Morgunblaðið - 09.10.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997 4L
PÁLL RÓSINKRANZ
PÁLSSON
+ Páll Rósinkr-
anz Pálsson
fæddist á Kirkju-
bóli Korpudal, On-
undarfirði, 18. maí
1909. Hann lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 21. septem-
ber síðastliðinn.
Páll var yngstur 14
systkina sem kom-
ust á legg. Eigin-
kona Páls var Sig-
rún Eiríksdóttir,
þeirra sonur Óskar
Pálsson, eiginkona
hans Hrefna N.
Guðnadóttir. Börn þeirra: Páll
Rósinkranz, Jóhannes, Sigrún
og Erna Elísabet.
Útför Páls hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Kveðja frá tengdadóttur
Að heilsast og kveðjast er lífsins
saga stendur einhvers staðar og
nú ákvað Drottinn að kveðjustund
væri upprunnin.
Ég skrifa þessi kveðjuorð með
tár í augum og vanmegnug að lýsa
tilfinningum mínum. Þú hefur alla
tíð reynst okkur svo vel. Það er
margs að minnast frá þeim tíma
sem við höfum þekkst. Ég man
þegar ég fyrst var boðin í mat á
Eiríksgötuna. Þið tókuð mér yndis-
lega þó að þið vissuð náttúrulega
ekki hvað þið áttuð að halda um
þessa stelpu sem komin var þarna
til að eiga hlutdeild í einkasyni
ykkar. Þú varst fallegur maður,
hógvær, gestrisinn, góðviljaður og
kátur ef svo bar við. Þú vildir öllum
gott gera og ég veit að það eru
ekki fáir sem áttu athvarf á heim-
ifi ykkar í gegnum
árin. Við Óskar áttum
okkar fyrsta heimili
vestur í Sörlaskjóli og
það er ekki ofsögum
sagt að þið hafið stutt
okkur allt frá fyrstu
stundu.
Ég minnist ótal
margra gleðistunda.
Okkar gleði var ykkar
gleði. Okkar fram-
gangur var ykkar líka.
Þegar ég kynnist
þér ertu farinn að
reskjast. Þú varst
kominn í land eftir 30
ára siglingu. Ekki varstu þó sestur
í helgan stein. Mig minnir að þú
hafir verið í fullu starfi hjá Slátur-
félagi Suðurlands til 75 ára aldurs.
Þegar því lauk fórstu að bera út
Morgunblaðið, þér fannst alveg
ómögulegt að sitja alveg aðgerða-
laus. Þú varst eins og unglingur
alla tíð hvað varðar áhugann á
þeim verkefnum sem leysa átti.
Ég man þegar við Óskar dvöld-
um í „Eyjum“ eitt sumarið og þið
Sigrún komuð í heimsókn. Einn
daginn fórstu niður á bryggju og
keyptir feita lúðu. Þið Óskat* fóruð
ásamt Palla og Jóa að sækja
„flykkið". Þegar heim var komið
hófst þú handa við verkunina og
það voru æfð handtök unnin af
manni sem hafði áhuga á verkinu.
Ég man að ég horfði á þig og hugs-
aði: „Hann er eins og fjörugur
unglingur." Þá hefur þú sennilega
verið 76 ára.
En nú ertu horfinn héðan. Ég á
bara góðar minningar um þig. Þú
lifðir lífi sem þú gast verið stoltur
af. Þú hafðir góða heilsu, áttir
MINNIIMGAR
góða konu sem þú virtir eins og
við öll. Þú varst heiðarlegur maður
en fyrst og fremst áttir þú trú á
Drottin Jesú Krist.
Jesús sagði: Sá sem lifir og trú-
ir á mig skal aldrei að eilífu deyja.
Hafðu þökk fyrir allt.
Elsku Sigrún mín, þú hefur gert
hinn Hæsta að athvarfi þínu, Hann
styrkir þig.
Hrefna Guðnadóttir.
Komið er að kveðjustund. Að
gengnum Páli R. Pálssyni er horf-
inn sá þeirra systkina frá Kirkju-
bóli í Korpudal í Önundarfirði, er
lifði þau öll. Mikill kærleikur var
með þeim systkinum öllum og fjöl-
skyldubönd sterk. Ég er þessar lín-
ur rita tel þó að milli móður minnar
og hans hafi verið sérlega mikil
vinátta.
Framan af ævi fór Páll til sjós
þar vestra svo sem títt var þar,
enda faðir hans bóndi þar og skip-
stjóri með eigin útgerð. Fljótlega
lá leið Páls til Reykjavíkur, þar sem
hann nam til matreiðslu og kjötiðn-
aðarstarfa. Áttu þeir samleið um
tíma hann og Pétur Daníelsson
hótelstjóri. Að þessu námi loknu
hófust störf hans á millilandaskip-
um um nokkur ár. Ofarlega er mér
í minni er ég sem ungur piltur
hlustaði á frásagnir Páls af erlend-
um höfnum er leið skipanna lá til,
svo sem Ítalíu, Portúgals, Englands
og einnig Bandaríkjanna. Þá minn-
ist ég einnig frásagnar hans af
því, er hann af tilviljun hitti frænda
okkar frá Vestfjörðum í New York,
en sá hafði flust vestur um haf á
unga aldri og með harðfylgni náð
að nema vélaverkfræði og var orð-
inn vel metinn maður þar.
Lengstan tíma sjómennsku sinn-
ar var Páll bryti á varðskipinu
Ægi. Það skip gætti lögsögu ís-
lands og sinnti björgunarstörfum
sem kunnugt er. Ljúfar endurminn-
ingar á ég frá sumrinu 1946, er
ég átti þess kost að vera „messag-
utti“ á Ægi. Agi var mikill um
borð, sem mótaði mig sterkt og
hefur gagnast mér æ siðan. Þá er
Páil átti frí frá sjómennsku sinni
og dvaldi hér í Reykjavík fór hann
svo til daglega í Sundhöll Reykja-
víkur. Fékk ég þá stundum að fljóta
með. Segja má að hann hafi kennt
mér mín fyrstu sundtök.
Hinn 15. maí, 1946 gekk Páll
að eiga eftirlifandi eiginkonu sína
Sigrúnu Eiríksdóttur, mikla af-
bragðskonu, var það mikil gæfa
hans, enda hjónaband þeirra far-
sælt. Sólargeislinn í lífi þeirra hjóna
er Óskar sonur þeirra og síðar
Hrefna kona hans og þá ekki síst
barnabörnin fjögur.
Trúmaður var Páll mikill, svo og
Sigrún, voru þau hjón kirkjurækin
og fundu mikla lífsfyllingu í sinni
trú. Þá er Páll hætti sjómennsku
og kom í land ráku þau hjón veit-
ingastofuna West End á Vestur-
götu um árabil. Til þeirra var gott
að koma og áttu þau marga fasta
viðskiptavini, má þar nefna Dieter
Roth myndlistarmann, er bjó þar í
nágrenninu. Þegar þau hjón hættu
rekstri West End vann Páll hjá
Sláturfélagi Suðurlands um árabil.
Orðvar var Páll svo fátítt var,
styggðaryrði til nokkurs manns
voru óþekkt í huga hans. Hann var
einstaklega vandaður maður að
allri gerð. Minningin um þennan
elskulega frænda minn er björt og
fögur.
Jarðarför Páls fór fram sl. mánu-
dag í kyrrþey að ósk hans. Ég vil
sérstaklega minnast á hinn ljúfa
söng sonarsonar hans, Páls Rós-
inkranz, við útförina. Ég vil að lok-
um þakka margar ógleymanlegar
samverustundir á heimili Páls og
Sigrúnar gegnum árin. Þær lifa í
minningunni.
Páll Vígkonarson.
Afí! Þetta er Lísa. Mamma segir
að þú sért farinn til Jesú. Það h'ður
víst öllum svo vel sem fara þangað
að þá langar ekkert að koma hingað
aftur. Mamma segir líka að seinna
munum við hittast þar.
Elsku afi! Við hin eldri sem þykj-
umst vita svolítið meira en Lísa vilj-
um þakka fyrir öll árin sem við
höfum átt með þér. Við fundum
aldrei neitt annað en kærleika og
umhyggju frá þér alla tíð. Það var
eiginlega alveg sama hvað á gekk
í sambandi við okkur þú horfðir á
það allt með gleraugum kærleikans.
Það væri hægt að rifja upp svo
margt. Ferðirnar austur í sumarbú-
stað. Ferðina sem Palli fór með
ykkur ömmu til Danmerkur, gaml-
árskvöldin sem við áttum saman.
t
<**
r»-
Okkur fannst alltaf jafngaman að
horfa á ykkur ömmu sprengja borð-
sprengjurnar. Þessi læti voru eitt-
hvað í svo mikilli mótsögn við hóg-
værð ykkar og látleysi. Einnig
munum við eftir „sunnudagsmatn-
um“ hjá ykkur þegar ísinn var
kallaður „dís“ og salatið „sósa“ af
sumum fjölskyldumeðlimum.
Áfram væri hægt að telja upp en
einhvers staðar verður punkturinn
að koma svo allt hitt geymum við t
í minningunni sem aldrei verður frá
okkur tekin.
Þér þótti vænt um kirkjuna þína,
Hallgrímskirkju, og við kölluðum
hana aldrei annað fyrstu árin okkaril
en „afakirkju". Aðalmálið við þetta
allt var þó að þú hafðir gert Drott-
in að leiðtoga lífs þíns. Þess vegna,
þó að erfitt sé að kveðja, er það
léttara af því við trúum því sem
Páll postuli skrifar
„Lífið er mér Kristur en dauðinn
ávinningur.“
Afí! Þú ert farinn til Jesú. Einn
daginn hittumst við öll þar.
Þín barnabörn,
Páll Rósinkranz, Jóhannes,
Sigrún og Erna Elísabet.
+ Hallbjörg
Bjarnadóttir
fæddist í Hjallabúð
í Fróðárhreppi,
Snæfellsnesi, 11.
apríl 1915. Hún lést
á Landspítalanum
hinn 28. september
síðastliðinn. Útför
Hallbjargar fór
fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Hallbjörg Bjarna-
dóttir listakona lést á
Landspítalanum hinn
28. september. Með
Hallbjörgu Bjarnadóttur er genginn
sérstæður persónuleiki, hún var fjöl-
hæf, skyldurækin, og mátti aldrei
vamm sitt vita, vinur vina sinna og
trygg með afbrigðum.
Hallbjörg fæddist í Hjallabúð á
Brimisvöllum. Foreldrar hennar voru
Bjarni Hallsteinsson frá Skorholti í
Leirá og Meðalhreppi í Borgarfirði,
sonur Hallsteins Ólafssonar og
Steinunnar konu hans. Móðir hennar
var Geirþrúður Kristjánsdóttir, fædd
5. apríl 1883, foreldrar hennar voru
Kristján Þorsteinsson, bóndi og skip-
stjóri á opnum bát í Hjallabúð, og
kona hans Sigurlín Þórðardóttir,
hreppstjóra á Skerðingsstöðum, en
átti ættir að rekja til Breiðafjarða-
reyja, þar sem allir eru skyldir hver
öðrum, þó þau hjón kenndu sig við
Árneyjaætt. Bæði voru hjónin skáld-
mælt og lifa kvæði þeirra og rímur
ennþá í hugum eyjabúa og á Snæ-
fellsnesi. Bjarni Hallsteinsson lést á
besta aldri, af slysförum, en hann
var þá háseti á bát frá Akranesi,
sem eins og í þá daga „gerðu út“
frá Sandgerði. Þá var Bjarni Hall-
steinsson aðeins 34 ára, árið 1925.
Þá var Hallbjörg komin fyrir nokkru
í fóstur að Brunnastöðum til sæmd-
arhjónanna Kristínar Jónsdóttur og
Jóns Ólafssonar, sem voru barnlaus
og lögðu hart að Geir-
þrúði að fá Hallbjörgu
til uppeldis. Systur
hennar voru tvær fyrir,
Kristbjörg tvíburasyst-
ir hennar og Steinunn,
sem var nokkrum árum
yngri. Þær eru báðar
látnar, bjuggu að
mestu leyti í Bretlandi,
giftar breskum mönn-
um, báðar söng- og
leikkonur, sem veitti
þeim þá lífsfyllingu,
sem þeim var hugleik-
in. Það kom engum á
óvart að Hallbjörg
Bjarnadóttir yrði fræg af söng sín-
um og listfengi. Báðir foreldrar
hennar voru söngelskir, svo af bar.
Bjarni var eftirsóttur leikari á Akra-
nesi, sérstaklega í erfið hlutverk
hjá Leikfélagsskap Skagamanna i
Báruhúsinu.
Hallbjörg giftist eftirlifandi manni
sínum árið 1940, Jens Fischer Niels-
en, lyfjafræðingi frá Danmörku, en
hann var í hlutastarfi hér á landi
sem apótekari, þegar þau hjón
kynntust. Fischer Nielsen er mikill
mannkostamaður, prúðmenni og
listfengur mjög, eða eins og eigin-
kona hans sagði: „Hann er ekki að-
eins eiginmaður minn, hann er besti
vinur minn og félagi.“ Þessi um-
mæli eru ef til vill skýring á heimilis-
brag þeirra hjóna, sem einkenndist
af góðvild og drengskap, sem þeim
báðum voru eiginleg og gætu orðið
til fyrirmyndar þeim sem láta tímann
líða „aðeins til að vera til“. Enda
höfðu þau sömu áhugamál, sem er
ekki alltaf fyrir hendi. „Ungmenni
nokkurt sagði við Meistarann:
Ræddu við okkur um vináttuna.
(Spámaðurinn, þýðing Gunnar Dal.)
Ög hann svaraði og sagði: Vinur
þinn er þér allt. Hann er akur sálar-
innar, þar sem samúð þinni er sáð,
og gleði þín uppskorin. Hann er
brauð þitt, og arineldur. Þú kemur
til hans svangur, og í ieit að friði.
Þegar vinur þinn talar þá andmælir
þú honum óttalaust, eða ert honum
samþykkur af heilum hug. Og þegar
hann þegir, skiljið þið hvort annað,
því í þögulli vináttu ykkar verða all-
ar hugsanir, allar langanir og vonir
ykkar til, og þeirra er notið í gleði
sem krefst einskis. Þú skalt ekki
hryggjast, þegar þú skilur við vin
þinn, því að það sem þér þótti vænst
um í fari hans, getur orðið þér ljós-
ara í fjarveru hans, eins og fjall-
göngumaður sér fjallið best af slétt-
unni. Þessum orðum Spámannsins
má líkja við samband þeirra hjóna.
Sérstakt!
Hallbjörg og eiginmaður voru ekki
lengi hérlendis eftir giftingu nema í
stuttum heimsóknum, þá söng Hall-
björg ævinlega fyrir landsmenn, en
hún hafði þá haslað sér völl með
söng og leik í Evrópu, og seinna í
Bandaríkjunum, allstaðar við mikla
hrifningu áheyrenda. Hún náði svo
sannarlega til fólksins með söng sín-
um og leik, enda birtu dagblöð og
tímarit fjöldann allan af greinum og
viðtölum, um söng hennar og hæfni.
Hallbjörg var ekki aðeins sönglista-
kona, hún var einnig myndlistarkona.
Málverk hennar eru kunn á Norður-
löndum og víðar. Þau hjónin komu
alkomin heim fyrir fimm árum.
Fátækleg kveðjuorð mín eiga ekki
að vera í eftirmælastfl, heldur einung-
is þakklætisorð og láta í ljós þá ósk
til eiginmanns hennar og ættingja,
að hi-yggðin yfir brottfór hennar megi
víkja fyrir voninni um hjartnæma
endurfundi, ásamt gleðinni yfir því
hve gott er að minnast hennar.
„Dauðinn er öllum líkn, sem lifa
vel. Við sem eftir lifum samfögnum
henni við sólarás þess lífs sem leysir
fjötur af fæti.“ (Matthías Jochums-
son.)
Ég minnist þess þegar við sem
börn hlupum allan Langasandinn á
enda inn að Krossi, og virtum fyrir
okkur álfana í Jaðarsbökkum. Elsku
frænka, ég þakka þér samfylgdina
liðin ár, ég sé þig í anda syngjandi
í ljósbirtu morgunroðans.
Þóra Einarsdóttir.
HALLBJORG
BJARNADÓTTIR
KRISTJÁN ÞÓR
KRISTJÁNSSON
+ Kristján Þór Kristjánsson
fæddist í Reykjavík 22. ág-
úst 1997. Hann lést í Reykjavík
3. október síðastliðinn. Foreldr-
ar hans eru Þórdís ívarsdóttir,
f. 14.2. 1966, og Kristján Hlöð-
versson, f. 26.10. 1963. Kristján
Þór átti einn bróður, Hjalta, f.
7.7. 1989.
Útför Kristjáns Þórs fer
fram frá Fossvogskapellu í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Elsku Þórdís, Kristján og Hjalti.
Sendum ykkur innilegustu og dýpstu
samúðarkveðjur á erfiðri stundu, nú
þegar litli drengurinn ykkar er far-
inn í faðm Guðs, sem gætir allra
sinna bama og leiðir við hlið sér.
Ein er hðnd svo elskurik
og öllum kærleik færir.
Hún er enp öðru lík,
og aldrei hún sig stærir.
Hún bömum býður faðminn sinn,
og blessar þeirra dáð.
Hún leiðir þau í himin inn,
og heitir öllum náð.
Af skímarlaug þar lifnar ljós,
og líf er grætt að nýju.
Af henni dafnar dáin rós,
og dagar fyllast hlýju.
Þegar faðmur frelsarans,
færir skjól og hlíf.
Náðin fyrir anafnið Hans,
nýtt oss býður líf.
Ó Jesús kom með kærleik þinn.
Ó Kristur ver oss hjá.
í sorg og gleði sértu minn,
við saman stöndum þá.
Og þegar dimmu drepr að
á dögum eins og nú.
Þá vertu hér á stund og stað,
með styrk í okkar trú.
(Sig. R. Ragnarsson)
Með fátæklegum orðum biðjum
við ljúfan lausnarann Jesú um for-
sjá Kristjáns Þórs, litla drengsins
ykkar. Hann þekkti hans stríð og
veikan þrótt. Hann þerrar hvert tár
eftir dag og nótt.
Jóna, Sigrún, Ragnheiður,
Sigurveig, Elín Margrét
og Rannveig.
LEQSTEINAR
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP., SÍMI: 557-6677/FAX: 557-8410
í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.