Morgunblaðið - 26.09.1997, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Afrek
HVERNIG má vera
að þjóð, sem sjaldnast
nær íþróttaafrekum í
fremstu röð án þess
að grípa þurfi til
höfðatölusamanburð-
ar, getur státað af af-
reki sem allar Evrópu-
þjóðir vildu hafa unn-
ið? Að ekki sé minnst
á að það gerist í landi
þar sem aðeins er
hægt með góðu móti
að iðka þá íþrótt í fjóra
mánuði á ári, á meðan
erlendir keppendur
eru valdir úr milljón-
um iðkenda, sem æfa
íþrótt sína við kjörað-
stæður allan ársins hring?
Hér er átt við afrek kylfingsins
unga frá Akureyri, Ómars Hall-
dórssonar, sem varð Evrópumeist-
ari í golfi átján ára og yngri í sum-
ar. Ofnotkun á efsta stigi lýsingar-
orða, sérstaklega í umfjöllun um
íþróttaafrek, gerir það að verkum
að illmögulegt er að koma almenn-
ingi í skilning um hve mikið afrek
hér er um að ræða.
Ómar atti kappi við bestu kylf-
inga Evrópu í sínum aldursflokki,
í móti sem fram fór á Ítalíu í sum-
ar. Þrátt fyrir ungan aldur hafa
þessir kylfingar náð ótrúlega langt
í íþrótt sinni. Verðlaunin voru þau
æðstu sem nokkur ungur kylfingur
getur látið sig dreyma um en það
er að komast í Ryderlið unglinga
og keppa fyrir Evrópu við lið
Bandaríkjanna. Síðast en ekki síst
fer þessi keppni fram á sama stað
og á svipuðum tíma og Ryder-
keppni aldarinnar, eins og sumir
kalla hana, fer fram. Þá gefst hin-
um ungu kylfingum tækifæri til
að hitta og umgangast nánast alla
frægustu kylfinga heims. Þess
vegna geta verðlaun, fyrir ungan
kylfing, ekki orðið betri en hér er
um að ræða.
Hvað þarf til að eignast
Evrópumeistara í golfi?
Ljóst er að Evrópumeistaratitill
unglinga 18 ára og yngri vinnst
ekki án þess að margt komi til.
Hann liggur fyrst og fremst í vinnu
Ómars Halldórssonar, sem hafði
óbilandi trú á sjálfum sér og á því
að hann gæti unnið mót sem þetta.
Það skal játast að hvorki golffor-
ystan eða golfkennari
hans, höfðu látið sig
dreyma um þessa nið-
urstöðu. Þess vegna
eru það hæfileikar og
sjálfsöryggi Ómars
sem ráða mestu. Fleira
kemur til, fjölskylda
Ómars hefur stutt
hann vel og dyggilega
og gert honum kleift
að stunda íþrótt sína
af jafnmikilli kost-
gæfni og raun ber
vitni. David Barnwell,
golfkennari hjá Golf-
klúbbi Akureyrar, hef-
ur kennt Ómari frá því
hann hóf að leika golf.
Hans þáttur og klúbbsins er mjög
mikilvægur og verður sennilega
seint ofmetinn. Þá hefur öflugt
unglingastarf Golfsambands Is-
lands gefið Ómari tækifæri til að
keppa á erlendri grundu og þannig
Ofnotkun á efsta stigi
lýsingarorða, sérstak-
lega í umfjöllun um
íþróttaafrek, segir
Hannes Guðmunds-
son, gerir það að
verkum að illmögulegt
er að koma almenningi
í skilning um hve
mikið afrek hér er
um að ræða.
hefur hann fengið reynslu sem
fullyrða má að hafi nýst honum í
Evrópukeppninni í sumar. Þess
má geta að, þrátt fyrir ungan ald-
ur Omars, hefur Golfsamband ís-
lands sent hann í fimmtán keppnis-
ferðir erlendis á undanfömum
árum, þar sem hann hefur keppt
fyrir Islands hönd. Af framansögðu
er ljóst að margt þarf að koma til
að afrek sem þetta náist, og vafa-
laust má nefna enn fleiri atriði sem
skipta máli. En afrekið er fyrst og
fremst Ómars Halldórssonar.
ÓMAR Halldórsson, Evrópu-
meistari i golfi, átján ára og
yngri.
Með sigri sínum munu dyr opn-
ast fyrir Omari, t.d. ef hann hefur
áhuga á að stunda nám í Banda-
ríkjunum, þá er vitað að hann get-
ur valið úr háskólum. Enda er al-
mennur skilningur bæði þar og
mjög víða í heiminum, á því hvað
þurfí til að komast í Ryderúrval.
Til að sá draumur rætist að ís-
land eigi fulltrúa í Ryderliði Evr-
ópu, og er þá átt við aðallið Evr-
ópu, þurfa allir sem koma nærri
að leggja sig enn betur fram. Það
starf byggist á unglingastarfi
hvers klúbbs, starfi GSI, stuðningi
styrktaraðila og starfi kylfinganna
sjálfra. Vonast er til að þetta afrek
opni augu þeirra sem sitja í stjórn
Afreksmannasjóðs fyrir golfíþrótt-
inni og því starfí sem þar er unn-
ið. Leggist allir á eitt er víst að
við munum uppskera og ekki mun
líða á löngu þar til ísland eignast
fulltrúa í Ryderliði Evrópu.
Um leið og Golfklúbbi Akur-
eyrar, David Barnwell og Ómari
Halldórssyni er óskað til hamingju
með unnið afrek, er vonast til að
það megi hvetja unga kylfinga og
forystumenn í íþróttahreyfingunni
til enn frekari dáða.
Höfundur er formaður
Golfsambands íslands.
SLa^V
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1980- 2.fi. 1981- 2.fi. 1982- 2.fl. 1987-2.fl.A 6 ár 25.10.97 -25.10.98 15.10.97 - 15.10.98 01.10.97 - 01.10.98 10.10.97 kr. 336.126,40 kr. 202.251,00 kr. 142.336,30 kr. 41.602,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextii; vaxtavextir og verðbætui:
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1,
og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 26. september 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS
Látið
blómin tala
ÞAÐ er sunnudagur í lok febr-
úar. Úti er tíu stiga frost og skaf-
renningur. Klukkan er níu að
morgni. Fjallmyndarlegur íslensk-
ur karlmaður í vetrarfrakka og
kuldastígvélum berst við veður og
vind í leit að blóma-
búð. Auðvitað væri
hann sofandi heima í
rúminu sínu ef þetta
væri ekki á íslandi á
fyrsta degi góu, sjálf-
an „Konudaginn" -
með stórum staf - og
sú hefð komin á að
allir karlar landsins
færa „konunni í lífi
sínu“ blóm á þessum
degi. Inni í blómabúð-
inni gengur hann
keikur að blómavös-
unum, bendir á túlíp-
anana og segir með
nokkru stolti við af-
greiðsludömuna: „Ég
ætla að fá fimmtán svona rósir“.
Nákvæmlega þetta gæti hafa
gerst fyrir um það bil tíu árum,
þegar aðeins var um að ræða fáein-
ar tegundir afskorinna blóma á
hverri árstíð - og samnefnari allra
blóma var orðið „rósir“. Þetta voru
árin þegar túlípanar og önnur slík
laukblóm fengust á veturna, krýsi
og nellikkur á haustin en rósirnar
á sumrin. Þótt rósirnar væru bara
til í blómabúðunum yfir hásumar-
ið, voru þær í hugum allra árið
um kring, því rósir - og þá helst
rauðar - hafa alltaf verið tákn um
ást og aðrar háleitar hugsanir.
í dag þekkja allir túlípana frá
rósum, jafnvel veðurbarðir víking-
ar á „Konudeginum". Tímamir
hafa breyst. Viðskiptavinirnir gera
meiri kröfur til blómakaupmanns-
ins og blómakaupmaðurinn krefst
meira af garðyrkjumanninum.
Garðyrkjumennirnir, blómafram-
leiðendur, hafa svarað þeim kröf-
um með því að bjóða upp á aukið
úrval blóma í ræktun árið um
kring. íslenskar rósir eru nú tiltæk-
ar alla daga og framboð á öðrum
tegundum gefur í litlu eftir því sem
þekkist erlendis.
Þau 15 ár sem ég hef verið
viðriðin blómasölu hafa ýmsar
breytingar orðið í sölu blómanna.
Tilefnunum til blómagjafa hefur
líka fjölgað. Þegar ég byrjaði voru
helstu tilefnin þau að fagna nýjum
einstaklingum með því að færa
sængurkonum blóm, vinir fengu
afmælisvendi, við sendum syrgj-
endum samúðarvendi. Mæður
fengu blóm á „Mæðradegi" og eig-
inkonan á „Konudegi". í „blómada-
gatalið" hafa nú bæst við fastir
„blómadagar“. „Bóndadagurinn"
er orðinn mikill blómasöludagur -
og nú elska eiginkonur jafn heitt
á Bóndadegi og eiginmenn á Konu-
dag, ef mæla má ástina í seldum
fjölda af blómvöndum.
„Valentínsdagur - dagur elsk-
endanna" [það er afkáralegt að
nota tvöföldu eignarfallsendinguna
- tínusar, líkt og við segðum Há-
konars!] Dagurinn er kenndur við
heilagan Valentín (hann heitir svo
í íslenska dýrlingatalinu!), píslar-
vott og dýrling elskenda. Hann
setti sig upp á móti skynsemis- og
haghjónaböndum og öðrum boðum
og bönnum yfirvalda sem giltu um
samgang og ástir ungmenna á
hans tíð, 14. febrúar, er líka orðinn
fastur í blómadagatalinu okkar.
Það er virkilega ánægjulegt að sjá
„unga og ástfangna“ hlaupa um
bæinn á þessum degi gefandi blóm!
Nú á dögum eru allar jákvæðar
tilfinningar tjáðar í fegurð og ein-
lægni með því að gefa blóm! -
Hvað er yndislegra?
Blómatískustefnur
hafa líka borist hingað
til lands frá Evrópu.
Blómvendir og skreyt-
ingar hafa tekið breyt-
ingum. Lögun og lita-
val, form og framsetn-
ing birtast stöðugt í
nýjum útfærslum.
Frumleikinn og fjöl-
breytnin í blómabind-
ingum eru í sífelldri
þróun og endurskoðun
eins og aðrar tísku-
hreyfingar. Þessar
hreyfingar eru örar og
blómakaupmenn hafa
sig alla við að fylgjast
með og fara eftir smekk, vilja og
óskum viðskiptavinanna. Blóma-
verslanir á íslandi eru margar -
og flestar þeirra geta státað af
frábæru fagfólki við blómaskreyt-
ingarnar.
Það er líka gaman að geta verið
Allar jákvæðar tilfinn-
ingar, segir Hjördís
Jónsdóttir, eru nú
á dögum tjáðar í fegurð
og einlægni með
blómagjöfum.
virkilega stoltur af því sem maður
lætur frá sér fara. íslensk blóm
eru einstaklega góð vara sem
stenst allan samanburð við það
sem flutt er inn af blómum og
skara reyndar oftast framúr í öllu
gæðamati og endingu. íslenskir
blómaframleiðendur hafa tileinkað
sér allar þær nýjungar sem völ er
á við framleiðsíuna. Við njótum
líka þeirra forréttinda á sumrin að
hafa góð birtuskilyrði fyrir blóma-
rækt. Það sjáum við til dæmis á
lit blómanna. íslensk blóm hafa
langtum skærari og hreinni liti en
erlend framleiðsla. Ég fullyrði að
íslenskar rósir eru fallegustu og
sterkustu rósir í heimi! Þær geta
staðið ótrúlega lengi, ef vel er
hugsað um þær. Lykillinn að því
að láta blómvendina endast eins
lengi og kostur er, er að gæta
þess að blöðin á blómstilkunum
lendi aldrei ofan í vatninu, nota
hreint vatn með blómanæringu og
umfram allt: Alltaf hreina vasa!
Öllum þykir notalegt að vera í
návist blóma. Þau fegra umhverfið
og laða fram allt hið jákvæða í
fari hvers einstaklings.
Og nú getur hinn veðurbarði vík-
ingur frá Islandi, sem ég minntist á
í upphafi, hvenær sem er átt von á
því að „hið ljósa man“ hans á ís-
landi sendi honum ástarkveðju með
blómum - hvar svo sem hann er
staddur í heimunum. Hvort sem
hann er á leiðinni upp á Everest-
fjall eða flatmagar á suðrænni sólar-
strönd, klæddur sundskýlunni einni
saman á sextugsafmælinu sínu! Int-
erflora-þjónustan sér um það!
Höfundur er blómaskreytari.
Hjördís
Jónsdóttir
• •
• w
• •
• •
sœtír sofar*
HÚSGAGNALAGERINN
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 »