Morgunblaðið - 26.09.1997, Síða 41

Morgunblaðið - 26.09.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 41 MINNINGAR + Guðbjört Guð- bjartsdóttir fæddist 11. október 1906 í Grindavík. Hún lést á Landa- kotsspítala hinn 20. september síðast- liðinn. Foreldrar henn- ar voru Guðbjartur Guðmundsson og Jóhanna Bjarna- dóttir. Guðbjartur lést af slysförum er Guðbjört var enn ófædd. Jóhanna giftist siðar Vil- hjálmi Jónssyni frá Miðhúsi í Grindavík og gekk hann Guð- björtu í föðurstað. Hálfsystkini Guðbjartar eru: Regin Baldur Vilhjálmsson, Kristinn Vil- hjálmsson, látinn, og Jóhanna Vilhjálmsdóttir. Ennfremur átti hún uppeldissystur, Arn- fríði og Magnússínu Vil- hjálmsdætur. Guðbjört giftist Herjólfi Guð- Elsku amma Bjarta. Nú ertu farin til Guðs og engl- anna og nú fínnur þú ekki lengur til. Þú varst alltaf svo góð við okk- ur og kallaðir okkur alltaf litlu krakkana. Við munum sakna þín mikið en minningarnar um þig geymum við í hjarta okkar. Það verður tómlegt hjá okkur á aðfangadagskvöld er þú verður ekki hjá okkur og á sunnudögum hittum við þig ekki hjá ömmu Birnu og afa Bjarti. Sofðu rótt elsku amma Bjarta. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. jónssyni, f. 25.12. 1904, Herjólfur lést af slysförum 31. janúar 1951. Guð- björt og Herjólfur eignuðust þrjá syni, þeir eru: Bjarni, kvæntur Unni Ket- ilsdóttur, og eiga þau eina dóttur, Auði. Guðbjartur, giftur Birnu Magneu Bogadótt- ur, og eiga þau einn son, Heijólf. Birna á einn son frá fyrra sambandi, Boga Sigurðsson, hann er kvæntur Sigríði Garðarsdóttur, og eiga þau tvö börn, Garðar, og Birnu Magneu. Guðjón giftist Jó- hönnu Jónsdóttur, en hún er látin, og eignuðust þau þijár dætur, þær eru: Ásta Júlía, Guðbjört og Margrét Sigríður. Útför Guðbjartar fer fram frá Áskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. G&rðar og Birna Magnea. Elsku amma Bjarta. Að kveðjustund er komið og minningarnar streyma um hugann. Það er svo margt sem rifjast upp þegar maður byijar að hugsa til baka. Ég man alltaf eftir því þegar ég kom í heimsókn til þín á Klepps- veginn og teiknaði myndir og þú hengdir þær upp á vegginn inni í svefnherberginu hjá þér. Og þegar við fórum í allar bæjarferðirnar, keyptum okkur ís og löbbuðum um. Svo þegar við smíðuðum bátinn og fórum niður í fjöru til að láta hann sigla og ég gleymi aldréi bekknum góða á Dalbrautinni, þaðan eigum við aldeilis góðar minningar. Nú kveð ég þig, elsku amma mín, vitandi til þess að við munum að lokum hittast að nýju. Þinn Heijólfur. Þegar minnst er Björtu á Ein- landi eins og hún var ávallt kölluð í vinahópi og þeirra sem til þekktu „sækir svipþyrping þing“ og hjá hugskotssjónum líða myndir af fólki og umhverfi sem nú er horfíð að fullu. Það voru góðar manneskjur, sem áttu heima uppi á bæjum sem kallað var í Vestmannaeyjum, um og eftir miðja öldina, samhjálp mik- il og sönn vinátta meðal fólks. Þetta fólk er nú flest komið yfir móðuna miklu en eftir lifum við sem vorum þá unglingar og börn. Þetta var sérstakur heimur; fólk bjó í sveit en einnig í þróttmesta útgerðarbæ landsins á vetrarvertíð- inni, sem stóð frá áramótum og fram undir miðjan maí. Þegar komið var upp úr Skarði en svo var nefndur stígurinn, sem lá skáhallt upp brekkuna frá Valla- nesi meðfram hlöðnum túngörðum Vesturhúsa, blöstu við tún gömlu býlanna frá hæðinni, þar sem Vest- urhús tróndu yfir umhverfíð. Þetta voru tún og girðingar Presthúsa, Búastaða og Ólafshúsa. Efst í þess- ari torfu, sem var stundum nefnd girðing, stóð Einland. Nafnið var lýsandi, húsið stóð þarna eitt og sér, snyrtilegt og látlaust, beint suður af Oddsstöðum, þar sem Herjólfur, eiginmaður Björtu, var borinn og bamfæddur. í eldgosinu bar þetta stílhreina og látlausa hús oft við ægilegan eldinn í ljósmynd- um sem hafa verið birtar um allan heim. Einland var næsta hús, steinsnar austan við æskuheimili mitt, Bessa- staði. Þær voru góðar vinkonur móðir mín, Guðrún Brandsdóttir, og Bjarta, og höfðu áhuga á handa- vinnu og útsaumi, en trúmál og framhaldslíf að loknu þessu lífi var þeim sérstaklega hugstætt og trúðu báðar af einlægni á annað líf. Ég á margar og góðar minningar um Björtu á Einlandi og þangað var ætíð gott að koma. Heimilið var snyrtilegt svo að af bar og Bjarta mikil húsmóðir sem unni mjög fjöl- skyldu sinni og heimili. Heijólfur Guðjónsson var sérstakur atorku- maður, ósérhlífinn og fylginn sér, sjálfmenntaður og víðlesinn. Við strákarnir í nágrenninu, vinir þeirra Einlandsbræðra, áttum margar góðar stundir heima á Einlandi. Á rigningar- og óveðursdögum undum við okkur þar vel við að skoða svo- nefndar „Villabækur“, en svo nefndum við margar þykkar bæk- ur, innbundna árganga danska fjöl- skyldublaðsins Familie Journal, sem Heijólfur heitinn átti og las. Þar var teiknimyndasagan „Willie pá eventyr“ og stundum vorum við heilu dagana, naðurlausir, að skoða þessi skemmtilegu og fróðlegu blöð. Ég mætti alltaf sömu hlýjunni hjá Björtu, en vorið 1951, sama árið og Heijólfur heitinn fórst, lásum við Bjarni saman undir landspróf. Glitfaxaslysið hafði djúpstæð áhrif á alla Vestmannaeyinga. Bjarta var þá kona á miðjum aldri. Ég held að hún hafí aldrei jafnað sig á því skelfilega slysi, miklu og skyndilegu höggi sem sló alla, en margir áttu þar um mjög sárt að binda. Svo kært hafði verið á milli þeirra hjóna að Bjarta tregaði Heij- ólf það sem hún átti eftir ólifað, í 46 ár. Ég minnist þeirra hjóna sem drengur er þau sátu ásamt foreldr- um mínum í túnfæti og nutu þeirr- ar fögru sveitar og veðurblíðu sem gat verið uppi á bæjum á sumrin og var mikil andstæða hinna hörðu vetrarstorma, þegar Víkin og Ytri- höfnin var í einu kófi. Saltur brim- úðinn, blandinn regni og slagviðri lagðist þá yfir alla Heimaey, en óvíða eða hvergi voru austan veðrin jafn hörð og þarna austast á Heima- ey við rætur Helgafells. Bjarta hélt heimili með sonum sínum eftir andlát Heijólfs og fóruV^ þeir að vinna og leggja til heimilis- ins um leið og þeir höfðu aldur til. Bjarta gaf mjög greinargóða lýs- ingu á hvernig eldgosið í Heimaey byijaði aðfaranótt 23. janúar 1973, en frá Einlandi var sérstaklega víð- sýnt og fagurt útsýni yfir bæinn, innsiglinguna og til landsins; Fljóts- hliðin, Hekla og Þríhyrningur blöstu við af tröppunum og Eyjafjallajök- ull handan Ellireyjar og Bjarnareyj- ar. Eftir að Bjarta flutti til Reykja- víkur, bjó hún fyrst að Kleppsvegi^. 124 og bjó þar með Guðjóni, en er hann kvæntist flutti hún að Klepps- vegi 32, þar sem Vestmannaeyingar bjuggu. Síðustu árin dvaldi hún á Dvalarheimilinu að Lönguhlíð 3 og naut umhyggju sona sinna og tengdadætra og þeirra fjölskyldna. Bjarta á Einlandi var sérstaklega gestrisin, vinur vina sinna, vönduð kona sem vildi öllum vel og bar hag fjölskyldna þeirra fyrir bijósti. Bjarta þjáðist síðari hluta ævinn- ar af skjaldkirtilssjúkdómi, en bar ekki erfiðleika sína á torg. Undan- farna mánuði hafði hún dvalið á Landakotsspítala og þar fékk hún hægt andlát í sátt við Guð og menn hinn 20. september sl. Heiðurskona^ er látin. Við andlát Björtu á Einlandi er flett blaði í bók mikillar og merki- legrar sögu sem brátt er aðeins til í bókum, en ekki á vörum þeirra sem lifðu þar sín manndómsár. Ég og fjölskylda mín þökkum henni góð kynni, vinsemd og alúð frá því ég fyrst man eftir. Sonum hennar og fjölskyldum þeirra vottum við innilega samúð við fráfall góðrar og fórnfúsrar móður, ömmu og langömmu. ^ Blessuð sé minning Björtu á Ein- landi. - Guðjón Ármann Eyjólfsson. GUÐBJORT GUÐBJARTSDÓTTIR + Sigurður Jóns- son var fæddur í Hafnarfirði 9. desember 1921. Hann lést í Land- spítalanum 20. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Jón Bergsteinsson, fæddur í Ottar- staðakoti við Hafn- arfjörð, og Kristín Andrésdóttir, fædd í Hafnarfirði. Son- ur þeirra auk Sig- urðar var Kolbeinn, f. 30. ágúst 1925, d. 7. septem- ber 1975. Hinn 4. október 1947 kvænt- ist Sigurður Margréti Þorleifs- dóttur, f. í Hafnarfirði 28. júlí 1926, d. 25. október 1995. Börn þeirra voru: Jón, f. 6. mars 1948, d. 28. desember 1987, eiginkona Auður Adolfsdóttir. Þorleifur, f. 1. október 1949, eiginkona Lillý Jónsson. Björg- vin, f. 17. apríl 1951, eiginkona Aðalheiður Einarsdóttir. Sig- urður Már, f. 11. mars 1953, sambýliskona Hrönn Sigur, Siggi frændi og æskuvinur er látinn. Nú á kveðjustund þegar leið- ir skiljast er margs að minnast frá- okkar æskuárum. Það er næstum því hægt að hugsa sér, að það hafi verið sérréttindi að hafa fengið að alast upp í Hafnarfirði á þessum árum. Við ólumst upp í vesturbæn- um, þar sem leikvöllurinn var hraunið, fjörurnar, bryggjurnar og athafnasvæði Hafnfirðinga. Strák- arnir brölluðu margt í þá daga, fóru í leit að draugum í Hellershúsum eða Svendborg, sem svo var kallað, en aldrei fundum við þá. Veiðar f. 17. febrúar 1959, eiginmaður Björg- vin Högnason. Fyr- ir hjónaband Margrétar og Sig- urðar átti Margrét son, Grétar, f. 12. september 1944. Eiginkona hans er Margrét Vilbergs- dóttir. Frá 16 ára aldri til 20 ára aldurs stundaði Sigurður sjósókn frá Hafnar- firði, en um 1941 hóf hann að keyra vörubifreið fyrir Jón Gíslason útgerðarmann frá Hafnarfirði. Sigurður stundaði vörubíla- akstur fyrir Jón Gíslason og hans fyrirtæki i samfellt 22 ár, eða til ársins 1963 að hann keypti sína eigin vörubifreið og fór að keyra hjá Vörubíla- stöð Hafnarfjarðar. Stundaði hann sjálfstæðan vörubílaakst- ur til loka árs 1995. Útför Sigurðar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. voru stundaðar af bryggjum og bátum og veiddur var smáufsi og koli og veiðin oftast gefin konum er áttu ketti. Farið var í ferðalög um hraunið, haft nesti með sér undir forustu „Gauja lóna“ sem var dálítið eldri en við og farið í leiki. Við Siggi áttum frænda sem hét Grímur Andrésson og var bróðir mæðra okkar, alltaf kallaður „frændi". Fengum við að „setja í“ hjá honum, hann var okkur mjög kær og má segja að við ælumst að nokkru leyti upp hjá honum í „gamla Ford“ eða „Chevrolet" bíl- unum, en hann var bílstjóri í Hafn- arfirði, kannske hefur þá verið lagð- ur grundvöllur að ævistarfi Sigga, sem var bílaakstur. Þegar vel viðr- aði um helgar eða á frídögum setti Grímur frændi „boddy“ á vörubíls- pallinn, sem svo var nefnd og frændfólki og kunningjum boðið í ferðalag úr bænum. Snemma fórum við í fiskvinnu á sumrin en það var að breiða og taka saman saltfisk á reitum, þegar sólin skein og þurrt var veður. Þessi ár voru nefnd „kreppuár". Þá var mikið atvinnu- leysi og fátækt. Vel var fylgst með skipakomum í höfnina, mótorbát- um, línuveiðurum, og togurum, stundum komu fæeyskar skútur og fengum við þá hjá þeim „beinakex" og fengum lánaða hjá þeim báta til að róa á um fjörðinn. Við vorum í bamaskólanum við lækinn, var það nokkuð langur gangur fyrir okkur krakkana að sækja skóla þangað. Á mánudögum fórum við alltaf í KFUM því þá kom séra Friðrik Friðriksson úr Reykja- vík og sagði okkur sögur og var alltaf húsfyllir hjá honum. Þegar við fórum heim í mat mættum við oft Ásgeiri Stefánssyni útgerðar- manni sem var að fara heim til sín að borða, heilsuðum honum og sögðum, sæll Ásgeir. Hann tók undir og sagði, hver á þig „góði“. Siggi var ákaflega góður félagi, hjálpsamur og greiðvikinn, leiðir okkar skildu er ég flutti úr bænum, en seinna hittumst við oft og hans ágæta kona sem hann missti fyrir nokkm. Þá voru rifjaðir upp hinir gömlu dagar. Margs var að minn- ast. Siggi ól allan aldur sinn í Hafnar- firði, eignaðist góða konu og mann- vænleg börn. Ég kveð Sigga frænda með þakk- látum huga og sendi aðstandendum hans hlýjar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigurðar Jónssonar. Það á vel við að enda þessa minningargrein með kvæðinu „Þú hýri Hafnarfjörður". M hýri Hafnarfjörður sem horfír móti sól. Þó hraun þín séu hijóstrug er hvergi betra skjól. Þinn fagri fjallahringur með fönn á efstu brún og hamraborgir háar, á holti gróin tún. Sér leikur létti blærinn við lága klettaströnd. Þar bærist fley á bárum og blika seglin þönd. Er dvína dagsins glæður og daprast geislatjöld þín gæti gamli Qörður hin góðu máttarvöld. (Guðl. Pétursd.) Andrés Guðjónsson. Elsku afi. Þegar við kveðjum þig koma upp í hugann ótal góðar minn- ingar. Þú varst mjög hlýr og góður afi og gleymum við aldrei þeim yndislegu stundum sem við áttum með þér. Þegar við vorum yngri vorum við oft í pössun hjá ykkur ömmu á Arnarhrauninu og var það alltaf mikið tilhlökkunarefni að koma til ykkar. Við gerðum margt skemmti- legt saman og voru ferðirnar í vöru- bílnum ógleymanlegar. Við söknum þess að heyra þig ekki lengur blístra eða tralla, sem þú gerðir svo oft þegar þú varst í góðu skapi. Þið amma voruð mjög samrýnd og glæsileg hjón. Ykkur var mjög umhugað um fjölskylduna og þið fylgdust af áhuga með okkur öllum. Þegar amma veiktist reyndi mik- ið á styrk þinn. Eftir andlát hennar fyrir tveimur árum og þegar þú varst hættur vörubílaakstrinum hafðir þú mikla ánægju af að taka þátt í félagsstarfi aldraðra ásamt Diddu og Dúnu mágkonum þínum. Við vitum að vinátta þeirra og trygglyndi var þér mikils virði. Við kveðjum þig með þakklæti. Blessuð sé minning þín. Erla og Margrét. í örfáum orðum langar mig að minnast Sigurðar Jónssonar sem við kveðjum í dag. Siggi, eins og hann var ávallt kallaður, var giftur móðursystur minni, henni Maju. Hún dó fyrir tæpum tveimur árum. Þegar ég minnist Sigga er Maja einnig í huga mér því þau voru svo samrýnd og einhvern veginn eins og ein manneskja. Þau voru ekki bara ein af fjölskyldunni einnig voru þau nágrannar okkar í mörg ár. Börnin þeirra og við systkinin vorum á sama aldri og fylgdumst því að í leik og skóla. Það var því ekki bara að við hittumst heima hjá afa og ömmu, þar fyrir utan vorum við líka góðir vinir. Það vat*j ekki hvað síst þeim hjónum að þakka hvernig sambandið var. Þau lögðu sitt af mörkum til að rækta fjölskylduböndin og vináttuna. Maja og Siggi nutu þess að taka á móti sínum nánustu. Fjölskyldan var stór og oft margt um manninn á heim- ili þeirra þegar tilefni gafst til að gleðjast saman. Það þótti því alveg sjálfsagt að allir mættu bæði stórir og smáir, þau höfðu alltaf nóg pláss fyrir alla. Þegar við systkinin og síðar börnin mín héldum upp á áfanga og tímamót létu þau sig ekki vanta til að samgleðjast fjöl- skyldunni. Síðustu árin bjuggu Maja og Siggi í sama húsi og móð; ir mín á Hjallabraut 33 hér í Hafif arfirði. Það var góð tilfinning fyrir okkur systkinin að vita af þeim í sama húsi. Þau studdu hvort annað þegar þess þurfti með og áttu marg- ar góðar stundir saman, hvort held- ur var á ferðalögum eða heima í léttu spjalli. Var Dúna systir þeirra oft með og var þá oft létt yfir mannskapnum. Það var mikill miss- ir fyrir alla þegar Maja dó, því þar fór líka stór hluti af Sigga svo ná- tengd voru þau. Það er vissulega gott að eiga góðar minningar um fólk eins og þau. í huga mínum ég þau fyrir mér hlæjandi, því ávallt var stutt í gamansemina hjá Sigga. Það er því stórt skarð orðið í fjöl- skyldunni okkar við fráfall þeirra beggja. Við munum minnast þeirra með hlýhug og þakklæti. Blessuð sé minning þeirra. F.h. okkar systkina, Gyða Hauksdóttir. SIGURÐUR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.