Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
49. þingi Norðurlandaráðs lauk í Helsinki í gær
Flokksvæðing í
stað þjóðvæðingar
Helsinki. Morgunbiaðið.
ÞINGI Norðurlandaráðs lauk í gær
í Helsinki og var Berit Brorby Lar-
sen þingmaður norska Verka-
mannaflokksins kosin forseti ráðs-
ins. Þau Geir H. Haarde þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, Rannveig Guð-
mundsdóttir þingmaður Alþýðu-
flokksins og Valgerður Sverrisdótt-
ir þingmaður Framsóknarflokksins
eiga sæti í forsætisnefnd ráðsins.
Flokksvæðingin virðist ekki hafa
hindrað íslenska þingmenn í að
komast að, eins og ýmsir þeirra
kviðu þegar landskvótarnir voru
lagðir af í skipulagsbreytingu ráðs-
ins, sem nú er að fullu komin á. Af
málum, sem komu fyrir þingið, má
meðal annars nefna kynþáttamis-
rétti, sem í flestum löndunum vekur
vaxandi ugg og setur svip á stjórn-
málaumræðuna.
Flokksvæðingin hefur tvímæla-
laust vakið umræður, sem bera
merki pólitískra átakamála. Oft
koma upp í umræðunum pólitísk
innanlandsátök, þannig að til dæmis
stjórnarandstöðuþingmaður notar
tækifærið og tekst á við ráðherra
frá sínu landi.
Umræðurnar gefa því fróðlega
spegilmynd af pólitískum átakamál-
um í löndunum fímm. Enn sem
komið er álíta þó ýmsir að flokk-
svæðingin risti ekki djúpt og til-
hneigingin til að ná málamiðlunum,
sem draga broddinn úr pólitískum
átökum, sé enn nokkuð sterk.
Alþjóðavæddir öfgahópar
Norðurlandaráð gekkst fyrir pall-
borðsumræðum með sérfróðum
þátttakendum frá Norðurlöndum,
þar sem þingmönnum gafst tæki-
færi til að spyrja þátttakendur
spurninga um kynþáttamál. Rubina
Rana er pakistönsk og varð einna
fyrst innflytjenda til að kasta sér út
í norsk stjórnmál. Hún hefur búið
átján ár í Noregi, er þriggja barna
móðir og gekk í Verkamannaflokk-
inn til að sýna að innflytjendakonur
væm ekki allar aðgerðalausir áhorf-
endur í því þjóðfélagi, sem þær búa
í.
Hún segir mikilvægt að skora
goðsagnimar á hólm. Oft sé sagt
um innflytjendakonur að þær eigi of
mörg böm „en okkur finnst nú
kannski stundum að norsk börn eigi
of marga foreldra“, segir hún með
stríðnisbros á vör og bregður
þannig upp áleitinni mynd af því
hvemig nútíma norrænt þjóðfélag í
upplausn kemur fjölskyldubundn-
um þjóðum fyrir sjónir.
Helene Lööw starfar á sviði inn-
flytjendamála í Svíþjóð og hefur lát-
ið mikið til sín taka í sænskri um-
ræðu um þau mál. Hún vill ekki
taka undir að kynþáttafordómar
hafi auldst, heldur sé sá kjarni sem
berst á móti útlendingum orðinn
harðari og láti meira á sér bera.
I Svíþjóð vekur tónlist hópa, sem
kenna sig við „Hvítt vald“, áhyggj-
ur því þessi rokktónlist með text-
um fullum af kynþáttafordómum er
vinsæl meðal unglinga og höfðar
beint til þeirra. Kannanir meðal
sænskra skólakrakka sýna að
fímmtán prósent þeirra hlusta á
þessa tónlist, sem þó þýðir öldung-
is ekki að þau aðhyllist öll boðskap-
inn. Hóparnir hafa samskipti um
alnetið, bæði innanlands og svo
milli landa.
Lööw undirstrikar að hóparnir í
Svíþjóð séu ekki sænskt fyrirbæri,
heldur sprottnir af tengslum við al-
þjóðlega hópa, sem starfi í mörgum
löndum. Einnig þetta skuggalega
svið er mótað af alþjóðavæðing-
unni.
Brennimels-
HnaL^]
Hrauneyjafosslina 1
Nesjavallalina 7)
~^r~f Sogslina n
(verour tekin niður)
Sultartangastöð
Sogsstöðvar
Nesjavellir
Búrfellslina
Búrfellsstöö,
Iverageri
(úrfellslina 3A-^
Búrfellslina 3B
Búrfellslím
Héístju háspennulínur
Þorlákshöfif
idsvirkjupfjM Suðvesturlandi
Öskað eignarnáms vegna
lagningar Burfellslínu
LANDSVIRKJUN hefur farið þess á leit við iðnaðarráðuneytið að land
og réttindi vegna legu Búrfellslínu 3A verði tekið eignamámi vegna þess
að samningar hafi ekki tekist við landeigendur. Um er að ræða land undir
undirstöður línumastra og réttindi vegna legu vegarslóða og vegna þess
að ekki má byggja í tiltekinni fjarlægð frá línunni á 25 jörðum í fjórum
hreppum á Suðurlandi.
ENTFRTAINMENT
Eignastu
„Á bakvið
ykkur!“
á myndbandi
20 þúsund
hafa séð Perl-
ur og svm
TUTTUGU þúsund manns hafa nú
séð kvikmyndina Perlur og svín,
sem frumsýnd var í haust.
Tuttuguþúsundasti gesturinn
kom á sýningu í Stjömubíói í
Reykjavík á miðvikudag. Myndin,
sem einnig er sýnd í Sambíóunum,
Álfabakka, og Háskólabíói, var gerð
af Óskari Jónassyni og framleidd af
Islensku kvikmyndasamsteypunni.
Iðnaðan-áðuneytið hefur sent út
bréf til þinglýstra eigenda þessara
jarða þar sem þeir era upplýstir
um ósk Landsvirkjunar og gefínn
kostur á að koma á framfæri at-
hugasemdum áður en tekin verður
ákvörðun um hvort heimila skuli
eignarnámið. Frestur til þess renn-
ur út 21. nóvember. Jarðirnar eru í
Gnúpverjahreppi, Grafnings-
hreppi, Grímsneshreppi, auk einn-
ar jarðar í Skeiðahreppi.
Guðjón Axel Guðjónsson, lög-
fræðingur í iðnaðarráðuneytinu,
sagði að beiðni Landsvirkjunar
hljóðaði upp á heimild til að leggja
vegslóða fheðfram fyrirhuguðu
línustæði, land undir undirstöður
línumastra og bann við byggingum
á 54 metra breiða landræmu undir
og meðfram raflínunni.
Framkvæmdaleyfí
á 30 jörðum
Hjá Landsvirkjun fengust þær
upplýsingar að um 25 jarðir væri
að ræða, þar sem leita þyrfti eftir
heimild til eignarnáms vegna þess
að samningar hefðu ekki tekist við
eigendur jarðanna. Við eigendur 30
jarða hefðu hins vegar annað hvort
verið gerðir endanlegir samningar
eða fengist leyfí fyrir framkvæmd-
um meðan beðið væri eftir niður-
stöðu matsgerða.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
AUK fjölda skjala um sögu Hvitabandsins voru Kvennasögu-
safninu afhentir tveir minningarskildir og platti úr silfri. Á
milli skjaldanna gefur að líta skúfhólk Ólafíu Jóhannsdóttur,
fyrsta formanns félagsins.
Hvítabandið afhendir Kvennasögu-
safninu gögn sín til varðveislu
Verða aðgengi-
leg í Kvenna-
sögusafninu
HVITABANDIÐ afhenti í gær
Kvennasögusafni íslands gögn sín
til varðveislu við hátíðlega athöfn í
Þjóðarbókhlöðunni.
Hvítabandið var stofnað árið
1895 og er næstelsta líknarfélagið
í Reykjavík, en elst er Thorvald-
sensfélagið. Þá er Hvítabandið
fyrstu íslensku kvennasamtökin
sem tengjast alþjóðasamtökum.
Fyrsti formaður þess var Ólafía
Jóhannsdóttir en meðal þeirra
gripa sem afhentir vora Kvenna-
sögusafninu^ í gær var einmitt
skúfhólkur Ólafíu.
I fréttatilkynningu segir m.a. að
hjá Hvítabandinu hafi safnast
saman mikið umfang skjala er
tengjast sögu þess og starfsemi.
Nú sé svo komið að ekki sé lengur
hægt að geyma gögn félagsins í
heimahúsum, vegna hættu á eyði-
leggingu og einnig svo að hægt sé
að veita öðrum aðgang að þeim.
Meðal þess sem nú verður að-
gengilegt í Kvennasögusafni ís-
lands er fundagerðabækur félags-
ins, félagaskrár, bréfasafn og
blaðaúrklippur.
Hvítabandið hefur komið víða
við í hjálparstörfum sínum í
Reykjavík á þeim 102 árum sem
liðin eru frá stofnun þess. Það
hefur t.d. staðið fyrir heima-
hjúkrun og útleigu á legubúnaði,
sinnt matar- og fatadreifíngu,
veitt heimilishjálp og rekið Ijósa-
stofu. Þá hefur Hvítabandið
byggt og rekið samnefnt sjúkra-
hús við Skólavörðustíg, sem það
gaf seinna Reykjavíkurborg. Nú
styður félagið sérstaklega tvær
stofnanir; meðferðai’heimilið við
Kleifarveg, fyrir börn með geð-
ræn vandamál, og Dyngjuna,
áfangaheimili fyrir konur sem
farið hafa í áfengis- og fíkniefna-
meðferð.
Hringbraut flutt suður fyrir Vatnsmýrarveg
A
Akvörðun væntanlega
tekin á næsta ári
FÆRSLA á Hringbraut á kaflanum
frá Snorrabraut vestur fyrir Sóleyj-
argötu suður fyrh’ Umferðarmið-
stöðina er nú aftur til skoðunar hjá
Borgarverkfræðingi. Það er einkum
vegna þrengsla á lóð Landspítalans
sem skriður er að komast á fyrirhug-
aðar breytingar en samkvæmt aðal-
skipulagi borgarinnar er gert ráð
fyrir að Hringbrautin liggi á þessum
kaíla sunnan Umferðarmiðstöðvar.
Ólafur Bjarnason, yfírverkfræð-
ingur hjá Borgarverkfræðingi, segir
að þarna sé um þjóðveg í þéttbýli að
ræða og fjármagn til framkvæmda
komi frá ríkinu. Verkið sé ekki kom-
ið inn á framkvæmdaáætlun. Engar
vinnuteikningar séu til af fyrirhug-
uðum framkvæmdum.
Ólafur segir að vonast sé til að
breyting á Hringbrautinni komist á
ákvörðunarstig á næsta ári. Sam-
kvæmt aðalskipulagi yrði Vatnsmýr-
ai-vegur aflagður. Bústaðavegsbrúin
yfir Vatnsmýrarveg er hluti af nýju
skipulagi Hringbrautar. Að minnsta
kosti yrðu tvær akbrautir í hvora átt.
„Það ýtir á þessa hreyfingu máls-
ins að þrengsli eru mikil á Landspít-
alalóðinni. Þar er skortur á bílastæð-
um og á því verður ekki ráðin bót
fyiT en Hringbrautin verður flutt.