Morgunblaðið - 01.10.1997, Page 19

Morgunblaðið - 01.10.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 19 ERLENT Reuter Stormur kostar 68 manns lífið Dhaka. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 68 manns biðu bana í stormsveipi sem gekk yfir eyjar í Bengal-flóa um helgina og stjórnin í Bangladesh sagði að tekist hefði að bjarga þúsundum mannslífa með því að vara íbúana við óveðrinu og flytja um milljón þeirra frá eyjunum. Yfirvöld sögðu að ekki væri búist við að tala látinna myndi hækka verulega og manntjónið hefði verið miklu minna en óttast var vegna viðbúnaðarins. „Þar sem Allah var okkur góður hefur okkur tekist að afstýra miklu eigna- og uppskerutjóni," sagði talsmaður forsætisráðuneyt- isins. Embættismenn í Chittagong sögðu að 40.000 hektara hrís- gijónauppskera hefði eyðilagst í illviðrinu. Embættismennirnir sögðu að þúsundir sjálfboðaliða hefðu að- stoðað lögreglu- og hermenn við að flytja íbúana á brott eftir að sendar höfðu verið út viðvaranir um óveðrið. Fólkið var flutt í sér- stök skýli, sem reist voru eftir að stormsveipur varð 138.000 manns að bana í Bangladesh í apríl 1991. Japanar koma Indónesum til aðstoða MOHAMED Rahmat, upplýs- ingamálaráðherra Indónesíu (t.v.), og Nomura Issei, sendi- herra Japans, prófa þrýstistúta sem Japanar hafa gefið Indónes- um ef það mætti verða að liði í baráttu þeirra síðarnefndu við gífurlega loftmengun sem vald- ið hefur neyðarástandi víða á eyjunum undanfarnar vikur. Auk Japana hafa Ástralir og Frakkar boðið mannskap og tæknibúnað til aðstoðar. Malas- íar hafa sent fleiri slökkviliðs- menn til að berjast við skógar- elda er brenna á eyjunum Borneó og Súmötru og hafa valdið loftmenguninni. Fulltrúar þeirra ríkja, er b hafa Indónesum aðstoð vegni eldanna, funduðu í Jakarta í j ásamt fulltrúum stofnana Sai einuðu þjóðanna (SÞ), og ger voru áætlanir um viðbrögð. F trúi SÞ sagði að gífurlegt um hverfisslys hefði orðið. Astan hefur þó skánað nokkuð því r hefur frá því um helgina og hvesst og hefur loftmengunir ni létt umtalsvert af þeim sökun Deila Frakka og Bandaríkjamanm um viðskipti við íran Reynt að af- stýra milli- ríkjadeilu París, Brussel, London. Reuter. FRANSKA stjórnin, sem stendur frammi fyrir milliríkjadeilu við Bandaríkin vegna samnings franska olíufyrirtækisins Total um ga- svinnslu í íran, lagði á það áherzlu í gær að samningurinn væri gerður af einkafyrirtæki án afskipta opin- berra aðila. Og Sir Leon Brittan, sem fer með viðskiptamál í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, ESB, sagðist í gær vona að Bandaríkin gengju ekki svo langt að reyna að beita hið franska fyrirtæki refsing- um vegna samningsins, eins og bandarísk stjórnvöid hafa hótað að gera í samræmi við umdeild banda- rísk lög sem sett voru í því augna- mjði að hindra erlendar fjárfestingar í íran, Líbýu og á Kúbu. Brittan sagði samninginn „við- skiptalega ákvörðun" sem Total bæri eitt ábyrgð á og lagalega hefði fyrirtækið allan rétt til að taka slíka ákvörðun. „Evrópusambandið er eft- ir sem áður fastákveðið í andstöðu sinni við að Bandaríkin setji lög og beiti þeim utan lögsagnar þeirra," sagði Brittan. „Slík iöggjöf spillir fyrir pólitísku samstarfi þar sem hún skapar spennu í samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna, sem veldur því að erfiðara verður að ná fram sam- eiginlegum pólitískum markmiðum í íran.“ Óviðkomandi sljórnvöldum Jacques Rummelhardt, talsmaður franska utanríkisráðuneytisins, sagði samninginn „ekki koma stjórn- völdum við“. Þetta væri viðskipta- samningur milli fyrirtækja. „Þetta er ekki samningur sem þarfnast leyfisveitingar af hendi franskra stjórnvalda," sagði hann á fr-“-- mannafundi í París. Mike McCurry, talsmaður I hússins, sagði á fréttamannafu Washington að bandarísk stjón væru að skoða samninginn, en myndi taka nokkurn tíma að ko að niðurstöðu um hvort hann í bága við umrædd iög sem voru í fyrra og ætluð eru til að I á viðskiptabanni gegn íran og L Á mánudag hafði talsmaður ba ríska utanríkisráðuneytisins sa{ refsiákvæðum þessara laga yrði laust beitt gegn Total. Aðrir i ættismenn í Washington sögðu í að þrátt fyrir beinskeytt orð þessi vonuðust menn til að ts myndi að leysa þessa deilu án að hún skaði samskipti bandama Olíufyrirtæki fylgjast grannt með í London sögðu í gær sérfræi ar í alþjóðlegum olíuviðskiptur vestræn olíufélög muni fylgjast með því hvort Bandaríkin ger raun til að refsa Total-fyrirtæ fyrir að dirfast að fjárfesta í Hver niðurstaðan verður hefur r þýðingu fyrir allan viðskiptaheir sagði Mehdi Varzi, yfirmaður deildar alþjóðlega fjármálaþjóni fyrirtækisins Dresdner Klein Benson. „Tugir stærstu olíul tækjanna líta til írans, þar á n mörg bandarísk." íran, sem er þriðja stærsta útflutningsland í heimi og býr næststærsta gasmagni í jörðu sem vitað er um, er hvað sem st málum líður einn eftirsóttasti st olíufyrirtækja til fjárfestinga. ORÐABÆKURNAR S4.00Ö emk uppRettiorð Ensk íslensk orðobók Engfish-lcefendlt Dictsonary - Dönsk íslensk islensk dönsk orðnbók ENSk íslensk ^ ensk orðobók ~ir— ítelnrtátc-Ssgbsi' DUKannry íslensk # jg* íslensk f - ^ Frönsk islensk íslensk fr«nr| tronsi orðnbók jtölsk •slensk ■siensk ítölsk orðabók Ódýrar og góðor orðabækur fyrir skólann. ó skrifstofuna og i ferðalagið ORÐABÓKAÚTGÁFAN Vo) Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu í september 1996. Unnið fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félaga bóka- og ritfangaverslana. Almennt efni 1. DÖNSK/ÍSLENSK - ÍSLENSK/DÖNSK ORÐABÓK Ritstj. Sigurlín Sveinbjarnardóttir og Svanhildur E. Þórðardóttir. Útg. Orðabókaútgáfan. 2. ENSK/ÍSLENSK - ÍSLENSK/ENSK ORÐABÓK Ritstj. Sœvar Hilbertsson. Útg. Orðabókaútgáfan , , , 3. ÞÝSK/ÍSLENSK — ORÐABOKAUTGAFAN ^™“rABÓK Ritstj. Eygló Eiðsdóttir og Árni Böðvarsson. Útg. Orðabókaútgáfan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.