Morgunblaðið - 16.11.1997, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Landsfundur Kvennalistans um helgina
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MILLI 75 og 80 fulltrúar eru á landsfundi Kvennalistans sem haldinn er um helgina.
Samfylkingarkon-
ur í meirihluta
N eytendasamtökin
Yantraust
á vara-
formann
samþykkt
TILLAGA um vantraust á störf
Vilhjálms Arna Ingasonar, for-
manns Neytendafélags Akureyr-
ar og nágrennis, var samþykkt á
fundi stjórnar Neytendasamtak-
anna í gær. Vilhjálmur Ingi hefur
setið í framkvæmdastjórn sam-
takanna sem varaformaður frá því
í maí, en á fundinum var kjörinn
nýr varaformaður, Jón Karlsson
frá Sauðárkróki.
Bréf Neytendafélags Akureyr-
ar til stjórnarinnar, þar sem skor-
að var á stjórnina að segja Jó-
hannesi Gunnarssyni fram-
kvæmdastjóra upp störfum, var
lagt fram á fundinum en enginn
stjómarmanna tók málið upp.
Drífa Sigfúsdóttir, formaður
Neytendasamtakanna, sagði að 15
stjómarmenn hefðu verið við af-
greiðslu vantrausttillögu á störf
Vilhjálms Inga, 4 hefðu setið hjá,
10 verið fylgjandi tillögunni, en
einn greitt atkvæði á móti.
Vilhjálmur Ingi á áfram sæti í
stjóm Neytendasamtakanna, en
ekki í framkvæmdastjórn þeirra.
Á fundinum var jafnframt sam-
þykkt samhljóða tillaga þar sem
lýst var trausti á formann sam-
takanna, framkvæmdastjóm og
framkvæmdastjóra.
Þarf að tryggja
vinnufrið
„Það er sorglegt að svona
skyldi fara, en við þurfum að
tryggja vinnufrið innan samtak-
anna,“ sagði Drífa. „Það er mikil-
vægt að trúnaður ríki, svo við get-
um unnið öflugt starf.“
Árlegt þing Neytendasamtak-
anna verður haldið næsta vor.
„VIÐVORUN!" Ef þú færð tölvu-
póst, sem er merktur „Gakktu í
hópinn“ skalt þú ekki opna hann.
Hann mun eyða ÖLLU, sem er á
harða diskinum þínum.“ Það fær-
ist stöðugt í vöxt að mönnum ber-
ist tölvupóstur með viðvörunum af
þessu tagi og hætt er við að viðtak-
endur verði skelkaðir en að sögn
Friðriks Skúlasonar tölvufræðings
er það að ástæðulausu því að yfir-
leitt er um gabb að ræða.
„Þetta er hálfgert aprílgabb,“
sagði Friðrik um ýmsar þær við-
varanir sem ganga ljósum logum
um alnetið. „I rauninni er þetta
huglægur vírus.“
Huglægur vírus
Meðal þeirra vírusa, sem varað
er við án þess að í raun fylgi nokk-
ur hætta, era „Join the Crew“, „Ir-
ina“, „Java vírasar“ og „Good
Times“.
Friðrik sagði að hér væri um að
ræða keðjubréf. Viðkomandi fengi
tölvupóst þar sem varað væri við
ákveðnum vírus og hann síðan
beðinn um að senda viðvörunina
áfram til vina og vandamanna. Að
hlýða þeim tilmælum þjónaði hins
vegar aðeins þeim tilgangi að
halda lífi í hinum huglæga víras.
SAMFYLKIN GARKONUR á
landsfundi Kvennalistans, sem nú
stendur yfir, hyggjast leggja fram
tillögu um viðræður um sameiginlegt
framboð félagshyggjuflokkanna í
dag. Andstæðingar þeirra dreifðu í
gær ávarpi til landsfundarfulltrúa
þar sem lagt er til að Kvennalistinn
finni nýjan farveg fyrir samstöðu
kvenna en verði ekki hluti af krata-
samsteypu og miðjumoði.
Umræða um samfylkingu
truflandi
Samkvæmt mati beggja hópa eru
samíylkingarkonur í töluverðum
meirihluta á fundinum. Um 55 konur
voru á fundinum um hádegi í gær en
búist var við að þeim myndi fjölga í
75 til 80 eftir því sem liði á daginn.
Nokkur ágreiningur varð í gær
Sá hrekkjavírus, sem sennilega
hefur náð mestri útbreiðslu, nefn-
ist „Good Times“. Hann komst á
kreik árið 1994 og 1 upphafi var
viðvöranin einföld: ekki átti að
opna tölvupóst sem bar yfirskrift-
ina „Good Times“ vegna þess að þá
myndi harði diskurinn þurrkast út.
Síðar hafa flóknari útgáfur á sann-
færandi tæknimáli skotið upp koll-
inum og yfirleitt er verið að vara
fólk við því að opna tölvupóst með
ákveðinni fyrirsögn, jafnvel þeirri
sömu og fylgdi viðvöraninni.
Misheppnuð bókarkynning
„Irina“ hófst sem misheppnuðu
kynningarherferð útgáfufyrirtæk-
is. Bókaforlagið Penguin hugðist
kynna vísindaskáldsögu með því
að senda fréttatilkynningu í formi
hrekkjavírass. í kjölfarið átti síðan
að fylgja önnur fréttatilkynning
þar sem flett yrði ofan af hrekkn-
um, en hann barst nokkra síðar
þannig að margir tóku skilaboðin
alvarlega. Vírusinn er hins vegar
ekki til.
Tölvupóstur með yfirskriftinni
„Join the Crew“ hefur farið víða
undanfarið. Fyrst fór að bera á
slíkum pósti í janúar og nú er hann
býsna algengur. Þar segir að opni
vegna þess að sumum fundarmanna
fannst sem umræða um samfylking-
armál væri farin að trufla fundinn þó
að þau mál ættu ekki að vera á dag-
skrá fyrr en í dag.
Sérframboð kvenna nýtur
minni stuðnings
Tillaga samfylkingarkvenna hafði
ekki verið fullmótuð í gær en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
átti að láta orðalag hennar ráðast
nokkuð af andrúmsloftinu á fundin-
um. Konur úr hópi andstæðinga
samfylkingar tjáðu blaðamanni
Morgunblaðsins f gær að það myndi
ráðast af orðalagi tillögunnar hvort
til úrsagna kæmi; ljóst væri að
nokkrar konur myndu segja sig úr
flokknum ef gengið yrði langt í til-
lögunni.
maður póst með yfirskriftinni
„Join the Crew“ muni harði disk-
urinn eyðileggjast og er síðan
hvatt til þess að skilaboðin séu lát-
in ganga sem víðast. Hættan er
hins vegar engin.
Yfirleitt í lagi að lesa
tölvupóstinn
Friðrik sagði að síðasta árið
hefði orðið veraleg breyting á
tölvuvírusum en hins vegar væri
engin hætta á því að víras kæmist
inn í tölvu með því einu að lesa
tölvupóst væri það gert með rétt-
um hætti.
„Megnið af þeim vírasum, sem
koma upp núorðið, smitar ekki for-
rit, heldur fyrst og fremst skjöl úr
ritvinnsluforritinu Word,“ sagði
Friðrik. „Ef menn senda Word-
skjöl í tölvupósti fylgir vírasinn oft
með. En þetta hefúr aðeins áhrif ef
menn nota Word til að lesa tölvu-
póstinn. Ef menn nota Wordpad,
eins og þeir ættu að gera, skiptir
þetta engu máli.“
Einnig væri hættan sú að vírus-
inn bærist með Word-skjali þegar
það væri svokallað viðhengi tölvu-
pósts. Það væri oft vistað sérstak-
lega og síðan lesið inni í Word-for-
ritinu og smitaði þá út frá sér.
í ávarpi andstæðinga samfylking-
ar segir að sérframboð kvenna njóti
ekki sama stuðnings og áður. „Hvað
verður um gagnrýna femíníska
hugsun sem setur spumingarmerki
við þróun samfélagsins og bendir á
nýjar leiðir? Hvað á að taka við?
Hópur kvenna innan Kvennalistans
vill nú stilla hreyfinguni upp við hlið
svokallaðra vinstri flokka í umræð-
unni um væntanlegt framboð á
landsvísu. Við ætlum ekki að leggja
stein í götu þeirra kvenna sem nú
kjósa að leita samstarfs við gömlu
flokkana en teljum að með því sé
höggvið að rótum þeirrar kvenna-
samstöðu sem Kvennalistinn hefur
grundvallast á. Við erum ósáttar við
þá stefnubreytingu og viljum ekki að
Kvennalistinn verði hluti af krata-
samsteypu og miðjumoði."
Dómar
draga úr
framboði á
fíkniefnum
„SIÐAN snemma í haust hefur okk-
ur virst vera talsvert aukið framboð
á fíkniefnum, e-töflum, amfetamíni
og hassi. En reynsla okkar er sú að
þegar mikið af efnum næst eins og
verið hefur að undanfómu og
strangir dómar falla minnkar fram-
boðið strax,“ segir Karl Steinar
Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í
forvarnadeild lögreglunnar í
Reykjavík.
Karl Steinar segir að oft sé fram-
boð á fíkniefnum mest á haustin en
úr því dragi þegar líði á vetur. Hann
segir fremur lítið hafa verið um að
vera á síðasta sumri en framboð
fíkniefna síðan aukist í haust. Segir
hann það yfirleitt hafa strax áhrif og
draga úr framboði þegar fíkniefna-
salar séu teknir, rannsóknir standi
yfir og þeir fái harða dóma, ekki síst
vegna e-töflu mála. „Ég vonast til að
þessar aðgerðir og strangir dómar
að undanförnu skili sér í því að
framboðið minnki áfram,“ segir Karl
Steinar Valsson.
Forvarnadeildin hefur að undan-
förnu heimsótt efri bekki gnmn-
skóla og frætt nemendur, kennara
og annað starfslið skólanna um
hættur fíkniefna og segir Karl lög-
regluna oft kallaða á fundi til
fræðslu í skólum og til að ræða mál-
in á fundum hjá foreldrafélögum
skólanna.
á þessum veiðiskap
►Túnfiskskip Japanameð 135 km
langa línu langt suður af landinu.
/10
„Járnfrú" andfætling-
anna stígur fram
►Jenny Shipley verður næsti for-
sætisráðherra Nýja-Sjálands, en
konur leiða þar tvo stærstu stjóm-
málaflokkana. /12
Karlar til í tuskuna
►Yngri kynslóð karla finnst sjálf-
sagt að ganga í húsverkin til jafns
áviðmaka sína./18
Úr dráttarbeislum
í hótelreksturs
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Þórarin
Kristinsson, framkvæmdastjóra
Víkurvagna. /30
B
► 1-20
Fel ekki mínar
skoðanir
►í Ólafsvík selur Sigríður Þóra
Eggertsdóttir verslunarkona í
sömu verslun bamaföt og áfengi.
/1-4
Kvikmyndastjörnur
gerast leikstjórar
►Helstu stjömumar í Hollywood
hafa á undanfömum ámm spreytt
sig á leikstjóm með góðum
árangri. /7
Sólgos og
segulstormar
►Bjarmaband norðurljósa á heið-
skírum næturhimni eru raktirtil
mestu sólblossa eða sólgos um
árabil. /12
FERÐALÖG
► 1-4
Ástralía
►Stórkostlegir steindrangar í
eyðimörkinni. /2
Hefðbundin þjónusta
en lítil herbergi
►Hótel Cabin er nýjung á gis-
timarkaði á höfuðborgarsvæðinu.
/4
BÍLAR____________
► 1-4
Blikur á lofti í
evrópskum bílaiðnaði
►Talið að offramleiðslugetan í
Evrópu sé um sjö mílljónir bíla á
ári/2
Reynsluakstur
►Peugeot — Fjölskyldubíll með
góða aksturseiginleika. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMA
► 1-16
Dýpkunarfram-
kvæmdir
í Húsavíkurhöf n
►Umfangsmeiri framkvæmdir
aðkallandi. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50
Leiðari 32 Sfjömuspá 50
Helgispjall 32 Skák 50
Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54
Skoðun 34 Útv./sjðnv. 52,62
Minningar 40 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Dægurtónl. 16b
Bréf til blaðsins 48 Mannlifsstr. 20b
Hugvekja 50 Gárur 20b
fdag 50
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
Skaðlaus tölvubréf með skuggaleg skilaboð
Gabbvírusar ganga ljós-
um logum á alnetinu