Morgunblaðið - 26.09.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.09.1997, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Aðstaða fatlaðra við sundlaugar Aðkallandí að auka víð- legnpláss við bryggjur í DAG verður tekin fyrsta skóflu- stunga að nýju hafnarhúsi Hafna- samlags Norðurlands við Fiskitanga á Akureyri. Nýja húsið verður 430 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Þar verður í framtíðinni öll starfsemi hafnarinnar auk aðseturs Fiskistofu. Þeir átta starfsmenn sem vinna hjá Hafnasamlaginu eru í dag með aðstöðu á þremur stöðum en á næsta ári verður breyting þar á. Gengið hefur verið frá samningi við P. Al- freðsson ehf. um byggingu hússins en félagið átti lægsta tilboð í verkið, 48 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóðaði hins vegar upp á 50,3 millj- ónir króna. í verkinu felst einnig að ganga frá lóð og byggja undirstöður undir nýja bílavog. Framkvæmdir hefjast eftir helgi en gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið að innan um miðj- an apríl á næsta ári og hinn 1. júlí verði húsið tilbúið að utan og lóð frágengin. Úttekt á umferð um höfnina Eins og komið hefur fram er orð- ið mjög aðkallandi að auka viðlegu- pláss við bryggjur á Akureyri. Guð- mundur Sigurbjörnsson hafnarstjóri segir að Siglingastofnun hafi gert úttekt á hafnaraðstöðu og umferð um höfnina í ársbyijun 1995. í þeirri úttekt hafi komið í ljós að nýting bryggjukanta hafi verið 91-203% fyrir skip stærri en 500 brúttótonn. í samþykktri hafnaáætlun er gert ráð fyrir að byggður verði 120 metra viðlegukantur við vesturhluta Fiski- hafnarinnar og að við dýpkun hafn- arinnar verði mokað upp um 80-90 þúsund rúmmetrum af efni. Dýpi við vesturkantinn verður 9 metrar en það er aðeins 7 metrar við austur- kant Fiskihafnarinnar og segir Guð- mundur að það sé of lítið dýpi. Hann segir að sex af skipum Útgerðarfé- lags Akureyringa og Samhetja geti ekki lagst við austurbakkann fyrir vikið. Vegna aukinnar eftirspurnar eftir viðleguplássi hefur stjórn Hafna- samlags Norðurlands óskað eftir því við stjórnvöld að fá að hefja fram- kvæmdir við vesturkant fiskihafnar- innar strax á næsta ári og ljúka framkvæmdum í einum áfanga. Heildarlengd viðlegukantsins er áætluð 190 metrar og við heildar- dýpkun þarf að moka upp um 200 þúsund rúmmetrum af efni. „Þetta mál er til umfjöllunar í stjórnkerfinu en ég vonast eftir já- kvæðri niðurstöðu ekki síst í ljósi sterkra raka fyrir framkvæmdinni,“ sagði Guðmundur. Þjálfunarlaug á Kristnesi nýtt GREINARGERÐ sviðsstjóra fé- lags- og heilsugæslusviðs og fræðslu- og frístundasviðs Akur- eyrarbæjar um sundlaugarmál fatl- aðra var lögð fram á fundi bæjar- ráðs í gær. Átta fulltrúar hags- munafélaga höfðu áður ritað bæjar- ráði bréf þar sem farið er fram á úrbætur í sundlaugarmálum fatl- aðra. Niðurstaða sviðsstjóranna er sú að raunhæfast sé að horfa til sund- laugarinnar við Kristnesspítala í framtíðinni fyrir þá sem mest eru fatlaðir. Þar til hún kemst í notkun sé æskilegast að reyna að sinna þörfum hópsins í sundlaug Glerár- skóla í sambúð við þá starfsemi sem þar er fyrir. „Æskilegt er að Akur- eyrarbær leiti leiða til að stuðla að því að byggingu þjáifunarsundlaug- ar við Kristnesspítala ljúki sem fyrst,“ segir í greinargerð sviðs- stjóranna. Bæjarráð tekur undir þetta sjón- armið og bendir á að vegna breyttr- ar notkunar á húsnæði að Sólborg hafi þjálfunarlaug fyrir fatlaða sem þar var verið lögð niður, en hún var byggð fyrir söfnunarfé. Fól bæjarráð bæjarstjóra að taka upp viðræður við ríkið vegna þessa máls. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, segir í bókun sinni að ljóst sé að enn um sinn verði að- staða fatlaðra í sundlaugum Akur- eyrarbæjar ófullnægjandi. DEILISKIPULAG fiskihafnarinnar, milli lóðar ÚA að norðan og Skipatanga, hefur verið sam- þykkt. Deiliskipulag vöruhafnar þar fyrir sunnan er í kynningu en þar er m.a. gert ráð fyrir því að lengja Laufásgötu til norðvesturs og að hringtorgi á Hjalteyrargötu á móts við Grenivelli. Unglinga- diskó DANSSMIÐJA Hermanns Ragnars og Dansskóli Auðar Haralds standa fyrir unglinga- diskóteki á Ráðhúskaffí, Akur- eyri á morgun, laugardaginn 27. september frá kl. 16 til 18. Margt verður til skemmtun- ar, kenndir verða diskó- og „spice girls“-dansar og sýning- arflokkur frá dansskólanum sýnir slíkan dans, haldin verður Spice girls eftirhermukeppni. Skemmtunin verður á efri hæð hússins en sú neðri er opin foreldrum og öðrum gest- um. Línudanskennsla verður frá kl. 21 til 22 þar sem Jóhann Örn kennir nýjustu sporin og frá kl. 23 stjórnar hann dansi og boðið verður upp á danssýn- ingu. i Breyting á aðalskipulagi Akureyrar í Krossaneslandi Akureyrarbær auglýsir skv. 17. og 18. grein skipulags- laga, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar, sem gerð er til samræmis við auglýst deiliskipulag iðnaðar- og athafnasvæðis í Krossaneshaga og hafnarsvæðis í Krossanesi, sem samþykkt hafa verið af Akureyrarbæ. Eftirtaldar breytingar eru gerðar: 1. Krossanesbraut veröur lögð nær núverandi vegstæði en gert er ráð fyrir í gildandi aðalskipulagi þannig að áfangaskipting og uppbygging veröi hagkvæmari en ella. 2. Síðubraut er sveigð lítillega til norðurs og með því löguð þetur að landslagi. 3. Byggingarsvæði og umferðarkerfi iðnaðarsvæðis í Krossaneshaga eru skilgreind í samræmi við deiliskipulag. 4. Byggingarsvæðum í Krossaneshaga sem skilgreind eru sem svæði til síðari nota er breytt í svæði til notkunar á skipulagstímabilinu. 5. Hafnarsvæði í Krossanesi er afmarkað í samræmi við deiliskipulag og endanleg stærð landfyllingar norðan Krossaness. 6. Umferðartenging hafnarsvæðisins við Krossanes- braut er færð til samræmis við deiliskipulag. Breytingartillagan liggur frammi almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 8 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 21. nóvember nk. Þeir sem þess óska geta kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdír. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00, 21. nóvember nk. Þeir sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna breytingarinnar, er bent á að gera athugasemdir innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir tillögunni. Skipulagsstjóri Akureyrar. Rætt um meugun í bæjarráði UMRÆÐUR um mengun í Akur- eyrarbæ fóru fram á fundi bæjar- ráðs í gær, að ósk Odds H. Halldórs- sonar bæjarfulltrúa Framsóknar- flokks. Sérstaklega var rætt um lyktarmengun frá verksmiðjunni í Krossanesi, kjötreykingu Kjarna- fæðis við Fjölnisgötu og rykmengun frá malbikunarstöð bæjarins. Fram kom á fundinum að hafin er endurnýjun tækja í Krossanesi sem verulega eiga að draga úr lykt- armengun frá verksmiðjunni, heil- brigðisnefnd hefur veitt Kjarnafæði frest til úrbóta til 15. nóvember næstkomandi og þá hefur verið samþykkt að setja upp rykhreinsi- búnað við malbikunarstöðina áður en starfsemi hennar hefst vorið 1998. Flugfiskar? Morgunblaðið/Kristján HARÐBAKUR EA, ísfisktogari Útgerðarfélags Akureyringa hf., hélt til veiða í gær og þykir kannski ekki í frásögur færandi. Hins vegar var eins og skipveij- arnir, sem stóðu frammi á hval- bak, ætluðu á flugfiskveiðar og væru þegar farnir að Iíta í kring- um sig. Svo var nú ekki og þeir voru aðeins að fylgjast með flug- vél sem var á leið til Iendingar á Akureyrarflugvelli. I > > > I > Ákærður fyrir að kaupa fíkniefni Héraðsdómur sýknaði HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands hefur sýknað 24 ára gamlan mann sem ákærður var vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni. Maðurinn var kærður fyrir að kaupa í nóvember síðastliðnum 20 grömm af amfetamíni og 5 alsælu- töflur af manni í Reykjavík sem sendi efnin með flugi til ákærða á Akureyri. Forsagan er sú að maðurinn var handtekinn í tengslum við annað mál og fundust þá á honum tvær kvittanir fyrir peningagreiðslum. Skýrði hann svo frá að önnur greiðslan hefði verið vegna fíkni- efnakaupa. Fyrir dómi neitaði hann sakargiftum og sagði játningu sína fyrir lögreglu ranga og dró hana til baka. Kvittunina kvað hann hafa verið vegna greiðslu á láni. Önnur gögn en kvittun fyrir símgreiðslu voru ekki lögð fram. Þótti dómnum sú skýring ekki ótrúlegri en sú sem fram kom við yfirheyrslu hjá lög- reglu. Varhugavert væri að telja nægilega sannað með þeim gögnum sem fram voru lögð að hann hefði keypt fíkniefni og var maðurinn því sýknaður. > > I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.