Morgunblaðið - 10.09.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997 19
Utandagskrárumræða á Evrópu-
þinginu vegua dauða Díönu
Vilja evrópskar
reglur til vernd-
ar einkalífi
FULLTRÚAR í menningar- og
fjölmiðlanefnd Evrópuþingsins hafa
farið fram á utandagskrárumræðu
á þinginu í Strassborg í næstu viku
til að ræða hvort ástæða sé til að
herða samevrópskar reglur um
vernd friðhelgi einkalífsins. Tilefni
umræðunnar er hugsanlegur þáttur
ljósmyndara æsifréttablaða, svo-
kallaðra paparazzi, í dauða Díönu,
prinsessu af Wales.
Mismunandi lög um friðhelgi
einkalífs gilda í aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins. Frakkland hefur
einna strangastar reglur. í ríkjum,
þar sem meira
frjálsræði ríkir í
þessum efnum,
er jafnframt
bezti markaður-
inn fyrir pap-
arazzi-myndir af
frægu fólki.
Menningar-
og fjölmiðlanefnd Evrópuþingsins
hyggst skrifa framkvæmdastjórn
ESB bréf og fara fram á að gerður
verði samanburður á löggjöf aðild-
arríkjanna um vernd einkalífs og
hugsanlega samdar tillögur að evr-
ópskri löggjöf um framkomu fjöl-
miðla.
Menningarmunur milli
aðildarríkja
Klaus van der Pas, talsmaður
Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar, segir hins
vegar í European Voice að aðildar-
ríkin hafi mjög mismunandi skoðan-
ir á þessu máli. „Við spyijum hvort
þetta sé í raun mál, þar sem þörf
er á samræmingu. Er það nauðsyn-
legt? Með nálægðarregluna í huga
erum við hikandi," segir Van der
Pas og vísar til þeirrar grundvallar-
reglu í löggjöf ESB að sambandið
skuli einungis láta til sín taka á
sviðum, þar sem það sé betur í stakk
búið til að ná árangri en einstök
aðildarríki.
Formaður menningar- og fjöl-
miðlanefndarinnar, Peter Pex, sem
kemur úr flokki kristilegra demó-
krata í Hollandi, viðurkennir að
erfitt verði að setja lög, sem verndi
einkalífið og að taka verði tillit til
menningarmunar á milli aðildar-
ríkja ESB að þessu leyti.
Talsmenn fjölmiðla og blaða-
manna benda á að frönsku reglurn-
ar um vernd einkalífs, sem þykja
þær ströngustu í
ESB, hafi ekki
komið í veg fyrir
eltingaleik ljós-
myndara við bif-
reið Díönu prins-
essu kvöldið sem
hún lézt.
Jens Linde,
forseti Alþjóðasambands blaða-
manna, bendir á það í samtali við
European Voice að lög, sem sett
yrðu til að koma böndum á lítinn
minnihluta fréttamanna, sem hagar
sér með ábyrgðarlausum hætti,
kynnu að reynast erfið í fram-
kvæmd og gera meiri skaða en
gagn.
8. grein mannréttinda-
sáttmálans ekki virk?
Blaðið segir frá því að í hópi
fulltrúa á þingmannasamkundu
Evrópuráðsins séu jafnframt uppi
raddir um að tryggja þurfi vernd
einkalífs betur en nú. Þingmenn
telja að 8. grein mannréttindasátt-
mála Evrópu sé ekki virk eins og
málum sé nú háttað, en í henni
segir m.a.: „Hver maður á rétt til
friðhelgi einkalífs síns, fjölskyldu,
heimilis og bréfaskipta."
EVRÓPA%
Norsk stjórnvöld andvíg
genabreyttum lífverum
Tilskipunum
ESB hafnað?
NORSK stjórnvöld ræða nú í fyrsta
sinn möguleikann á að nýta rétt
sinn samkvæmt samningnum um
Evrópskt efnahagssvæði til að
hafna því að tilskipanir Evrópusam-
bandsins, sem snerta samningssvið-
ið, gangi í gildi í Noregi. Aftenpost-
en greinir frá því að Thorbjorn
Berntsen umhverfismálaráðherra
hafi staðfest að þetta sé raunin
hvað varðar reglur ESB um gena-
breyttar lífverur.
Aftenposten segir að án efa
muni langar samningaviðræður
eiga sér stað milli Noregs og ESB
áður en gripið verði til þess ráðs
að beita neitunarvaldi gegn tilskip-
unum sambandsins.
Nýjar tilskipanir ESB, sem
snerta samningssvið EES-samn-
ingsins, eru teknar upp í samning-
inn eftir umfjöllun í sameiginlegu
EES-nefndinni og samþykki þjóð-
þinga aðildarríkjanna.
Almennt hefur verið litið svo á
að beiti EFTA-ríki neitunarvaldi
gegn einhveijum tilskipunum ESB
sé allur EES-samningurinn í hættu
því að með slíku væri markmið
hans um einsleitt efnahagssvæði
þar sem sömu reglur gilda, úr sög-
unni.
Einróma stórþingssamþykkt
Norska umhverfismálaráðuneyt-
ið er í erfiðri stöðu í þessu máli.
Það hafði áður ákveðið að leggjast
ekki gegn reglum ESB um gena-
breyttar lífverur en í júní síðastliðn-
um samþykkti Stórþingið samhljóða
að hindra skyldi útbreiðslu erfða-
efnis frá genabreyttum bakteríum,
sem væru ónæmar fyrir fúkkalyfj-
um. Erfðaefni af þessu tagi mun
hafa verið notað til að genabreyta
maískorni, olíurepju, jólasalati, tób-
aki og tveimur tegundum af bólu-
efni, sem leyfilegt er innan ESB.
Óttast þingmenn að erfðaefni frá
bakteríum geti borizt í aðrar lífver-
ur og gert þær ónæmar fyrir lyfj-
um. Norska ríkisstjórnin sér sér því
ekki annað fært en að krefjast
banns við framleiðslu, innflutningi
og dreifíngu þessara lífvera.
Berntsen umhverfismálaráð-
herra segist vita að ýmis starfs-
systkin hans í 'íkjurn ESB séu hon-
um sammála um hættuna vegna
genabreyttra lífvera.
Skipholts Apótek
fagnar eins árs afmæli
Nú er liðið eitt ár síðan við hófum rekstur.
í tilefni af afmælinu bjóðum við öllum viðskiptavinum
víðtækan afmælisafslátt í september.
50% til 100%
afsláttur af lyfseðlum
50% til 100% af hlut sjúklings -
fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
20% til 100% af hlut sjúklings
fyrir almenna viðskiptavini
• Afsláttur af vítamínum:
Ef þú kaupir eitt glas af vítamíni þá færð þú
annað ókeypis
Einnig:
• Afsláttur af ítölskum sjúkrasokkum:
20% afsláttur af SANYLEG sjúkrasokkum og sokkabuxum
• Afsláttur af hársnyrtivörum:
•20% afsláttur af j.f. lazartigue
frábærar franskar hársnyrtivörur (sápulaus sjampó, ýmsar
lausnir gegn hárvandamálum t.d. hárlosi, fitu, flösu og þurrki
í hári og hársverði)
•20% afsláttur af Nicky Clarke, hágæða ensku hársnyrtivörunum
• Afsláttur af hárskrauti:
20% afsláttur af EVITA PERONI hárskrauti
Bestu þakkir til okkar mörgu
föstu viðskiptavina fyrir
frábærar móttökur.
Skipholts
ISApótek
Skipholti 50 C • Sími: 551-7234
50 D
Skipholt 33
Skipholts Apótek
50 C
50 B
50 A
Skipholt
Skipholt 31
Brautarholt 29 ^
Tónabíó (Vinabær) Ljósmynda- vörur Færeyska sjómanna- heimiliö
Afmælistilboðið gildirtil 1. október 1997