Morgunblaðið - 09.10.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 31
AÐSENDAR GREINAR
Kjarasamningar kennara í
framhalds- og grunnskólum
KENNARAFÉLÖG-
IN gerðu 7. júní síðast-
liðinn kjarasamning við
fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs um kjör
kennara, aðstoðar-
skólastjórnenda og
námsráðgjafa í fram-
haldsskólum. Kjara-
samningurinn gildir til
31. október árið 2000
og tekur til um 1.000
félagsmanna Hins ís-
lenska kennarafélags.
Samningurinn var bor-
inn undir atkvæði
þeirra 12.-25. júní.
Rúmlega 55% félags-
manna tóku þátt í leyni-
legri atkvæðagreiðslu og samþykkti
tæpt 81% þeirra samninginn.
Samningaviðræður tóku langan
tíma eða á áttunda mánuð. Kennara-
félögin lögðu megináherslu á hækk-
un grunnlauna og viðurkenningu á
áhrifum nýrra laga um framhalds-
skóla á vinnutíma og kjör kennara.
Vinnutímakafla kjarasamninganna
var breytt á þann veg að skilið var
á milli kennslu- og prófatíma auk
þess sem önnur störf kennara eru
skýrar skiigreind nú en áður. Sam-
eiginleg skoðun samningsaðila á fyr-
irkomulagi vinnutímasamninga
framhaldsskólakennara í Noregi og
Það skiptir höfuð-
máli, segir Elna
Katrín Jónsdóttir, að
sveitarfélögin svari
afdráttarlaust, hve
mikla launahækkun
þau bjóða kennurum.
í Danmörku leiddi m.a. í ljós að skipt-
ing og skilgreining vinnunnar og
mæling vinnutíma er þar nákvæmari
og hefur það fyrirkomulag tíðkast í
þessum nágrannalöndum um alllangt
skeið.
Breytingar á vinnutíinakafla
kjarasamninga
Það varð úr í viðræðum kennara-
félaganna og samninganefndar rík-
isins að breyta verulega vinnutíma-
kafla kjarasamninganna sem að
stofninum til var orðinn nær aldar-
fjórðungsgamall. Störf kennara hafa
tekið miklum breytingum á þessum
tíma og hafa kennarafélögin í kjara-
baráttu sinni á undanfömum árum
jöfnum höndum lagt áherslu á nauð-
syn breytinga á starfskjörum og
launakjörum. Þannig er það ljóst að
kennari í nútímaframhaldsskóla
sinnir auk kennslu sinnar og prófa
eða annars námsmats ýmsum störf-
um er lúta að faglegri stefnumótun,
samvinnuverkefnum, þróunarstörf-
um og samskiptum við aðila innan
og utan skóla. Agreiningur hefur oft
og tíðum verið uppi um mat á vinnu
kennara. Hinum nýju kjarasamning-
um er ætlað að draga skýrar línur
utan um störf kennara m.a. með
nákvæmari skilgreiningu verkþátta
og með tímamælingu.
Ný lög um framhaldsskóla
voru hvati breytinga
Þegar farið var í samningaviðræð-
ur þessu sinni var samninganefnd
kennarafélaganna ljóst að ný lög um
framhaldsskóla er sett voru 1996
kölluðu ein og sér á breytingar á
kjarasamningum þar sem kennslu-
dögum var fjölgað um 10-12 og
prófatími styttist vegna þess að eftir
sem áður er starfstími framhalds-
skóla skilgreindur 9 mánuðir. Meðal
annars af þessu tilefni var samið um
breytingu á vikulegri kennsluskyldu
kennara annarra en þeirra sem mest-
an aldursafslátt höfðu fyrir af
kennsluskyldu sinni. Kennsluskylda
breyttist síðast 1995 þannig að segja
má að tvö skref hafi verið stigin í
rétta átt í því efni að gera kennurum
betur kleift að sinna starfi sínu mið-
að við þær kröfur sem
til þess eru gerðar í
dag. Árleg vinnuskylda
kennara í framhalds-
skólum er eftir sem áður
1.800 stundir á ári eins
og flestra annarra
launamanna.
Prófavinna í fram-
haldsskólum var skil-
greind sérstaklega í hin-
um nýja samningi og
verður tímamæld. Aðil-
ar töldu þetta nauðsyn-
legt m.a. vegna stytt-
ingar á árlegum prófa-
tíma og vegna mismun-
Elna Katrín andi vinnuálags í próf-
Jónsdóttir um. Samningsaðilar
voru sammála um að
ný framsetning kjarasamnings með
þessum hætti væri tilraun sem tíma-
bært væri að gera en voru jafnframt
sammála um að endurskoða vinnu-
tímasamninginn árlega. Verður það
gert samkvæmt sérstakri bókun
þannig að áhrif breytinganna á vin-
nutíma og launakjör verða rannsökuð
og samningurinn lagfærður fyrir 1.
ágúst ár hvert á samningstímanum
reynist slíkt nauðsynlegt að mati
samningsaðila.
Launahækkanir í
kjarasamningunum
Breytingar á launum framhalds-
skólakennara og annarra faglegra
starfsmanna framhaldsskóla hefðu
sannarlega mátt endurspegla
ákveðnari vilja stjómvalda til þess
að endurmeta störf í framhaldsskól-
um. Launatafla hækkar líkt og hjá
svo mörgum um tæplega 17% á
samningstímanum. Umsjónarkenn-
arar fá sín störf betur metin til launa,
greiðslur vegna heimavinnu skila sér
nú í sérstökum launafiokki auk
greiðslna úr svokölluðum heima-
vinnupotti, skerðing yfirvinnu-
greiðslna vegna svonefnds yfírvinnu-
þaks hverfur og greiðslur fyrir yfir-
vinnu í kennslu hækka.
Engin leið er hins vegar að fella
neinn lokaúrskurð um breytingar á
launum vegna þessara kjarasamn-
inga fyrr en áhrif breytingar á
kennsluskyldu og áhrif breytinga á
launagreiðslum á prófatíma eru kom-
in fram.
Af lygilegum blaðaskrifum
Ekki verður hjá því komist að leið-
rétta nokkrar þeirra rangfærslna er
fram koma í grein Gísla Ólafs Péturs-
sonar framhaldsskólakennara er
birtist í Morgunblaðinu 30. septem-
ber síðastliðinn. Gísli heldur því fram
í grein sinni að vinna kennara við
önnur störf en kennsiu og próf sé
nýtilkomin og er þar að vísa til svo-
kaliaðrar 130 tíma vinnu undir stjóm
skólameistara skv. kjarasamningun-
um. Hann gengur svo langt að gefa
í skyn að slík störf hafi kennarar
aldrei átt að vinna áður og talar um
„þrettánda mánuðinn" i því sam-
hengi.
Staðreyndir málsins em þessar:
Kennarar höfðu samkvæmt eldri
kjarasamningi innan vinnuskyldu
sinnar tiltekinn tímaíjölda við svo-
kölluð önnur störf þ.e. annað en
kennslu og próf. Þessi störf sam-
kvæmt eldri samningi voru t.d. við-
talstími, umsjón með nemendum,
námsmat, kennarafundir, foreldra-
fundir og samstarf kennara. Kenn-
arafélögin hafa um árabil krafist
þess í kjarasamningum að kennslu-
skylda lækkaði m.a. til þess að kenn-
arar gætu betur sinnt ýmsum fagleg-
um störfum sem kröfur eru gerðar
um t.d. samkvæmt lögum um fram-
haldsskóla og vegna breytinga á
starfsemi framhaldsskóla og þar með
á kennarastarfinu.
Ef borin eru saman eldri og nýrri
kjarasamningsákvæði um önnur
störf er því meginmunurinn sá að
skýrar er tilgreint í hinum nýja kjara-
samningi um verkstjórn skólameist-
ara yfir þessum verkþætti. Og um
þá hlið málsins geta verið uppi skipt-
ar skoðanir. Varla er hins vegar orð-
um eyðandi á þann málflutning Gísla
Ólafs að vinna kennara við önnur
störf skv. nýjum kjarasamningi séu
ritarastörf. Þau störf er hér um ræð-
ir eru t.d. kennarafundir, þátttaka í
gerð skólanámskrár og innra mati
skóla, þróunarstörf og samstarf
kennara svo eitthvað sé nefnt. Ef
þessi störf eru ekki í verkahring
kennara þá er ég hrædd um að end-
urrita þurfi bæði lög og reglugerðir
um framhaldsskóla.
Hins vegar verður því ekki í móti
mælt að þeir kennarar sem mests
afsláttar af kennsluskyldu nutu fyrir
kjarasamninginn bera minna úr být-
um en hinir vegna þess að 55 ára
kennarar fá aðeins smávægilega
lækkun kennsluskyldu og 60 ára
kennarar hafa óbreytta kennslu-
skyldu. Kennarafélögin álíta að end-
urskoðunar sé þörf á vinnuskyldu
þessara félagsmanna á prófatíma og
hafa þegar hafið athugun á málinu.
Áður en ég fjalla um yfirstand-
andi kjaradeilu vegna grunnskólans
kemst ég ekki hjá því að benda á
augljósan blekkingarleik í skrifum
Gísla Ólafs og skilaboðum hans til
grunnskólakennara. Grunnskóla-
kennarar hafa í núverandi kjara-
samningi sínum hámarkskennslu-
skyldu 28 stundir á viku og vinnu-
skyldu við önnur störf í um 8 klukku-
stundir á viku. Þessar átta stundir,
segir í kjarasamningi, eru notaðar í
störf í þágu skóla svo sem viðtals-
tíma, umsjón með bekk, skýrslugerð,
kennarafundi, foreldrafundi, sam-
starf kennara o.fl. skv. ákvörðun
skólastjóra og kennararáðs. Af þess-
um viðverutíma er heimilt að binda
3 klukkustundir á viku á stundaskrá
vegna kennarafunda og viðtalstíma.
Hafi Gísli Ólafur því ætlað sér að
bjarga grunnskólakennurum frá því
að vinna nokkuð annað en að kenna
og prófa kemur hjálpin fullseint því
þessi ákvæði hafa staðið árum saman
í kjarasamningum þeirra - eins og
reyndar framhaldsskólakennara.
Um kjaradeiluna við
sveitarfélögin
Samninganefnd kennarafélag-
anna álítur að í þessari alvarlegu
kjaradeilu skipti nú höfuðmáli að
samninganefnd launanefndar sveit-
arfélaganna svari grunnskólakenn-
urum afdráttarlaust hversu miklar
launahækkanir sveitarfélögin bjóða
þeim. Kennarafélögin telja að öll
frekari umræða um breytingar á vin-
nutíma og starfsskipulagi grunn-
skólakennara verði að bíða þar til
það skýrist hvort sveitarfélögin hafa
ráð á að bæta skólastarf t.d. með
því að tryggja kennurum í einsetnum
skólum fullt starf við kennslu og
umsjón með einni bekkjardeild ásamt
öðrum störfum samkvæmt kjara-
samningi.
Höfundur er formaður HÍK.
SIEMENS
Svo sannarlega handa þér:
Nýjar uppþvottavélar
á kynningarverði!
Nú kynnum við nýjar uppþvottavélar frá Siemens sem eru
fleytifullar af nýjungum. Það er svo sannarlega kominn tími til að
þú rammir inn uppþvottaburstann og látir vélina sjá um verkið.
Meðal nýjunga:
• Nýjar og betri síur • Nýtt þvotta- og gljáefnishólf • Nýir öldulaga
úðarar • Gegnumstreymishitari í öllum vélum • Glæsilegt útlit.
o
SE 34200
Fjögurra kerfa
uppþvottavél sem þvær
og þværog þvær. Hún
slær í gegn þessi enda er
verðiðfrábært.
59.800
kr. stgr.
■.'.ptcO
siisSx'
SE 35260
Fimm kerfi, vatnsskynjari,
varmaskiptir tryggir
frábæra þurrkun,
rafeindastýrð í bak og fyrir,
eins og hugur manns.
74.300kr. stgr.
SE 64530
Alklæðanleg fjögurra
kerfa vél semereins og
sniðin fyrir nýju
innréttinguna þína. Ekki
galinn kostur.
78.800kr. stgr.
SR 23215EU
Nokkuð mjóslegin þessi
en kná.45 sm breið. Góð
í lítil eldhús. Þrjú kerfi,
einföld í notkun. Já,
auðvitað.
55.700
.•yjí,
—n.
SE 54230
Klæðanleg vél með hvítu
stjórnborði, fjögur
þvottakerfi, á að sjálfsögðu
heima í eldhúsinu þínu.
69.800
kr. stgr.
Umboðsmenn oUUar á
landsbyggöinni:
Akranos: Egllsstaölr:
Rafþjónusta Sigurdórs Sveinn Guömundsson
Borgarnos: Brolödalsvlk:
Glitnlr Stefán N. Stefánsson
SnsBfellsbser: Blómsturveilir Grundarfjörður: Guöni Hallgrlmsson Höfn 1 Hornaflröi: Króm og hvltt Vlk i Mýrdal: Klakkur
Stvkklshólmur: Skipavlk Vostmannaoyjar: Tréverk
Búöardalur: Ásubúö Hvolsvöllur: Rafmagnsverkst. KR
Isafjörður: Holla:
Póllinn Gilsé
Hvammstangl: Skjanni Solfoss: Arvirkinn
Sauðérkrókur: Grlndavik:
Rafsjá Rafborg
Siglufjörður: GarÖur:
Torgiö Raftœkjav. Sig
Akureyri: Ljósgjafinn Ingvarss. Keflavik:
Húsavik: Öryggi Ljósboginn Hafnarfiöröur: Rafbúö Skúla, Alfaskeiöi
Vopnafjörður: Rafmagnsv. Árna M. Noskaupstaður: Rafalda Royðarfjörður: Rafvélaverkst. Ama E.
kr. stgr.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000