Morgunblaðið - 08.11.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.11.1997, Blaðsíða 19
FASTEIGNASALA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 19 VIÐSKIPTI Launatilboð Fjárfestingarbankans valda óróa á fjármagnsmarkaði mm Afkomutengd laun breiðast út Skipholti 50b ■ 105 ■ Reykjavík S. 55100 90 VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI hafa að undanförnu greitt sumum starfs- manna sinna hlut í hagnaði sínum eða launabónus til viðbótar við föst laun. Þeir starfsmenn sem geta haft mikil áhrif á afkomuna fá með þeim hætti að njóta þess ríkulega ef vel gengur. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er slíkt fyrirkomu- lag nú að einhveiju marki við Iýði hjá Kaupþingi, Fjárvangi og Hand- sali. Síðan liggur fyrir að Fjárfest- ingarbanki atvinnulífsins hf. hyggst taka upp afkomutengt launakerfi og slíkt er víðar til skoðunar á þessum markaði. Þessi mál hafa verið nokkuð til umræðu á fjármagnsmarkaðnum að undanförnu í kjölfar ráðninga Fjár- festingarbankans á starfsmönnum frá öðrum fjármálastofnunum. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur Fjárfestingarbankinn ráðið til sín átta manns sem starfað hafa hjá íslandsbanka, Verðbréfamarkaði Is- landsbanka og Seðlabankanum. Hafa launatilboð Fjárfestingarbank- ans valdið nokkrum óróa á fjár- magnsmarkaðnum og ber forráða- mönnum fjármálastofnana, sem Morgunblaðið ræddi við, saman um það að bankinn hafi boðið fólki mun betri launakjör en almennt tíðkist í bankakerfinu. Bankinn bjóði mjög há föst laun og afkomutengingu til viðbótar. Bjarni Ármannsson, for- stjóri, bar það hins vegar til baka í Morgunblaðinu í gær að launin væru hærri í bankanum en gerist og geng- ur á þessu sviði og lýsti því yfir að launakjör í bankanum væru mjög sambærileg við það sem þekktist hjá öðrum fjármálafyrirtækjum. Ráðningar Fjárfestingarbankans hafa jafnframt haft þau áhrif að sex sérfræðingar í Seðlabankanum hafa sagt upp störfum og eru ýmist á förum þangað eða til íslandsbanka. Hörgull á fóiki með reynslu Forráðamenn verðbréfafyrirtækja báðust undan því að ræða um launa- mál sinna fyrirtækja undir nafni í samtölum við Morgunblaðið í gær því mikill trúnaður þyrfti að ríkja um öll slík mál. Það kom fram hjá þeim flestum að hörgull hefði verið á hæfum starfsmönnum með reynslu á þessu sviði. Fyrirtækin væru stöð- ugt að bera víurnar í bestu mennina hjá hvert öðru. Þetta hafi orðið þess valdandi að fyrirtækin hefðu þurft að hækka laun þeirra sem þau vildu halda og freista þess að laða að nýja menn með góðum launatilboð- um. Kaupþing hf. virðist hafa verið leiðandi á þessu sviði á verðbréfa- markaðnum. Er þvi haldið fram að fyrirtækið hafi ekki vílað fyrir sér að bjóða hærri laun en önnur fyrir- tæki til að laða að ákveðna starfs- menn eða halda í sína menn. Þar á bæ hafi einstakir starfsmenn verið með um og yfir 500 þúsund krónur í laun á mánuði, jafnvel þótt þeir hafi ekki nein mannaforráð. Að hluta til sé þetta vegna afkomutengingar launa. Hins vegar er bent á að ekki sé sanngjarnt að bera saman launakjör í verðbréfafyrirtæki og fjárfesting- arbanka annars vegar og venjuleg- um viðskiptabanka eða sparisjóði hins vegar. Miklar kröfur séu gerðar til starfsmanna um menntun og hæfni í starfi hjá verðbréfafyrirtækj- um og fjárfestingarbönkum. Oþiö laugardaga 10.00-16.-00 ogsunnudaga 14:00-16.00 TM - HÚSGÖGN StSumúla 30 -Stmi 568 6822 Airbus selur nýjar A340þotur tU Taiwan París. Reuters. EVA AIR á Taiwan hefur fyrst flug- félaga samþykkt að kaupa hina nýju A340 gerð Airbus samsteypunnar og þar með hefur 2,5 milljarða doll- ara áhætta samsteypunnar borgað sig. Airbus Industrie tilkynnti í júní að samtökin mundu markaðssetja langdræga A340-500 og lengda A340-600, þótt þau hefðu engan kaupanda. Sagt var að 2,5 milljörð- um dollara yrði varið til smíðinnar. Eva Air hefur undirritað viljayfir- lýsingu um kaup á sex A340-500 og A340-600 flugvélum og tryggt sér forkaupsrétt að sex í viðbót. Samanlagt er listaverð vélanna 1,86 milljarðar dollara. A340-600 er bráðabirgðavél sem á að keppa við hina stóru tveggja hreyfla Boeing 777 þotu og 747 breiðþotuna, sem tekur um 400 far- þega í sæti. Boeing hefur haft einok- un á slíkum stórum farþegaþotum. Nýi samningurinn táknar að Eva Air verður nýr viðskiptavinur Airbus í Asíu. Félagið á fyrir 23 Boeing og 10 McDonnell Douglas flugvélar. a t •a Húsavík • Húsavík • Húsavík • Húsavík • Húsavík ísland að vetri býður upp á fjölmarga möguleika til afþreyingar og skemmtunar. Skíðaferðir, fjallaskoðun, listalíf, matur, menning og skemmtun. Flugfélag íslands býðurflug, gistingu, skemmtun og ævintýri á einstöku Gjugg- verði fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki. Lífgaðu upp á tilveruna í vetur og skelltu þér í ógleymanlega helgarferð til Húsavíkur með Flugfélagi íslands. á Húsavík www. airiceland.is Jl & - Hosavik- Re»kja»il Gjuggpakki fré kr. 13.200 • Ruf tr«M of tíl baka i Æ Húsavík hressír! Gftiqgflailyiii M. tffl 0$. owmnúm Helgardraumur Á Húsavík verður draumahelgi konunnar áður en jólaamstrió hefst. Einstakt tækifæri til að slaka á og skemmta sér í góðra vina hópi og T anda að sér léttu þingeysku menningarlofti í leiðinni. KV/iniUIíHIfcflVjHtaAjv/tírtiQfljfKíiaiíínRfili]: - hvalaskoðun - náttúruperlur - Ijúffengir sjávarréttir - útivist - menning - rómantík FLUGFELAG ISLANDS V i r l í t' 1 ii n d
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.