Morgunblaðið - 10.09.1997, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Miklar framkvæmdir á Melgerðismelum en vantar sjálfboðaliða
Lokasprett-
urinn fyrir
landsmótið
„NÚ ÞURFUM við að fara að spýta
í lófana,“ sagði Sigfús Helgason
framkvæmdastjóri verklegra fram-
kvæmda á Melgerðismelum en þar
verður landsmót hestamanna haldið
næsta sumar, dagana 8. til 12. júlí.
Mikið verk hefur verið unnið á
svæðinu en heilmikið á eftir að
gera áður en það verður að fullu
tilbúið.
Uppbygging á Melgerðismelum
hefur staðið yfír síðustu misseri en
m.a. hafa verið útbúnir tveir
keppnisvellir á aðalsvæðinu, 300
metra og 250 metra hringvellir og
450 metra kappreiðabraut, sem og
plan fyrir sýningar og hlýðni-
keppni. Á melunum ofan við aðal-
keppnissvæðið er keppnisvöllur og
aðstaða til kynbótasýninga. Ný
áhorfendabrekka hefur verið gerð
sem rúmar allt að 25 þúsund
manns.
Vantar sárlega fólk til starfa
Þó mikið hafi áunnist eru ófá
handtök eftir áður en svæðið telst
fullbúið en Sigfús sagði að hesta-
menn, sérstaklega félagsmenn í
Létti á Akureyri, mættu vera dug-
legri að leggja hönd á plóg. Funa-
menn í Eyjafjarðarsveit hefðu fram
til þessa verið mun duglegri að
mæta til vinnu á svæðinu. „Við
erum hér á þriðjudögum og fimmtu-
dögum og einnig um helgar og
myndum gjarnan vilja fá hestamenn
til liðs við okkur því næg eru verk-
efnin,“ sagði Sigfús. Verið er að
útbúa svæði fyrir veitingasölu,
grafa þarf fyrir vatni og leggja
lagnir, þá er verið að semja um
gerð nýs keppnisvallar, gæðinga-
völl sem verður við stóðhestahúsið.
Einnig á eftir að endurnýja sím-
kerfi, setja upp GSM-stöð og gera
lagfæringar á rafmagnsmálum.
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdir á Melgerðismelum verður
um 30 milljónir króna. Akureyrar-
bær og Eyjafjarðarsveit lögðu fram
10 milljónir króna og hrossaræktar-
samtök í Eyjafirði og Þingeyjarsýsl-
um lögðu fram 1 milljón króna. Þá
er gert ráð fyrir að leiga svæðisins
skili um 8-10 milljónum króna en
það sem upp á vantar er fjármagn-
að með lánum.
Verður að slíðra sverðin
Enn vantar reiðveg á leiðinni frá
Akureyri að Melgerðismelum en
harðvítugar deilur komu upp í vor
milli hestamanna í bænum og land-
eigenda í Eyjafjarðarsveit þar um
og var reiðleið fram að Hrafnagili
lokað um tíma af þeim sökum. „Það
eru gríðarlegir hagsmunir í húfi
fyrir landsmótið að lausn finnist í
málinu, það má raunar segja að það
sé gjaldfallið, en þó tel ég að enn
megi bjarga því ef samstaða næst
nú alveg á næstunni. Menn verða
að slíðra áverðin, beita skynseminni
og vinna hratt. Ég er bjartsýnn á
að lausn finnist, mér finnst gæta
Morgunblaðið/Kristján
SIGFÚS Helgason og Bjarni Þorsteinsson í óða önn að þöku-
leggja svæðið þar sem komið verður upp aðstöðu til veitingasölu
á landsmótinu næsta sumar. Bílstjórinn Snæbjörn Sigurðsson los-
ar vörubílinn.
meiri þíðu í samskiptum milli
manna en áður,“ sagði Sigfús.
Hann bætti við að samkvæmt áætl-
un Vegagerðarinnar sem fyrir ligg-
ur sé gert ráð fyrir að leggja 40
milljónir króna í reiðveg á þessari
leið, suður fjörðinn að austanverðu.
Það sé því afar mikilvægt að menn
setjist niður í bróðerni og leysi
málið.
Áætlað er að um 10 þúsund gest-
ir sæki landsmótið, keppnishross
verða eitthvað á annað þúsund tals-
ins en leysist reiðvegamálið gerir
Sigfús ráð fyrir að allt að fjögur
þúsund hross verði á svæðinu.
Tilboð í smíði á
hafnarhúsi á Ak-
ureyri opnuð
Aðeins
eitt undir
kostnað-
aráætlun
FIMM tilboð bárust í smíði á
hafnarhúsi ásamt frágangi á
lóð og undirstöðum undir hafn-
arvog við Fiskitanga á Akur-
eyri og var aðeins eitt þeirra
undir kostnaðaráætlun. Stærð
hússins er 430 fermetrar á
tveimur hæðum og er lóð tæp-
ir 2700 fermetrar.
P. Alfreðsson ehf. átti
lægsta tilboðið og hljóðaði það
upp á 48 milljónir króna. Þetta
eru 95,4% af kostnaðaráætlun
sem hljóðaði upp á 50,3 millj-
ónir króna. Fjölnir ehf. bauðst
til að vinna verkið fyrir um
51,7 milljónir króna, Katla
ehf. bauð um 53,7 milljónir
króna, Sprettur hf. bauð um
54,3 milljónir króna og SJS
verktakar ehf. buðust til að
vinna verkið fyrir um 58,2
milljónir króna.
Guðmundur Sigurbjöms-
son, hafnarstjóri segir að góð
verkefnastaða hjá verktökum
sé líkleg skýring á því hversu
há tilboðin í verkið eru. Hann
segir stefnt að því að yfirfara
tilboðin sem fýrst, svo hægt
verði að ganga til samninga
um verkið.
Samkvæmt útboðsgögnun á
uppsteypu hússins að vera lok-
ið fyrir áramót, húsið tilbúið
að innan 15. apríl á næsta ári
og tilbúið að utan og lóðin frá-
gengin 1. júlí 1998.
Endurbætur á sal Samkomuhússins hafnar
Morgunblaðið/Kristján
STARFSMENN bæjarins, þeir Birgir Gunnarsson og Sigurður
Gunnarsson, losa upp gömlu sætin í Samkomuhúsinu á Akureyri
í gær. Skipta á um sæti og eru þau gömlu til sölu.
Gömlu sætin renna út
BÆJARYFIRVÖLD á Akureyri
samþykktu fyrr á árinu að leggja
fram 20 milljónir krónatil endur-
bóta á sal Samkomuhússins.
Skipta á um sæti, Iaga sjónlínu á
svölum og hitalögn. Að sögn Ing-
vars Björnssonar, ljósameistara
Leikfélags Akureyrar, er einnig
áhugi fyrir því að laga svið og
hljómsveitargryfju.
Starfsmenn bæjarins voru
mættir í Samkomuhúsið í gær og
hófu að losa upp gömlu sætin,
bæði í sal og á svölum. Sætin eru
til sölu og segir Ingvar að mikill
áhugi sé fyrir þeim. „Fólk hefur
verið að kaupa sæti fyrir biðstof-
ur, sem símastóla og í hesthús
og þá keyptu nemar í Leiklistar-
skólanum ein 30 sæti,“ sagði Ing-
var.
Stefnt er að því að selja öll 245
sætin, sem ekki þykja lengur upp-
fylla þær kröfur sem gerðar eru
í leikhúsi í dag. Sætin hafa verið
I Samkomuhúsinu í 50 ár og er
upprunalega leðrið enn á sætun-
um á svölum hússins. Við breyt-
ingarnar fækkar sætum í húsinu
úr 245 í 206. Nýju sætin eru bæði
stærri og þægilegri en þau gömlu,
auk þess sem fækka þarf um eina
sætaröð á svölum vegna lagfær-
ingar á sjónlínu á svið.
Ingvar segir stefnt að því að
frumsýna söngleikinn Söngvaseið
í Samkomuhúsinu í mars á næsta
ári. Hann segir að vonir standi
til að framkvæmdum verði lokið
fljótlcga upp úr áramótunum og
að hægt verði að hefja æfingar í
janúar. Fram að þeim tíma mun
Leikfélag Akureyrar setja upp
tvö verk á Renniverkstæðinu við
Strandgötu, Hart í bak og Á ferð
með Daisy.
Veglegar gjafir til
Háskólans á Akureyri
HÁSKÓLANUM á Akureyri bár-
ust margar veglegar gjafir í tilefni
af 10 ára afmæli hans sem efnt
var til um helgina.
Auk 10 milljóna króna til bygg-
ingar rannsóknarhúss sem Akur-
eyrarbær gaf má nefna að Spari-
sjóður Norðlendinga gaf 100 þús-
und krónur, íslenskar sjávaraf-
urðir gáfu sömu upphæð til bóka-
kaupa, Póstur og sími gaf eina
milljón króna til styrktar tölvu-
og fjárskiptakerfis við uppbygg-
ingu rannsóknar- og vísinda-
bókasafns og Landsvirkjun gaf
750 þúsund krónur til uppbygg-
ingar bókasafnsins. Landsbanki
íslands gaf safn orðabóka og 250
þúsund krónur í framkvæmdasjóð
bókasafnsins, Háskóli íslands gaf
100 bækur Háskólaútgáfunnar,
eina milljón króna til í sameigin-
legan sjóð til að styrkja samstarf
skólanna og skikkjur fyrir rektor
og deildarforseta háskólans að
klæðast á hátíðarstundum.
Auk peningagjafa barst fjöldi
bókagjafa og má þar nefna að
fóstursystkinin Sigríður Kristjáns-
dóttir og Björn Böðvarsson frá
Halldórsstöðum í Ljósavatnshreppi
gáfu safn Halldórsstaðaheimilis-
ins, Harpa og Páll J. Árdal gáfu
bækur og tímarit úr heimspeki-
safni sínu í Kanada, Mál og menn-
ing og Skjaldborg gáfu barnabæk-
ur, Guðrún Karlsdóttir gaf eintak
af Guðbrandsbiblíu til minningar
um eiginmann sinn, Sigurð Guð-
mundsson kaupmann, Ingibjörg
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
ÞÓRARINN E. Sveinsson forseti bæjarstjórnar afhendir Þor-
steini Gunnarssyni rektor Háskólans á Akureyri myndamöppur
með ljósmyndum af Akureyri, gömlum og nýjum.
R. Magnúsdóttir gaf rúmlega 100
bindi; mest forn- og íslendingasög-
ur, Ásdís Einarsdóttir gaf bóka-
og ritsafn um sjávarútvegsfræði
til minningar um eiginmann sinn,
Ólaf V. Einarsson sjávarútvegs-
fræðing.
Sendiherrar Danmerkur og
Bandaríkjanna voru viðstaddir há-
tíðarhöldin i Háskólanum á Akur-
eyri og komu færandi hendi.
Danski sendiherrann færði háskól-
anum bókagjöf og 750 þúsund
krónur til kaupa á kennsluefni til
dönskukennslu í grunnskólum og
sá bandaríski gaf America’s Hidd-
en Treasures.