Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Sameining heilsugæslustöðva
og sjúkrahúsa á landsbyggðinni
UM síðustu áramót
tóku gildi ákvæði í lög-
um um heilbrigðis-
þjónustu sem heimil-
uðu sameiningu
sjúkrahúsa og heilsu-
gæslustöðva á lands-
byggðinni sem eru í
starfstengslum.
Áformað er að þessi
breyting taki til 14
sjúkrahúsa á lands-
byggðinni og a.m.k.
jafnmargra heilsu-
gæslustöðva um næstu
áramót. Umræða um
þessi mál hefur farið
lágt og ekki liggja fyr-
ir opinber gögn frá
heilbrigðisráðuneytinu um hvernig
staðið skuli að sameiningunni.
Þetta hefur leitt til þess að starfs-
fólk viðkomandi stofnana er í
óvissu um stöðu sína og þær breyt-
ingar sem kunna að verða á högum
þess við sameininguna. Með þess-
ari grein vill Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga lýsa viðhorfum sín-
um til fyrirhugaðra breytinga.
Stefna Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Í stefnu Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga í hjúkrunar- og heil-
brigðismálum sem samþykkt var á
aðalfundi félagsins í maí s.l. segir
eftirfarandi:
„Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga telur að leggja beri áherslu á
að tryggja öfluga heilsugæslu í
landinu".
Með heilsugæslu er
vísað til hugtaksins
„primary health care“.
Það felur í sér að lögð
er megináhersla á að
mæta frumheilbrigðis-
þörfum samfélagsins.
Heilbrigðisþjónustan
fer fram sem næst
heimilum og vinnustöð-
um íbúanna. Reynt er
að tryggja greiðan að-
gang að þjónustunni,
lögð áhersla á að hún
samræmist væntingum
og óskum skjólstæð-
inga og samfélagið er
virkjað til þátttöku.
Ennfremur segir í
stefnu Félags islenskra hjúkrunar-
fræðinga: „Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga:
• Bendir á að samfara þeirri
stefnu að minnka vægi stofnana-
þjónustu en leggja jafnframt
áherslu á að veita þjónustu nær
vettvangi skjólstæðings (á heimil-
um, vinnustöðum o.s.frv.) er nauð-
synlegt að byggja upp öflugt stuðn-
ingskerfi heilbrigðis- og félagsþjón-
ustu fyrir skjólstæðinga og fjöl-
skyldur þeirra.
• Bendir á að þessi breyting út-
heimtir samhæfíngu mismunandi
þjónustuþátta til að tryggja sam-
fellu. Ljóst verður að vera hver ber
ábyrgð á einstökum málaflokkum.“
Markmið sameiningar
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga tekur undir hugmyndir um að
Fyrirhufflið samein-
ing sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva gæti,
ef rétt er að málum
staðið og vel tekst til,
segir Asta MöIIer, orðið
fyrirmynd annarra
breytinga í heilbrigðis-
bjónustunni.
heilsugæslustöðvar og sjúkrahús
sem eru í starfstengslum verði rek-
in sem ein rekstrarleg eining.
Meginmarkmið sameiningar verði
að skapa möguleika á að mæta
heilbrigðisþörfum samfélagsins á
árangursríkari máta og að styrkja
heilsugæsluna sem hornstein heil-
brigðisþjónustu í landinu. Ef rétt
er að staðið gefur sameining þess-
ara tveggja þátta heilbrigðisþjón-
ustu tækifæri á aukinni samhæf-
ingu og auknum gæðum í heilbrigð-
isþjónustu, þar sem hún er skoðuð
sem ein heild. Til að sameiningin
nái þeim markmiðum sem að er
stefnt verður þó að gæta ákveðinna
atriða.
Ólíkar áherslur
Rík hefð er fyrir því að þjónusta
sjúkrahúsa annars vegar og heilsu-
gæslu hins vegar séu faglega að-
skildar. Hugmyndafræði og áhersl-
ur í starfi þessara tveggja þátta
heilbrigðisþjónustu eru ólíkar og
byggir hvor um sig á sérhæfingu
fagfólks. Má í því sambandi benda
á að megináherslur í starfi hjúkrun-
arfræðinga á heilsugæslustöðvum
lúta að forvörnum og fyrirbyggj-
andi starfi, en á sjúkrahúsum
hjúkrun og aðhlynningu sjúkra. Því
er samnýting á fagfólki milli þess-
ara tveggja sviða ákveðnum tak-
mörkunum háð og verða faglegar
ástæður að liggja að baki.
Sjúkrahúsþjónusta tekin fram
yfir heilsugæslu
Áhersla hefur verið lögð á að
halda uppi sjúkrahúsþjónustu á
landsbyggðinni af ýmsum ástæð-
um. Sjúkrahúsþjónusta er talin
veita meira öryggi en heilsugæsl-
an (byggðasjónarmið); hún skap-
ar fleiri atvinnutækifæri í byggð-
arlaginu, sérstaklega fyrir ófag-
lært fólk (atvinnusjónarmið) og
hún nýtur víða meiri virðingar en
þjónusta heilsugæslunnar. Hætta
er á að framangreind sjónarmið
leiði til þess að áhersla verði lögð
á hlutverk sjúkrahússins í samein-
aðri stofnun á kostnað heilsu-
gæslunnar til að viðhalda
óbreyttu ástandi.
Uppsagnir fagfólks í
heilsugæslu
Á nokkrum stöðum hefur verið
tekin ákvörðun um að segja hjúkr-
unarforstjóra heilsugæslustöðvar
Ásta
Möller.
DEMAN (AHÚSIÐ
Okkat smíbi
cHnn$ai
cH-dtatncn
jZokkai
AJ œtu?
‘zf'lábœit vetd
Kringlunni sími 588 9944
www.toyota.i
1 Perlunni
® TOYOTA
Tákn um nýjan tíma
UNDIR-
FATALÍNA
DataCand
Plastkortaprentarar
fyrir félaga- og viðskiptakort
Gæðaprentun í lit
Otto B.Arnar ehf.
ÁRMÚLA 29 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 588 4699 • FAX.588 4696
Uið erum hér
en ekkiþar
Um helgina verða starfsmenn Toyota á
tölvutæknisýningunni í Perlunni.
Verslun og sýningarsalir Toyota við Nýbýlaveg
í Kópavogi verða þess vegna lokuð.
Verið velkomin í Toyotabásinn á tölvutækni-
sýningunni eða heimsækið okkur á
nýja Toyotavefnum: www.toyota.is
Kringlunni
S. 553 7355
upp og fyrirhugað að ráða hjúkrun-
arforstjóra sjúkrahússins sem
æðsta stjórnanda hjúkrunar á sam-
einaðri stofnun. Þessi áform gefa
hugmyndir um að sameiningin
verði á forsendum sjúkrahússins
umfram heilsugæslunnar.
Mismunandi þjónustugjöld á
sjúkrahúsum og heilsugæslu
Þjónustugjöld á sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum eru mismun-
andi. Komugjald á heilsugæslustöð
er t.d. aðeins brot af komugjaldi á
sjúkrahús. Þjónustugjöld eru tekju-
stofnar heilbrigðisstofnana og
gætu orðið ákvarðandi þáttur um
hvar þjónustan er veitt í samein-
aðri stofnun, að óbreyttu.
Hvernig á að standa að
sameiningunni
Af framangreindu er ljóst að
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga telur að markmiðum með
sameiningunni verði einungis náð
sé gripið til tiltekinna ráðstafana.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga leggur í því sambandi
áherslu á eftirfarandi:
• Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið gefi skýrar línur
um markmið og framkvæmd fyr-
irhugaðrar sameiningar sjúkra-
húsa og heilsugæslustöðva.
• Sameiningin byggist á að
mæta frumheilbrigðisþörfum
samfélagsins. Skilgreint verði
hvaða þjónustu heilbrigðisstofn-
unin mun veita, skipulag hennar
og stjórnun. Ákvörðun um hvern-
ig brugðist er við t.d. í bráðatilvik-
um, fæðingum og ýmsum sér-
hæfðum tilvikum liggi fyrir.
• Staðið verði þannig að breyt-
ingunni að íbúar finni að hún
bæti þjónustuna.
• Þrátt fyrir breyttar áherslur í
þjónustu stofnunarinnar þarf að
standa vörð um ákveðna sérhæf-
ingu sjúkrahúsþjónustu og heilsu-
gæsluþjónustu. Tryggja þarf
ákveðið faglegt sjálfstæði beggja
eininga til að þróa þjónustuna. í
hinni nýju heilbrigðisstofnun
verði því tvær faglega jafngildar
einingar, heilsugæslusvið annars
vegar og sjúkrahússvið hins veg-
ar. Skipurit tryggi jafnræði í
tengslum fagaðila beggja sviða
inn í stjórn stofnunar.
• Stjórnskipulag stofnunar geri
ráð fyrir að faglegur yfirmaður
hjúkrunar verði starfandi á hvoru
sviði fyrir sig. Þó verði ráðinn
einn stjórnunarlegur yfirmaður
hjúkrunar á stofnuninni (hjúkrun-
arforstjóri), og er hugsanlegt að
faglegur yfirmaður hjúkrunar á
öðru sviðinu gegni jafnframt
stöðu hjúkrunarforstjóra stofnun-
arinnar. Stærð stofnunar ræður
þar mestu um. Hæfnismat verði
lagt til grundvallar ráðningu
þessa æðsta yfirmanns í hjúkrun.
Engum verði sagt upp vegna sam-
einingar til að tryggja að mark-
miðum með breytingunni verði
náð.
• Stjórnkerfisbreytingar vegna
sameiningar tveggja stofnana
taki jafnt til hjúkrunar- og lækn-
ingaþáttar starfseminnar.
• Endurskoðun fari fram á þjón-
ustugjöldum.
Fyrirhuguð sameining sjúkra-
húsa og heilsugæslustöðva á
landsbyggðinni gefur möguleika
á ákveðinni framþróun í heilbrigð-
isþjónustu, sem gæti orðið fyrir-
mynd annarra breytinga í heil-
brigðisþjónustu. Þvl er afar mikil-
vægt að vandað sé til verka. Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga
hvetur heilbrigðisráðuneytið og
stjórnir viðkomandi stofnana til
að upplýsa starfsmenn nú þegar
um fyrirhugaðar breytingar og
hvernig áformað er að standa að
þeim. Breytingar taka tíma, en
einungis með góðum undirbún-
ingi, skilgreindum markmiðum,
nákvæmum áætlunum og sam-
vinnu starfsmanna mun breyting-
in ná þeim tilgangi sem lagt er
upp með.
Höfundur er formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.