Morgunblaðið - 09.10.1997, Page 64
<o>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
<Ö> NÝHERJI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 9. OKTOBER 1997
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Forsætisráðherra neytti kvöldverðar með varaforseta Tævans
Tekur hótanir Kínverja
um aðgerðir alvarlega
S
A Þing-
völlum
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Astríður Thorarensen, kona
hans, taka á móti Lien Chan, vara-
forseta Tævans, og Lien Fang Yui,
eiginkonu hans, í forsætisráðherra-
bústaðnum á Þingvöllum í hvass-
viðrinu í gærkvöldi. Varaforseti
Tævans er á 12 daga ferð um Evr-
ópu og dvelur hér í fimm daga.
Hann heldur frá Islandi á morgun.
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í gærkvöldi að hann teldi
ástæðu til að óttast að Kínverska alþýðulýðveldið stæði við yfírlýsingar
um að það mundi hafa alvarlegar afleiðingar að hafa leyft varaforseta
Tævans að koma til íslands. Ríkisstjórnin ákvað á fundi í gærmorgun
að sinna ekki mótmælum Kínverja vegna heimsóknarinnar og í gær-
kvöldi neytti Davíð kvöldverðar með Lien í forsætisráðherrabústaðnum
á Þingvöllum eins og ákveðið hafði verið.
Davíð sagði að kvöldverðinum
loknum að mótmæli Kínverja
i! 114. hefðu aðeins verið nefnd með þeim
hætti að Tævanarnir hefðu lýst yf-
ir áhyggjum af því að heimsókn
þeirra gæti skaðað ísland. Hann
hefði svarað því til að það væri
ekki þeirra að hafa áhyggjur af
því, þessi ákvörðun væri Islend-
inga og vitað hefði verið að hún
mundi valda óróa, þótt ekki hefði
verið búist við að hann yrði svo
mikill.
Hjálmar W. Hannesson, sendi-
herra íslands í Peking, var í gær
kvaddur á fund varautanríkisráð-
' ' herra Kína. Davíð sagði að Kínverj-
ar hefðu látið hörð orð falla á þeim
fundi og lagt skýra áherslu á það að
yrði mótmælum þeirra ekki sinnt
myndu stjórnvöld í Peking ekld láta
sitja við orðin tóm, heldur fylgja
þeim eftir með aðgerðum.
Davíð sagði að Kínverjar hefðu
ekki sagt til hvaða ráða þeir myndu
grípa, en harmaði þær aðgerðir
sem þegar væru hafnar.
Leikreglurnar brotnar
„Því miður hafa þeir þegar
frestað samningum við íslensk fyr-
irtæki, sem eru ekki á vegum hins
opinbera," sagði hann. „Mér finnst
það ámælisvert vegna þess að við
höfum trú á því að nú geti menn
farið inn á kínverska markaði undir
tilteknum leikreglum, sem ekki
eiga að breytast eftir því hvernig
sviptivindarnir eru í pólitíkinni."
Davíð sagði að ríkisstjórnin
myndi nú taka hótanir Kínverja
með í reikninginn: „Það þýðir ekki
fyrir okkur að vona hið besta, held-
ur verður að reikna út áhættuna,"
sagði Davíð. „í byrjun áttaði maður
sig ekki á að þetta yrði með þessum
ósköpum, en jafnvel þótt það hefði
verið vitað fyrirfram hefðum við
tekið sömu ákvörðun."
Stjómvöld í Peking líta svo á að
Tævan sé uppreisnarhérað í Kína
og mótmæla ávallt þegar háttsettir
embættismenn þaðan fara til ríkja,
sem hafa stjórnmálasamband við
Kínverja.
Sendiherra Kína á íslandi krafð-
ist þess í yfirlýsingu á þriðjudag að
Lien yrði vísað úr landi, til vara að
íslenskum embættismönnum yrði
bannað að ræða við hann og ella
mætti búast við að mál þetta hefði
alvarlegar afleiðingar.
■ Sendiherra íslands/32
Morgunblaðið/Jim Smart
Síldarkvóti á 80-100 milljónir
Verðmætið hefur nálega tífaldast á
undanförnum fjórum árum
21 skip við
túnfiskveiðar
ÁTJÁN túnfiskveiðiskip frá Japan
og Tævan voru í gær við veiðar ut-
an við landhelgina suður af land-
inu, að sögn Auðuns Kristinssonar,
stýrimanns hjá Landhelgisgæsl-
unni, sem flaug könnunarflug yfir
landhelgislínuna í gær.
Þá voru þrjú skip að veiðum
innan lögsögunnar samkvæmt sér-
stöku leyfi til túnfiskveiða í til-
raunaskyni. Afli þeirra var sagður
þokkalegur, en íslenskir eftirlits-
menn eru um borð í þessum þrem-
,^4ur skipum.
VERÐMÆTI síldarkvóta hefur
nálega tífaldast á undanförnum
fjórum árum og hafa kvótarnir
selst á 80-100 milljónir króna und-
anfarið. Fyrir fjórum árum eða
sumarið 1993 seldist sambærilegur
kvóti á 10 milljónir króna, sam-
kvæmt upplýsingum Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna. í
flestum tilvikum er um að ræða
skipti á veiðiheimildum í viðskipt-
um með síldarkvóta.
Um er að ræða heimildir til að
veiða íslensku suðurlandssíldina.
Hver síldarkvóti nemur 1,1090946%
af þeim heildarkvóta sem heimiiað
er að veiða á ári og helgast það af
því að þegar kerfið var sett á lagg-
irnar fyrir mörgum árum var heild-
arkvótanum skipt á milli um 90
báta.
Síldarkvótinn er mismunandi frá
ári til árs í samræmi við það hver
heildarkvótinn er. Þannig er kvót-
inn á nýbyrjuðu fiskveiðiári minni
en hann var á því síðasta eða 1.109
tonn samanborið við 1.220 tonn á
síðasta fiskveiðiári. Kvótinn hefur
einnig verið meiri en þetta og var
til dæmis rúm 1.300 tonn fyrir fáum
árum.
Björn Jónsson, kvótamiðlari hjá
Landssambandi íslenskra útvegs-
manna, sagði að fyrir fjórum árum
hefði varanlegur síldarkvóti verið
seidur á um 10 miiljónir króna, en
síðan hefði verðið hækkað upp í
15-16 milljónir. Gjarnan hefði verið
um að ræða skipti á síld- og þorsk-
veiðiheimildum. Þá hefði kílóið af
þorski verið selt á 180 krónur sem
væri miðað við úthlutun þá selt nú á
620 krónur kílóið. Þannig hefði
þorskurinn einnig hækkað mikið,
en sfldin þó talsvert meira. Væri
ekki fjarri lagi að áætla verðmæti
síldarkvóta á bilinu 80-100 milljón-
ir króna.
Björguðu 23 nami-
bískum sjómönnum
ÁHÖFNIN á namibíska rann-
sóknaskipinu Welwitchia, sem
mannað er íslenskum yfirmönnum,
bjargaði 23 namibískum sjómönn-
um, sem komist höfðu í lítinn gúm-
björgunarbát eftir að 75 tonna
línubátur, sem þeir voru á, sökk í
aftakaveðri í fyrrakvöld.
Neyðarkall barst frá skipinu um
kl. 19.25 í fyrrakvöld þar sem skip-
ið var statt um 110 sjómílur frá
hafnarborginni Walvis Bay. Engin
skip voru nálæg þegar óhappið
varð að undanskildu rannsókna-
skipinu, sem breytt hafði áætlun
sinni vegna heimsóknar Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra til
Namibíu.
„Við vorum í fjögurra mílna
fjarlægð frá bátnum þegar hann
sökk í ijósaskiptunum. Við fundum
mennina fljótlega eftir að þeir
höfðu skotið upp blysum og þjörg-
unin gekk mjög vel,“ sagði Agúst
Ingi Sigurðsson, skipstjóri á
Welwitchiu, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Skelfingu lostnir
„Sumir skipbrotsmannanna
gátu aðeins hrifsað með sér það
sem þeim þótti dýrmætast áður en
þeir stukku frá borði. Einum hafði
WELWITCHIA kom með skip-
brotsmennina til hafnar í Walvis
Bay klukkan 8 í gærmorgun.
tekist að ná fæðingai-vottorði og
aðrir vora að reyna að þun-ka
bieytu af ljósmyndum af börnum
sínum, konum eða kærustum,"
sagði skipstjórinn.
Við sigldum upp að björgunar-
bátnum, en mennimir voru svo
hræddir að þeir ætluðu aldrei að
komast upp að stiganum, sem við
lögðum niður að þeim, svo við urð-
um að kasta til þeirra björgunar-
beltum til að festa á sig. Svo fálm-
uðu þeir í stigann og um leið og
þeir voru búnir að grípa um stig-
ann, var stiganum vippað inn fyrir
borðstokkinn með mönnunum
hangandi í.“
Auk Ágústs Inga eru tveir aðrir
íslenskir yfirmenn um borð. Guð-
jón Kolbeinsson er yfirvélstjóri og
Gunnar Harðarson yfirstýrimaður.