Morgunblaðið - 26.09.1997, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna Contact með Jodie Foster og Matthew McConaughey í aðalhlutverkum. Myndin
er gerð eftir metsölubók Carls Sagans og leikstjóri hennar er Robert Zemeckis sem leikstýrði Forrest Gump.
Skilaboð
úr geimnum
JODIE Foster í hlutverki Ellie Arroway að hlusta eftir merkja-
sendingum utan úr geimnum.
Driver er vafalaust það
æskuverka leikkonunn-
ar sem lifir lengst, og á
það var hún eftirminni-
lega minnt árið 1981
þegar bijálæðingur að
nafni John Hinckley
reyndi að drepa Ronald
Reagan Bandaríkjafor-
seta. í ljós kom að
Hinckley lifði og hrærð-
ist í Taxi Driver og var
með Jodie Foster á hei-
lanum. Atvikið varð til
þess að gera hana frá-
hverfa kvikmyndaleik
um skeið og næstu ár
einbeitti hún sér að bók-
menntanámi, sem hún
lauk síðar með láði.
Að því loknu hellti
hún sér út í kvikmynda-
gerðina að nýju og ein
fyrsta myndin sem hún
lék þá í var Hotel New
Hampshire. Árið 1988
sannaði hún svo endan-
lega að hún var, þrátt
fyrir glæstan feril
barnastjörnu, umfram
allt leikkona framtíðar-
innar. Þá hreppti hún eftir mikla
þrautagöngu aðalhlutverkið í
myndinni The Accused, sem fjall-
aði um hlutskipti fórnarlambs
nauðgunar og meðferð þess í rétt-
arkerfinu. Afraksturinn var fyrri
Oskarsverðlaunastyttan, en
seinni Óskarsverðlaunin hreppti
hún svo fyrir leik sinn á móti
Anthony Hopkins í myndinni um
Hannibal Lecter, Silence of the
Lambs.
Eftir það er Jodie Foster orðin
ROBERT Zemeckis leik-
stjóri Contact við tökur
á myndinni.
MATTHEW
McConaugh-
ey leikur Pal-
mer Joss sem
stendur eins
og klettur
við hliðina á
Ellie vin-
konu sinni.
ekki dalað eftir því sem hún hef-
ur elst og þroskast. Þvert á móti
hefur hún eflst sem leikkona með
árunum og er nú án nokkurs
vafa í fremstu röð kvikmyndaleik-
kvenna í heiminum.
Árið 1976 þegar Jodie Foster
var á fjórtánda ári sló hún í gegn
svo um munaði í kvikmyndaheim-
inum og hlaut sína fyrstu Óskars-
verðlaunatilnefningu. Þá réð
Martin Scorsese þessa þrettán ára
stelpu til að ieika barnunga vænd-
iskonu í Taxi Driver, þá sem
leigubílstjóranum Travis Bickle
finnst hann þurfa að bjarga.
Þessu hlutverki skilaði Jodie Fost-
er af ótrúlegum og nánast óskilj-
anlegum þroska og uppskar í
samræmi við það.
Enginn vefengdi að Óskars-
verðlaunatilnefning fyrir besta
leik í aukahlutverki ætti rétt á
sér. Sama ár hlaut hún tvenn
BAFTA-verðlaun (breski
óskarinn); önnur fyrir
besta leik í aukahlut-
verki og hin sem
besti nýliði. Taxi
Frumsýning
DR. ELEANOR Arroway
(Jodie Foster) hefur leit-
að svara alla sína ævi.
Sem lítil stúlka vakti hún á nótt-
unni til að hlusta á aðrar raddir
svara sinni með talstöðvarsam-
bandi. Í menntaskóla hóf hún síð-
an að leita radda utan úr geimn-
um og dag einn í eyðimörkinni
fær hún svo skilaboð frá stjörn-
unni Vega sem er í sex milljóna
ljósára fjarlægð frá jörðinni.
Skilaboðin fela í sér byggingu á
farartæki sem getur flutt eina
mannsekju út í geiminn. Þegar
heimsbyggðin fer að ókyrrast
vegna þessara skilaboða verður
Eleanor umdeild og álitin hættu-
leg mannkyninu. Hún þarf að
berjast fyrir því að fá að stjórna
rannsókn málsins og að verða
fyrst jarðarbúa til að komast í
samband við íbúa stjörnunnar
Vega.
Leikstjóri Contact er Robert
Zemeckis sem vann til Óskars-
verðlauna fyrir mynd sína Forrest
Gump, en aðrar myndir sem hann
á að baki eru t.d. Who Framed
Roger Rabbit?, Back to the Fut-
ure, Romancing the Stone, Death
Becomes Her og Used Cars. Höf-
undur sögunnar er hins vegar
vísindamaðurinn Carl Sagan sem
lést í desember síðastliðnum, en
hann hafði hátt á annan áratug
reynt að fá gerða kvikmynd eftir
sögu sinni. Það var svo loksins
árið 1993 sem endanlega var
ákveðið að gera myndina og var
Jodie Foster fastráðin í að takast
á við aðalhlutverkið þegar henni
stóð það til boða. Foster er orðin
35 ára gömul og hefur hún tví-
vegis hlotið óskarsverðlaun en
hún hefur fjórum sinnum hlotið
tilnefningu til verðlaunanna.
Jodie Foster var bamastjarna
og á ferli sem spannar næstum
alla ævi hennar hefur hún leikið
í rúmlega 20 kvikmyndum. Hún
er hins vegar undantekning frá
reglunni því ferill hennar hefur
að stofnun í Hollywood og meðal
áhrifamestu manna þar í borg.
Hún hefur farið fremur sparlega
með sig síðan en þó leikið í
Shadows and Fog eftir Woody
Allen, Sommersby á móti Richard
Gere, Maverick með Mel Gibson
og síðast í Nell þar sem hún lék
á móti Liam Neeson.
Matthew McConaughey var rétt
að hasla sér völl sem leikari þegar
honum bauðst hlutverk lögmanns-
ins Jake Brigance í A Time to
Kill og síðan hefur hann ekki þurft
að kvíða verkefnaskorti. Frægð
hans var reyndar komin í hámark
áður en myndin var frumsýnd því
fjölmiðlar kepptust um að fjalla
um þessa nýju stjörnu meðan á
tökum myndarinnar stóð. Kast-
ljósinu hefur ekki verið beint að
verðandi stjörnu með líkum hætti
síðan Sharon Stone sló í gegn í
Basic Instinct á sínum tíma.
McConaughey er fæddur 1969 í
Texas og var hann uppgötvaður
þar sem hann var við nám í kvik-
myndagerð við Texas-háskóla.
Það vildi þannig til að hann hitti
kvikmyndaframleiðandann Don
Phillips fýrir tilviljun og leiddi það
til þess að hann fékk hlutverk í
myndinni Dazed and Confused
(1993). í fyrstu átti hann aðeins
að koma fram í þremur stuttum
atriðum en endirinn varð sá að
hlutverk hans varð eitt hið veiga-
mesta í myndinni. Árið 1993 pakk-
aði McConaughey saman og ók
sem leið lá til Los Angeles og á
fimmta degi þar var hann kominn
á samning hjá umboðsskrifstofu
William Morris. Fyrsta prufutakan
leiddi til þess að hann fékk aðal-
karlhlutverkið í myndinni Boys on
the Side, sem þær Whoopi Gold-
berg, Mary-Louise Parker og
Drew Barrymore fóru með önnur
aðalhlutverk í, og áður en hann
var valinn í hlutverkið í A Time
to Kill lék McConaughey á móti
Bill Murray í myndinni Larger
than Life, og einnig lék hann í
mynd John Sayles, Lone Star.
Fjölmargir þekktir leikarar fara
með aukahlutverk og fremstan í
flokki ber að refna James Woods
sem síðast lék í Ghosts from the
Past, sem nú er sýnd í Háskóla-
bíói. Aðrir sem nefna má eru John
Hurt (Midnight Express, The El-
ephant Man), Tom Skerritt (Picket
Fences, A River Runs Through
It), Angela Bassett (What’s Love
Got to Do With It, Waiting to
Exhale) og Rob Lowe (Bad Influ-
ence, Iiving in Peril).
Stutt
Japanir ekki
í bíó
►JAPANSKAR kvikmyndir
njóta velgengni á alþjóðlegum
kvikmyndahátíðum en heima í
Japan hefur áhugi almennings
minnkað á innlendri framleiðslu.
Mynd Shohei Imanmura,
„Unagi“, vann til verðlauna á
Cannes, „Hana-bi“, mynd Tak-
eshi Kitano, var verðlaunuð í
Feneyjum, og „Má bjóða þér í
dans?“ eftir Masayuki Suo nýtur
mikilla vinsælda í Bandaríkjun-
um, en heima í Japan streymir
fólk ekki i bió.
Sérfræðingar í kvikmyndaiðn-
aðinum i Japan efast um að loks
fari að birta yfir japanskri kvik-
myndagerð. Þeir segja að pen-
inga vanti til þess að gera al-
mennilegar kvikmyndir og þess
vegna Iáti Japanir sig vanta í
kvikmyndahús Iandsins. Eitthvað
gæti þó verið að rofa til. Jap-
anska teiknimyndin „Mononoke
prinsessa" hefur slegið í gegn
og 10 milljónir séð hana í Japan.
MYNPBONP_______
Hatrinu hefnist
Rómeó og Júlía
(Romeo + Juliet)____________
Astardrama
★ ★ ★ 'A
Framleiðandi: Bazmark. Leikstjóri:
Baz Luhrman. Handritshöfundur:
Craig Pearce og Baz Luhrman.
Kvikmyndataka: Donald M. McAlp-
ine. Tónlist: Nellee Hooper. Aðal-
hlutverk: Leonardo DiCaprio,
Claire Danes, Brian Dennehy, John
Leguizamo, Pete Postlethwaite,
Paul Sorvino, Diane Venora. 120
mín. Bandaríkin. 20th Cent.
Fox/Skífan 1997. Myndin er bönnuð
börnum innan 12 ára.
ALLIR þekkja ástarsögu Rómeo
og Júlíu. Hér er hún kvikmynduð
á nýstárlegan hátt undir stjórn
Ástralans Baz Luhrmans.
Hér sannast það enn og aftur
hve klassísk verkin hans Shakespe-
ares eru. Þótt þessi útfærsla á
verkinu eigi sér stað i nútímanum,
þá er hið naska auga Villa fyrir
mannseðlinu enn
í fullu gildi og er
örsjaldan í mót-
sögn við tíðarand-
ann. í þau fáu
skipti sem svo ber
undir, afsakast
það af því að í
upphafi er áhorf-
endum sýnt fram
á það að Verona
er ekki sú eina sanna á Ítalíu,
heldur ímynduð borg og þess vegna
með ímyndaðar samfélagsreglur.
Leikstjórinn er mjög myndrænn
og mikill stílisti. Hann notar sér
óspart alla þá möguleika sem kvik-
myndin hefur upp á að bjóða sem
miðill og er hver rammi stútfullur
af tilbrigðum við þá. Þessi mynd-
ræni stíll ásamt hinum flúruðu
bundnu samtölum gera myndina
stundum allt að ofhlaðna, svo erf-
itt er að fylgjast með öllu sem er
að gerast í einu. Þess vegna er
jafnvel betra að sjá myndina tvisv-
ar til að njóta alls sem
fyrir auga og eyru ber.
Leonardo DiCaprio er
mjög góður í sínu hlutverki
sem er fullkomið fyrir
hann, álappalegan ungl-
inginn í ástarsorg. Claire
Danes er fín leikkona en ekki sér-
lega mikill karakter, og verður því
minna áberandi en DiCaprio.
Gömlu karlarnir Brian Dennehy
og Paul Sorvino sóma sér vel í
hlutverki feðranna, þótt þau hlut-
verk séu ekki sérlega bitastæð.
Persónusköpun öll er hin skemmti-
legasta. Leikararnir eru sumir
valdir vegna útlitsins og er það
hluti stílsins sem kemur samt ekki
niður á túlkuninni.
Veiki punktur myndarinnar er
eiginlega atriðið
þegar Rómeó og
Júlía verða ást-
fangin, og atriðið
eftir á í sundlaug-
inni. Það verður
jafnvel langdregið
þar sem það
hreyfir of lítið við
manni. Það er
sorglegt að eftir
allt þetta tilstand
fer hápunkturinn
fyrir ofan garð og
neðan. Það var
helst að tónlistinni
tækist að ýta und-
ir það að einhverj-
ar ljúfsárar til-
finningar kæmu
upp á yfirborðið.
Yfir heildina hefðþ tónlistin mátt
vera betur valin. í hana vantaði
bæði kraft og karakter.
Kvikmyndin Rómeó og Júlía
heldur manni við tækið allan tím-
ann því hún er klassísk saga um
mannlega breiskleika sem allir
geta haft gaman af. Skilningarvit-
in hafa nóg að gleypa og melta,
en hjartað hefði mátt hafa meiri
ástæðu til að taka kipp.
Hildur Loftsdóttir