Morgunblaðið - 13.09.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 37
FRÉTTIR
Kanntu að ferðast?
NÁMSTEFNA Heimsklúbbsins um
ferðalög í Hátíðarsal Háskóla ís-
lands laugardaginn 20. september
1997.
Þótt ferðalög
setji meir og meir
mark sitt á þjóð-
lífið hefur enga
markvissa
fræðslu verið að
finna um þau fyrir
almenning og oft-
ast hending sem
ræður ferðavali
fólks.
Heimsklúbbur-
inn efnir til fyrstu námstefnu um
þetta mikilvæga efni í Hátíðasal
Háskóla íslands nk. laugardag 20.
september þar sem fjallað verður
um ferðalög nútímans í víðu sam-
hengi, fjölbreytni þeirra og tilgang
og veitt góð ráð. Yfirskrift nám-
stefnunnar er: „Að ferðast með augu
og eyru opin og með opnum hug.“
Líffræðingur mun ræða um óend-
anlega flölbreytt lífríki hitabeltisins
og samhengi lífk'eðjunnar, heilsu-
fræðingar um varrúðaráðstafanir,
hollustu og heilbrigðar lífsvenjur á
ferðalögum og veita ráðleggingar
þar að lútandi. Aðalræðumaður og
stjórnandi námstefnunnar verður
Ingólfur Guðbrandsson, einn víðförl-
asti íslendingur fyrr og síðar, sem
skipulagt hefur ferðir um allan heim
árum saman. í umfjöllun sinni mun
hann miðla af víðtækri reynslu og
ræða gildi ferðalaga til eflingar víð-
sýnni lífsskoðun og bættu mannlífi.
Námstefnan er öðrum þræði und-
irbúningur að hnattreisu Heims-
klúbbsins í nóvember en öll umfjöll-
un er almenns eðlis og á erindi við
alla sem vilja bæta ferðalög sín. Hún
stendur frá kl. 13-18 með sutttum
hléum, laugardaginn 20. september,
og er öllum opin, meðan húsrúm
ieyfir. Þátttökugjald er 5.000 kr. en
8.000 kr. fyrir hjón. Skráning fer
fram í síma 562-0400 og hjá Endur-
menntunarstofnun Háskólans í síma
525-4923 nk. mánudag og þriðjudag
kl. 9-18.
Ingólfur
Guðbrandsson
JÓHANNA Kondrup og Gréta Boða.
Ný förðunar-
miðstöð opnuð
GRÉTA Boða, hárkollu- og förðun-
armeistari, og Jóhanna Kondrup,
snyrti- og förðunarmeistari, hafa
opnað nýja förðunarmiðstöð. Þær
hafa báðar til margra ára unnið
við leikhús, sjónvarp, kvikmyndir,
auglýsingar, tískusýningar, tísku-
blöð og hefðbundna förðun innan-
lands og utan.
í boði eru stutt námskeið fyrir
konur á öllum aldri, eitt til fjögur
kvöld, einnig kvöldnámskeið fyrir
hópa. Á þessum námskeiðum fá
allir þátttakendur persónulega ráð-
gjöf um förðun við öll tækifæri.
Kynntar verða nýjustu tískulínur í
förðun fyrir veturinn ’97-’98.
Einnig er 6 vikna byijendaskóli
með möguleika á framhaldi í sér-
greinum. Að loknu námskeiði fá
nemendur viðurkenningarskjal.
Kynning verður í skólanum
sunnudaginn 14. september kl.
15-18 í Skútuvogi 11, 3. hæð.
Leiðrétting
Varalitur á forsíðu Daglegs lífs
í UMFJÖLLUN á forsíðu Daglegs
lífs í gær um gráar förðunarvörur
mátti skilja að varaliturinn á mynd-
inni væri frá Francois Nars, sem
fjallað var um í greininni. Svo er
hins vegar ekki, hann er frá Helenu
Rubinstein.
Höfundarnafnið
NAFN Önnu Sveinbjarnardóttur féll
niður í blaðinu í gær; hún var höf-
undur umsagnar um kvikmyndina
Hefðarfrúin og umrenningurinn,
sem birtist á bls. 25 með fyrirsögn-
inni „Rómantískt hundalíf". Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
Röng mynd
RÖNG mynd birtist með frétt um
haustútgáfu
Bjarts í blaðinu
í gær. Myndin
átti að vera af
Kristjáni Krist-
jánssyni rithöf-
undi og birtist
hún hér um leið
og beðist er vel-
virðingar á
Kristján þessum mistök-
Kristjánsson um.
Ríó
skemmtir á
Hótel Sögu
RÍÓ tríó, Bubbi Morthens og KK
munu skemmta gestum á Hótel
Sögu laugardagana 27. september
og 4. október.
í fréttatilkynningu frá umboðs-
skrifstofunni Þúsund þjalir kemur
fram að Ríó tríó verði skipað átta
mönnum, þeim Ágústi Átlasyni,
Helga Péturssyni og Ólafi Þórðar-
syni ásamt þeim Birni Thoroddsen
gítarleikara, Szymoni Kuran fiðlu-
teikara, Magnúsi R. Einarssyni
mandólínleikara, Gretti Björnssyni
harmoníkuleikara og Gunnlaugi
Briem trommuleikara.
Á skemmtuninni koma einnig
fram Bubbi Morthens og KK og
munu þeir syngja hvor i sínu lagi
en einnig með Ríó tríóinu. Þá leikur
einnig Tamlasveitin ásamt Agli
Ólafssyni og Sigrúnu Evu Ár-
mannsdóttur.
Þríréttaður kvöldverður er í boði
en hægt að kaupa sig sérstaklega
inn á skemmtunina sem hefst
klukkan 22 bæði kvöldin.
MÁLVERK Jóns Stefánssonar: Úr Reykjavík.
Málverkauppboð
á Hótel Sögu
GALLERÍ Borg heldur málverka-
uppboð sunnudaginn 14. septem-
ber. Uppboðið fer fram á Hótel
Sögu og hefst kl. 20.30.
Að venju verða boðin upp mörg
verk gömlu meistaranna. Þar má
nefna myndir eftir J.S. Kjarval, Jón
Stefánsson, Ásgrím Jónsson, Gunn-
laug Blöndal, Júlíönu Sveinsdóttur,
Jóhann Briem, Jón Engilberts,
Kristján Davíðsson og Karl Kvaran.
Sýning uppboðsverka verður í
nýjum húsakynnum Gallerís Borgar
í Síðumúla 34, laugardaginn 13.
september kl. 12-19, og sunnudag-
inn 14. september kl. 12-18.
Jeppasýning um
helgina hjá B&L
BIFREIÐAR og landbúnaðarvél-
ar hf. (B&L) efna um helgina til
jeppasýningar í tilefni af því að
fyrirtækið hefur haft umboðið
fyrir Land Rover um eins árs
skeið. Þar verða sýndar margar
gerðir af Land Rover bílum,
bæði litið og mikið breyttar. Er
þetta ein stærsta sýning á jepp-
um sem bílaumboð hefur haldið
hérlendis, að því er segir í frétt
frá fyrirtækinu.
Meðal þeirra bíla sem verða á
sýningunni eru Land Rover
Discovery og Land Rover Def-
ender með ýmsum útfærslum.
Ennfremur verður til sýnis Def-
ender Double Cab 130 og Range
Rover. Land Rover Defender er
arftaki eldri gerðar frá Land
Rover sem útbreidd hefur verið
í sveitum landsins. Alls hafa selst
um 160 bílar frá Rover-verk-
smiðjunum frá því B&L tóku við
umboðinu á síðasta ári.
B&L hafa stækkað sýningarsal
sinn fyrir þessa sýningu og leigt
útiljald. Á sýningunni um helgina
fá börn boli frá Land Rover og
veitingar. Sýningin stendur frá
kl. 10-17 á laugardag og 12-17
á sunnudag.
Ný stjórn Drífandi kjörin
AÐALFUNDUR Drífandi, félags
ungs alþýðubandalagsfólks í
Reykjavík, var haldinn í nýjum
salarkynnum Alþýðubandalagsins
í Austurstræti 10 miðvikudaginn
10. september. Þar var ný stjórn
félagsins kjörin fyrir starfsárið
1997-98. Hana skipa:
Steinþór Heiðarsson formaður,
Katrín Júlíusdóttir varaformaður,
Kolbeinn Óttarsson Proppé ritari
og Stefán Pálsson gjaldkeri. Með-
stjórnendur verða: Erla Ingvars-
dóttir (með aðsetur í Kaupmanna-
höfn), Harpa Hrönn Frankelsdótt-
ir og Kolbeinn Marteinsson.
Fráfarandi formaður og varafor-
maður Drífandi eru Sigþrúður
Gunnarsdóttir og Sigrún Elsa
Smáradóttir.
Ráðstefna
um varnir
gegnhnign-
un beitilanda
NOKKRAR íslenskar stofnanir hafa
sameinast um að halda alþjóðlega
ráðstefnu um myndun eyðimarka í
heiminum. Fyrsti dagur ráðstefn-
unnar fer fram á Loftleiðahótelinu
þriðjudaginn 16. september og þar
verður fjallað á almennan hátt um
beitilönd heimsins og myndun eyði-
marka.
„Jarðvegseyðing og myndun
auðna er vandamál sem hijáir stór-
an hluta mannkyns. Nýverið var
gerður sáttmáli á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna um aðgerðir til að
sporna við myndun auðna. ísland
er aðili að þessum samningi. ísland
er í hópi þeirra ríkja þar sem afleið-
ingar jarðvegseyðingar eru hvað
alvarlegastar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir: „Ráðstefnuna
sitja rúmlega 50 erlendir gestir frá
30 þjóðlöndum, fulltrúar allra
heimsálfa, m.a. frá 5 ríkjum Afr-
íku, Kína, Mongólíu, Argentínu og
Úrúgvæ, Kyrgistan, Túrkmenistan,
Indlandi, Pakistan, Nýja-Sjálandi, ..
Ástralíu, Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Meðal þátttenda eru leiðandi
vísindamenn á sínu sviði. Það er
mjög athyglisvert hve sögo og eyð-
ingu í þessum löndum svipar til
þess sem hér þekkist.
Aðstæður á Islandi eru með þeim
hætti að hér má stunda rannsóknir
á eyðingu og landgræðslu sem hafa
mikið alþjóðlegt gildi. Við getum
miðlað af reynslu okkar og hugsan-
lega er hér nýtt svið þar sem íslend-
ingar geta lagt hönd á plóg á sviði
þróunaraðstoðar.
Það sætir tíðindum þegar upp-
blástur á íslandi er settur í sam-
hengi við myndun eyðimarka á
þurrkasvæðum jarðar og á hvern
hátt íslendingar geta miðlað af
þekkingu sinni. Meðal gesta ráð-
stefnunnar eru margir sem áhuga-
vert er að fá til viðtals um eyðimerk-
ur, ástand viðkomandi ríkja, tengsl
við fátækt, hungur o.s.frv."
-----♦ ♦ ♦----
Náttúruverndar-
samtök Islands
Umhverfis-
stefna Lands-
virkjunar sjá-
ist í verki
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK
íslands hafa sent frá sér ályktun
vegna umhverfisstefnu Landsvirkj-
unar sem fyrirtækið kynnti á
fimmtudag.
I ályktuninni segir að Landsvirkj-
un hafi haft mikil áhrif á íslenska
náttúru og umhverfi með starfsemi
sinni. Það sé því fagnaðarefni að_,
fyrirtækið hafi nú tekið upp sér-
staka stefnu í umhverfismálum og
vænti Náttúruverndarsamtök ís-
lands þess að almenningur þurfi
ekki að bíða lengi eftir að umhverf-
isstefna Landsvirkjunar sýni sig í
verki.
Segja samtökin að dæmi um það
gætu verið að Landsvirkjun sam-
þykkti umsvifalaust að fram færi
mat á umhverfisáhrifum Búrfells-
línu 3A, en fyrirhugað línustæði í
Grafningsfjöllum og á Hengils-
svæðinu myndi að óþörfu raska
ósnortnu landsvæði. Einnig að
Landsvirkjun leggi niður Stein-
grímsstöð og opni fyrir Efra-Sog á
nýjan leik þannig að hinn sögu-
frægi stórurriði fái notið sín aftur.
Og að Landsvirkjun móti stefnu er
miði að því að beislun vatns- eða
varmaorku leiði ekki til aukinnar
losunar gróðurhúsalofttegunda frá
íslandi.