Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
I 'l&N BBaæf* fpw
V. '
Ný stjórn
í Kaz-
akhstan
Alamatíj. Reuters.
ÞING Kazakhstans útnefndi í
gær yfirmann ríkisolíufyrir-
tækisins forsætisráðherra í
kjölfar afsagnar Akezhans
Kazhegeldíns. Hinn nýi for-
sætisráðherra, Nurlan
Balgimbajev, sagði að engra
stefnubreytinga væri að
vænta.
Forseti landsins, Nursultan
Nazarbajev, hafði gagnrýnt
harðlega umbætur fráfarandi
stjómar og sagt þær lítflmót-
legar og ruglingslegar. Forset-
inn hefur afgerandi fram-
kvæmdavald og sögðu aðstoð-
armenn Balgimbajevs að til-
kynnt yrði um útnefningu fleiri
ráðherra innan tíðar, en ætlun
forsetan væri sú, að stjómin
yrði „fámenn og fagleg“.
Balgimbajev hefur lengi
verið starfsmaður í olíuiðnaði
Kazakhstans, sem er fyrrum
Sovélýðveldi, og lagði til við
Nazarbajev að landið yrði gert
að sjötta mesta olíuframleið-
anda heimsins með því að
auka framleiðslu á hráolíu í
170 milljónir tonna árið 2010
úr 27 miljónum tonna, sem
reiknað er með að verði fram-
leidd i ár.
Reuters
Viðbúnað-
ur á Yom
Kippur
STJÓRNVÖLD í ísrael gripu til
ýtrustu öryggisráðstafana í gær,
þegar gyðingar þjuggu sig undir
að halda Yom Kippur-daginn
heilagan, en það er mesti hátíðar-
dagur dagatals gyðinga. Ottuð-
ust öryggissveitir ísraela að pa-
lestínskir öfgamenn myndu nota
daginn til að efna til hefndar-
árása vegna tilraunar ísraelskra
leyniþjónustumanna til að ráða
einn af leiðtogum Hamas-sam-
taka herskárra Palestínumanna
af dögum í Jórdaníu. Hér ganga
hermenn framhjá öldruðum Pal-
estinumanni í einu öngstræta
gömlu miðborgar Jerúsalem.
-----♦-------
Britanniu
verður lagt
London. The Daily Telegraph.
BRESKA stjórnin tilkynnti í gær,
að drottningarsnekkjunni, Britann-
iu, yrði lagt 11. desember. Elísabet
drottning er sögð hafa skilning á
ákvörðuninni. Rekstur snekkjunnar
hefur kostað breska skattgreiðend-
ur jafnvirði rúmlega 1,3 milljarða
króna á ári.
William Hague slítur flokksþingi breska íhaldsflokksins
Boðar umburðar-
lynda íhaldsstefnu
Reuters
WILLIAM Hague, leiðtogi breska íhaldsflokksins, harmaði við
lok flokksþingsins í gær mistök fyrirrennara sinna í Evrópumál-
um. Við hlið Hagues er unnusta hans, Fion Jenkins.
Blackpool. Reuters. Daily Telegraph.
WILLIAM Hague freistaði þess að
færa íhaldsflokkinn breska út úr
skugga fortíðarinnar er hann sleit
velheppnuðu flokksþingi í Blackpool
í gær. Lýsti hann þar framtíðarsýn
sinni varðandi flokkinn og boðaði
„milda íhaldsstefnu með umhyggju-
semi að kjama“.
Hague boðaði nýja ímynd flokks
sem yrði að vera í senn umburðar-
lyndur og opinn en samt sem áður
byggjast á rótgrónum grundvallar-
reglum. Sagði hann stefnu sína
ólíka stefnu Verkamannaflokksins
sem hann hélt fram að hefði engin
markmið né undirstöðureglur; hefði
glatað siðferðisáttavita sínum og
léti nú stjómast af „nýrri og óaðlað-
andi tortryggni“. Gagnrýndi hann
Verkamannaflokkinn fyrir „ráðríki"
og forræðishyggju og sagði að þess
væri að vænta að stjórn Tonys Bla-
irs kæmi aftan að þjóðinni með „læ-
víslegum“ skattahækkunum.
Hague sagði að framtíð íhalds-
flokksins myndi grundvallast á
frelsi, framtakssemi, menntun,
sjálfstrausti, skyldum gagnvart ná-
unganum, samúð og þjóðinni.
Flokkurinn yrði að komast á ný í
snertingu við almenning, „uppgötva
aftur hið fordómalausa og um-
hyggjusama" hjarta sitt og ganga
í endurnýjun lífdaga. Hann yrði að
höfða til sem flestra, vera öllum
opinn, lýðræðislegur, hlusta á öll
sjónarmið og draga lærdóma af
þeim.
Sagði hann íhaldsflokkinn verða
að vera skjól minnihlutahópa, ein-
stæðra foreldra og homma, svo
nokkuð væri nefnt en fyrr í vikunni
hélt hann því fram að hroki, spill-
ing, sjálfumgleði og tillitsleysi hefði
leitt til ósigurs flokksins í kosning-
unum í maí.
Um leið og hann útskýrði hina
nýju flokkslínu notaði hann tæki-
færið til að afneita Tebbit lávarði,
fyrrverandi flokksformanni, sem
mælt hafði gegn opnun gagnvart
ólíkum menningarheimum í ræðu á
þinginu. Nefndi hann lávarðinn
reyndar ekki á nafn en gagnrýndi
boðskap hans og bar lofsyrði á ólíka
þjóðmenningu sem hann sagði að
mætti blómstra í Bretlandi.
Mistök Thatchers og Majors
í Evrópumálum
Jafnframt fólst leynd gagnrýni á
John Major og Margaret Thatcher
í framtíðarræðunni en þau voru
fjármála- og forsætisráðherra er
Bretar gerðust aðilar að gengissam-
starfí Evrópu (ERM). „Þegar litið
er yfir farinn veg voru það mikil
mistök að ganga í ER 1990. Við
hefðum átt að hafa hugrekki til að
standa utan við samstarfíð. Vera
okkar þar og síðan brotthvarfið
tveimur árum seinna skaðaði flokk-
inn okkar og trúverðuleika hans
stórlega og við vorum látnir gjalda
þess. Látum það ekki henda aftur
að fara inn í eitthvert samstarf án
þess að vera undir það búnir,“ sagði
Hague. Hague var talinn hafa
storkað íhaldssömum þingfulltrúum
er hann ákvað að deila hótelher-
bergi með unnustu sinni í Black-
pool. í anda nýs umburðarlyndis
sagðist hann geta umborið framhjá-
hald fulltrúa í skuggaráðuneytinu
en sagði sjálfgert að refsa þeim
fyrir íjármálaspillingu.
Verið getur að umbætur Hagues
á Ihaldsflokknum eigi eftir að
mæta fyrirstöðu, ekki síst hjá aftur-
haldssamari öflum í þingflokknum.
Meðal mála sem orðið geta ásteyt-
ingarsteinn er aðild að sameiginleg-
um gjaldmiðli Evrópu sem hann
hefur útilokað aðild að næstu 10
árin, Evrópusinnum í flokknum til
armæðu.
Samtök gegn jarðsprengjum fá fnðarverðlaun Nóbels
Eykur líkur á að her-
veldi samþykki bannið
Ósló. Reuters.
TILKYNNT var í gær að alþjóðleg
samtök, sem berjast fyrir banni
við jarðsprengjum, og leiðtogi
þeirra fengju friðarverðlaun Nó-
bels í ár. Talið er að ákvörðunin
auki líkurnar á því að herveldi
heimsins fallist á alþjóðlegan sátt-
mála um algjört bann við jarð-
sprengjum á næstu árum.
Nóbelsverðlaunanefndin í Ósló
kvaðst hafa valið samtökin Alþjóð-
leg herferð fyrir jarðsprengju-
banni, ICBL, og bandarísku kon-
una Jody Willams, Ieiðtoga sam-
takanna, vegna baráttu þeirra fyr-
ir jarðsprengjubanni og hreinsun
sprengjubelta í heiminum. Sex
hreyfíngar í Bandaríkjunum og
Evrópu stofnuðu ICBL árið 1992
og síðan hafa rúmlega þúsund
hreyfingar frá nær 60 ríkjum
gengið í samtökin.
Fjölskylda Díönu ánægð
„ICBL og Jody Williams hófu
herferð sem hefur á fimm árum
breytt banni við jarðsprengjum frá
því að vera hugsjón í raunhæfan
möguleika,“ sagði í tilkynningu
verðlaunanefndarinnar.
Leiðtogi samtak-
anna, Jody Will-
iams, fær helming
verðlaunanna
Mikill skriður hefur verið á bar-
áttunni gegn jarðsprengjubanninu
síðustu fimm árin og hún náði
hámarki eftir dauða Díönu prins-
essu, sem hafði barist fyrir bann-
inu. Formaður verðlaunanefndar-
innar, Francis Sejersted, sagði þó
að ákvörðunin tengdist ekki Díönu
beint en bætti við: „Við gerum
okkur fulla grein fyrir því að marg-
ir einstaklingar og hópar hafa lagt
sitt af mörkum til baráttunnar."
Fjölskylda Díönu kvaðst mjög
ánægð með að samtök sem berð-
ust fyrir jarðsprengjubanni skyldu
hafa orðið fyrir valinu. Prinsessan
fór til Angóla í fyrra til að vekja
athygli á hættunni sem stafar af
jarðsprengjum en áætlað er að
26.000 manns deyi eða særist al-
varlega af völdum þeirra á ári
hveiju. Myndir af prinsessunni með
börnum, sem hafa misst útlimi
vegna þessara vopna, vöktu mikla
athygli um allan heim.
Rúmlega 100 ríki samþykktu
sáttmála um bann við jarðsprengj-
um á ráðstefnu í Ósló í liðnum
mánuði, en hann nýtur ekki stuðn-
ings margra ríkja, þeirra á meðal
Bandaríkjanna, Rússlands, Kína,
Kúbu, Norður-Kóreu, íraks og ír-
ans.
Fórnarlömb jarðsprengna og
hreyfingar, sem starfað hafa við
hreinsun sprengjubelta víða um
heim, fögnuðu vali nefndarinnar í
Ósló og sögðu að ákvörðunin
myndi hafa mikil áhrif á líf fólks
í mörgum stríðshijáðum löndum.
Tveir kínverskir andófsmenn,
Wei Jingsheng og Wang Dan, voru
á meðal þeirra sem taldir voru lík-
legastir til að fá friðarverðlaunin
að þessu sinni. Stjómarerindrekar
í Peking sögðu líklegt að kínversku
stjóminni hefði létt mjög þegar val
verðlaunanefndarinnar var til-
kynnt.
Verðlaunin verða afhent við at-
höfn í Ósló 10. desember og verð-
launaféð er 7,5 milljónir sænskra
króna, 72 milljónir íslenskra.
Reuters
JODY Williams, leiðtogi samtakanna Alþjóðlcgrar herferðar
fyrir jarðsprengjubanni, ICBL, faðmar samstarfsmann sinn eft-
ir að tilkynnt var að samtökin fengju friðarverðlaun Nóbels í ár.