Morgunblaðið - 10.09.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997 31
MINNINGAR
RAGNAR
KONRÁÐSSON
+ Ragnar Kon-
ráðsson fæddist
í Hafnarfirði 13.
júlí 1927. Hann lést
á Elliheimilinu
Grund í Reykjavík
2. september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Konráð
Þorsteinsson, sjó-
maður í Hafnar-
firði, og Sólrún
Kristjánsdóttir,
lengi starfsmaður
Sólvangs í Hafnar-
firði. Systkini
Ragnars eru Frið-
finnur, látinn, Hinrik, og Krist-
ín. __
Útför Ragnars verður gerð
frá Kirkjugarðskapellunni í
Hafnarfirði í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Það var hringt í mig að kvöldlagi
fyrir skemmstu og mér borin sú
fregn að föðurbróðir minn, góður
vinur og umfram allt bróðir í Jesú
Kristi, Ragnar Konráðsson, væri
fallinn frá. Settist ég því niður til
( að rita fáein orð um okkar sam-
skipti á síðustu árum.
Að vonum brá mér nokkuð við
tíðindin þótt þau hafi raunar ekki
komið mér algerlega í opna skjöldu.
Var mér enda vel kunnugt um þau
veikindi sem höfðu hrjáð Ragnar
mörg undangengin ár.
Ragnar var rúmlega sjötugur er
Drottinn tók hann til sín, í dýrðlegan
faðm sinn.
Kynni mín af Ragga frænda, eins
I og ég kallaði hann yfirleitt, hófust
fyrir alvöru eftir að ég komst til
trúar (frelsaðist) 1989. Þau kynni
eru mér ómetanleg. Einkum vegna
þess hve Ragnar var fús til að miðla
eigin reynslu í Jesú Kristi og þeim
skilningi sem hann sjálfur hafði hlot-
ið í trúnni á Frelsarann, með Guðs
hjálp.
Ragnar gaf mér, sem sagt, mörg
góð ráð varðandi kristna trú sem
ég bý enn að. Og má segja að hann
| hafi kennt mér að lesa Biblíuna með
réttum hætti. Sjálfum mér til gagns.
Einnig var Ragnar duglegur að út-
lista fyrir mér ritningarstaði sem
hjarta mitt átti í erfiðleikum með
að skilja. Fyrir þær sakir er ég
Drottni afar þakklátur, að Hann
skyldi leiða okkur saman og gefa
einlæga væntumþykju,
hvor í annars garð.
Eftir að ég fluttist til
Neskaupstaðar, þar
sem ég bý nú, lágu leið-
ir okkar Ragnars ekki
oft saman. Aldrei lét ég
samt hjá líða að líta inn
til hans, er ég sótti
borgina heim.
Síðustu þrjú eða
flögur ár ævi sinnar bjó
Raggi sem vistmaður á
Elliheimilinu Grund í
Reykjavík. Þar sem
hann og lést.
Ég hitti Ragnar sein-
ast í liðnum ágústmán-
uði. Þá blasti við mér sjúkur maður
er sat í hjólastól. Farinn að heilsu
og kröftum. En þrátt fýrir sín veik-
indi sá ég líka styrk, von, kærleika
og fullvissu manns sem á sér trú
um upprisinn Frelsara. Augu hans
gátu ekki leynt mig þessu. Ég var
ávallt djúpt snortinn af hinni miklu
og ósveigjanlegu kristnu trú sem
Ragnar átti í farteski sínu og bar
með mikilli reisn, þátt fyrir allt og
allt.
Betri grunn, og meiri styrk getur
enginn gefíð mönnum nema Jesú
Kristur, og Drottinn sér til þess að
maðurinn missir ekki kjarkinn þótt
veikindi eða önnur óáran komi, Jesú
bregst fráleitt þeim sem hefur gert
sig að stólpa í sínu eigin lífi. Og
þessu gerði Ragnar sér glögga grein
fyrir.
Inni í litla herberginu, sem hann
hafði á Grund, átti ég með Ragnari
okkar síðustu stund, í ágúst sl. Og
tileinkuðum við Frelsaranum stund-
ina. Og henni lauk á þann hátt að
ég dró uppúr vasa mínum Nýja testa-
mentið og las fyrir Ragga 25. sálm-
inn, að hans eigin beiðni. Ragnar
tjáði mér að sálmurinn lýsti vel þeirri
baráttu sem hann háði á þeirri
stundu.
Já, ég sakna trausts og góðs vin-
ar. Þakka jafnframt Drottni mír.um
fyrir þá einlægu og hræsnislausu trú
sem Ragnar bar í hjarta sínu í ríkum
mæli, allt til dauðadags. Trú sem
hann vildi miðla til annarra.
Þessi óbilandi kristna trú Ragnars
er iíka sú mynd sem ég vil geyma
í hjarta mínu til minningar um föður-
bróður minn, vegna þess að sannari
mynd er ég ófær um að draga upp
af þessum manni. Ragnar Konráðs-
son var fyrst og fremst trúmaður
og bænamaður sem treysti Jesú í
öllum aðstæðum lífs síns.
23. sálmurinn var Ragnari kær
alla tíð. Það er því ekki úr vegi að
láta hann fylgja hér með:
„Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast, leiðir mig
að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta. Hann hressir sál mína, leiðir
mig um rétta vegu fyrir sakir nafns
síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman
dal, óttast ég ekkert illt, því að þú
ert hjá mér, sproti þinn og stafur
hugga mig. Þú býr mér borð frammi
fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð
mitt með olíu, bikar minn er barma-
fullur. Já, gæfa og náð fýlgja mér
alla ævidaga mína, og í húsi Drott-
ins bý ég langa ævi.“ (23. Davíðs-
sálmur)
Með þessari fátæklegu kveðju
kveð ég vin minn, Ragnar Konráðs-
son, hinstu kveðju. Vissulega er hér
aðeins imprað á fáu einu í æviferli
Ragnars.
Eg votta sonum hans, dætrum og
fyrrum eiginkonu mína dýpstu sam-
úð, í Jesú nafni. Amen.
Konráð Friðfinnsson.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför,
HLÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Fífumóa 5B,
Njarðvfk.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E á
Landspítalanum.
Ástþór Óðinn Ólafsson,
Aðalheiður Kristjánsdóttir,
systkini og aðrir vandamenn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJARNI S. BJARNASON,
Álfhólsvegi 47,
er látinn.
Norma
og börnin.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞORVALDÍNA AGNBORG
JÓNASDÓTTIR,
Hlíf 2,
ísafirði,
veður jarðsett frá (safjarðarkirkju laugardaginn
13. september kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Slysavarnafélag (slands,
Sigurður G. Sigurðsson, Helga M. Ketilsdóttir,
Brynjóifur I. Sigurðsson, Ingibjörg Lára Hestnes,
Elín S. Sigurðardóttir, Jóhannes Torfason,
Þórarinn J. Sigurðsson, Hildur Káradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐMUNDÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
sem lést á Hrafnistu fimmtudaginn 4. septem-
ber, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu-
daginn 11. september kl. 13.30.
Unnur Hjartardóttir, Jóhann Guðmunsson,
Oddur R. Hjartarson, Soffia Ágústsdóttir,
Sigrún Hjartardóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir,
ömmu-, langömmu, og langalangömmubörn.
UPPLÝSINGAR f SÍMUM
562 7575 & 5050 925
a
I
i HOTEL LOFTLEIÐIR
jj t c '£ í á * 0 'á i n ** o r * t §
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
RAOAUGLÝSIIMGAR
TILKVIMINIIIMGAR
Frá Hallgrímskirkju
Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju
Innritun á nýjumfélögumferfram í Hallgríms-
kirkju miðvikudaginn 10. september milli kl.
14.00 og 16.00 og fimmtudaginn 11.september
I milli kl. 13.30 og 14.30. Kórinn starfar í tveimur
deildum, yngri, 7—9 ára börn (fædd '88—'90),
og eldri, 10 ára og eldri (fædd '87—'81).
Æfingar eru á mánudögum og fimmtudögum,
yngri frá kl. 14.30—15.30 og eldri frá kl. 15.45—
17.30.
Kórstjóri er Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir.
KENIMSLA
I --------------------------------
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast 15. september. Boðið er
upp á byrjendahóp, fimm framhaldshópa
ogtalhóp. Innritað verður á kynningarfundum
í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102, miðviku-
daginn 10. september og fimmtudaginn
11. september kl. 20.30. Upplýsingar eru einnig
veittar í síma 551 0705 kl. 17 — 19 á virkum
I dögum. Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
Haustnámskeið verða haldin 15. september
til 12. desember.
Innritun ferfram alla virka daga kl. 15.00 til
19.00 í Austurstræti 3, sími 552 3870.
ALLIANCB PRANCAISB
TILBDÐ/ÚTBOÐ
Útboð
Raufarhafnarhreppur óskar eftir tilboðum í
2700 m3 jarðvegsskipti vegna lagningu bund-
ins slitlags á götur á Raufarhöfn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raufar-
hafnarhrepps frá og með fimmtudeginum 11.
september.
Skila þarf tilboðum á skrifstofu Raufarhafnar-
hrepps fyrir kl. 14.00 mánudaginn 22. septem-
ber nk.
Tilboðin verða opnuð í viðurvist þeirra bjóð-
enda sem óska að vera nærstaddir.
Raufarhafnarhreppur,
Aðalbraut 2, 675 Raufarhöfn,
sími: 465 1151, fax: 465 1121.
FÉLAGSSTARF
VVörður — Fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
Fundur vegna prófkjörs
Fundur verður í Verði — Fulltrúaráði sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík í Súlnasal Hótels Sögu •.
miðvikudaginn 17. september kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar Varðar — Fulltrúaráðsins
um að fram skuli fara prófkjör vegna fram-
boðstil borgarstjórnarkosninga næsta vor.
2. Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra.
Vinsamlega athugið að fundurinn er eingöngu
opinn félögum í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík.
Stjórnin.
- kjarni málsins!
j