Morgunblaðið - 16.11.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.11.1997, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER1997 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ STÓRT SKREF í UMHYERF- ISUMBÓTUM í NÁND MIKIÐ vatn og fleira hefur runn- ið til sjávar síðan hlaðinn var ræsa- stokkur í Lælqargötu þar sem læk- urinn rann, en það var árið 1913 og þótti mikið átak sem gjörbreytti umhverfisaðstæðum þar. Síðan höf- um við verið stöðugt að í þessum málum og verkefninu lýkur reyndar aldrei því borgin þenst út og ávallt aukast kröfumar til umhverfísgæða. Mengun hafsins Mengun hafs er vandamál víða um heim en þó sérstaklega í þétt- býlli löndum og þar sem mikill iðn- aður er. Hér á landi er fátt fólk og landfræðilegar aðstæður yfirleitt þannig að við verðum lítt vör við mengun vegna skólps. Þó eru þeir staðir til þar sem mengunin verður verulega sýnileg samanber fréttir af grútarmengun og fleiru sem rek- ur á fjörur. Víða erlendis þar sem losun er mikil og aðstæður oft við- kvæmar skapast stór vandamál vegna ofvaxtar á þörungum sem jafnvel geta gefið frá sér stórhættu- legt eitur. Þannig aðstæður hafa ekki skapast við Reykjavík þrátt fyrir tiltölulega mikla losun í lítinn fjörð eins og Skeijafjörð. Þetta þýð- ir þó ekki að hér mengist sjór ekki yfir þau mörk sem talin em var- hugaverð eins og saurkólígerlamæl- ingar hafa oft leitt í Ijós. Að meðal- tali myndast um 240 lítrar af skólpi vegna hvers íbúa á sólarhring. Til viðbótar fer í fráveitukerfið regn og afrennsli hitaveitu úr húsum. Vegna þess geysilega magns sem rennur til sjávar og hefur víðast hvar ekki farið lengra en rétt út fyrir stórstraumsfjörumörk hefur ástand strandsvæða í Skeijafirði og norðan Reykjavíkur m.t.t. geria verið hreint út sagt afleitt um ára- bil. Þetta hefur m.a. valdið því að fólki hefur verið ráðið frá því að taka þar sjóböð og fjöruferðir hafa verið farnar með efablöndnum hug, en nú eru miklar breytingar í vænd- um. Fjölþjóðlegt átak íslendingar gerðust aðilar að svo- kölluðum Parísarsamningi frá 1974 sem fjallar um vamir gegn mengun sjávar frá landstöðvum og gekk hann í gildi hér 1981. Árið 1991 kom út tilskipun frá Evrópusam- bandinu sem vísar til Parísarsamn- ingsins og eru í henni settar fram ákveðnar kröfur um tegund hreins- unar og tímamþrk miðað við stærð íbúðabyggðar. í henni er gefið svig- rúm til að nota svokallaða eins þreps hreinsun þar sem hægt er að sýna fram á að umhverfið verði ekki fyrir skaðlegum áhrifum. Skil- greining á eins þreps hreinsun í til- skipuninni er sú að notaðar séu eðlis- og/eða efnafræðilegar að- ferðir til að botnfella svifagnir. Sér- fræðingar EFTA og ES í þessum málum bentu á að fleiri aðferðir væru til og sögðu að notkun sía á lítið viðkvæmum svæðum væri lík- lega álitin jafngilda botnfellingar- aðferð. Því var eftirfarandi bókun gerð að hálfu íslendinga. „íslend- ingar eru aðilar að Parísarsam- þykktinni og hafa samþykkt PARCOM tilmæli nr. 88/2, sem miðar að því að draga úr því að næringarsölt berist til svæða aðild- arlanda Parísarsamþykktarinnar. Markmið þessara tilmæla eru hin sömu og markmið tilskipunar EB frá 21. maí 1991 um meðferð skólps frá þéttbýlissvæðum. Tilskipuninni (91/271/EB) virðist ætlað að kveða á um tæknilegar lausnir með tilliti til aðstæðna á meginlandi Evrópu, án þess að taka mið af mismunandi umhverfísaðstæðum og stijálbýlli Hreinsun fráveituvatns frá stórum hluta höfuð- borgarsvæðisins er á næsta leiti en í upplýs- ingaþjónustu ráðhúss- ins mun starfsleyfis- tillaga fyrir fyrstu skólphreinsistöðina í Reykjavík liggja frammi til 27. nóvember næst- komandi. Að mati Gunnars Svavarsson- ar hefur með byggingu hreinsistöðvar og útrás- ar verið tekið stærsta skrefíð til þessa í um- hverfismálum hérlendis. svæðum. Með vísan til 8. og 10. liðs EFTA/ENV-skjals nr. 14/91 og með tilliti til markmiða tilskipun- arinnar líta íslendingar svo á að notkun síu til forhreinsunar nægi á lítt viðkvæmum svæðum svo mark- miðum tilskipunarinnar sé náð. ís- lendingar geta samþykkt tilskipun- ina út frá þessum skilningi." Ekki hafa verið gerðar athugasemdir við þessa bókun. Bókunin var m.a. byggð á því að í Noregi er síunarað- ferð beitt norðan Norðursjávar þar sem útrás er ekki inni í fjörðum. Víða erlendis eru gerðar kröfur um meiri hreinsibúnað en hér sem kemur til vegna þess að skólpmagn- ið þar er margfalt meira og viðtak- amir eru ár eða flóar og þröngir firðir sem ekki hreinsa sig vel á náttúrulegan hátt, þ. e. viðkvæmir viðtakar. Mengunarvamareglugerð gerir þá kröfu að áður en eins þreps hreinsun sé heimiluð skuli rannsaka ítarlega áhrif skólps á umhverfið og sýna fram á að þróaðri hreinsiað- ferðir hafi engin umhverfisbætandi áhrif. Því voru framkvæmdar hér ýmsar ítarlegar rannsóknir á vænt- anlegum losunarstað sem tóku m.a. til strauma, botnlífríkis, efnagrein- inga og fleira. Þær rannsóknir sem gerðar voru á lífríki og botni voru einnig til þess gerðar að hafa við- mið fyrir rannsóknir sem gerðar verða þegar losunarstaðurinn hefur verið tekinn i notkun. Hollustuvemd ríkisins samþykkti þann 1. október síðastliðinn að viðtakinn utan við Akurey skilgreindist sem síður við- kvæmur, þar sem ekki sé hætta á ofnæringu nærinarefna eða súrefn- isþurrð óg losun hreinsaðs skólps hafí ekki skaðleg áhrif á umhverfíð þar. Nefna má að í löndum þar sem þróaðri hreinsiaðferðum er beitt til hreinsunar skólps er ekki allur vandinn leystur því að eftir hreins- unina situr fjall af föstum úrgangi sem þarf að meðhöndla á dýran hátt. Svokölluð tveggja þrepa hreinsun byijar á botnfellingu svifagna. Síðan er beitt lífrænni hreinsun sem oft fer fram í kemm þar sem örveruvöxtur er örvaður en einmitt þær sjá um að innbyrða lífræn efni og annað í skólpinu og umbreyta því í koltvísýring, vatn og hlutlausan efnismassa. Að því loknu fer efnismassinn í frekari meðferð og að lokum verður til efni sem helst minnir á mold. Afurðinni er síðan gjarnan dreift á ræktunarland sem áburði. Enn eru þó í vísindaheiminum mikl- ar vangaveltur um það hvort þetta sé heilsu- samlegt þar sem ekki hefur enn verið hægt að komast hjá því að þessi afurð innihéldi eitthvað af hættuleg- um efnum eins og þungmálmum og þrá- virkum lífrænum efn- um. Hreinsun af þessu tagi kostar margfalt það sem eins þreps hreinsun kostar. Ný hreinsistöð Þessa dagana liggur frammi í upplýsingaþjónustu ráðhúss Reykjavíkur starfsleyfistillaga fýrir fyrstu meiriháttar skólphreinsistöð- ina í Reykjavík og var hún sam- þykkt á heilbrigðisnefndarfundi 3. október síðastliðinn. í henni eru sett fram ákvæði um hreinsun skólps, eftirlitsmælingar, skráning- ar, rannsókn á virkni og umhverfís- áhrifum auk krafna um umgengni við stöð, meðhöndlun fastra úr- gangsefna, lykthreinsun, hávaða- takmarkanir o. fl. Stöðin og búnað- urinn sem í henni er kostaði um 800 milljónir króna. Yfírumsjón með framkvæmdinni hafði gatna- málastjórinn í Reykjavík. Skólp frá um 100.000 manns auk skólps frá ýmissi starfsemi kemur til með að fara um stöðina og þar að auki regn og hitaveituvatn. Iðn- aðar- og þjónustuskólpið er áætlað samsvara skólpi frá um 70.000 manns. Reiknað er með að um 600 lítrar af skólpi fari um stöðina á hverri sekúndu eða 52 milljónir lítra á dag, en hönnunarmagn fyrir út- rásina, sem er 120 sentimetrar að þvermáli, er 2500 lítrar á sekúndu. Fráveituvatnið kemur frá Seltjarn- amesi, Vesturbænum, Fossvogs-, Breiðholts-, Árbæjar- og Selás- hverfi og fljótlega er reiknað með fráveituvatni frá Kópavogi og Garðabæ. Til samanburðar má geta þess að rennsli Elliðaánna er 2000 til 4000 lítrar á sekúndu. En hvað er stöðin hönnuð til að gera? Aðveituskólpið kemur fyrst inn í gijótfang þar sem möl og fleiri þungir hlutir eru felldir til botns. Þá er það leitt inn í rennu þar sem fínar færibandasíur fjarlægja vænt- anlega um 50% af föstum svifögn- um. Þetta fasta efni fer af færi- bandinu í snigil sem pressar úr því vatn en síðan fer það í lokaða gáma sem geymdir eru í sérstöku hús- rými. Eftir þessa síun fer skólpið í geysistór ker þar sem mjög er hægt á rennslishraðan- um þannig að agnir sem eru eðlisþyngri en vatn falla til botns en léttari efni eins og fita og olía fljóta upp með aðstoð lofts sem dælt er í fínum bólum upp í gegnum kerin og er fleytt ofan af yfirborð- inu inn í sérstaka þró. Því sem fellur til botns er dælt gegnum af- vötnunarsnigil og inn í lokaða gáma. Síðan rennur hreinsaða skólpið í þró þaðan sem því er dælt í plast-fráveitulögn á sjávarbotni fjóra kílómetra á haf út frá Ána- naustum eða um einn og hálfan kílómetra norðvestur af Akurey. Síðasti 500 metra kafli lagnarinnar er útrás þar sem dreifistútar eru með um 6 metra millibili og dýpi þar er um 20 til 30 m. Fráveitulögn stöðvarinnar var lengdarhönnuð þannig að gerla- magn færi ekki yfir viðmiðunar- mörk mengunarvarnareglugerðar á strandsvæðum (strandsvæði er fjara ásamt 250 metrum út fyrir stórstraumsfjörumörk). Reglugerð- in segir að þar sem útivistarsvæði séu við fjörur eða matvælaiðnaður í grennd skuli fjöldi saurkólígerla eða saurkokka í a. m. k. 90% til- fella vera undir 100 í 100 ml utan þynningarsvæðis (þynningarsvæði er sá hluti viðtaka þar sem þynning mengunar á sér stað og eftirlitsaðil- ar með mengunarvamareglugerð samþyggja að mengun megi vera yfir viðmiðunarmörkum). Náesta strandsvæði við útrásina er við Akurey sem er útivistarsvæði skv. skipulagi og á sjórinn þar að vera í góðu lagi eftir að losun hefst. Til samanburðar við þær kröfur sem gerðar eru við strendur Reykjavík- ur, þá eru leyfðir frá 100 til 1000 saurkólígerlar eða saurkokkar í 100 ml á baðströndum í Evrópu. Rannsóknir Eins og fýrr sagði hafa verið gerð- ar margar rannsóknir vegna vænt- anlegrar losunar hreinsaðs skólps frá stöðinni og er hér minnst á helstu niðurstöður úr þeim, en ekki er um tæmandi samantekt að ræða. í desember 1991 kom út skýrsla um rannsókn á gerlamengun frá skolpútrásum í Reykjavík (Vatna- skil, Snorri Páll Kjaran og Sigurður Lárus Hólm). í ljós kom að meðal- kólígerlafjöldi í hreinu skólpi er 9 Gunnar Svavarsson miljón^ E-kólí gerlar í 100 millilítra sýni. í sjónum er dauðatími gerl- anna frá 5 til 10 klukkustundir, skemmstur á sumrin og lengstur í desember. Því meiri sól þeim mun skemur lifa gerlarnir. Gerlafjöldi á strandsvæði við meginútrás getur farið yfir 100.000 í 100 ml en er oft yfir 10.000 á nokkur hundruð' metra kafla við þær. Árið 1992 kom út skýrsla um efnamælingar fráveituvatns við Ingólfsgarð, Laugalæk og í Breið- holti (Rannsóknarstofnun fiskiðn: aðarins, Guðjón Atli Auðunsson). í henni segir að þegngildi (þegngildi er magn efnisþáttar á sólahring deilt niður á fjölda persóna sem liggja að baki fráveituvatni) málma í Skúlagötu og Laugalæk séu nokk- urt áhyggjuefni og ástæða sé til að kanna uppsprettu þeirra nánar þar sem um tímabundnar losanir virðist að ræða. Sömu sögu er að segja um PCB efni. Sagt er að vörn gegn mengun af þessu tagi felist í að uppræta uppsprettuna frekar en að leggja í kostnað við hreinsun á öllu frárennslinu. Lagt er til að könnuð séu áhrif málma á lífríki losunarstaðar með kræklingarann- sókn fýrir og eftir að losun hefst. í janúar 1993 kom út skýrsla I um gerlamengun á strandsvæðinu frá Orfirisey og að olíubirgðastöð- inni í Skeijafirði (Líffræðistofnun HÍ, Jörundur Svavarsson). Mæling- arnar voru gerðar í nóvember og desember 1992. Hún leiddi í ljós að víðast hvar var saurkólígerla- mengun á bilinu 160 til 1500 gerlar í 100 ml. Ástandið var best í Sel- tjörn eða um 40 saurkólígerlar í 100 ml en verst utan við olíubirgða- stöðina í Skeijafirði (þar er Foss- vogsræsi) þar sem meðaltal saur- kólígerla var um 22.000 í 100 ml. Árið 1994 kom út skýrsla um neðansjávarmyndartöku við enda fyrirhugaðrar útrásar (Hafrann- sóknarstofnun, Kjartan Thors). í henni segir að botninn sé úr grófu seti, þ.e. möl og grófum sandi. í setinu er mikið af skeljum og skelja- brotum. Á köflum kemur fýrir dreif af fínefni ofaná grófa setinu. Grófa setið er víða gárað með 10 til 20 sentimetra ölduhæð og er það víða holótt og að því er virðist sundur- grafið af lífverum. Fínefnið sest til mjög tímabundið vegna sjávar- strauma og stormöldu. í janúar 1994 kom út skýrsla II um gerlamengun á svæðinu frá Örfirisey og að olíubirgðastöðinni í Skeijafirði (Líffræðistofnun HÍ, Jörundur Svavarsson). Þetta er sama svæði og var athugað ári áður en nú var komin bráðabirgða- útrás við Eiðsgrandann, en áður var því skólpi veitt í Skeijafjörðinn. Saurkólígerlamagn var víðast hvar frá 70 og upp í 2300 gerlar í 100 ml, lægst í Seltjörn eins og áður. Við Fossvogsræsi var kólígerla- magn hins vegar meira en helmingi hærra en áður eða 52.900 gerlar í 100 ml. Gerlamengun jókst töluvert utan við Eiðisgrandann en minnk- aði að sama skapi í Skeijafirði. í maí 1994 kom út skýrsla um efnamælingar á fráveituvatni frá dælustöð á Gelgjutanga (RF, Guð- jón Atli Auðunsson). I henni segir m.a. að þá viku sem mælingar stóðu yfir hafi mæliþættir hvorki virst vaxa eða minnka. Regn leiðir ekki til aukningar á blýstyrk en hann mældist lágur. Flestir málmar mældust í lágum styrk. Köfnunar- efni mældist nokkuð hátt og er ástæða til að kanna það nánar. PCB efni greindust ekki. Lífræn efni sem innihalda halogenefni mældust nokkuð há en þessi efni sem að öllum líkindum koma frá leysiefnum í iðnaði eru viðsjárverð vegna upp- söfnunar í lífverum. Fenólefni sem einnig eru í lífrænum leysum mæld- ust einnig í nokkuð háum styrk. í desember 1994 kom út skýrsla um sjávarstrauma í Faxaflóa og dreifingu mengunar vegna fyrirhug- aðrar útrásar (Vatnaskil, Snorri Páll Kjaran og Sigurður Lárus Hólm). I niðurstöðum hennar segir að veruleg vatnaskipti eigi sér stað á fyrirhuguð- um losunarstað og að útrásin komi til með að uppfylla vel kröfur meng- unarvamareglugerðar fyrir saurkólí-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.