Morgunblaðið - 08.11.1997, Side 30
30 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Úr Barentshafi og
af íslandsmiðum
ARIÐ 1989 olli
ákveðið atvik því að ég
hóf að kynna mér gögn
Hafrannsóknarstofn-
unar og veiðiráðgjöf
hérlendis í þorskveið-
um og síðar annars
staðar í Atlantshafinu.
Niðurstaða mín var þá
og er enn sú að veiðir-
áðgjafar fengju góða
einkunn í öflun rann-
sóknargagna en fall-
einkunn í veiðiráðgjöf
þorskveiða, en veiðir-
áðgjöf er sú ályktun
sem ráðgjafar draga
af rannsóknargögnum
sínum. Því hef ég talið
afar brýnt að aðskilið verði milli
rannsóknarstarfsemi og veiðiráð-
gjafar eins og skilið hefur verið á
milli rannsóknarstarfsemi og dóm-
ara í sakamálum. Dómstóll sem
dæmir hvort veiða má 100 þúsund
tonnum meira, eða minna, er ekki
lítill dómur (14 milljarðar útfl.verð-
mæti). Veiðiráðgjöf (dómur) sem
veldur því að trillur hérlendis megi
ekki róa á sjó nema 20 daga á ári
er dómur um sviptingu á atvinnu-
frelsi fjölda saklausra borgara. Sé
dómurinn ekki á rökum reistur, eins
og ég vil halda fram, þá er um
mjög gróft mannréttindabrot að
ræða. I Noregi hafa nú 4600 trillur
ftjálsan aðgang að fiskimiðunum
en á íslandi fá sumir 26 daga og
aðrir ekkert, á sömu „vísindalegu"
forsendunum(!?)
Meðfylgjandi er mynd um vaxt-
arhraða þorsks í Barentshafí (sagan
virðist alls staðar svipuð með þorsk-
inn). Á myndinni sést að vaxtar-
hraði 6 ára þorsks féll um 68% frá
1985-1988. Á þessum árum héldu
veiðiráðgjafar því fram að „of-
veiði“, „rányrkja" og „smáfiska-
dráp“, væri orsök veiðihruns í Bar-
entshafí. (Hver var nú stóryrtur?)
Myndin bendir hins vegar sterklega
til að svo hafi ekki verið. A.m.k.
er það borðleggjandi að þessi hluti
stofnsins minnkaði um 68% vegna
minnkandi vaxtarhraða (af hveiju
var ekki sagt frá því??) Þegar vaxt-
arhraði 6 ára þorsks fellur um 68%
á þrem árum þá getur skýringin
ekki verið ofveiði heldur er fæðu-
skortur líklegri skýr-
ing. Flestar
kennslubækur í fiski-
líffræði segja að: Sé
vaxtarhraði á niðurleið
samfara minnkandi
veiði þá sé ólíklega um
ofveiði að ræða heldur
sé skýringa líklega að
leita í breyttum um-
hverfisskilyrðum. Við
slíka niðursveiflu í
umhverfisskilyrðum
getur verið það versta
sem gert er að draga
úr veiði (sbr. sögulegar
heimildir frá Kanada).
Ég vitna enn einu
sinni í viðtal við Jakob
Jakobsson í Fiskifréttum 10. nóv.
1989. Þar er m.a. teiknuð mynd
af „hruni“ þorskstofnsins í Barents:
hafí. (Lína nánast lóðrétt niður.) í
sama viðtali fer Jakob lofsorði um
Það gengur ekki lengur,
segir Kristinn Péturs-
son, að fámenn klíka
veiðiráðgjafa ráðskist
með þorskveiði í Atl-
antshafi í nafni „vís-
inda“ sem ekki standast
sögulegar staðreyndir.
„ábyrga" fískveiðistjórnun Kanada-
manna þar sem sókn þeirra sé helm-
ingi vægari en sóknin í íslenska
þorskstofninn. í viðtalinu er Jakob
m.a. titlaður formaður Alþjóðaha-
frannsóknarráðsins svo varla hefur
skort á upplýsingar.
Um einu ári eftir umrætt viðtal
við Jakob fór að glæðast veiðin í
Barentshafí veiðiráðgjöfum í opna
skjöldu og svo fór að mokveiðast.
í Kanada hefur hins vegar varla
verið dreginn fiskur úr sjó síðan
umrætt viðtal fór fram.
Þremur árum síðar (1992) er
þorskstofninn í Barentshafi mældur
með bergmálsmælingu (vegna
gagnrýni veiðimanna á lítinn veiði-
kvóta) á vegum norsku Hafró.
Mældist stofninn helmingi stærri
en hann „átti að vera“ skv. bók-
haldi reiknilíkansins. Veiðiráðgjöf-
um var mjög brugðið og héldu þessu
leyndu fyrst í stað. Blaðamaður frá
„Fiskaren“ komst yfír þessar upp-
lýsingar og veiðiráðgjöfín sprakk
framan í ráðgjafa með fréttinni í
Fiskaren. Einn þorskveiðiráðgjafi á
Islandsmiðum sá sig tilknúinn að
veija kollega sína í Noregi með því
að skrifa grein í DV og sagði m.a.
„að ófyrirleitinn blaðamaður hefði
komist yfir innanhússplagg (let-
urbr. höf.) frá norsku Hafró.“ Hver
djö. varðar einhveija asna um stærð
þorskstofnsins(??!!) Ráðgjafar í Nor-
egi urðu að viðurkenna mistök í
veiðiráðgjöf og veiðiheimildir voru
snarlega auknar. Hrunadansinn í
Norður-Noregi stöðvaðist og allir
fengu nóg að gera (fyrir tilviljun?)
Hér við land hafa raddir veiðimanna
og annarra sífellt verið kæfðar nið-
ur sem „óábyrgar". Hver var reynsl-
an í Noregi?
Á meðfylgjandi mynd má sjá
hvernig vaxtarhraði þorsksins í
Barentshafi kemur aftur í hámark
1992. Síðan þá hefur vaxtarhraði
þarna verið fallandi. 1992-1995
fellur vaxtarhraði 6 ára þorsks t.d.
um 45%. Veiðiráðgjafar hefðu, (skv.
reynslunni), átt að vara við því sem
var að gerast. Þetta hef ég oft bent
á. Sl. vor fór aftur að vanta þorsk
í „bókhaldið“ í Barentshafi og þá
sagði forstjóri norsku Hafró, Roald
Waage, að hann teldi rétt að endur-
skoða aðferðir við útreikninga um
stærð þorskstofna. Það hlýtur að
þurfa að þagga snarlega niður í
svona uppreisnarmanni(?!) Allir sem
efast um ágæti reiknilíkansins
skulu fá að halda kjafti, eða þagðir
í hel. Mál þetta virðist mér alls
ekki snúast um nein vísindi, eins
og haldið er fram, heldur grimmd-
arlegan metnað klíku veiðiráðgjafa,
og að einhveiju leyti peningalega
hagsmuni þeirra sem njóta hagnað-
ar þessa vafasömu vísinda. Hér-
lendis finnast menn sem styðja lít-
inn þorskkvóta, að því er virðist,
til þess að leiguverðið á þorski lækki
síður, smærri aðilum fækki í grein-
inni og braskmöguleikarnir haldist
í hámarki.
Kristinn
Pétursson
MYNDIN sýnir hvernig vaxtarhraði sex ára þorsks féll um 68%
frá 1985-1988, náði aftur hámarki 1992, féll frá þeim tíma til
1995 um 45%.
Niðurstaða
Niðurstaðan verður sú, sem ég
hef oft bent á áður, að allt bendi
til þess að reiknilíkan veiðiráðgjafa
sé ónothæft. Stærsti galli reiknilík-
ansins virðist vera að það gerir ráð
fyrir að dánarstuðull þorsks sé föst
tala, 20% árlega, og að fæðufram-
boðið sé alltaf eins. Þegar umhverf-
isaðstæður batna og nóg er af fæðu
bendir allt til þess að náttúruleg
dánartala lækki verulega og við-
komandi þorskstofn stækki þannig
mjög hratt, miklu hraðar en líkan
ráðgjafa gerir ráð fyrir (sbr. Bar-
entshaf 1992 og íslandsmið 1975-
1980 og í dag). Öfugt virðist ger-
ast þegar niðursveifla verður í um-
hverfisskilyrðum eins og í Barents-
hafi í dag og 1985-1988, (íslands-
mið 1980-1983). Minnkandi fæðu-
framboð virðist þá leiða af sér fall-
andi vaxtarhraða, aukið sjálfát og
aukna sjúkdóma sem aftur virðist
valda því að veiðistofn getur minnk-
að mjög hratt. Sagan bendir til
þess að stórvarasamt geti verið „að
draga úr veiði til að byggja upp
stofninn" eins og reiknilíkanið gefur
falskar vísbendingar um að gera
eigi við niðursveiflu (Kanada 1989,
ísland 1983 og 1990, Barentshaf
1985-1988 og í dag). Gögn veiðir-
áðgjafa benda ótvírætt til að sífellt
sé verið að gera sömu mistökin alls
staðar aftur og aftur. Niðurstaðan
af þessari reynslu gefur þannig ótv-
írætt til kynna að veiði fiskiskipa
okkar virðist hafa langtum minni
áhrif á stofnstærð þorsks en veiðir-
áðgjafar hafa fullyrt um. Fjöldi vís-
indamanna í fískifræði, líffræði,
veðurfræði og annarri náttúrufræði
hafa margsinnis bent á þetta og
varað við reiknilíkaninu. Klíka veið-
iráðgjafa hefur alltaf komist upp
með að rúlla yfir sjónarmið þessa
minnihluta náttúrufræðinga á
grimmdarlegan hátt og einokað
veiðiráðgjöf til stjómvalda með
ótrúlegustu aðferðum. Þetta er ekk-
ert nýtt í mannkynssögunni. Mörg
eru dæmin um miskunnarlausa
valdabaráttu vísindamanna þar sem
minnihlutasjónarmið voru tröðkuð
í svaðið fyrst í stað, en reyndust
svo rétt þegar upp var staðið. Veið-
iráðgjafar hafa komist upp með að
reikna út „sannleika" eftir þörfum
reiknilíkansins heilaga. Útreiknað-
ur sannleikur eftir niðursveiflu í
umhverfisskilyrðum er: „Við höfum
ofmetið stofninn." Eftir uppsveiflu
í umhverfisskilyrðum: „Við höfum
vanmetið stofninn“ í stað þess að
segja raunverulegan sannleikann
sem er að reiknilíkanið virðist ekki
nothæft. Það virðist alls ekki í
mannlegu valdi að stjóma þessum
náttúrusveiflum með „ábyrgri fisk-
veiðistjórnun". Sögulegar stað-
reyndir benda sterklega til þess að
veiði fiskiskipa hafi langtum minni
áhrif á stærð þorskstofna en veiðir-
áðgjafar hafa fullyrt. Jafnstöðuafli
er því raunhæfur valkostur við fisk-
veiðistjórnun. Það gengur ekki
lengur að fámenn klíka veiðiráð-
gjafa ráðskist með þorskveiði í Atl-
antshafinu í dag í nafni „vísinda"
sem ekki standast samkvæmt sögu-
legum staðreyndum.
Höfundur er fiskverkandi.
ÞEGAR það hendir
suma menn að lenda í
rökþroti, grípa þeir til
stóryrða til þess að
dreifa athyglinni frá
kjama málsins. í ljósi
þess ber að lesa grein
Sverris Hermannsson-
ar bankastjóra Lands-
banka íslands í Morg-
unblaðinu 1. nóvember
sl. Grein bankastjór-
ans var rituð í þeim
stíl sem vænta mátti
úr þessari átt og stað-
festir í raun það sem
ég hélt fram í grein
minni í Morgunblaðinu
28. nóvember sl.
Margt er afar athyglisvert í grein
bankastjórans. Tökum fyrst lýsingu
hans á viðskiptum bankans við
Samskip. Þar getur heldur betur
að líta yfírlýsinguna. í greininni
segir bankastjórinn - og fer þar
örugglega maður sem glöggt má
vita: „Eins og komið var fyrir Sam-
skipum virtist í upphafí sem Lands-
bankinn hefði tapað öllu sínu
lánsfé.“ Þetta var sem
sagt staðan. Hver ein-
asta króna sem bank-
inn hafði lánað fyrir-
tækinu virtist vera
töpuð. Ætli það verði
ekki að skoða í þessu
ljósi vandlætingarorð
Sverris Hermannsson-
ar, um banka sem
„horfir aðgerðarlítið
áram saman á óhæfa
rekstrarmenn fyrir-
tækja sólunda lánsfé
bankans“?
Lotið lágt fram á
næstu öld
Þegar hér var komið
málum mátti sá mikli Landsbanki
greinilega láta sér lynda að Iúta
lágt, eftir því sem bankastjórinn
lýsir sjálfur. Á meðan aðrir hluthaf-
ar, sem að málum komu, nutu fullra
réttinda með hlutafé sitt, batt
Landsbankinn 165 milljónir króna
í Samskipum, nánast án vonar um
arð og vaxtalaust í heilan áratug,
eða í raun fram á næstu öld. Reikni
Þegar það hendir suma
menn að lenda í rök-
þroti, grípa þeir til
stóryrða til þess að
dreifa athyglinni frá
kjarna málsins, segir
Einar K. Guðfinnsson,
sem hér gerir grein
Sverris Hermannssonar
að umtalsefni.
menn nú hver fyrir sig.
Það þarf engan að undra að
Sverrir Hermannsson treysti sér
ekki til þess að hafa sjálfur orð um
svo einstaka snilld. Þess í stað beit-
ir hann gömlu stílbragði, kallar
huldumenn sér til halds og trausts
og segir í grein sinni: „... þykir
bankinn hafa komist vel frá Sam-
skipum hf., að bestu manna yfír-
sýn“ (!) Já, miklir menn erum við
Hrólfur minn. Það er von að þetta
þyki sérlega hrósvert.
Olíku saman að jafna
Það eru þessar vaxta- og arð-
lausu 165 milljónir króna sem
Landsbankinn þykist góður að geta
losnað við á sem næst nafnverði,
þremur árum eftir að til þeirra var
stofnað með þeim hætti sem banka-
stjórinn rekur í grein sinni. Hann
kýs að sleppa því að samkvæmt
frétt Morgunblaðsins 23. október
sl. var samþykkt sl. vor að sameina
A- og B-flokk hlutabréfanna í Sam-
skipum. Þannig njóta bréfín sam-
bærilegra réttinda og eru nú boðin
til sölu á hlutabréfamarkaði. Á
Opna tilboðsmarkaðnum er síðasta
sala bréfanna skráð á genginu 3,16.
Þrefalt hærra en það verð sem
Landsbankinn seldi sín bréf á. Með
öðrum orðum: Eigendur bréfa í
B-flokki hlutabréfa Samskipa hafa
fengið þrefalda ávöxtun nafnvirðis-
ins á sama tíma og A-flokkur
Landsbankans hefur hvorki notið
arðs né annarrar ávöxtunar.
100 kall í dag — 300 krónur á
morgun
Og síðan eitt enn, sem staðfestir
mitt mál. Miðað við síðustu stað-
festu söluna á Opna tilboðsmark-
aðnum ættu hluthafamir í Samskip-
um að geta á morgun selt bréfín
sem þeir keyptu af Landsbankanum
á þreföldu kaupgengi. Bréfín, sem
þeir keyptu með öðrum orðum í gær
á 100 krónur, fá þeir 300 krónur
fyrir á morgun, miðað við það
gengi. Þekkist betri ávöxtun annars
staðar? í hópi þeirra sem njóta þess-
ara trakteringa eru stærsta trygg-
ingarfélag, olíufélag og útgerðarfé-
lag landsins auk sjálfs forstjóra
Samskipa og þýskrar kaupskipaút-
gerðar.
Að vísu virðist Sverrir Her-
mannsson draga eitthvað í efa
áreiðanleika markaðsverðs bréf-
anna í Samskipum. Eða hvernig á
annars að skilja eftirfarandi orð
hans, rituð af þeirri hófstillingu sem
hann er kunnur af: „Hvað sem líður
þvættingi þingmannsins um verð á
örfáum bréfum á Opna tilboðsmark-
aðnum...“. Það er von mín að slík
orð frá svo ábyrgum og mikilsvirt-
um bankastjóra hafí hvorki óæski-
leg áhrif á markaðinn, né séu orsök
þess að hagstæðasta kaupt.ilboð í
bréf félagsins er nú á genginu 2,1,
á Opna tilboðsmarkaðnum.
Rétt er það hins vegar hjá Sverri
Hermannssyni að óhamingju Vest-
firðinga hefur orðið margt að vopni.
Kannski hefði betur tekist til hefðu
þeir notið álíka vildar og að ofan
er greint.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum.
Staðfesting úr
Landsbankanum
Einar K.
Guðfinnsson