Morgunblaðið - 09.10.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 37
SKOÐUIM
Margir hafa tjáð sig um þetta efni
á undanförnum árum. Bjarni Bragi
Jónsson, síðast aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans, mun eiga af því
heiðurinn að hafa fyrst ritað um
auðlindarskatt í 2. hefti Fjármálat-
íðinda 1975, en síðan hafa margir
tjáð sig. Þar hafa ýmsir kennarar
Háskóla íslands farið fyrir og hlot-
ið fyrir litlar þakkir útvegsmanna
og engar undirtektir stjórnmála-
flokka, nema Alþýðuflokks og nú
um siðir Þjóðvaka, Alþýðubanda-
lags og Samtaka um kvennalista.
Morgunblaðið hefur haft skýra
stefnu um árabil, að auðlindarleiga
af einhveiju tagi sé nauðsynleg til
að sátt þjóðarinnar náist um þessi
mál.
Skoðanakannanir hafa leitt í ljós,
að 60-75% þjóðarinnar eru á svip-
aðri skoðun. Viðhorf þjóðarinnar
er þess vegna skýrt, en í beinni
andstöðu við stefnu stærstu stjórn-
málaflokkanna, Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. í þeim her-
búðum hefur svo sem ekki alls
kostar verið friðsælt að því er þetta
varðar, bæði á landsfundum og svo
fyrir einhvetjum misserum vegna
tilraunar sjávarútvegsráðherra til
að koma böndum á óheftar króka-
veiðar smábáta. Svo leit út á tíma-
bili sem samkomulag hans við smá-
bátaeigendur mundi valda vinslit-
um hans við aðra útvegsmenn, sem
hann hefur annars þjónað dyggi-
lega. Þetta var síðan leyst með
mútu, sem útvegsmenn tóku við á
kostnað svokallaðrar línutvöföldun-
ar. Þessa mútu má eflaust meta
til hundruða milljóna króna á ári,
og útvegsmenn létu sér vel líka.
Hvað sem öllum skoðunum líður
um sanngirni og réttlæti að því er
varðar leigu til þjóðarinnar af auð-
lindinni, sem hún á samkvæmt lög-
um, verður að viðurkenna, að
spurningin um að innleiða auðlind-
arleigu hefur aldrei verið sett fram
í neinu því formi, sem telja má
ákvörðunarhæft fyrir stjórnmála-
menn. Ýmsir háskólamenn hafa
rætt málið á ýmsum stöðum sem
fyrr er getið, bæði munnlega og í
rituðu máli og Þjóðvaki hefur með
merkum tillöguflutningi á Alþingi
undirstrikað, að málið er ekki þróað
í þann farveg, að það megi tieljast
ákvörðunarhæft. Þannig má segja,
að andstæðingar auðlindarleigunn-
ar hafí getað skákað í því skjólinu,
að hugmyndin hafi í raun aldrei
verið mótuð þannig að til ákvörðun-
ar um hana gæti komið. Athygli
er einmitt vakin á þessari staðreynd
í íhugulli grein Hjálmars Árnasonar
alþingismanns í Mbl. 23. ág. ’96.
Með tilliti til eindreginnar stefnu
Alþýðuflokks í þessu máli um ára-
bil, er það honum til vansa, að stað-
an skuli vera þessi. Það, sem hér
var rakið, eru skoðanir á því sem
gerst hefur og nú er tímabært að
snúa sér aftur að greiningu og stað-
reyndum.
Eiginleikar
fiskveiðistjórnunarkerfis
Hvaða skilyrðum þarf nýtt fisk-
veiðistjórnunarkerfi að fullnægja
til að það sé ásættanlegt fyrir þorra
íslendinga og skila þeim árangri í
hagþróun, sem gera verður kröfu
til, svo að hagsmunir sjávarútvegs-
ins og þjóðarinnar hans vegna og
sambýli sjávarútvegsins við aðrar
greinar atvinnulífsins sé tryggt?
Að tryggja með óyggjandi og
staðreynanlegum hætti, að sett
aflamörk í hverri fisktegund séu
haldin, - kannski ekki nákvæmlega
hvert ár, en í heild yfír tíma.
Að tryggja þá sömuleiðis, að all-
ur afli, sem veiddur er, komi án
undanbragða í land til skráningar.
M.ö.o., það verða að vera hagsmun-
ir sjómanna og útvegsmanna, að
aflinn komi allur í land. Að á fáum
árum náist fyllsta nýting afkasta-
getu flotans með lægsta möguleg-
um tilkostnaði á hvert tonn, sem
aflað er.
Að útdeiling réttar til að veiða
eigi sér stáð með þeim hætti, að
þeir fái réttinn, sem í verki, með
bestu tilboðum í hann, sýna best
afköst miðað við tilkostnað. Með
þeim hætti væri fiskveiðiarðurinn
markvisst aukinn og honum skipt
milli góðra útgerðarmanna og ríkis-
sjóðs. Að tryggja, að eðlileg end-
urnýjun og grisjun eigi sér stað í
hópi útgerðaraðila, þannig að þeir,
sem á hveijum tíma best geta, -
þeir geri, en hinir missi til þess
tækifærið. M.ö.o. verði markaðs-
lausnir látnar um að gera það, sem
þær gera best.
Að núverandi fískveiðistjórnun-
arkerfi fái aðlögunartíma til að
hverfa á hæfilegum árafjölda, svo
að útgerðamenn og lánastofnanir
geti á 4-6 árum lagað sig að nýju
umhverfi. Að núverandi fyrirkomu-
lag gjafakvóta til útvalinna, - sem
er sambærilegt við forgangsrétt
valinna innflutningsfyrirtækja til
gjaldeyris á skömmtunartímunum,
verði þannig á hæfilegum tíma lagt
af. Slík breyting mun leiða til nýrr-
ar og jákvæðrar þróunar, eins og
gerðist í vöruinnflutningum, þegar
gjaldeyrishöftunum var aflétt.
Að sú stefna verði aftur leidd til
öndvegis, að ákvörðun um leyfileg
árleg mörk afla í öllum fisktegund-
um er pólitísk ákvörðun, sem ekki
sé njörvuð niður í ákveðið hlutfall
af því, sem fiskifræðingar reikna
sig fram til með aðferðum sínum.
Að stjórnunar- og eftirlitskerfið
sé eins einfalt og öruggt í fram-
kvæmd og frekast er kostur og
nútímatækni nýtt til hins ítrasta,
við útboð, úthlutun, skráningu og
eftirlit með framkvæmd. Mjög hörð
viðurlög verða að vera við brotum,
bæði fjárhagsleg og réttindamissir
gagnvart skipstjórnarmönnum, út-
gerðar- og eftirlitsmönnum.
Að fiskveiðistjórnunarkerfið
verði svo mikil nýjung á heimsvísu,
að það og hugbúnaðurinn, sem það
kallar eftir, verði verðmæt söluvara
til annarra landa til lausnar á því
alþjóðlega vandamáli sem fiskveiði-
stjórnun er.
Til að vinna þetta verk má ekki
velja neinar opinberar nefndir, full-
ar af slagsmálahundum hagsmuna-
gæslunnar. Verkefnið þarf að leysa
sem tæknilegt og „akademískt"
viðfangsefni snjöllustu manna, sem
við eigum til verksins og enga
hagsmuni hafa í því aðra en þá að
skila góðri og framkvæmanlegri
lausn. Að því leyti sem við getur
átt þarf lausnin að fela í sér mis-
munandi pólitíska kosti, sem hver
um sig væri glögglega skilgreindur.
Höfuðatriðið er, að vinnsluferlið
skili málefninu i ákvörðunarhæfu
formi, sem hægt er að útlista bæði
fyrir stjórnmálamönnum og al-
menningi, þannig að niðurstaðan
verði öllum þorra fólks skiljanleg
og ásættanleg, þegar upp er stað-
ið. Með slíka tillögugerð á borðinu
gætu stóru stjórnmálaflokkarnir
ekki lengur látið eins og þetta póli-
tíska þrætumál sé ekki til, því að
yfírgnæfandi meirihluti þjóðarinn-
ar gerir kröfu til, að það verði leyst.
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdasijóri.
§$<*/**/
Poiis
Byltingarkennd nýjung i háreyðingu
Vatnsleysanlegt vaxfyrir örbylgjuofn:
• Hitunartími um 20 sekúndur! • Vaxrestar og rúlluhausinn þrifinn með vatni!
• Hitaskynjari á vaxfyllingunni! • kægileg, langtíma háreyðing!
Kynning í Borgarapóteki, Alftamýri 1-3,
í dag og á morgun kl. 13-18.
20% kynningarafsláttur.
fœsl íflestum apótekum.
Porjs Dreifing: íslenska innflutningsfélagið, sími 588 5508
Við r
jólabókunum!
til 12. október
ftfcH íivai I HcfSefi w@il!
Sértilboð fimmtudag: Sértilboð föstudag:
Cöngur og réttir l-V
Upphaflegt verð: 12.250,-
VERÐ DAGSINS:
2.950/
Pellisigurssli MV
Upphafiegt verð: 7.990,-
VERÐ
DAGSINS:
Virka daga kl. 9-18
laugandag 11. okt. kl. 10-18
sunnudag 12. okt. kl. 12-16
60KALAGERINN
Skjaldborgarhúsinu Ármúla 23
slmi: 588-2400 • Fax: 588-8994