Morgunblaðið - 10.09.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.09.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997 13 LANDIÐ Morgunblaðið/Sig. Fannar. ÞYRLA Landhelgisgæslunnar lendir á þyrlupallinum. Þyrlupallur í notkun á Selfossi Selfossi - Síðastliðinn fóstudag var þyrlupallurinn við Sjúkrahús Suð- urlands á Selfossi formlega tekinn í notkun. Þyrlupallurinn hefur verið í byggingu í nokkur ár undir stjórn Almannavarnanefndar Selfoss og nági’ennis. Aðildarsveitarfélögin hafa stutt þessa framkvæmd með beinum fjárframlögum og margir hafa komið að verkinu án endur- gjalds eða veitt mikinn afslátt af kaupverði efnis og vinnu. Það kom fram í ræðu Karls Björnssonar, bæjarstjóra og for- manns Aimannavarnanefndar Sel- foss, að velvildin í garð þessara framkvæmda sé næsta ótrúleg, það er ekki algengt að opinber aðili eins og Almannavarnanefnd skuli njóta svo höfðinglegrar fyrirgreiðslu eins og raun ber vitni. Fyrir þessa ein- stöku velvild vildi Karl Björnsson koma þökkum til þeirra sem að verkinu hafa komið. Morgunblaðið/Atli Vigfusson HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra og Kristrún Ey- mundsdóttir kona hans ræða við Þórarin B. Jónsson bónda í Skarðaborg. GUÐMUNDUR Bjarnason landbúnaðarráðherra á tali við Jónas Bjarnason bónda á Héðinshöfða. 4 * Ti ■ ■ * * . * AÐALSTEINN Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur er ekki sfður mikill áhugamaður um hag sauðfjárbænda, enda einnig formaður Félags sauðfjár- bænda á Húsavík. Fjöl- mennt á Hrauns- rétt EFTIR þriggja daga göngur á Þeistareyki var réttað í Hraunsrétt sl. sunnudag. Á þriðja þús- und fjár í eigu Aðaldæl- inga og Reykhverfunga var í réttinni. Að venju var Qöldi fólks saman kominn og ungir sem aldnir aðstoðuðu við rétt- arstörfin. Ráðherrar kjördæmis- ins, þeir Guðmundur Bjarnason, landbúnaðar- og umhverfisráðherra, og Halldór Blöndal sam- gönguráðherra létu sig ekki vanta á réttirnar en þeir hafa verið fastir gest- ir þar í fjölda ára. Morgunblaðia/Kristján RAGNAR Þorsteinsson, bóndi UNGA fólkið lét ekki sitt eftir liggja við réttarstörfin en það gat verið að betra að f Sýrnesi þiggja aðstoð í sumum tilfellum. Fjallað um Grettissögu á sagnaþingi á Sauðárkróki Sauðárkróki - Stofnun Sigurðar Nordals og heimamenn stóðu fyrir málþingi um sögu Grettis sterka Ásmundarsonar í Fjölbrautaskólan- um á Sauðárkróki helgina 23. og 24. ágúst sl. Úlfar Bragason, forstöðu- maður Stofnunar Sigurðar Nordals, setti þingið og bauð gesti velkomna en síðan var gengið til dagskrár. Fyrirlesarar nálguðust Grettlu úr ýmsum áttum og skoðuðu þessa vin- sælu sögu frá mörgum og mismun- andi sjónarhornum og höfðu flestir að yfirskrift meitlaðar setningar úr sögunni. Þannig nefndi Örnólfur Thorsson erindi sitt: Enginn maður skapar sig sjálfur og fjallaði þar m.a. um þá þætti sem mestu um það réðu að söguhetjan varð utangarðs- maður og lánleysingi sem ekki nýtt- ist atgervi og aðrir kostir til eðlilegs lífs. Guðvarður Már Gunnlaugsson nefndi erindi sitt: Grettir vondum vættum, veitti hel og þreytti þar sem hann gerði að umtalsefni hvers vegna saga útlagans hefði náð slík- um vinsældum sem raun hefur orðið á. Kristján Eiríksson nefndi sinn fyrirlestur Kröpp eru kaup en Viðar Hreinsson nefndi sinn þátt Vand- ræðaunglingar í sveit og ræddi þar um æsku og uppvaxtarár Grettis og bar saman við nokkra aðra fyrir- ferðarmikla einstaklinga í sögunum sem líkt var ástatt um og Gretti. Síðari dag ráðstefnunnar fjallaði Ögmundur Helgason um Gretti í þjóðsögum og sögnum og Helga Kress nefndi erindi sitt Harður í haus. Grettir og gróteskan. Þá lásu Svanhildur Óskarsdóttir og Gunnar Stefánsson Ijóð um Gretti og tengd sögu hans á milli atriða. A eftir hverju erindi var opnuð mælendaskrá og tóku ráðstefnu- gestir þátt í umræðum og vörpuðu fram fyrirspurnum til frummæl- enda. Meðal þeirra sem tóku til máls var Jón Eiríksson, sá af heimamönnum sem einna best þekkir til sögu Grettis og útlegðar- dvalar hans í Drangey og var spjall hans ekki síður fróðlegt og skemmtilegt en annarra, bæði frummælenda og þeirra sem til máls tóku undir þeim lið. Við lok fyrri ráðstefnudags var móttaka á vegum Sauðárkróks- kaupstaðar en síðan var sameigin- legur kvöldverður á Hótel Áningu. Eftir hádegi seinni dags ráðstefn- unnar var fyrirhuguð ferð til Drangeyjar en af henni gat ekki orðið þar sem ekki var fært tii eyj- arinnar vegna veðurs en hins vegar var farin ferð á landi þar sem ekið var á milli sögustaða og gengið m.a. að Grettislaug á Reykjanesi, komið við í gamla kirkjugarðinum í Fagra- nesi og skoðaður staðurinn þar sem talið er að líkami Grettis hafi hlotið hinsta legstaðinn en þeir bræður Jón og Kristján Eiríkssynir hafa sett þar upp merktan stein. Að lok- Morgunblaðið/Bjbm Björnsson HLUTI ráðstefnugesta skoðaði Grettislaug hjá Reykjum. um var síðan skoðaður hinn gamli þingstaður í Hegranesi en þar sést vel til fornra mannvirkja og var ferðin farin undir fróðlegri og skemmtilegri leiðsögn þeirra Ög- mundar Helgasonar og Kristjáns Eiríkssonar. í viðtölum við ráðstefnugesti kom fram ánægja með ráðstefnuna og töldu allir slíka umfjöllun um bók- menntaarfmn mjög gagnlega og ekki síður skemmtilega og mjög lofsvert framtak Stofnunar Sigurð- ar Nordals að standa að og taka þátt í slíkum menningarviðburðum. Þátttakendur í ráðstefnunni voru um 80 og ráðstefnustjóri var Úlfar Bragason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.