Morgunblaðið - 10.09.1997, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@RITSTJ.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
A
Afrýjunarnefnd um samning Eimskips og Samskipa
Samkeppnislög brotin
í samningi skipafélaga
AFRYJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur staðfest þann úrskurð
samkeppnisráðs að samstarf Eim-
skipafélags íslands og Samskipa
um flutninga til Norður-Ameríku
brjóti í bága við samkeppnislög.
Samkeppnisráð komst að þeirri
niðurstöðu að samningur skipafé-
laganna bryti í bága við 10. grein
samkeppnislaga, en Eimskip og
Samskip tóku upp samstarf í sjó-
flutningum milli Islands og Norður-
Ameríku í janúar síðastliðnum.
Þótti Samkeppnisstofnun rétt að
taka þetta samstarf til athugunar,
en skipafélögin mótmæltu því að
samkomulagið bryti í bága við
ákvæði samkeppnislaga en til vara
var þess óskað að þeim yrði veitt
undanþága frá umræddri grein
samkeppnislaga.
„Við erum mjög ósammála þess-
ari niðurstöðu og teljum hana ekki
byggða á eðlilegum forsendum,“
sagði Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskips, aðspurður um álit á
niðurstöðunni. „Hún kom okkur í
sjálfu sér ekkert á óvart enda er
verið að prófa hvernig þessi nýju
eftirlitskerfi stjórnvalda reynast."
Forstjórinn sagði ekki taka því að
fara út í málarekstur.
Samkeppnisráð veitti skipafélög-
unum undanþágu vegna samnings-
ins til þriggja ára, eða til 1. ágúst
árið 2000, og tók ráðið m.a. tillit til
þess að flutningar milli íslands og
Norður-Ameríku hafa dregist sam-
an að undanförnu. Eimskipafélagið
áfrýjaði niðurstöðu samkeppnisráðs
til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála og vildi fá hnekkt þeirri niður-
stöðu ráðsins að samningur skipafé-
laganna bryti í bága við samkeppn-
islög.
Borgarstjóri segir ríkið gefa tóninn í samningum við kennara
Framhaldsskólakennarar
fengu 25-29% hækkun
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði á launamálaráð-
stefnu sveitarfélaganna að kjara-
samningur ríkisins við framhalds-
skólakennara ætti þátt í því að
skapa þá hörku sem hlaupin væri í
Forsætisráðherra skipar nefnd allra flokka um breytingar á kjördæmaskipaninni
kjaradeilu sveitarfélaganna við
grunnskólakennara. Samningurinn
fæli í sér 25-29% launahækkun á
samningstímanum.
Ingibjörg Sólrún sagði að í vor
hefðu kennarar og launanefnd
sveitarfélaganna verið í uppbyggi-
legum viðræðum og samkomulag
hefði verið um að leggja vinnu í að
breyta vinnutíma kennara. Andinn
í viðræðum hefði hins vegar
breyst.
„Flest vorum við með nokkuð
góðar væntingar um að kennurum
og sveitarfélögum tækist að ná
lendingu í þessum kjaramálum.
Það væri m.a. skilningur af beggja
hálfu á að skoða vinnutíma kenn-
ara. Síðan er eins og það hafi
hlaupið einhver harka í málið.
Hvenær það gerðist veit ég ekki,
en mér segir svo hugur um að þar
hafi m.a. kjarasamningur ríkisins
við framhaldsskólakennara haft
Morgunblaðið/Ómar
444 bátar
bundnir við
bryggju
nokkuð að segja. Grannskólakenn-
arar segja við okkur sveitarstjórn-
ai-menn; ríkið samdi við framhalds-
skólakennara um launahækkun á
bilinu 25-29% án þess að kennarar
þyiftu að gefa neitt á móti. An þess
t.d. að þeir þyrftu neitt að gefa eft-
ir í kennsluafslætti fyrir eldri
kennara. Sú spuming hlýtur að
vakna hvort það sé raunhæft að
ætla að við getum gert kjarasamn-
ing sem kostar miklu minna en
þetta.
Við þurfum líka að athuga hvort
einhver möguleiki er á að skoða
verkaskiptasamning ríkis og sveit-
arfélaga um flutning grannskólans.
Það er ríkið sem hefur gefið tóninn
í allri þessari kjarasamningagerð
með samningi sínum við fram-
haldsskólakennara," sagði Ingi-
björg Sólrún.
■ Eindregin krafa/10
Morgunblaðið/RAX
Hvílst á Skothúsvegi
VÍÐA er unnið af kappi að verk- þessi verkamaður tyllti sér á hellu-
legum framkvæmdum í borginni, stein með járnkarl í liöndunum og
til dæmis á Skothúsvegi þar sem laufskrúðugt tré í hárinu.
Eindreginn ásetningur
allra að ná niðurstöðu
444 bátar eru nú bundnir við
hfiygsju og era eigendur þeirra í
óvissu um hvað framtíðin kunni að
bera í skauti sér, segir Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda, í samtali við
> Morgunblaðið. I gær gaf sjávarút-
vegsráðuneytið út að þeir 167
krókabátar, sem væra í línu- og
handfærakerfinu, mættu veiða í 20
daga á nýbyrjuðu fiskveiðiári og
þeir 277 bátar, sem væra í hand-
færakerfi, mættu veiða í 26 daga á
árinu. Á sl. fiskveiðiári var fjöldi
sóloiardaga fyrir báða hópa 84.
Öm segir Landssambandið enn
vera í viðræðum við sjávarútvegs-
ráðuneytið um kröfur trillukarla um
breytingar á lögum og gólf á sókn-
ardaga burtséð frá því hvað fiskað-
ist mikið svo að tryggja mætti
->*. mönnum lágmarks lífsviðurværi.
Þrátt fyrir ævintýralegt fiskirí smá-
báta á síðasta fiskveiðiári, hafði
engan órað fyrir því að dögunum
myndi fækka svo mikið sem raun
ber vitni.
■ Tryggja þarf/25
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
hefur skipað nefnd þingmanna,
sem tilnefndir era af öllum þing-
flokkunum, til að kanna möguleika
á breytingu á kjördæmaskipaninni
og tilhögun kosninga til Alþingis.
Er nefndinni ætlað að halda áfram
störfum nefndar sem starfaði í lok
síðasta kjörtímabils og skila tillög-
um sínum fyrir lok kjörtímabilsins,
eða í síðasta lagi á þinginu
1998-99, skv. upplýsingum forsæt-
isráðherra.
„Eg tel að það sé eindreginn
ásetningur flokkanna allra að það
náist niðurstaða og að ákveðin
skref verði stigin áður en kjörtíma-
bilinu lýkur. Þess er auðvitað gætt
af minni hálfu og ríkisstjómarinn-
ar að senda ekki ákveðið veganesti
inn í nefnd sem skipuð er með
þessum hætti. Það myndi aðeins
verða til þess fallið að skapa tor-
tryggni í upphafi starfs,“ segir Da-
víð.
Ríkur vilji til að ná samstöðu
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, tekur í
sama streng og forsætisráðherra
og telur að flokkamir muni hefja
þessa vinnu á allra næstu dögum af
mikilli alvöra. „Mér heyrist á fólki
úr öllum flokkum að það sé ríkur
vilji til að ná samstöðu um niður-
stöðu og menn era reiðubúnir að
leggja töluvert á sig til að ná sam-
an. Það er mjög nauðsynlegt í
svona viðkvæmum málum að um
þau ríki samstaða," sagði Margrét.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, segir löngu
tímabært að breytingar verði gerð-
ar í þessu máli og jafnaðarmenn
gangi til þessara viðræðna af fullri
alvöra. Hann sagði hins vegar ljóst
að einfaldasta leiðin væri sú að
jafna atkvæðisrétt allra lands-
manna með því að gera landið að
einu kjördæmi og allar aðrar út-
færslur yrðu mjög erfiðar.
í nefndinni era Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra, sem er for-
maður nefndarinnar, Geir H.
Haarde, Sjálfstæðisflokki, Guð-
mundur Árni Stefánsson, þing-
flokki jafnaðarmanna, Guðný Guð-
björnsdóttir, Kvennalista, Svavar
Gestsson, Alþýðubandalagi, og
Valgerður Sverrisdóttir, Fram-
sóknarflokki.
Nefndinni verður heimilt að ráða
sér til aðstoðar sérfræðing í stjóm-
skipunarlögum og aðra sérfræð-
inga til að annast útreikninga og
aðra vinnu sem nefndin telur nauð-
synlega, að því er segir í frétt frá
forsætisráðuneytinu.