Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 2

Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Dæmdir í 3-4 ára fangelsi fyrir smygl á e-pillum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær fjóra unga menn í fang- elsi fyrir innflutning á tæplega 800 e-pillum sem þeir sendu í tveimur pökkum í pósti frá London sl. sumar. Einn mannanna starfaði við akstur með póstsendingar hjá Pósti og síma og ætlaði hann að taka pakkana úr umferð áður en þeim yrði skilað til skráðra viðtakenda. Tollverðir fundu hins vegar efnið og voru mennirnir handteknir nokkrum dögum síðar. Héraðsdómur dæmdi Sigurð Þórðarson, 23 ára, í 3 ára og 6 mán- aða fangelsi fyrir að hafa átt frum- kvæði að og skipulagt kaup á fíkni- efninu og innflutning þess. Hann hafi lagt á ráðin eftir hvaða leiðum væri hentugast að senda efnið, út- vegað peninga til kaupanna og af- hent þá kaupandanum. Pétur Ásgeirsson, 21 árs, var dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir kaup á e-pillunum í London og sendingu þeirra hingað til lands. Hann faldi pillurnar í tveimur bókum, sem hann hafði skorið innan úr og stflaði send- inguna á heimilisfóng tveggja kvenna, sem tengdust málinu ekki. Dómarinn tók tillit til þess að Sigurð- ur og Pétur játuðu brot sín greiðlega. 400 þúsund krónur til kaupanna Pétur Bruno Scheving Thorsteins- son, 25 ára, var dæmdur í 4 ára fang- elsi, fyrir að leggja fram 400 þúsund krónur til kaupa á e-pillunum. Pétur Bruno neitaði öllum sakargiftum, en var sakfelldur á grundvelli játninga Sigurðai- Þórðarsonar og Péturs As- geirssonar. Gunnar Ólafsson, 23 ára, vai' einnig dæmdur í 4 ára fangelsi fyinr aðild sína að málinu. Hann veitti Sig- urði upplýsingar um hvaða leiðir væru hentugastar til fíkniefnainn- flutnings og ætlaði að nýta sér að- stöðu sína sem starfsmaður Pósts og síma til að nálgast pakkana. Lítill styrkleiki fíkni- efnis mildaði dóminn Kosturinn tekinn um borð JAPANSKT túnfiskveiðiskip hef- ur verið í Reykjavíkurhöfn und- anfarna daga til að taka olíu og hvíla mannskapinn um borð. I gær var handagangur í öskjunni hjá skipverjum við að koma kost- inum um borð en senn líður að því að skipið haldi til veiða á ný. Talsvert hefur verið um komur japanskra túnfiskveiðiskipa hing- að til lands upp á sfðkastið að sögn hafnarvarða í Reykjavíkur- höfn. Blossi keppir um óskarinn KVIKMYNDIN Blossi 810551 eftir Júlíus Kemp var í gær- kvöldi valin sem framlag ís- lendinga til óskarsverðlauna í ár á „ís- lenska óskarnum" sem Sam- band ís- lenskra kvikmynda- framleið- enda, Félag kvikmynda- gerðar- manna og Samband íslenskra kvikmyndaleikstjóra stóðu fyrir á Gráa kettinum. Atkvæðisrétt höfðu félags- menn í áðurnefndum félögum auk leikara, tónskálda og ann- arra sem unnið hafa skapandi vinnu við tvær íslenskar kvik- myndir. Kosningin hefur aldrei verið svo jöfn sem nú, en 36 greiddu atkvæði og féllu þau þannig að Perlur og svín í leikstjórn Óskars Jónassonar fékk 16 atkvæði, en Blossi 810551 fékk 17 atkvæði. María, mynd Einars Heim- issonar, var dregin út úr sam- keppninni að ósk leikstjórans. Júlíus Kemp Gísli S. Einarsson alþingismaður Fjórðungur sjúkl- inga fær ekki inni á stofum „ÞAÐ vantar 600 til 800 milljónir á Ríkisspítalana til að bæta rekstrar- fjárþörfina eina saman. Á Ríkisspít- ölunum er rekin heil deild á göngum og klósettum. Fjórði hver sjúkling- ur sem lagður er inn liggur á göng- um og á klósettum. Þetta gengur ekki. Það er nákvæmlega sama ástandið á Borgarspítalanum. Hann er að grotna niður af viðhaldsleysi. Þar vantar 471 milljón til að halda rekstrinum gangandi,“ sagði Gísli S. Einarsson, þingmaður Alþýðuflokks og fulltrúi í fjárlaganefnd, við um- ræður um byggðamál á Alþingi í gær. Gísli fjallaði sérstaklega um ástandið í heilbrigðismálum og sagði að flestar heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni væru með uppsafn- aðan rekstarhalla frá fjórum og upp í 80 milljónir kr. í heild næmi hall- inn á annað hundrað milljónum. „Ef þessar stofnanir eiga að vinna sam- kvæmt fjárlagatillögum blasa við uppsagnir starfsfólks, lokanir deilda og samdráttur í þjónustu. Á sama tíma ætlast menn til að skorið sé niður um 80 milljónir á landsbyggð- arsjúkrahúsunum,“ sagði Gísli. Hann sagði að samkvæmt upplýs- ingum sem hann hefði aflað þyrfti að gera áætlun til þriggja ára til að ráða bót á þessum málum, þar sem gert væri ráð fyrir 1-1,2 milljörðum kr. á ári til viðbótar reiknitölum fjárlaga til að koma viðhaldi sjúkra- stofnana á landinu í viðunandi horf. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær tvo menn, Kristján Hauksson, 34 ára, og Gísla Valgeirsson, 39 ára, í þriggja og tveggja ára fangelsi fyrir inn- flutning á amfetamíni. Dómurinn mildar niðm-stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í mars sl. sem dæmdi Kristján í fjögurra og Gísla í þriggja ára fangelsi og vísar Hæstiréttur til þess að styrkleiki efnisins hafi verið lltill. 32 ára karlmaður, svonefnt „burð- ardýr“, sem tók við fé af Kristjáni og sótti amfetamínið til Gísla í Amster- dam, var handtekinn við heimkom- una í febrúar á síðasta ári og voru þá 376 grömm af amfetamíndufti og 808 amfetamíntöflur í fórum hans. Héraðsdómur dæmdi „burðardýi-- ið“ í 18 mánaða fangelsi og var þeim dómi ekki áfrýjað, en Kristján og Gísli áfrýjuðu dómum sínum. Ekki sterkt efni Hæstiréttur segir að brot mann- anna hafi verið skipulagt og miðað að því að afla hættulegra fíkniefna til sölu hér á landi. Magn fíkniefnanna hafi verið mikið, en til þess verði þó að líta að styrkleiki alls amfetamín- duftsins hafi verið fremur lítill og styrkleiki taflnanna óverulegur. I lífshættu með al- varleg brunasár KONA á rniðjum aldri skað- brenndist í andliti og á hálsi um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld þeg- ar kviknaði í hálsklút sem hún bar. Hún er í lífshættu þar sem hún er með þriðja stigs brunasár á um 20% líkamans. Talið er að konan hafí beygt sig yfír kerti og eldur þá læst sig í hálsklútinn. Hún komst inn á bað- herbergi og náði að skrúfa frá köldu vatni í baðkari en missti þá meðvitund. Reykskynjari í íbúð konunnar fór í gang, íbúar á næstu hæð heyrðu það og komu konunni til hjálpar, slökktu í fótum hennar og komú henni í kalt vatn meðan beðið var aðstoðar sjúkraliðs. Samgönguráðherra ræddi við mótmælendur gjaldskrárhækkunar Hefur óskað eftir að Samkeppnisstofnun hraði umfjöllun sinni HALLDÓR Blöndal samgönguráð- herra kallaði í gær til sín talsmenn allra þeirra hópa sem undanfarið hafa mótmælt hækkun á gjaldskrá Pósts og síma hf. og í samtali við Morgunblaðið sagðist Halldór hafa greint frá því að hann hefði óskað eftir að Samkeppnisstofnun og Póst- og fjarskiptastofnunin hröðuðu um- fjöllun sinni um hækkunina sem kærð hefur verið til Samkeppnis- stofnunar. „Hér í samgönguráðuneytinu er í undirbúningi að setja fram stefnu í fjarskiptamálum, og í tengslum við þá vinnu og einnig vegna þeirra ályktana sem nokkur fjöldasamtök sendu stjórn Pósts og síma, þótti mér rétt að tala við fulltrúa samtak- anna hverra fyrir sig, og einnig ræddi ég við formann Félags ís- lenskra símamanna. Ég fór yfir mál- in út frá mínu sjónarmiði og þeir út frá sínu og tel ég að þessir fundir hafi verið mjög gagnlegir," sagði Halldór. Á fund samgönguráðherra í gær komu fulltrúar frá ASÍ, BSRB, Neytendasamtökunum, Landssam- bandi eldri borgara, Netverjum og Öryrkjabandalaginu. „Samkeppnisstofnun og Póstr og fjarskiptastofnun eru með þessa hækkun Pósts og síma til athugunar, en hækkunin var kærð til Sam- keppnisstofnunar. Ég hef talað við þessar stofnanir og óskað eftir að þær vinni saman að athugun á þess- um málum og reyni að hraða niður- stöðunum. Jafnframt hef ég lagt áherslu á að tekið verði tillit til þeirr- ar þróunar sem verið hefur á þessu Morgunblaðið/Þorkell HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra boðaði (gær til sín fulltrúa sex hópa sem mótmælt hafa gjaldskrárhækkun Pósts og síma hf. Á mynd- inni sjást þeir Benedikt Davíðsson og Sveinn Björnsson, fulltrúar Landssambands eldri borgara, í sófanum hjá ráðherranum. sviði í löndunum í kringum okkur og þeirra skuldþindinga sem við erum bundnir af. Ég hef sérstaklega vakið athygli á því að nauðsynlegt sé að gera sér grein fyrir því hvort gjald- taka sé í samræmi við þann kostnað sem er af því að þjónustan er veitt,“ sagði Halldór Blöndal. \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.