Morgunblaðið - 14.11.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 14.11.1997, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir HLÍN Guðnadóttir opnaði sundlaugina í Laugaskarði eftir gagngerar endurbætur. Sundlaugin Laugaskarði opnuð eftir endurbætur Hveragerði. Morgunblaðið. SUNDLAUGIN í Laugaskarði var opnuð síðastliðinn laugardag eftir gagngerar endurbætur sem staðið hafa yíír síðan um miðjan ágúst. Það var Hlín Guðnadóttir, íþróttamaður ársins 1996, sem formlega tók sundlaugina í notkun og klippti á borða til merkis um það. Gísli Páll Pálsson, forseti bæjarstjórnar í Hveragerði, flutti ávarp við opnunina og rakti þar sögu sundlaugarinnar í Lauga- skarði ásamt því að kynna þær framkvæmdir sem nú hafa farið þar fram. í máli Gísla Páls kom fram að sundlaug í Laugaskai’ði var fyrst opnuð árið 1938, en árið 1945 var laugin orðin 50 metrar á lengd með steyptum botni. Arið 1963 var núverandi sundlaugai-hús reist. Það var síðan árið 1984 að laugin var endurbætt, var þá með- al annars steypt í botn laugarinn- ar. Þær framkvæmdir sem nú var ina betri bæði fyrir sundkeppnir sem og fyrir alménning. Laugai'- bakkarnir voru hækkaðir og þeir dúklagðir. Upphituð gangstétt var lögð umhverfis laugina ásamt rist- um. Nýir innrennslisstútar, 14 talsins, voru lagðir í laugina, en það tryggir jafnan hita í lauginni allri. Þá var glerveggur í gufubaði endurnýjaður og þar fyrir framan komið fyrir stóreflis stuðlabergs- drang sem jafnframt er vatns- brunnur fyi’ir gesti laugarinnar. Nýii' ráspallar voiu einnig settii' upp þannig að nú er laugin á ný lögleg keppnislaug, ein sú stærsta á landinu. Heildarkostnaður við verkið nemur um 15 milljónum ki'óna Að lokinni formlegri opnun laugarinnar syntu nokkrir fasta- gestir fyrsta sundsprettinn og að því búnu fór fram fyrsta sund- mótið í endurbættri laug en það var hverfamót þar sem íbúar Hveragerðisbæjar kepptu sín á milli. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir HLUTI þeirra muna sem heimilisfólkið á Ási hefur unnið. „Nú er mér nóg boðið...“ á ínyndbandi Basar á Dvalarheimil / inu Asi, Hveragerði Hveragerði - Heimilisfólkið á Dvalarheimilinu Ási/Ásbyrgi í Hveragerði heldur sinn árlega basar í föndurhúsinu, Frumskógum 6b, laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. nóvember. Basarinn er opinn milli klukkan 14 og 18 báða dagana. Á basarnum kennir ýmissa grasa eins og ávallt og selur heimilisfólkið þar ýmsa muni sem unnir hafa verið á síðastliðnu ári. Má þar fínna jólavörur ýmiskonar, pijónles, bæði sokka og vettlinga, dúka, trévöru og ýmislegt fleira. h Andakflsárvirkjun 50 ára Virkjun við Kljáfoss til skoðunar á ný Eigendur Andakílsárvirkjunar minnast þess í dag að 50 ár eru liðin frá því að virkjunin hóf rafmagnsframleiðslu. Stjórn virkjunarinnar hefur í samstarfí við RARIK ákveðið að skoða að nýju hug- myndir um Kljáfoss- virkjun. Egill Ólafsson rifjar upp sögu Andakílsárvirkjunar og áform um virkjun við Kljáfoss. FIMMTÍU ár eru liðin frá því að Andakílsárvirkjun var tek- in í notkun. Afmælisins er minnst með móttöku í virkjuninni í dag. Stjórn virkjunarinnar hefur ákveðið að skoða að nýju hugmyndir um virkjun Kljáfoss í Hvítá, en þær voru lagðai' til hliðar fyrir 20 árum. Verið er að vinna skýrslu um hag- kvæmni virkjunarinnar í samvinnu við RARIK. NÚVERANDI stjórn virkjunarinnar skipa (aftari röð f.v.) Ingvar Ingvarsson, Sveinn Kristinsson, Guðmundur Páll Jónsson, (fremri röð) Guðbjartur Hannesson, Gunnar Sigurðsson formaður og Magnús Oddsson veitustjóri. STÖÐVARHÚS Andakílsárvirkjunar var stækkað árið 1974. I i I I Fyrstu hugmyndir um virkjun Andakflsár komu fram árið 1907, fyrir réttum 90 árum þegar breski verkfræðingui’inn Cooper kom til ís- lands og keypti vatns- og landsrétt- indi við Andakílsárfossa með það fyrir augum að reisa þar köfnunar- efnisverksmiðju. Ekkert varð af þessum áformum, en áhugi heima- manna á virkjun Andakílsár var vak- inn og á næstu árum og áratugum fór fram ítarleg skoðun á hag- kvæmni þess að virkja ána. Árið 1923 var búið að teikna virkj- unina og vinna ítarlega skýrslu um hana, en ekkert varð af framkvæmd- um vegna þess að fjármagn skorti og ekki fékkst ríkisábyrgð fyrir lántöku. Frumkvæði heimamanna Þrátt fyrir þetta gáfust heima- menn ekki upp. Áhugi á Andakflsár- virkjun jókst eftir að Sogsvirkjun tók til starfa 1936. Sameignarféiagið Andakflsárvirkjun var stofnað 1942 og var Haraldur Böðvarsson, útgerð- armaður á Akranesi, formaður stjórnar félagsins, en hann og Pétur Ottesen, alþingismaður Borgfirð- inga, áttu, að öðrum ólöstuðum, mestan þátt í að virkjunin vai' byggð. Málið var ekki auðunnið þvi að koma þurfti frumvarpi um virkjunina í gegnum Alþingi, útvega fjármagn og fá samþykkt fyrir ríkisábyrgð á lán- um. Þetta tókst og hófust fram- kvæmdir vorið 1945. Framkvæmd- um lauk 1947 og var spennu hleypt á orkukerfíð í október það ár. Rafvæðing í Borgarfíi’ði jókst hröðum skrefum á næstu árum og leið ekki á löngu þar til aflstöðin varð of lítil. Þegar Sementsverksmiðja ríkisins hóf rekstur á Akranesi 1959 var nauðsynlegt að fá aukna raforku inn í héraðið. Til að leysa þetta var lögð háspennulína frá Elliðaám til Akraness. Borgfírðingar höfðu hins vegar áhuga á að auka raforkuframleiðslu innan héraðsins. Ástæðan var ekki síst að viðbótarorkan var mun dýrari en raforkan sem kom frá Andakíls- ánúrkjun, en auk þess var rekstrar- öi-yggið í kerfinu ófullnægjandi. Kljáfossvirkjun undirbúin Áhuginn beindist einkum að virkj- un Kljáfoss í Hvítá. Skýrsla um virkjunina, sem gerð var 1964, benti til þess að þar væri um að ræða mjög hagstæðan virkjunarkost. Stjórn Andakílsárvirkjunar lét undirbúa málið og aflaði m.a. tilboða í vélar og fékk vilyrði um hagstæð lán til langs tíma. Jafnframt tók stjórnin ákvörð- un um að leggja til hliðar fjármuni, sem hún hugðist leggja í virkjunina þegar framkvæmdir hæfust. Lög um virkjun í Hvítá í Borgarfirði voru samþykkt á Alþingi, en ekkert varð af framkvæmdum. Áhugi stjórnvalda beindist fremur að stórvirkjunum á Suðurlandi en smærri virkjunum í héraði. Þegar ljóst vai' að baráttan fyrir virkjun Kljáfoss yrði torsótt var ákveðið að stækka Andakílsárvirkjun upp í 8,4 MW. Var stíflan hækkuð um einn metra, ný vélasamstæða tekin í notkun og stöðvarhúsið stækkað. Stækkunin var tekin í notkun 1974. Breytt eignaraðild Það voru sýslunefndir Borgar- fjarðar- og Mýrasýslu ásamt Akra- neskaupstað sem virkjuðu Anda- kílsárfossa. Þegai' sýslunefndhnar voru lagðar niður eignuðust sveitar- félögin í sýslunum virkjunina. Segja má að þessi eign hafi malað gull fyi'ir sveitarfélögin og sé búin að borga sig upp mörgum sinnum. Árið 1995 náðust samningar um breytta eign- araðild að virkjuninni, en verðmæti hennar var þá metið á 450 milljónir. Eignaraðild að Andakílsárvirkjun var breytt 1995 m.a. vegna erfiðrar fjárhagsstöðu Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðai'. Vai’ð niðurstaðan sú að Akurnesingar eignuðust alla virkjunina, en önnur sveitarfélög í Borgarfirði og Mýrasýslu fengu sinn eignarhluta greiddan út. , Gunnar Sigurðsson, stjórnarfor- maður Andakílsárvirkjunar, sagði að I Akurnesingar hefðu lagt áherslu á ) að eignast virkjunina m.a. til að verja það lága raforkuverð sem þeir hafa búið við, en það er svipað og er í Reykjavík. Andakílsárvirkjun framleiðir í dag u.þ.b. 33 gigawattstundir á ári, en orkunotkun á Akranesi er 37-38 GWst. Hún er eina virkjunin á ís- landi sem stendur utan jarðskjálfta- svæða. Gunnar sagði að Akurnesing- * ai' væru stoltir af þessari eign sinni | og myndu í dag minnast framsýni | frumherjanna í afmælisveislu í Andakflsái"vh'kjun. Stjóm virkjunar- innar hefði ákveðið að minnast tíma- mótanna með því að gefa fjórar tölv- ur til Grundaskóla og Brekkubæjar- skóla á Akranesi, Kleppjárnsreykja- skóla og Andakílsárskóla á Hvann- eyri. Það hefur verið haldið styrkum höndum um stjórn Andakílsárvirkj- ) unar. Stjórnin hefur á þessum 50 ár- um, sem liðin eru frá því virkjunin hóf rafmagnsframleiðslu, aðeins haft ' þrjá formenn, Harald Böðvarsson, Magnús Guðmundsson og Gunnar Sigurðsson, sem verið hefur stjórn- arformaður síðustu tvö ár. Fram- kvæmdastjþrar hafa einnig verið að- eins þrír, Óskar Eggertsson, Magn- ús Sæmundsson og Magnús Odds- son. Ný stjórn virkjunarinnar hefur | núna ákveðið í samvinnu við RARIK, að dusta rykið af hugmyndum um virkjun við Kljáfoss, sem legið hafa í I skúffu í 20 ár. Gunnar sagði að það væri mat manna að Kljáfossvirkjun væri mjög hagkvæmur kostur og lík- lega hagkvæmari en sumh- aðrir kosth' sem RARIK hefur skoðað. Miðað við þá kostnaðaráætlun sem gerð var á sínum tíma myndi virkj- unin kosta 1,5 milljarða. Virkjunin yrði nokkru stærri en Andakílsár- ^ virkjun eða 10-11 megawött, en það þýddi að ái'leg raforkusala frá virkj- uninni gæti numið um 200 milljónum | króna. Reksturskostnaður væri áætlaður 30 milljónir á ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.