Morgunblaðið - 10.09.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997 41
4
FOLK I FRETTUM
MYNDBÖND
Krakka-
spæjari
; Njósnarinn : HarHet
æ (Harriet the Spy)__
* Pjölskyldumynd
★ 1/2
Pramleiðendur: Marykay Powell.
Leikstjóri: Bronwen Hughes.
Handritshöfundar: Douglas Petrie og
Theresa Rebeck. Kvikmyndataka:
Prancis Kenny. Tónlist: Jamshied
Sharifi. Aðalhlutverk: Michelle
| Trachtenberg, Vanessa Lee Chester,
Gregory Smith, Rosie O’Donnell,
Eartha Kitt. 90 mín. Bandarikin. Cic
A Myndbönd 1997. Útgáfudagur: 19.
ágúst. Myndin er öllum leyfð.
NJÓSNARINN Harriet er byggð
á vinsælli bamabók eftir Louise
Pitzhugh, sem kom út á 7. áratugn-
um. Fjallar myndin um 11 ára
gamla hnátu,
sem ákveður að
njósna um
bekkjarfélaga
sína og niður-
stöður sínar
skrifar hún í
dagbók sína. En
þegar bókin fell-
ur í rangar
hendur ráðast
Skrakkarnir gegn HaiTÍet, þrátt fyr-
ir að athugasemdir hennar um þá
hafi allar verið réttar.
Söguþráðurinn er nokkuð athygl-
i isverður í þessari mynd, en hvemig
unnið er úr honum er önnur saga.
Leikstjórinn, Bronwein Hughes,
sem hefur fengist við auglýsinga-
gerð, gerir myndina rétt eins og
eitt langt MTV-myndband, sem er
uppfullt af stíl en hefur enga dýpt.
Kvikmyndavélin er alltaf á fleygi-
ferð og skökk sjónarhom hennar
J byi-ja að fara í taugamar á áhorf-
endum innan 5 mínútna.
Þessi stíll er notaður til að telja
( okkur trú um að eitthvað merki-
legt sé að gerast í myndinni, sem
er ekki raunin. Michelle Trachten-
berg, sem leikur Harriet, er hrika-
lega óþolandi í túlkun sinni á
stúlku sem á að hafa mikla athygl-
isgáfu. í höndunum á Michelle
verður Harriet sú athyglissjúka.
Rosie O’Donnel, sem sjaldan er
( áhorfanleg í hlutverkum sínum,
i nær að halda undarlega mikið aft-
, ur af sér í hlutverki barnfóstrunn-
I ar góðu. Tónlistin er hávær og
leiðigjörn og tæknivinnslan er öll
á röngu nótunum. Þetta hefði get-
að orðið ágætis fjölskyldumynd
hefði betur verið farið með efni-
viðinn.
Ottó Geir Borg
Yasmine
Bleeth
Sharon
Lawrence
Nokkrar af
stjörnum
Hollywood
hafa fundið
hin ýmsu ráð
til að breyta
eða viðhalda
góðu útliti án
mikillar fyrir-
hafnar
Söngkonan
Jewel
Tori
Spelling
► ÚTLIT er ofarlega í huga
margra og beitir fólk hinum ýmsu
ráðum og brögðum til að bæta
ásjónu sína. Fitusog, andlitslyfting-
ar, augnaðgerðir, brjóstastækkanir
og húðhreinsanir með geislum og
súrefni eru möguleikar sem margir
nýta sér. Flestar eru þessar aðgerð-
ir kostnaðarsamar og sái-saukafull-
ar og því ekki fyrir alla. Nokkrar af
stjörnum Hollywood hafa hins veg-
ar fundið hin ýmsu ráð til að breyta
eða viðhalda góðu útliti án mikillar
fyrirliafnar. Ráðin eru öll einföld og
í flestum tilfellum kosta þau ekki
mikið og geta jafnvel orðið til þess
að fólk fá sjálft eigin hugmyndir að
bættu útliti.
Tori Spelling er þekkust fyrir leik
sinn í Beverly Hills þáttunum. Hún
var 15 ára þegar hún aflitaði hár sitt
í fyrsta sinn og þar til fyrir skömmu
hefur hún haldið sig við ljósa litiim.
Hún er þó dökkhærð í raun og veru
og þegar hún lék í kvikmynd á síð-
asta ári þurfti hún að skipta yfir í
brúna hárlitinn vegna hlutverksins í
myndinni. Hún taldi fullvíst að fram-
leiðendur Beverly Hills þáttanna
vildu fá hana Ijóshærða á ný. Þeir
hrifust hins vegar af nýja litnum og
skrifuðu tvo þætti í kringum þessa
miklu breytingu. „Það hljómar
hræðilega en leikkonur eru teknar
alvarlegar ef þær eru ekki ljóshærð-
ar,“ segir Tori Spelling sem talar af
reynslu.
Yasmine Bleeth er ein af Strand-
varðaskutlunum og er þekkt fyrir
lögulegan líkama og fallegt andlit.
Það sem fæstir vita er að hún hefur
alla tíð nagað neglumar og þurft
að þola hneykslun þeirra
sem taka eftir því. Fyrir
fjórum ámm reyndi
hún að venja sig af
þessum ósið með
því að bera nagla-
herði á neglumar
svo hún ætti erfið-
ara með að naga
þær. Nú notar hún
naglaherði daglega
og heldur nöglun-
um í viðunandi lengd
auk þess sem hún fer
vikulega í naglasnyrt-
ingu hjá snyrtifræðingi.
Leikkonuna Sharon
Lawrence þeklqa flestir
úr lögguþáttunum „NYPD Blue“ en
þar lék hún lögfræðing. Hún segist
búa á menguðu svæði og því sé best
fyrir húðina að hjóla innandyra eða
fara í svokallað „spinning". „Ég
svitna svo mikið að húðin Iosar sig
við öll óhreinindi og viðheldur eðli-
Iegum raka,“ segir Sharon. Hún er
mikill unnandi „spinning” og slepp-
ir helst ekki degi úr en hún liljólar
samfleytt í 45 mínútur á fullum
hraða við líflega tónlist.
Bandaríska söngkonan Jewel
gefur einfalt og ódýrt útlitsráð. Til
að halda sér fallegri og frískri
drekkur hún tæpa 4 Iítra af vatni á
dag auk þess sem hún borðar mikið
af hráu grænmeti og ávöxt-
um. „Þetta er það eina
sem gerir húðina góða
þegar ég er undir
hvað mestu álagi á
tónleikaferðalög-
um. Ef ég gerði
þetta ekki væri
húðin öll í bólum
og hárið væri líf-
laust,“ segir söng-
konan Jewel.
Leikkonan Joely
Fisher leikur vinkonu
Ellenar í samnefndum
sjónvarpsþáttum. Hún
er uppalin í Hollywood
en foreldrar hennar eru
Eddie Fislier, fyrrum eiginmaður
Elizabeth Taylor, og leikkonan
Connie Stevens. Það var einmitt
móðir Joely sem ráðlagði henni að
vernda andlitið frá sólinni. „Ég
hætti mér einu sinni á ári út í sól-
ina þegar ég fer í frí. En þá ber ég
sólarvörn númer 30 á mig alla. Þið
munið aldrei sjá mig taka lit,“ seg-
ir Joely Fisher.
Joely Fisher
Einföld
útlitsráð
Minningarkort
Styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
LANDSSAMTÖK
H JARTASJÚKLINGA
í Sími 552 5744
lnnhelmt með gíróseðli
- kjarni málsins!
UTSALAN
ER HAFIN
Innanhússkór frá kr. 500,-
Æfingagallar frá kr. 1.990,-
Úlpur frá kr. 3.500,-
Háskólapeysur frá kr. 2.000,-
iþrótt
Allt að
70%
afsláttur
Verslunin íþrótt Skipholti 50d sími 562 0025
erreð ^izmo
HAG
Skrifstofustólar
LOKSINS
Á ÍSLANDI
Til framtíðar litið
EG Skrifstofubúnaöur chf
Ámiúli 20 Sími 533 5900
Sekkja-
trillup
Góð vara, -ótrúlegt verð
Aðeins kr. 7.617.- með vsk.
Fagleg ráðgjöf
Hagstætt verð
Leitið tilboða
Isoldehf.
Umböóg* é h»lldv*r*Jun
Faxafeni 10 • 108 Reykjavik
Simi581 1091 • Fnc553 0170
Skápar fyrir skjalageymslur o. fl.
þar sem hámarksnýtingar á
gólfpiássi er þörf
Fjölmargir möguleikar
Skápar
á brautum
F