M.v. 2 í íbúð, 28 nætur, 24. sept.
Síðustu sætin í haust.
m ci) Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600
Sjávarútvegssýningin Fishing News Iceland ’99
Fishing News til liðs
við Sýningu ehf.
ÚTGEFENDUR breska sjávarút-
vegsblaðsins Fishing News Inter-
national hafa gerst hluthafar í Sýn-
ingum ehf., skipuleggjendum ís-
lensku sjávarútvegssýningarinnar,
FishTech Iceland ’99 sem verður
haldin í Laugardalshöllinni í maí
1999.
„Við erum stórfyrirtæki á sviði
sjávarútvegssýninga og þeir sem
nú eru að undirbúa skipulagningu
þessarar sýningar buðu okkur aðild.
Þeir telja sig munu skila betra starfi
en fyrirtækið sem áður hefur staðið
fyrir sjávarútvegssýningunum hér,“
sagði Ian Strutt, ritstjóri Fishing
News International, sem staddur
er á landinu, í samtali við Morgun-
blaðið af þessu tilefni
Mikil reynsla af
sjávarútvegssýningum
„Við höfum mikla reynslu af sjáv-
arútvegssýningum í Skotlandi,
Höfðaborg í S-Afríku, Santiago í
Chile, Kuala Lumpur í Malasíu og
höfum góð sambönd í sjávarútvegi
um allan heim,“ sagði Ian Strutt.
Hann sagði að Fishing News Inter-
national, sem er eitt útbreiddasta
sjávarútvegsrit heimsins og lesið af
um 20 þúsund stjómendum í sjávar-
útvegi um allan heim, muni taka
virkan þátt í að kynna FishTech
Iceland ’99 með því að undirbúa
jarðveginn fyrir lesendur og sýnend-
ur, senda blaðamenn til landsins til
að fjalla um fyrirtæki og framleiðslu
þeirra og væntanlega senda blaða-
mann út á mið með íslenskum skip-
um. „Við viljum fjalla um sýninguna
og setja hana í samhengi og ljá
henni lit,“ sagði ritstjórinn.
Fishing News International, fjall-
ar um búnað, tæki og nýjungar í
sjávarútvegi og fjallaði nýlega í 48
síðna aukablaði um sjávarútvegg-
sýningu í Vigo á Spáni og Ian Strutt
sagði að búast mætti við að umfjöll-
unin um sjálfa sýninguna í Reykja-
vík yrði af þeirri stærðargráðu auk
þess sem umfjöllun í tengslum við
sýninguna, sem haldin verður í maí
1999, hefst fljótlega í blaðinu.
„Við vinnum þannig að við kynn-
um okkur atvinnugreinina í landi
sem ætlar að halda sýningu og fjöll-
um um það sem þar er að gerast.
Ég held að við gerum það betur en
aðrir," segir Ian Strutt.
Margfaldar
kynningarmöguleika
Auk EMAP Heighway, en það
er heiti útgáfufyrirtækis Fishing
News International eru Samtök iðn-
aðarins, Kynning og markaður -
KOM ehf. aðilar að Sýningu ehf.,
sem stendur fyrir FishTech Iceland
’99.
„Með aðild Fishing News Inter-
national að sýningunni, margfald-
ast möguleikar á að kynna sýning-
una um allan heim, m.a. með það
markmið í huga að fá hingað fleiri
erlenda sýningargesti og sýnend-
ur,“ segir í fréttatilkynningu frá
Sýningu ehf.
Sölustjóri EMAP, Mike Purves,
segir í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu að íslenski hópurinn, sem
vinni saman að því að setja Fish-
Tech á laggirnar, sé mjög hæfur,
með góð sambönd og ákveðinn í
að sýningin verði „sú stærsta og
besta sinnar tegundar sem haldin
hafi verið í þessu mikla og tækni-
vædda sjávarútvegslandi.“ Starfs-
fólk Fishing News mun verða ráð-
gefandi við undirbúning, skipulag
og framkvæmd FishTech ’99, segir
í fréttatilkynningu Sýninga ehf.
------------»--»—♦-----
Kæra vegna
fjölföldunar
hugbúnaðar
LÖGMAÐUR Microsoft á íslandi
hefur kært meinta ólögmæta fjöl-
földun hugbúnaðar, sem fyrirtækið
á höfundarrétt að.
Arnar Jensson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá embætti ríkislög-
reglustjóra, sagði að embættinu
hefði borist kæra um nokkur meint
höfundarréttarbrot. „Þetta mál er
nýkomið til okkar og rannsókn hef-
ur ekki hafist. Það eru því ekki
efni til að skýra nánar frá því að
svo stöddu," sagði Arnar.
eildarviðha
(Heildarstjórnun búnaðar)
Námskeið haldið 17. og 18. september kl. 8.30—17.00
báða dagana á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38.
Edward H. Hartmann P.E.
Dæmi um atriði, sem tekin
eru fyrir, eru eftirfarandi:
Lífkostnaður búnaðar, þ.e. endurnýjunar-,
rekstrar- og viðhaldskostnaður.
Mat á hæfni búnaðar.
Hvaða kröfur gera verði til upplýsingakerfis, og
hvenær rétt sé að taka upp notkun strikamerk-
inga.
Hve mikil þátttaka umsjónarmanna búnaðar í
viðhaldinu ætti að vera og hve langt borgi sig
að ganga í því.
Hvernig best er að standa að þjálfun, hve mik-
inn tíma ætti að nota til hennar og hverjir ættu
að sjá um hana.
Hvort rétt sé að fram fari hæfnispróf til þess að
útnefna viðgerðarmenn til ákveðinna viðgerða.
Hve mikið stýrt viðhald sé hagkvæmt og hvern-
ig sé æskilegt að skipuleggja það.
Hvernig best sé að standa að spáviðhaldi og
hvaða tækjabúnað sé hagkvæmt að nota í
hverju tilfelli.
Hvernig standa eigi að endurbótum á búnaði
og um Núllin þrjú í heildarviðhaldsstjórnun.
- Hvernig best sé að standa að mælingum á nýt-
ingu búnaðar og af árangri af viðhaldsaðgerðum.
Kennslugögn.
Á námskeiðinu er öllum þátttakendum afhent
mappa með miklu af kennslugögnum og bók-
ina Successfully Installing Total Productive
Maintainance in a Non-Japanese Plant, sem er
eftir fyrirlesarann.
Edward H. Hartmann
er bandarikjamaður,
með meira en 25 ára
reynslu í viðhaldsstjóm-
un. Hann er leiðandi á
þessu sviði á Vestur-
löndum (dag. Hann hef-
ur m.a. verið kaliaður
faðir heildarviðhalds-
stjómunar i Bandaríkjun-
um.
NÁMSKEIÐINU ER ÆTLAÐ
stjórnendum og lykilmönnum sem fjalla um við-
hald, rekstur og endurnýjun búnaðar.
NÁMSKEIÐSGJALD
er kr. 35.000 fyrir þátttakanda.
Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi
mánudaginn 15. september nk.
Nánari upplýsingar veitir J. Ingimar
Hansson.
REKSTRARSTOFAN
SÍMI 564 1046, fax 564 1317