Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 45

Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 45*? I í I I I I 3 HARRY KRISTJÁN KJÆRNES TED tHarry Kristján Kjærnested fædd- ist í Reylqavík 10. ágúst 1926. Hann lést á Landspítalanum 5. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Friðfinnur Árni Kjærnested, f. 14. október 1894, d. 7. nóvember 1986, og Annie Tall Kjærne- sted, f. 15. mars 1896, d. 12. janúar 1984. Systkini hans voru Svavar Kjærnested, f. 9. febrúar 1920; Kristín Lilly Kjærnested, f. 24. desember 1928, d. 26. október 1996; Sessiiía Ada Kjærnested, f. 24. júm' 1931; Elísa Jóhanna Edna Kjærnested, f. 20. júlí 1938. Hinn 15. mars 1958 kvæntist Harry Döggu Lis Wessman Kjærnested, f. 2. janúar 1938. Foreldrar hennar voru Elof Arvid Wessman, f. 12. nóvember 1907, d. 3. september 1980, og Guðríður Dagný Wessman, f. 19. febrúar 1913, d. 30. mars 1995. Þau Harry og Dagga bjuggu fyrst í Reykja- vík en fluttust árið 1965 til Keflavíkur. Börn Harrys og Döggu eru: Orn, f. 20. febrúar 1956, fyrri maki Árný Mattíasdóttir, f. 25. október 1958, d. 15. janúar 1986, seinni maki Guðbjörg Elsie Einarsdóttir, f. 18. mars 1957. Harry, f. 4. september 1958, maki Júlía Rós Guðmundsdóttir, f. 16. desember 1957. Dagný Ada, f. 3. janúar 1962, maki Emil Ásólfur Hermannsson, f. 19. júlí 1961. Anna Maríe, f. 11. nóvember 1965, maki Ólafúr Jóhann Harðarson, f. 11. febrúar 1965. Árni, f. 15. ágúst 1978. Barna- börnin eru ellefu. Harry var matreiðsiumeistari frá Iðnskólanum í Reykjavík. Vann hann lengst af í Flugeldhúsi Flugleiða. Utför Harrys fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 3 I ■ i 3; 5 ! f Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku pabbi, þegar við hugsum til baka er það fyrsta sem við minnumst hlýleiki þinn og ástúð í okkar garð. Oft kepptum við systurnar um það hvor yrði fyn-i til þess að ná besta sætinu á bænum, en það var í faðmi þínum. En auðvitað breiddir þú hann út þannig að við gátum báðar verið sáttar. Gleði og kátína voru ríkjandi í fari þínu, lítið þurfti til þess að gleðja þig, stutt búðarferð eða göngutúr um bæinn. í gönguferðum okkar ásamt einum af þínum besta vini, Snúlla, talaðii- þú mikið um fegurð náttúrunnar. Þannig kenndir þú okkur að fara hægt um og virða fyrir okkur fegurðina í kring. Á sumrin þegar legið var í sólinni komst þú og Snúlli við á öllum stöðum, stoppaðir stutt en komst því oftar við. Oll ferðalögin sem farin voru utanlands, og seinni árin veiðiferðirnar innanlands, eru okkur dýrmætar minningar. Margar ferðirnar voru farnar á Seltjörn, sem var þinn sælureitur, þú varst alltaf jafn glaður þegar farið var að veiða alveg sama hvort veitt var eða ekki. Að vera innan um fjölskylduna og úti í náttúrunni var þín mesta gleði. Vin- ir okkar voru einnig vinir þínir, sér- staklega er Árna minnisstætt þegar einn af vinum hans vantaði húsaskjól, þá tókst þú honum sem einum úr fjölskyldunni. Eftir hjartaaðgerðina þína vorum við oft hrædd um þig en aldrei kvartaðir þú eða hlífðir þér við vinnu. En ekki hvarflaði að okkur að krabbamein myndi verða þinn vá- gestur. Á afmælisdegi þínum, 10. úgúst, lagðist þú inn á spítala og héldum við að meinið yrði tekið og þú yrðir heill aftur. En raunin varð önn- ur, eftii- harða en stutta baráttu fékkst þú að hvíla þig. Okkur er minnisstæðast frá sjúkdómslegu þinni kjai-kur þinn. Það varst þú sem styrktir okkur, klappaðir okkur og stríddir til þess að fá okkur til þess að brosa. Þú vissir betur en við, kvaddir okkur með faðmlagi og tjáðir okkur ást þína. Minntir okkur á hvað þú værir ríkur að eiga okkur að. Elsku pabbi, við kveðjum þig með söknuði. Við viljum koma fram sérstöku þakklæti til starfsfólks deildar llg á Landspítalanum, fyrir alla þá ástúð og umhyggju sem þið sýnduð bæði pabba og okkur á meðan á hans veik- indum stóð; Jonna, Unu og börnum fyrir allar góðu stundirnar sem þið veittuð pabba við Seltjörn. Elsku mamma, þú ert búin að standa eins og hetja við hlið pabba í veikindum hans. Megi góður guð styrkja þig og styðja í missi þínum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hþ'óta skalt. (V. Briem.) Dagný, Anna og Árni. Þegar við minnumst afa þá mun- um við hvað við gerðum margt skemmtilegt með honum. Við fórum í ferðalög og mjög oft að veiða með afa. Afi eldaði góðan mat og hafði gaman af að bjóða okkur í mat. Alltaf þegar afi kom hélt Emil að afi væri að sækja hann í göngutúra. Afi átti hund sem var með honum úti um allt. Afi hafði alltaf eitthvað að gera og hann var alltaf í góðu skapi. Við munum sakna hans mjög mikið. Ég hefi þekkt marga háa sál, ég hefi lært bækur og tungumál og setið við lista lindir. En enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir. (M. Jochumsson.) Unnar Örn, Hjördfs og Emil Orn. Elskulegi Harry bróðfr. Nú er stundin komin sem við höfðum svo oft diskúterað, já þessi stóra stund að kveðja þennan heim. Þú sagðir alltaf: Það kemur maður í manns stað, en enginn kemur í þinn stað. Mér er minnisstæðast þegar þú varst í læri hjá Ragnari Gunnlaugs- syni á Hressingarskálanum, þá kallaðir þú mig alltaf litlu systir þína og reyndar gerðir þú þetta að gælu- nafni mínu til endaloka. Við áttum svo margar ánægjustundir saman, sérstaklega eru minnisstæðar veiðiferðirnar út að Seltjörn, það var tjömin þín. Þar áttfr þú yndislega vini sem sjá um staðinn. Þau fognuðu þér svo innilega, kveðjan þeirra brást aldrei, „vertu velkominn, Harry minn“. Þetta var þín paradís á jörð og við bæjardyrnar þínar. Ég held að allir sem kynntust þér séu mér sammála um að nú sé far- inn góður maður sem vildi öllum vel. Það var dásamlegt að kveðja þig sáttan við þennan heim. Fyrst var baráttan þín hörð, þú ætlaðir að berjast við þennan vágest krabba- meinið. Mig langar að þakka mág- konu minni Döggu Lis, sem studdi þig eins og hetja. Góður Guð, viltu styðja Döggu og fjölskyldu, þau hafa misst svo góðan föður og afa. Ég á ekkert nema góðar minningar þegar ég hugsa til þín, vinur. Mig langar til þess að þakka starfsfólki deildar Ug á Landspítal- anum fyrir góða hjúknm, einnig Svölu og Magga Daða, eins og hann kallaði þau, sem bestu vinum þeirra hjóna. Megi góður Guð geyma þig og umvefja þig. Ég þakka fyrir allt. Kveðjan okkar var alltaf „sjáumst fljótt“. Þín systir, Elísa. í dag verðm- til moldar borinn faðir minn Harry Kjærnested. Það verður einkennilegt að sjá hann ekki á gangi um götur Keflavíkur með hundinn sinn Snúlla. Pabbi hafði ætíð verið mikill dýravinm- en hundurinn Snúlli vai- honum sérstaklega kær. Stundum hafði maður það á tilfinn- ingunni að þeir skildu hvor annan eins og hverjar aðrar manneskjur. Ég man eftir mér fyrst á Kárastíg 13 í Reykjavík. Þá vann pabbi hjá Loftleiðum, fyrst á Reykjavíkurflug- velli, síðan í Oddfellowhúsiu og að síðustu á Keflavíkurflugvelli. Fljótlega eftir að Loftleiðir fluttu suður með sjó fluttumst við í Grænás 3. Þar bjuggu íslenskir starfsmenn sem unnu inni á varnarsvæðinu. Þarna stofnaði pabbi fyrstu og einu skógræktina sem var innan varnarsvæðisins. Naut hann hjálpar frá ýmsum aðilum sem voru mjög hrifnir af framtaki hans. En pabbi var alinn upp á Baugsveginum í Reykjavík þar sem afi Kjærnested var með stóran blóma- og matjurtag- arð. Pabbi átti margar góðar stundir þar þó svo að hann væri fluttur úr fóðurhúsunum. Sem mat- reiðslumaður úrbeinaði pabbi oft og iðulega kjöt fyrir kunningja sína og þáði aldrei borgun fyrir. Þess í stað var fólk að færa honum plöntur sem hann notaði síðan í garðinn sinn í Grænási. Þegar ég var unglingur fór ég svo að vinna hjá Loftleiðum og unnum við pabbi oft saman þai’. Þótti mér sem unglingi hábölvað að vinna með honum því hann vann alltaf meira en honum bai’ skylda til. Nú, það ætlaðist hann til að ég gerði líka. Sem sautján ára unglingur hafði maður lítinn áhuga á að vera að leggja sig meira fram en maður þurfti. En fljótlega sá ég að þetta var eitt besta veganesti sem hann gat gefið mér. Síðari árin hafði pabbi mjög gam- an af því að veiða. Hann fór oft og iðulega inn á Seltjöm með barnabörnunum sínum eða systur sinni Lísu. Þarna gat hann átt ógleymanlegar stundir. Ég sé hann fyrir mér þarna sitjandi á steini og tottandi vindil og með veiðistöng í hendinni. Einnig var hann mikið á labbinu í Keflavík og hittumst við oft þar sem þeir voru á gangi saman, hann og Snúlli. Eftir að pabbi veikt- ist af krabbameininu mátti sjá að hundurinn passaði hann vel. En mig grunar að pabbi hafi leynt veikindum sínum fyrir okkur um langt skeið. Svo í ágúst byrjaði að síga á ógæfuhliðina. Hann var lagður inn á spítala og þar var allt reynt en allt kom fyrir eklri. Síðan á morgni miðvikudagsins 5. nóvember var mér tilkynnt að faðir minn hefði látist á Landspítalanum í Reykjavík. Þar féll góður maður og veit ég að hann er búinn að koma sér fyrir á æðri stað því hann átti alltaf gott með að sam- lagast fólki. Þar hefur hann endur- heimt fyrri þrótt og heilsu. Því vil ég, kona og börn mín, þakka þér fyrir þær stundfr sem Guð gaf okkur saman. Far þú í friði elsku pabbi, tengdafaðir og afi. Guð geymi þig. Orn Kjærnested. Kæri Harry, við starfsfólkið í flug- eldhúsi Flugleiða á Keflavíkurflug- velli viljum þakka þér samvinnuna og samveruna. Þín létta lund og sindrandi kímnigáfa var svo smit- andi að vinnan varð mun skemmti- legri því allfr voru í góðu skapi. Nú þegar þú ert hættur að hræra í pott- um og lagður í þína hinstu fór, biðjum við þér Guðs blessunar. Konu þinni, börnum og öðrum ná- komnum vottum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Starfsfólk flugeldhúss Flugleiða. KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR tKristín Guð- mundsdóttir fæddist á Skiphyl í Hraunhreppi í Mýrasýslu hinn 19. desember 1916. Hún lést ú Sjúkrahúsi Reykjavíkur 9. nóvember sfðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Krist- jana Jóhannsdóttir og Guðmundur Jónsson, bóndi þar. Systkini Kristínar eru Elísa- bet, sem enn býr á Skiphyl, Guðbjörg, látin, Borghildur, Jón, látinn, bóndi á Skiphyl. Kristín var næstyngst þeirra systkina. Ekkert þeirra systkina giftist eða átti af- komendur, nema Guðbjörg, sem eignaðist soninn Guðmund Þorgilsson, sem nú býr á Skiphyl ásamt konu og börnum. Kristín fékk sína barnaskólamenntun f farskóla að þeirra tíma hætti, en stundaði sfðan nám f Héraðsskólanum f Reykholti í tvo vetur árið 1935-37. Eftir skólagöngu fór hún að vinna fyrir sér. Fór í kaupa- vinnu á sumrin en þénaði f Reykja- vík á veturna. Eftir nokkur ár fór hún að starfa við sauma í verk- smiðjunni Magna. Enn sfðar réðst hún sem verkstjóri í Vinnufata- gerð íslands og starfaði þar óslitið Hún elsku Stína mín er dáin. Hvemig má það vera? Hún sem var svo full af lífskrafti og starfsorku um miðjan október sl. þegar ég kom í heimsókn. Ég var búin að koma mörgum sinnum en aldrei var Stína heima, svo ég reyndi að koma í há- deginu. Hún var heima. Var að taka saman muni í kassa fyrir næsta bazar hjá Borgffrðingafélaginu. Á borðinu laus blöð og bækur og ofan á öllu saman auglýsingapésar um tölvur. Jú, hún ætlaði að kaupa sér tölvu. Hún vai’ á kafi í ættfræðigrúski og þá var þægilegt að hafa tölvu við hönd- ina heima hjá sér, til að halda utan um allt saman. Ég varð ekkert hissa þótt hún, 80 ára gömul, keypti sér tölvu. Eiginlega meiri hissa á því að hún skyldi ekki vera fyrir löngu búin að kaupa hana. Tölvan var komin heim, en Stína fékk lítið að hafa gaman af henni. Lífskertið hjá henni var að brenna upp. Allt í einu var heilsan búin. Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur lá hún síðustu dagana, þar til lífsloginn slokknaði og hún sofnaði svefninum langa. Eg hef alltaf þekkt Stínu. Hún og systur hennai’ voru heimilisvinir for- eldra minna. Þegar ég, 21 árs gömul, sem verkstjóri þar til verksmiðjan var lögð niður. Flutti hún þá ásamt öðru starfsfólki í verk- smiðjuna Max og var þar í hlutastarfi þar til hún fór á eftirlaun. Kristín vann mikið að félagsmálum. Starfaði í Borg- firðingafélaginu, sér- staklega kvemia- deildinni sem var sér- deild innan Borg- firðingafélagsins. Einnig vann hún mikið starf í Sögufélaginu við æviskrár Borgfirðinga, sem sér um útgáfu á Borgfirskum ævi- skrám, en þegar eru komnar út 10 bækur. í Ættfræðifélagi íslands vann hún ásamt öðrum mikið starf í sjálfboðavinnu við að skrifa upp úr manntölum frá árinu 1910. Einnig starfaði hún í Kvenfélagi Hallgrímssóknar. Kristín var nqög fróðleiksfús, las mikið og átti gott bókasafn. Hafði hún í mörg ár fylgst með fyrirlestrum í Háskólanum f fslenskum fornbókmcnntum. Einnig hafði hún gaman af frístundamálun, v' bókbandi og handavinnu ýmiss konar. Útför Kristínar Guðmundsdótt- ur fer fram frá Ökrum á Mýrum ( dag og hefst athöfnin klukkan 14. nýkomin heim eftir skólavist í Svíþjóð, ákvað að flytja að heiman, voru foreldrar mínir eldd sáttir við þá ákvörðun mína. En á endanum fékk ég að flylja til Stínu, sem hafði her- bergi til leigu í leiguíbúð sinni í Hellu- sundi3. r* Það var gott að búa hjá Stínu. Hún kenndi mér að leigja með öðrum. Við vorum miklar vinkonur, báðar nátt- hrafnar og sátum oft lengi firam eftir og spjölluðum. Húsreglumar voru: Aldrei að skilja eftir óuppvaskað í eldhúsinu og sam- eiginlegt húsrými þrifum við sitt hvora vikuna. Fleiri voru reglumar ekki á því heimili. Þegar Stína keypti sér íbúð á Leifsgötu 7 flutti ég bara með. Það var ekki fyrr en ég flutti upp á Akranes að Stína losnaði við mig. En við héldum áfram vinskapnum. Fórum stundum í leikhús saman og ferðalög. Það var alltaf ánægjulegt að vera í návist hennar, manni leið veL Hún var hrein og bein, jákvæð og*1 víðsýn í hugsun og gerðum, fróð og skemmtileg. Ég sakna hennar, þakka henni samfylgdina, hjálpsemina og vináttt una í gegnum árin. Hjördís Þorleifsdóttir. Skilafrestur minningargreina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef út- fór er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fostudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, fóstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrii’ hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi + Innilegar þakkir fyrir hlýhug, vináttu og hlut- tekningu við fráfall móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MARGRÉTARJÓHANNESDÓTTUR, Lyngholti. Sérstakar þakkir til Heilsugæzlunnar og allra þeirra, er gerðu henni kleift að lifa sjálfstæðu Iffi í Lyngholti eins lengi og unnt var. Starfsfólki Sjúkrahúss Hvammstanga, þökkum við góða umönnun og alla velvild við okkur aðstandendur. Ragnheiður Björnsdóttir, María Björnsdóttir, Sævar J. Straumland, Margrét Birna Hannesdóttir, Herdís Hannesdóttir, Hannes G. Jónsson, Haukur Hannesson, Inga Lára Hansdóttir, Guðný Hannesdóttir, Gréta Hauksdóttir, önnur barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.