Morgunblaðið - 13.09.1997, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 13.09.1997, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM KVENSURNAR tvær á spennuþrungnu augnabliki. Ripley rís upp frá dauðum NÚ ER fjórða myndin í Alien myndaröðinni á leið- inni, en þrjár fyrri mynd- imar hafa skilað 350 millj- ónum dala í hagnað, eða um 25 milljörðum ís- lenskra króna. Það er kannski ekki vitlaust að reyna að mjólka þessa goð- sagnakenndu myndaröð eitthvað frekar. Nýja myndin heitir Ali- en Resurrection, og kemur nafnið af því að Ripley rís upp frá dauðum eftir vel heppnaða vísindalega til- raun. Sigourney Weaver er í hlutverki Ripleys sem endranær, og nú fær hún til liðs við sig nokkra ótrausta smygiara í bar- áttunni við geimverurnar. Eru leikararnir Winona Ryder og Dominique Pinon (úr fyrri myndum leikstjór- ans) meðal þeirra. Leikstjórinn að þessu sinni er franskur og ekki alveg ókunnur íslenskum bíóförum. Hann heitir Jean-Pierre Jeunet og er einn tveggja leikstjóra frönsku myndanna Delicatessen og City of Lost Children, sem nutu mikilla vinsælda hér á landi. Það má því búast við að útlit myndarinnar verði hressilegt. RIPLEY í faðmi skrímslis. Eftir að Jeunet og félagi hans Marc Caro luku við fyrri myndina sína, fengu þeir strax tilboð frá Los Angeles. En þá hafði lengi dreymt um að gera Borg hinna týndu barna, svo þeir kláruðu hana áður en þeir fóru að huga að tæki- færum í Ameríku. Dag einn fékk Jeunet símtal frá umboðsmanni HLUTI „story- boardsins" sem Jeunet lét teikna. eigin eyrum, því hann er mikill aðdáandi fyrstu Alien myndarinnar eftir Ridley Scott (Blade Runner, Thelma & Lou- ise). Tilhugsunin um að feta í fótspor manna eins og James Cameron (True Lies, Terminator 1 & 2) og David Fincher (Seven) sem gerðu Alien myndir númer 2 og 3, fannst honum líka þægileg. Handritshöfundur Ali- en 4 er Joss Whedon sem skrifaði Toy Story. Jeu- net var mjög ánægður með sumt í handritinu, en öðru breytti hann og fann m.a. nýjan endi sem allir voru ánægðir með, líka fjárhaldsmennirnir. Hann reyndi líka að fá félaga sinn Marc Caro til að vera með, en hann treystir ekki alveg amer- íska bíómyndakerfinu, og kaus því að sitja heima. Hann gerði samt fyrsta uppdrátt að bún- ingum. Til kvikmyndatö- kunnar valdi Jeunet Dar- ius Khondji sem tók báð- ar fyrri myndirnar hans, og sem nú er mjög eftir- sóttur í Hollywood eftir að hann tók Evitu og Seven. Jeunet fékk að fresta tökum á myndinni um tvo mánuði, þar til hann var búinn með hið svo- kallaða „story-board“ á allri myndinni. Þá er hvert skot myndarinnar ákveðið og teiknað upp, ekki ólíkt teiknimynda- sögu, og það notað til hliðsjónar við upptökur myndarinnar. Heildarfjármagn til gerðar Alien Resurrecti- on er 75 milljónir dala, sem í íslenskum krónum talið er fimm og hálfur milljarður. Um það segir Jeunet: „Það er vissulega mikill Qárhagslegur sínum í Ameríku, og hann spurði þrýstingur á mér, en það sem er hvort hann hefði áhuga á að gera mikilvægast, er að ég hef listrænt Alien 4. Hann trúði varla sínum frelsi." MYNDBÖND Fjölskyldu- lausir félagar Elisa (Elisa) D r a m a ★ ★ Framleiðandi: Fihns Christian Fec- hner. Leikstjóri: Jean Becker. Handritshöfundur: Jean Becker og Fabrice Carazo. Kvikmyndataka: Etienne Becker. Tónlist: Zbigniew Preisnern, nema lagið „Elisa“ er eftir Serge Gainsbourg. Aðalhlut- verk: Vanessa Paradis, Gerard Derapdieu, Clotilde Courau og Sekkou Sall. 111 mín. Frakkland. Gaumont/Skífan 1997. Myndin er bönnuð börnum innan 12 ára. MARIE er fjölskyldulaus og það eru félagar hennar líka. Þau þvæl- ast saman um Parísarborg og gera það sem þau vilja. Marie gengur þó alltaf með það í maganum að hefna sín á pabba sínum sem fékk mömmu hennar til að fremja sjálfsmorð. Elisa er svolítið flöt mynd og ekki alveg laus við franska tilgerð. Hún er fremur tíðinda- og átakalítil á öllum svið- um og þótt aðalpersónan sé sögu- maður í myndinni er samt erfitt að átta sig á persónunum og til- finningum þeirra. Það verður seint sagt að nokkurt þeirra félaga sé sérstaklega heillandi persónuleiki. í einu atriðinu reyna þau með svindli að ávaxta peningana sína. Hvort sem það er til heiðurs Pet- ers Bogdanovichs eða ekki er þetta atriði nákvæmlega eins og í mynd hans “Paper Moon“. Leikararnir eru frekar góðir. Krakkarnir þrír standa sig bara vel og ungfrú Paradis sannar að hún getur ýmislegt. Depardieu er frábær leikari og þarf ekki annað en að vera. Hér fínnst mér hann góður sem endranær en ekki nógu sannfærandi þegar hann er sem fyllstur. Hildur Loftsdóttir N G\ K á Laugard. 13. sept. Kl. 17.00 sfðdegisjazz á Jómfrúnni við Lækjargötu: Djassklúbbur RúRek: Höfuðlausn, djasshljóm- sveit Egils B. Hreinssonar Kl. 17:30 Saxófónaflokkur- inn Raum Musik i Listasafni íslands Kl. 21:00 Frank Foster og Stórsveit Reykjavikur í Súlnasal Hótel Sögu Kl. 23.00 RúRek á miðnætti: Spuni i tali og tónum á Jómfrúnni við Lækjargötu Miðasala i Japis Brautarholti Miðapantanir i sima 551 0100. Námufélagar Landsbankans fá afslátt. Útvarpið klagað í útlöndum ERFIÐLEGA gengur, eins og oft áður, að hafa frið fyrir pólitíkinni við mannaráðningar til Ríkisút- varpsins. Einkum er áberandi nú til dags að borið er við að vanti faglega þekkingu í heilabú þeirra sem fá störfin á sama tíma og þeir sem ekki fá þau eru að springa af faglegri þekkingu. Varla er hér átt við meðferð á mikrófónum eða þekkingu á meðferð upptöku- tækja. Þess vegna hlýtur að vera átt við faglega þekkingu á mann- lífínu almennt eða pólitík. Þá er spurning hvort um er að ræða vinstri, miðju eða hægri faglega þekk- ingu. Fulltrúar Al- þýðubandalagsins, sem aldrei hafa komið nálægt pólitík, þegar þeir ræða faglega þekkingu og ráðn- ingar í störf, hafa nýlega tekið stóra rispu i faglegri þekkingu út af konu sem er þeim að skapi. í beinu framhaldi af því saka þeir aðra um ófaglegar pólitískar ráðn- ingar. Síðan er maður hrakinn frá Dagsljósi í sjónvarpinu án þess nokkur bregði honum um faglegt þekkingarleysi. Hér er um að ræða helsta leikhúsgagnrýnanda lands- ins, sem hefur með ágætum sagt kost og löst á leiksýningum í sjón- varpi undanfarin ár. Miðað við faglega þekkingu Allaballa, sem ræður ríkjum í vinnustaðarpólitík fjölmiðilsins upp á ein sextíu pró- sent, kemur á daginn að leikhúslíf- ið virðist að meirihluta líka stjórn- ast af faglegri þekkingu Allaballa, sem yfirskyggir faglega þekkingu gagnrýnandans. Hún er þó hin eina viðurkennda fagþekking sem við höfum. Þátturinn Dagsljós hefur hlýtt ákveðinni kröfu fagídj- óta. Völd þeirra má marka af því að sex fulltrúar, allir með fag- lega þekkingu skyldi maður halda, hafa klagað Ríkisútvarpið á þingi Nordfag austur í Helsinki, vegna þess að Allaballar fá ekki alfarið að stjórna ráðningum starfsfólks hjá Ríkisútvarpinu. Hér eftir má ætla að allar leiksýningar verði dæmdar frábærar í Dagsljósi af amatörum. Hafnar eru sýningar á stór- myndinni Gettysburg í sjónvarpi, sem verður skipt á alls þijú sunnu- dagskvöld. í Gettysburg stóð feiknarleg orrusta í Þrælastríðinu í Norður - Ameríku dagana 1.-3. júlí 1863. Þar lenti saman megin- herjum Norður- og Suðurríkja. Lauk orrustunni með því að Suður- ríkin töpuðu í fyrsta sinn stórt fyrir Norðurríkjunum. Átti þess ósigurs eftir að gæta það sem eftir ríkti stríðsins. Sigur Norður- ríkjamanna í þessu stríði hafði mikil áhrif á heimsbyggðina, því eftir hann töldu þeir sig í fullum færum við að létta öðrum þjóðum baráttu við einræði og ófrelsi. Samt hafa þeldökkir menn og Indí- ánar talið skorta nokkuð á jafn- rétti sitt þrátt fyrir allt frelsistal- ið. Gettysburg er fræg mynd enda geta Bandaríkjamenn horft þar á margar þjóðhetjur sínar endur- bornar. Hins vegar fékk hún ekki neinar stórkostlegar viðtökur þeg- ar hún kom. Samt er hún ein af kílómetrasteinum bandarískrar kvikmyndasögu við hlið „Birth of a Nation" eftir Griffith og annarra ámóta mynda. Stöð 2 sýndi mynd um kappann Howard Hughes, sem baslaði við margt um sína daga og sumt mis- jafnlega frækilegt. Hann hannaði fræga bjóstahaldara á Jane Russ- ell, leikkonu, flaug einni af vélum sínum í kringum hnöttinn og gift- ist um síðir frægri og fallegri leik- konu, Jane Powers, minnir mig að hún héti, um það bil sem hann var að verða sjúkur eftir flugslys, sem lýsti sér í því að enginn mátti koma nálægt honum. Eiginkonan sótt hið snarasta um skilnað en sjálfur tók hann heilar hæðir á leigu í hótelum og lokaði þær af. Hann safnaði hári og skeggi og nöglum á fingrum og tám og hafði þegar best gekk einn og hálfan milljarð í tekjur á dag. Menn hafa löngum talað um ameríska draum- inn. En ef hann er eitthvað í lík- ingu við ástandið á Howard Hug- hes, eins og heimildarmyndin lýsir honum, má sjálfur paurinn lifa þann draum. Fyrst taldi ég mig hafa kynnst þessum manni í gegn- um bókina „The Carpetbaggers", sem náði m.a. til Hollywood-ára hans, þegar hann átti og stjórnaði ROKO Radio Pictures og var að fást við Jane Russell. Kannski hefur það verið hálfgerð þjóðsaga, eins og flest sem hefur um þennan mann verið sagt. Indriði G. Þorsteinsson SJÓIMVARP Á LAUGARDEGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.