Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Asdís
Arðsemi P&S tvöfalt mein en
meðalhagnaður fyrirtækja
GUÐMUNDUR Gylfi Guðmundsson, hagfræð-
ingur ASÍ, segir að arðsemi eiginfjár hjá Pósti
og síma sé um tvöfalt hærri en að meðaltali í
öðrum íslenskum atvinnufyrirtækjum. Skv. upp-
lýsingum sem hann fékk hjá Þjóðhagsstofnun
um afkomu íslenskra fyrirtækja kemur í ljós að
meðaltalshagnaður fyrirtækja var 8,5% af eigin
fé á seinasta ári. Er það hæsta hlutfall meðal-
hagnaðar íslenskra atvinnuvega á undanförnum
níu árum.
Forsvarsmenn hagsmunasamtaka sem boðuðu
til fréttamannafundar í vikunni vegna gjaldskrár-
breytinga P&S héldu því fram að fyrirtækið gerði
óeðlilega mikla kröfu um hagnað af starfseminni
sem hlutfall af eigin fé. Sú gjaldskrá sem tók gildi
í byijun vikunnar tryggði fyrirtækinu hagnað upp
á 1,8 til 1,9 milljarða kr. og þótt innansvæðasímt-
öl hefðu ekki hækkað neitt yrði hagnaður P&S
engu að síður 15-16% af eigin fé fyrirtækisins.
Töldu talsmenn samtakanna að P&S fara út fyr-
ir 10. grein laga um hlutafélagið með miklum
gjaldskrárhækkunum á árinu en í lögunum segir
að stjórn félagsins setji gjaldskrá þar sem m.a.
skuli gæta almennra arðsemissjónarmiða og tekið
tillit til tækninýjunga.
Krafa um 15% arð ekki óraunhæf
„í fyrirtækjum er það gjarnan svo að veltan
og tekjurnar eru nokkurn veginn af sömu stærð-
argráðu og efnahagsreikningur þeirra," segir
Pétur Reimarsson, stjórnarformaður P&S. Pétur
segir efnahagsreikning P&S sennilega um tvöfalt
stærri en rekstur félagsins og að eigið fé sé um
10 milljarðar. „Til að skila viðunandi arðsemi á
eigið fé þarf hagnaður sem hlutfall af veltu að
vera meiri en hjá flestum öðrum fyrirtækjum.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að marka gjald-
skrárstefnu til lengri tíma. Sú vinna er að hefj-
ast og væntanlega munu frekari lækkanir á sím-
gjöldum fyrst og fremst koma fram í símtölum
til útlanda. Við reiknum með því að sú sam-
keppni sem kemur um áramótin muni minnka
markaðshlutdeild símans töluvert. Ytri aðstæður
munu knýja hagnaðinn niður á næstu árum og
stjórn Pósts og síma hefur það ekki að markmiði
að halda uppi háum gjaldskrám. Hins vegar var
orðið mikið ójafnvægi milli innanbæjarsímtalanna
og samtala við útlönd," segir hann.
Að sögn Péturs hefur ekki verið talið óraunhæft
að gera þá kröfu að fyrirtækið skilaði 15% arði af
eigin fé þar sem P&S starfar á sviði þar sem tækni-
breytingar eru örar og kerfm úreldast hratt. „Þetta
er gjaman sú krafa sem miðað er við erlendis og
þar er jafnvel talað um 17-19%,“ segir Pétur.
Hækkun og lækkun gjaldskrártaxta
standast á
Talsmenn hagsmunasamtakanna héldu því fram
á fréttamannafundinum að engin rök væru fyrir
því að P&S hækkaði símtöl innan svæða þótt land-
ið væri gert að einu gjaldsvæði. Tækninýjungar
hefðu gert slíkt mögulegt án kostnaðarauka fyrir
fyrirtækið. „Miðað við óbreytta símaumferð stand-
ast núna alveg á lækkun tekna vegna niðurfelling-
ar á langlínutaxtanum og áætluð hækkun tekna
vegna hækkunar á innanbæjarsímtölum,“ segir
Pétur. Hann bendir á að í gjaldskrárbreytingunni
felist að lækkun símtala til útlanda kosti fyrirtæk-
ið 380 milljónir kr.
Köttur að
leik
KÖTTURINN hafði lítinn áhuga
á fuglunum, honum leist mun
betur á að naga og leika sér við
trjágreinar og því gátu allir unað
í sátt og samlyndi í góða veðrinu
í höfuðborginni.
Eimskip sýknað af
13,5 millj. kröfu
Óhapp og
aðgæslu-
leysi skip-
verja
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað Eimskipafélag
íslands af 13,5 milljóna kröfu
skipveija á írafossi, sem slas-
aðist þegar fótur hans klemmd-
ist undir gámi á þilfari skips-
ins. Dómurinn taldi að slysið
yrði einungis rakið til óhappa-
tilviljunar og aðgæsluleysis
skipveijans.
Slysið varð í lok nóvember
1989. Búið var að hífa tóman
gám upp úr lest skipsins og var
verið að hífa annan fullan upp.
Skipveijinn stýrði fuila gámin-
um niður á þann fyrri, en
vinstri fótur hans klemmdist
þá undir neðri gáminum. í
fyrstu var talið að um smá-
vægilegt óhapp væri að ræða,
en síðar kom í ljós að taugar
í rist höfðu klemmst. Skipveij-
inn kvaðst vera með stöðugar
kvalir í fæti, hann hefði hlíft
fætinum frá slysinu og afleið-
ingin væri sú, að hann ætti við
vöðvastyttingar í baki og fæti
að stríða og hryggskekkju.
Hann þyrfti að ganga í sérsmíð-
uðum skóm og taka inn sterk
verkjalyf.
Rak fótinn undir gáminn
Dómurinn segir, að langlík-
legast sé að maðurinn hafí
sjálfur rekið fótinn undir neðri
gáminn, enda hafi ekki verið
hált um borð. Eimskipafélagið
bæri ekki ábyrgð á þessu, held-
ur væri eingöngu um aðgæslu-
leysi mannsins sjálfs að ræða.
Þá hefði hann ekki notað ör-
yggisskó, eins og skylt var.
Dómurinn vísaði einnig á
bug að vangæsla stýrimanns,
sem stýrði gámakrana, hefði
valdið slysinu, enda hefði ekki
annað komið fram en að gám-
urinn hefði fallið rétt ofan á
þann neðri.
Nicorette' innsogslyf
Þegar líkaminn saknar nikótíns og hendurnar sakna vanans,
Ef þú reykir þekkir þú líklega vandamál er
geta komið upp þegar þú hættir að reykja;
líkaminn saknar nikótínsins sem hann er
vanur að fa og hendurnar sakna vanans sem
skapast við það að halda á sígarettu.
Á stundum sem þessum gæti nýja
Nicorette® innsogslyfið hjálpað þér.
Rör sem inniheldur nikótín er settí í munnstykkiö.
Smellt saman og sogið.
Nicorette® innsogslyfið inniheldur nikótín
til að draga úr löngun í sígarettu en um leið
fá hendurnar verkefni. Enn fremur keinur
enginn reykur og þú ert laus við tjöru og
kolsýring.
Rétt handbragð skrefi nær. Ef þú ákveður
að hætta að reykja prófeðu þá nýja
Nicorette® innsogslyfið.
NICDHETTE
Njóttu lífsins - reyklaus
Nicorette® innsogslyf. Hvert rör inniheldur: Nikotín 10 mg. Lytiö kemur i staö nikótins viö reykingar og dregur þannig úr fráhvarfseinkennum og auöveldar fólki aö hætta aö reykia. Nicorette®
innsogslyf er þvl hjálpartaeki þegar reykingum er hætt. InnandaBur skammtur af nikótlni lellur aB mestu út I munnholi og loBir vlB munnsllmhúB. ÞaB nikótlnmagn sem fæst úr einu sogi af
Nicorette® innsogslyfi er minna en úr einu sogi af slgaretfu. Til aö fá sem mest magn af nikótíni úr innsogslyfinu skal nota það I 20 mlnútur. Nicorette® innsogslyf má nota í lengri tima þaö er
háB þeirri tækni sem beitt er hverju sinni viö notkun. Algengur skammtur er 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag. Þaö er mikilvægt aö meðferðartími sé nægilega langur. Mælt er meö að
meöferö standi yfir I a.m.k. 3 mánuöi. Aö þeim tlma liðnum á að minnka nikótínskammtinn smám saman á 6-8 vikum. Venjulega skal Ijúka meBferöinni eftir 6 mánuði. Nicorette® innsogslyf
getur valdið aukaverkunum eins og hósta, ertingu I munni og hálsi. Höfuðverkur, brjóstsviði, ógleði, hiksti, uþþköst, óþægindi f hálsi, nefstifla og blöðrur i munni geta einnig komiö fram. Viö
samtimis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og viö reykingar, verið aukin hætta á blóötaþþa. Nikótin getur valdið bráðum eitrunum hjá börnum og er efnið því alls ekki ætlað börnum
yngri en 15 ára nema I samráði við lækni. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. Þungaöar konur og konur meö barn á brjósti ættu ekki aö nota lyfið nema i samráði
við lækni. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins.Markaðsleyfishafi: Pharmacia&Upjohn, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf„ Hörgatúni 2, Garöabæ.