Morgunblaðið - 09.10.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 19977 19
Meint lögbrot bandarískra demókrata rannsökuð
Hljóðritun eytt til að
vernda Bill Clinton?
Washington.Reuter.
RANNSÓKN öldungadeildar
Bandaríkjaþings vegna ásakana
um að demókratar hafí brotið lög
um söfnun framlaga í kosninga-
sjóði beinist nú að „mínútu eyðu“ í
hljóðritun af fundi sem Bill Clinton
forseti hélt með bakhjörlum sínum
í Hvíta húsinu. Repúblikanar telja
að hljóðrituninni kunni að hafa ver-
ið eytt þar sem hún hefði getað
sannað að forsetinn segði ósatt
þegar hann neitaði því að hafa mis-
notað aðstöðu sína til að afla fjár til
kosningabaráttunnar á síðasta ári.
Clinton vísaði þessum aðdrótt-
unum repúblikana á bug í gær og
sagði að myndbandsupptökur sem
Hvíta húsið hefði lagt fram sönn-
uðu að „enginn [hefði] gert neitt
rangt“. Skömmu eftir að Clinton
sagði þetta mætti aðstoðarmaður
hans, Harold Ickes, annan daginn í
röð fyrir rannsóknamefnd öld-
ungadeildarinnar. Ickes sagði fyrir
fundinn, þar sem hann mátti búast
við því að vera yfirheyrður í þaula,
að löng hefð væri fyrir því úr tíð
repúblikana í Hvíta húsinu að þeir
sem þar sætu væru virkjaðir til að
hjálpa til við fjársöfnun í kosninga-
sjóði í aðdraganda kosninga. Ickes
sagði öllum hafa verið ljóst fyrir
kosningamar í fyrra að fjáröflun-
arvél Repúblikanaflokksins væri
afkastameiri en demókrata. Það
hefði því verið „nauðsynlegt og við
hæfi“ að forsetinn og varaforsetinn
tækju með einum eða öðmm hætti
þátt í fjáröflunarstarfinu. „Eg ráð-
lagði þeim að gera það, og sé ekki
eftir því,“ sagði Ickes.
„Rose Woods“-vandi
„Við gætum staðið frammi fyrir
Rose Woods-vandamáli,“ sagði
embættismaður sem tekur þátt í
rannsókn öldungadeildarinnar.
Hann vísar hér til rúmlega átján
mínútna eyðu í hljóðritun, sem lögð
var fram vegna Watergate-
hneykslisins. Richard Nixon, sem
sagði af sér forsetaembættinu
vegna málsins, sagði eyðuna til
komna vegna mistaka ritara síns,
Rose Mary Woods.
Gmnur leikur á að einhver emb-
ættismaður í Hvíta húsinu kunni að
hafa eytt hljóðritun morgunverðar-
fundar sem Clinton hélt með
mönnum sem lögðu fram mikið fé í
kosningasjóð hans 18. júní á síð-
asta ári.
Svo virðist sem embættismenn í
Hvíta húsinu hafi mánuðum saman
reynt að koma sér hjá því að láta
upptökumar af hendi en snem
skyndilega við blaðinu nýlega og
lögðu fram 44 myndbandsupptökur
af morgunverðarfundum forsetans
með stuðningsmönnum sínum.
Fred Thompson, öldungadeildar-
þingmaður repúblikana og formað-
ur rannsóknarnefndarinnar, hélt
því fram á fundi nefndarinnar í
fyrradag að forsetinn segði ósatt
um skyndilega uppgötvun upptak-
anna. Thompson sagðist hafa reynt
í fjóra mánuði árangurslaust að fá
upptökurnar afhentar. Þeim fylgdu
hljóðritanir af öllum fundunum
nema einum.
Embættismennirnir sögðu að
„hljóðvandamál" kynnu að hafa
komið fram á „þessari tilteknu
spólu“. Repúblikanar hafa látið í
Ijós efasemdir um þessa skýringu,
einkum vegna þess að gestir Clint-
ons á umræddum fundi í júní
hlýddu á ræðu Johns Huangs, sem
tók þátt í fjársöfnun demókrata og
hefur verið sakaður um að tengjast
meintum tilraunum Kínverja til að
hafa áhrif á kosningabaráttuna. Á
myndbandsupptökunni sést Clint-
on heilsa Huang innilega, eins og
þeir hafi þekkst vel.
Huang fæddist í Kína og tengd-
ist fyrirtæki í Arkansas þegar
Clinton var þar ríkisstjóri. Eftir að
Clinton tók við forsetaembættinu
fékk Huang starf í viðskiptaráðu-
neytinu sem veitti honum aðgang
að trúnaðarupplýsingum.
Sú skýring embættismannanna
að eyðan sé vegna „slæmrar hljóð-
upptöku" þykir orka tvímælis
vegna þess að á einni upptakanna
heyrist einn gestanna segja við
Donald Fowler, formann lands-
nefndar demókrata: „Eg er með
fimm ávísanir til þín.“
Fowler tók ekki við ávísununum,
hugsanlega vegna þess að hann
vissi af upptökutækjunum. „Eg
hringi í þig um leið og þessu er lok-
ið,“ svaraði hann. „Eg get ekld tek-
ið við þessu, því miður. Ég biðst af-
sökunar og við skulum koma þessu
í verk.“
Þykir minna á Watergate
Yfirlýsingar embættismannanna
þykja minna mjög á rannsókn
Watergate-málsins. „Mistökin",
sem ritaranum var kennt um, ollu
þáttaskilum í því máli. Margir
Bandaríkjamenn trúðu ekki þeirri
afsökun, einkum vegna þess að
Rose Mary Woods virtist mjög óró-
leg og ráðvillt þegar hún var yfir-
heyrð um málið.
Repúblikana grunar að ákveðið
hafi verið að eyða hljóðritun ræð-
unnar sem Huang flutti á fundin-
um til að vemda Clinton. Einn
fundarmannanna hefur sagt að
Huang hafi óskað eftir framlögum í
kosningasjóð forsetans í byrjun
fundarins.
Sú ásökun hefur ekki verið stað-
fest til þessa. Reynist Huang hafa
óskað eftir framlögum frá gestum
Clintons væri það í ósamræmi við
ummæli Janet Reno dómsmálaráð-
herra, sem sagði á föstudag að ekk-
ert hefði komið fram sem benti til
þess að Clinton hefði misnotað að-
stöðu sína í Hvíta húsinu þótt A1
Gore varaforseti kynni að hafa
brotið lögin með því að afla fjár-
framlaga með símtölum frá skrif-
stofu sinni. Hafin hefur verið rann-
sókn á meintum lögbrotum vara-
forsetans.
SIEMENS
Við færum þér gleðitíðindi:
Þvottur og þurrkun
á kjallaraverði!
Á meðan birgðir endast færðu nú hjá okkur
Siemens þvottavél og þurrkara á verði sem
kætir geð þitt og fær þig til að skælbrosa framan
í heiminn. Sláðu til og skelltu þér á parið.
WM 20820SN
Þvottavél, tekur 4,5 kg, einföld í
notkun, hefur öll nauðsynleg
kerfi, 800 sn. þrepavinding,
ryðfrítt stál í belg og tromlu,
sjálfstæður hitastillir.
Þú þarft ekki að hugsa þig um, -
þúkaupirhana þessa.
49.800
kr. stgr.
WT21000EU
Þurrkari, tekur 5 kg, einfaldur í
notkun, fyrir útblástur í gegnum
barka sem fylgir með, snýst í báðar
áttir, stáltromla, hlífðar-hnappur
fyrirviðkvæmttau.
Það er ekki spurning, - þú kaupir
hann þennan og sparar stóran
pening.
29.800
kr. stgr.
UmboOsmenn otckar á iantJsbyggöinni:
Borg«rn«i:
Glitnir
Snnfallibarr:
Blómsturvollir
Grundarf jöröur:
Guöni Hallgrlmsson
Stvkklahólmur:
Skípavlk
Búðardalur:
Aaubúó
Isafjöröur:
Póllfnn
Hvammatangi:
Skjanni
SauöArkrókur:
Rafsjá
Siglufjöröur:
Torgiö
Ljósgjafinn
Húsavík:
Oryggi
Vopnaf jörður:
Rafmagnav. Arna h
Neskaupataður:
Rafalda
Royöarfjöröur;
Rarvólaverkst. Arrw
Höfn I Hornaf iröi:
Króm og hvltt
Vik I Mýrdal:
Klakkur
Hvolavöllur:
Refmagnsverkst. KR
Halla:
Gilaé
Selfoss:
Arvirkinn
Grindavik:
Rafborg
Rafteakjav. S
Ingvarss.
Kaflavlk:
Ljósboginn
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 ■ Sími 5113000
BRAUTRYÐJANDINN
í myndbandstækninni!
Pro-Drum myndhauslnn er byltlng,
40% færrl hlutlr,
mlnna vlðhald og betri myndgæðl.
Pro-Drum tækln eru
nr. 1 á topp 10 lista WHAT VIDE0I
7 gerðir, verð (rá kr. 38.610 stgr.
imim Bnar
iii Farestveit&Cohf
Borgartúni 28, sími 562 2901 / 562 2900
Helgarferð til
Parísar
23. oklóber frá
kr. 24.990
Við höfum nú fengið
viðbótargistingu í París
23. október á afbragðsgóðu tveggja stjörnu hóteli og
getum nú boðið helgarrispu á ótrúlegum kjörum. Hótel
Campanile, öll herbergi með baði, sjónvarpi, síma, nýtt
hótel og smekklegt. Að auki bjóðum viðbúrval gististaða,
spennandi kynnisferðir, og íslenskir fararstjórar
Heimsferða tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni
allan tímann.
Bókaðu strax - aðeins 10 herbergi
19.990 24.990
Flugsæti til Parísar með flugvallarsköttum, M.v. 2 í hcrbergi Hotel Campanilc,
flug á mánudegi til fimmtudags. 4 nætur, 23, október.
Austurstræti 17, 2. hæð
• sími 562 4600
Fimmtudagur til
mánudags