Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 31
Horft til baka
BOKMEJVNTIR
Minningar og
frásagnir
LÍFSGLEÐI
Þórir S. Guðbergsson skráði.
Hörpuútgáfan 1997.
LÍFSGLEÐIN er söm við sig.
Hún leitar út í umhverfið í mörgum
myndum sem allar eru mótaðar af
jákvæðri fullnægjukennd sem teng-
ist lífsreynslu og verður því ríkj-
andi í vitund viðkomandi persónu
þegeir litið er til baka eftir langa
lífsgöngu.
Bókin Lífsgleði kemur út nú í VI.
sinn hjá Hörpuútgáfunni. Fimm
persónur leita á vit minninga sinna,
allt til bernskuáranna eða segja frá
einhverju merkilegu, sem ofist hef-
ur í lífsferíl þeirra. - Stundum
óvænt, en alltaf kallað á viðbrögð
sem krefjast úrlausnar og opinbera
oftast sjálfsmynd viðkomandi þeg-
ar sagt er frá. Kannski meira en
sjálf persónan gerir sér grein fyrir.
Að þessu sinni eru kunnar og
þjóðkunnar persónur mættar til
leiks.
Arni Tryggvason, sem á að baki
ævisögu sína Lífróður, leitar hér að
samspili manna og dýra með sjálfa
náttúruna að bakhjarli. Það er ekki
erfitt að mæta Árna í frásögn hans.
Leikara, sem á sér vissan samastað
í hjarta þeirra, sem hafa dáð hann
fölskvalaust frá fyrstu árum hans á
leiksviði. Frásögn hans af sam-
skiptum við fugla og raunai- allt
sem lífsanda dregur, vekur athygli
- svo um munar - á að við menn-
irnir eigum ekki einir þessa jörð.
Þó höfum við einir tekið okkur það
vald að reyna að tortíma henni og
öllu lífi sem á henni býr. Öll frásögn
Arna ber vott djúphygli og eðlis-
lægu næmi fyrir mikilvægi okkar
stuttu veru hér á
jörðu.
Guðrún Ásmunds-
dóttir, einhver ást-
sælasta leikkona okk-
ar, segir frá merkilegri
lífsreynslu. Trú hennar
á æðri máttarvöld og
handleiðslu þeirra eru
undirtónn frásagnar
hennar. I senn snertir
það djúpt lesanda og
sýnir kærleiksrík við-
brögð sem lýsa svo vel
hve hennar eigin gæfa
og gleði víkur fyrir vel-
ferð annarra. Hún leit-
ar svara í Biblíunni og
kannski gæti það orðið
mörgum lærdómur hve skýr þau
svo eru, ef sönn trú er höfð að leið-
arljósi. Einlæg frásögn mikilhæfrar
konu.
Salome Þorkelsdóttir, fyrrver-
andi forseti Alþingis, segir frá
ýmsu merkilegu á þingmannsferli
sínum. Skemmtileg frásögn, en þó
alvarleg í eðli sínu, sem sannar að
hún var býsna litríkur þingmaður
og metnaðarfull. En hvorki barði
hún bumbur né miklaðist af verk-
um sínum. Frásögn af störfum
hennar, utan lands og innan ber
þess vitni. Það er gaman að kynn-
ast af hve miklu sálarþreki hún hef-
ur tekið gjörbreyttum aðstæðum í
lífi sínu. Og nýtur þess að sinna
heimili og fjölskyldu auk ýmissa
ábyrgðarstarfa í þjóðfélaginu, s.s.
formaður stjórnar Safnahússins við
Hverfisgötu og forseti Soroptim-
istasambands Islands. Frásögn
hennar gefur gagnmerka innsýn í
störf á Alþingi, ekki síst þeirra sem
æðstu embættum gegna þar.
Sigurlín M. Gunnarsdóttir lýsir
ítarlega bernsku sinni, námsárum
og hjúkrunarstörfum sem urðu
ævistarf hennar. Frásögn hennar
er nákvæm og í eðli
sínu tengd mörgum
smáatriðum sem safn-
ast síðan í eina heild.
Hún lítur ánægð yfir
farinn veg. Þótt aldur
og starfsþrek hafi ver-
ið fyrir hendi ákvað
hún að hvíla sig frá er-
ilsömu starfi, stundum
sem forstjóri hjúrkun-
ar, og snúa sér að
áhugamálum sínum.
Afar einlæg frásögn,
sem lýsir vel lífi þess
sem gerir umönnun og
hjúkrun að ævistarfi
og rækir það af fyllstu
samviskusemi.
Sveinn Elíasson hefur frá mörgu
að segja. Kannski voru það örlögin
sem komu honum í forsjá ástríkra
kjörforeldra. Lífshlaup hans hefur
verið ákaflega viðburðaríkt.
Bankastarf var hans ævistarf.
Ferðir til fjarlægra landa voru tíð-
ar. Stundum, eins og á seinni
stríðsárum, hættusamar. En gæfan
virðist hafa fylgt honum og ávallt
skilað honum heilum heim. Góðvild
hans til alls og allra gerir frásögn
hans aðlaðandi og áhrifai’íka. í 44
ár vann Sveinn í banka og í 21 ár
sem útibússtjóri í Reykjavík, á
Hvolsvelli og Akranesi. Guðstrú
hans er einlæg og um hana talar
hann mjög opinskátt í lok frásagn-
ar sinnar.
Þar sem nafn bókarinnar er Lífs-
gleðin er ekki nema eðlilegt að í öll-
um tilfellum, frá byrjun, hafi verið
leitað til þeirra manna og kvenna,
sem orðuð hafa verið við æðruleysi
og jákvætt viðhorf tO lífsins. Bókin
átti að höfða til allra sem vilja
temja sér slíkan lífsmáta. Hún er
falleg í útgáfu og Hörpuútgáfunni
til sóma.
Jenna Jensdóttir.
Þórir S.
Guðbergsson
Morgunblaðið/Björn Blöndal
VERÐLAUNAHAFAR Menningarverðlauna Reykjanesbæjar 1997, frá vinstri til hægri eru: Birgir Guðna-
son, Ragnheiður Skúladóttir, Sigrún Hauksdóttir og Iiaukur Ingason sem tók við verðlaununum fyrir hönd
Keflavíkurverktaka.
Menningar-
verðlaun
Reykj anesbæj ar
Kcflavík. Morgunblaðið.
MENNINGARVERÐLAUN Reykjanesbæjar voru
veitt nýlega í fyrsta sinn og fengu fjórir aðilar verð-
launin að þessu sinni. Menningarverðlaunin hafa
fengið nafnið Súlan sem er skúlptúr eftir listamann-
inn Karl Olsen. Auk þess fengu verðlaunahafar
þakkarskjal fyrir framlag sitt og þátttöku f menn-
ingarlífi sveitarfélagsins.
Þeir sem hlutu verðlaunin voru: Birgir Guðnason
fyrir verndun gamalla húsa og margvíslegan stuðn-
ing við myndlistarfólk, Sigrún Hauksdóttir fyrir
mikilvægan stuðning við myndlistarfólk, Ragnheið-
ur Skúladóttir píanóleikari fyrir áratugastarf sem
tónlistarkennari og meðleikari hinna ýmsu lista-
manna og kóra - og Keflavíkurverktakar fyrir vel-
vild og fjárhagslegan stuðning við menningarlífið.
Menningarnefndin veitti styrki samtals að upp-
hæð einni milljón króna við þetta tækifæri og var
hann veittur eftirfarandi aðilum: Karlakór Keflavík-
ur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur og
ERLA Reynisdóttir, 10 ára fiðluleikari úr Njarðvík,
fékk styrk frá nefndinni vegna tónleikaferðar til
Japans þar sem hún var valin til að leika í alþjóð-
legri hljómsveit við opnun vetrarólympíuleikanna.
Baðstofan vegna reglulegrar starfsemi, Erlu
Brynjarsdóttur vegna tónleikaferðar til Japans í
febrúar nk., Kolrössu Krókriðandi vegna tónleika-
ferðar til Englands, Viðari Oddgeirssyni vegna
heimildarsöfnunar og kvikmyndagerðar - og Guð-
mundi Maríassyni vegna myndlistarsýningar.
Tímarit
• HAUSTHEFTI171. árgangs
Skírnis 1997 er komið út. Meðal
fjölbreytts efnis eru greinar um
þýska skáldið
Heinrich
Heine, enska
heimspeking-
inn John Locke
og klæðskipt-
inga í Islend-
ingasögum.
Skáld Skirnis
er Ágústína
Jónsdóttir og
eru birt þrjú
ljóð hennar í
heftinu en
myndlistar-
maður Skímis
er Erró og
skrifar Gunnar
Kvaran um
frásögnina í
verkum hans.
Um þessar
mundir eru
200 ár liðin frá
fæðingu Heinrichs Heine og af
því tilefni fjallar Eysteinn Þor-
valdsson um víðtæk og langvar-
andi áhiif skáldsins á íslenska
Ijóðlist. Atli Harðarson skrifar
yfirlitsgrein um réttarheimspeki
Johns Locke og setur hana í
sögulegt samhengi, en Kirsten
Wolf kannar við hvaða aðstæður
persónur úr íslendingasögunum
bregða á það ráð að klæðast föt-
um gagnstæðs kyns.
„Auðnuleysishljómkviðan" er
titill ritgerðar eftir Bill Holm,
bandarískan rithöfund af íslensk-
um ættum. Holm gagnrýnir þar
það verðmætamat sem við hon-
um blasir vestan hafs, meðal
annars í ljósi menningararfleifð-
ar og lífsviðhorfa Vestur-íslend-
inga í Minneota, Minnesota. Da-
víð Erlingsson setur fram kenn-
ingu um viðurnefnið bakrauf sem
bregður fyrir í fomum íslenskum
heimildum. Þá birtir Hjördís
Björk Hákonardóttir í heftinu
greinina „Réttindi og skyldur“
þar sem hún andmælir þeirri
skoðun Sigurðar Líndals að of
mikil áhersla sé lögð á réttinda-
greinar í íslensku stjórnar-
skránni.
I Skírnismálum ræðir Margrét
Jónsdóttir um stöðu tungumála-
kennslu hér á landi í Ijósi vax-
andi þátttöku Islendinga í alþjóð-
legu samstarfi og viðskiptum.
Árni Daníel Júlíusson gaumgæfir
tvíbent áhrif þjóðemisstefnunnar
á sögusýn íslendinga. Már Jóns-
son fjallar hins vegar um sagn-
fræðirannsóknir og almannaheill.
I greinum um bækur birtir
Pétur Gunnarsson ritdóm um ís-
lenska stílfræði eftir Þóri
Oskarsson og Þorleif Hauksson,
Kjartan Árnason skrifar yfirlits-
grein um Ijóðagerð Jóhanns
Hjálmarssonar, og Svavar Hrafn
Svavarsson bendir á áhrif klass-
ískrar menningar á íslenska höf-
unda sem skrifuðu á latínu, með-
al annars í ljósi nýlegs safns rit-
gerða um nýlatneskar bókmennt-
ir á Norðurlöndum.
Áski-ifendur em þessa dagana
að fá eintak sitt sent í pósti, aðrir
geta nálgast heftið hjá útgefanda
eða í helstu bókaverslunum.
Utgefandi Skírnis er Hið ís-
lenska bókmenntafélag, ritstjór-
ar eru Róbert H. Haraldsson og
Jón Karl Helgason.
„Sellout“ í
Galleri Horn-
inu og á ver-
aldarvefnum
BALDUR Helgason og Birgitta
Jónsdóttir opna samsýningu í
Galleríi Horninu og á Veraldar-
vefnum Sellout: http://xnet.is/
sellout laugardaginn 15. nóvem-
ber kl. 18.
Baldur sýnir myndröð er ber
heitið Tölvuást og Birgitta sýnir
röð ævntýramynda ásamt því að
setja upp orða- og myndasýningu
í minningu jólanna, sem jafn-
framt verður í bókarformi. Enn-
fremur sýnir hún ljósmyndir -
samspil ljóða og myndvekra,
einnig í bókarformi.
Við opnunina lesa skáldin
Berglind Ágústa og Davíð Stef-
ánsson, Ámi Sveinsson snýr plöt-
um og Guðjón Kristinsson hefur
litskyggnu- og myndbandssýn-
ingu. Sent verður beint út á Ver-
aldarvefnum.
Sýningunni lýkur 3. desember
og verður opin alla daga kl.
11-23.30.
Lindgren
níræð í dag
HALDIÐ verður upp á níræðis-
afmæli sænska barnabókahöf-
undarins Astrid Lindgren í dag,
fóstudag, með pomp og prakt á
torginu í Vimmerby. Göran Pers-
son forsætisráðherra heldur
ræðu og kór 2.000 barna syngur
Lindgren til heiðurs. Lindgren,
sem er einn þekktasti barnabóka-
höfundur heims, hefur frábeðið
sér athygli á stórafmælinu, segist
ekki vilja sýna vanþakklæti, en
hún hafi hreinlega ekki lengur
heilsu til þess að taka á móti
gestum.
„Take the day off"
farðahreinsir
e fyrir augu, augnhár og varir
CLINIQUE
100% ilmefnalaust
CUNIQUB
take the day of!
niakeup remo^
lids. lashes & ''P5
Ráðgjafi frá Clinque verður í
versiunni í dag og á morgun
laugardag
„Take the day off" er nýr farða-
hreinsir frá Clinique fyrir allar konur
sem gera kröfu um að farðinn haldist
sem best, án þess að eyða löngum
tíma í að fjarlægja hann aftur. „Take
the day off" er mildur, léttur,
fljótandi vökvi sem leysir farðann af
augum og vörum með einni stroku.
Hentar vel linsunotendum.
„Take the day off"
125 ml. kr. 1350.
Tilboð í dag og á morgun:
Ef keypt er saman „Take the day off"
og augnháralitur (maskari) frá Clinique
þá fylgir með varalitur frá Clinique.
Onniu
H Y G E A
d ny r t iv ö r 'uv c rj Lu n
Laugavegi 23, sími 511 4533