Morgunblaðið - 14.11.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 29
LISTIR
Tónlistardagar
Dómkirkjunnar
Brahms-
tónleikar
LOKATÓNLEIKAR á tónlistar-
dögum Dómkirkjunnar verða
laugardaginn
15. nóvember
kl. 17. Á efnis-
skrá eru ein-
göngu tónverk
eftir J. Brahms
en nú í ár eru
100 ár liðin frá
dauða hans.
Dómkórinn
syngur „Fest-
und Gedenksp-
rúche“, hátíð-
ar- og íhugun-
ai-vers fyrir
áttraddaðan
kór undir
stjórn Marteins
H. Friðriksson-
ar og mótett-
una „Gjör
dyrnar breiðar,
hliðið hátt“.
Einnig verður
flutt „Orlagaljóð" í þýðingu Jak-
obs Jóhannessonar Smára en
undirleikari í því vekri er Anna
Guðný Guðmundsdóttir. Hefur
konsertflygill verið fenginn að
láni í kirkjuna fyrir þessa tónleika
til þess að píanólist Brahms
komst sem best til skila.
Auk þess flytja barítonsöngv-
arinn Loftur Erlingsson og Anna
Guðný Guðmundsdóttir „Vier
ernste Gesánge", sem eru með
fallegstu einsöngslögum Brahms
og eru textarnir teknir úr Bibl-
íunni.
Minningartón-
leikar í Arnesi
MINNINGARTÓNLEIKAR um
Loft S. Loftsson, stofnanda pg
stjórnanda Ár-
nesingakórs-
ins, sem lést í
júní sl., verða
í félagsheimil-
inu Árnesi,
Gnúpverja-
hreppi, sunnu-
daginn 16.
nóvember kl.
15.
Það er
Vörðukórinn sem gengst fyrir
þessum tónleikum, en auk hans
kemur fram íjöldi tónlistarfólks,
alls um 100 talsins. Flutt verður
tónlist eftir Loft, bæði kórlög,
lúðrasveitartónlist og einsöngs-
lög, en einnig eru á efnisskrá ís-
lensk ættjarðarlög og lög eftir
Sigurð Ágústsson frá Birtinga-
holti, en hann hefði orðið níræður
á þessu ári.
Fyrrverandi félagar úr Árnes-
kórnum munu syngja nokkur lög
ásamt Vörðukórnum, einsöngv-
arar eru Katrín Sigurðardóttir og
Loftur Erlingsson, og píanóleik-
ari er Agnes Löve. Einnig koma
fram Lúðrasveit Selfoss, undir
stjórn Ásgeirs Sigurðssonar,
sönghópurinn Perluvinir, Kúl-
tríóið, Grétar Geirsson, harmon-
ikkuleikari og Þorpsmúsíkantarn-
ir frá Selfossi. Stjórnandi er Mar-
grét Bóasdóttir.
LEIKBRÚÐURNAR Stúfur
og Hurðarskellir.
Jólasveinar
einn og átta í
Leikbrúðulandi
BRÚÐULEIKURINN Jólasveinar
einn og átta var frumfluttur árið
1975 og leikinn fyrir hver jól
næstu fimm ár. Leikritið hefur
nú verið endurgert. Brúðurnar eru
nýjar sem og öll umgjörð.
Sýningar verða ijórar að þessu
sinni, sunnudaginn 16. nóvember,
23. og 30. nóvember og 7. desem-
ber.
Höfundur og leikstjóri er Jón
Hjartarson. Um lýsingu og hljóð-
stjórn sér Sigurður Keiser. Um
brúðugerð og stjórnun þeirra sjá
Bryndís Gunnarsdóttir, Erna
Guðmarsdóttir, Helga Steffensen
og Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Margir leikarar ljá brúðunum
raddir sínar og um tónlist og leik-
hljóð sér Magnús Kjartansson.
Sýnt er á Fríkirkjuvegi 11 og
hefjast sýningar kl. 15. Miðasala
er opin frá kl. 13.
Útgáfutónleikar
í Selfosskirkju
ELÍN Ósk Óskarsdóttir sópran-
söngkona og Hólmfríður Sigurð-
ardóttir píanó-
leikari halda
tónleika í Sel-
fosskirkju laug-
ardaginn 15.
nóvember kl.
16.
Flutt verður
efni af nýút-
komnum hljóm-
diski _ þeirra
Elínar Óskar og
Hólmfríðar,
„Söngperlur",
með íslenskum
og norrænum
sönglögum
ásamt ítölskum
aríum.
Elín Ósk og
Hólmfríður
hafa starfað
saman undan-
farin sjö ár og
er þetta fyrsti sameiginlegi hljóm-
diskur þeirra.
Sænsk gaman-
mynd í Nor-
ræna húsinu
SÆNSK gamanmynd, „Min
pappa ár Tarzan", verður í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn 16.
nóvember kl. 14. Þetta er fjöl-
skyldumynd með sænsku tali.
í kynningu segir: „Skemmtileg
saga um svolítið ruglaða foreldra
og vitur börn, um villt dýr og
hamsturinn Harry. Og ekki má
gleyma Curt sem er í Tarsanskóla
til að læra að tala tungumál dýr-
anna.“
Allir velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Loftur
Erlingsson
Anna Guðný
Guðraunds-
dóttir
Hólmfríður
Sigurðardóttir
Hið klassíska iafnvægi
TÓNLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Beethoven og
Heiligenstadt Testamente lesið. Þul-
ur og kynnir var Jónas Ingimundar-
son, lesari Arnar Jónsson og hljóm-
sveitarstjóri Gerrit Schuil. Fimmtu-
dagurinn 13. nóvember, 1997.
TVENNT ber til sem gerir þessa
tónleika eftirminnilega og það er
fyrst lestur Arnars Jónssonar úr
bréfum Beethovens, það bréf sem
hann aldrei sendi og nefnt er Heilig-
enstadt Testamente, tilfinninga-
þrungið bréf, sem líta má á sem eins
konar erfðaskrá, stílað til bræðra
tónskáldsins, Karls og Johanns. Arn-
ar Jónsson flutti mjög vel þennan
átakanlega texta, í ágætri þýðingu
Reynis Axelssonar. Annað það sem
gerir þessa tónleika eftirminnilega
var hljómsveitarstjórn Gerrits Schu-
ils, sérstaklega í
þremur verkum
meistarans, for-
leiknum að oper-
unni Fidelio,
Egmont forleikn-
um og annarri
sinfóníunni, op.
36, í D-dúr, sem
gagnrýnendur
sögðu vera eins
og hljóð úr frá-
hrindandi ófreskju, sérstaklega fyrir
óvenjuleg tóntegundaskipti og
áherslur, sem ýmist voru á 1. eða
3. takthluta, svo að ekki sé talað
um óvenjulegt upphaf Qórða kafl-
ans. Öll viðfangsefnin voru sérlega
vel mótuð og hljómsveitin iék í heild
sérlega vel og margt frábærlega.
Auðheyrt er að Gerrit Schuil er frá-
bær stjórnandi og stílmótun hans
og túlkun gera þessa tónleika eftir-
minnilega.
Tónleikarnir hófust með Forleikn-
um að Fidelio og þar næst var flutt-
ur annar þátturinn úr fjórða píanó-
konsertinum, sem er sérkennileg
tónlist byggð upp á styrkleika átök-
um á milli einsleikshljóðfærisins og
hljómsveitarinnar og lék Jónas Ingi-
mundarson á píanóið og gerði það
fallega. Þriðja viðfangsefnið var
„metrónóm" þátturinn úr þeirri átt-
undu, sem var mjög vel fluttur og
af þeirri nákvæmni og trúleika við
tónmál meistarans, sem einkenndi
alla tónleikana.
Guðný Guðmundsdóttir flutti
Rómönsuna op. 50 ágætlega en
þetta elskulega „lag“ var fjórða
verkefni tónleikanna. Tónleikum
lauk svo með annarri sinfóníunni,
sem var frábærlega vel flutt undir
stjórn Gerrits Schuils. Það er trúleik-
inn við tónmál meistarans, ná-
kvæmni í samleik og samhljóman
hljóðfæranna og hið klassíka jafn-
vægi, sem Gerrit Schuil lagði áherslu
á og hljómsveitin svaraði upp á með
glæsibrag.
Jón Ásgeirsson
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
BJARNI Jónsson spjallar við hina ungu gesti sína í Listasetrinu.
Skólabörn fræðast um
áraskipaöldina
UNDANFARIÐ hefur staðið yfir
sýning á verkum Bjarna Jónsson-
ar listmálara í Listasetrinu á
Akranesi. Sýnir hann þar aðal-
lega málverk sem eru heimildar-
myndir um sjósókn fyrri tíma og
aðrar þjóðlegar myndir. Liður í
sýningunni hefur verið heim-
sóknir grunnskólabarna á Akra-
nesi sem Bjarni hefur Ieitt í sann-
leikann um áraskipaöldina á Is-
landi út frá myndum sínum en
hann er meðaí annars þekktur
fyrir skýringamyndir sínar við
ritröðina íslenskir sjávarhættir.
Bjarni segir heimsóknir þessar
hafa gengið vel fyrir sig en flest
allir grunnskólanemar á Akra-
nesi hafa þegar sótt sýninguna
heim. „Þetta hefur gefið góða
raun, en ég hef gert þetta áður
í Hafnarfirði og á nokkrum stöð-
um úti á landi. Börnin eru yfir-
leitt mjög áhugasöm og drekka
fróðleikinn í sig. Sum þeirra
koma meira að segja oftar en
einu sinni til að fræðast frekar
og taka þá oftar en ekki foreldr-
ana með sér. Það er virkilega
ánægjulegt enda á þessi fróðleik-
ur erindi við fólk, ekki síst í þess-
um sjávarplássum."
Listasetrið er opið virka daga
frákl. 15-18 ogfrá kl. 15-19
um helgar. Sýningu Bjarna lýkur
næstkomandi sunnudag.
Ljóðatón-
leikar á
ísafirði
UÓÐATÓNLEIKAR verða í sal
Frímúrara á ísafirði á morgun,
laugardag kl. 16. Það eru þær
Anna Júlíana Sveinsdóttir söng-
kona og Sólveig Anna Jónsdóttir
píanóleikari sem halda tónleikana.
Á tónleikunum verða flutt ítölsk
sönglög frá fyrri hluta 17. aldar,
ljóðasöngvar Roberts Schumanns
við ljóð Maríu Stúart, nokkur söng-
lög eftir Richard Strauss og Fjögur
Andalúsíuljóð eftir Jónas Tómas-
son.
Anna Júlíana hefur oft komið
fram á ljóðatónleikum innan lands
sem utan. Einnig hefur hún sungið
fjölmörg óperuhlutverk við Ríkis-
óperuna í Áachen í Þýskalandi og
f óperuuppfærslum hér heima.
Anna Júlíana kennir söng við Tón-
listarskóla Kópavogs.
Sólveig Anna er fædd og uppal-
in á Akureyri og stundaði píanó-
nám fyrst frá ísafirði, síðar á Ak-
ureyri, Reykjavík og Texas í
Bandaríkjunum. Sólveig Anna
starfar við tónlistarkennslu og
píanóleik í Reykjavík og Garðabæ
og hefur m.a. leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Kammersveit
Reykjavíkur.
Tónleikarnir eru aukatónleikar
á vegum Tónlistarfélags ísafjarð-
ar. Aðgangseyrir er kr. 1.200 en
ókeypis er fyrir skólafólk.
Ný tímarit
• í TILEFNI hundrað ára afmæl-
is Æskunnar hefur nýju unglinga-
blaði verið hleypt af stokkunum.
Blaðið hefur hlotið nafnið Smellur,
en það nafn varð hlutskarpast í
keppni Æskunnar og útvarpsþátt-
arins Lovísu. Ritstjóri þess er Elín
Jóhannsdóttir kennari.
„í blaðinu er m.a. rætt við Einar
Örn Benediktsson um tónleikahald
á íslandi og Elísu Geirsdóttur, söng-
konu í Kolrössu krókríðandi. Farið
er á gúmmíbát niður Jökulsá vestri
og bréfum unglinga í vanda svarað.
Fjallað er um notkun anabólískra
stera á íslandi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vogi hafa nær ijörutíu
manns verið í meðferð þar vegna
steranotkunar frá áramótum og
virðist þetta vera vaxandi vandamái
innan íþróttahreyfingarinnar. í við-
tölum við lækni og íþróttamenn
kemur í ljós að notkun stera er
vanabindandi og getur leitt til
neyslu annarra lyfja.
Blaðið erprentað í Odda og er
48 blaðsíður, Sigrún Einarsdóttir
brýtuv um og hannav blaðið. “
M5.Útihurðir
lotgluggar
05678 100
Fax 567 9080
Bíldshöfða 18