Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 14
14 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
krafðist algers bindindis á vín og
tóbak en í þá daga var engin al-
mennileg stjarna nema hann keðju-
reykti og sæti á börunum á kvöld-
in. Hann fylgdist með einkalífi leik-
manna og kunni illa að meta laus-
ung í kvennamálum, sumir leik-
menn Inter hafa síðar sagt að þeir
hafi komið sér upp „gervieiginkon-
um“ svo Herrera vissi ekki að þeir
væru ekki við eina fjölina felldir.
Hann lét leikmenn sippa, dansa og
taka þátt í æfingum með allskyns
tæki og tól við undirleik tónlistar -
má eiginlega segja að þetta hafi
verið undanfari nútímaballetts -
og hengdi út um allt á æfingasvæð-
inu og á leikvanginum allskyns
platta með slagorðum eins og „Stíll
+ undirbúningur + styrkur + gáfur
= meistaratitill". „Vörn: Minna en
30 mörk! Sókn: Meira en 100 mörk!“
Út á við talaði hann lýtalausa
ítölsku en við leikmennina notaði
hann oft heimasmíðuð hugtök eða
hrognamál úr spænsku og ítölsku
þannig að leikmennirnir voru oft
óskiljanlegir fyrir aðra inni á vellin-
um. Hann fór alltaf undan í flæm-
ingi þegar minnst var á þjálfara
andstæðinganna og gerði lítið úr
þeim án þess að segja neitt svosum.
Látum Tarcisio Burgnich úr gullald-
arliði Inter sem nú þjálfar Foggia
eiga lokaorðin um Herrera: „Margir
hafa reynt að stæla þjálfunarað-
ferðir hans og kúnstirnar allar en
gleyma því að hann var fyrst og
fremst duglegur þjálfari sem lagði
mikið á sig og krafðist þess sama
af leikmönnunum. Þjálfun er vinna
og aftur vinna og engar töfralausn-
ir til en af öllum þeim þjálfurum
sem ég hef kynnst hafði hann helst
eitthvað sem var töfrum líkast.
Ciao, Herrera töframaður, grazie."
„Töframaðurinn" Helenio Herrera látinn á ftalíu, 81 árs að aldri
Hafði e'rtthvað
töfnim líkast
í VIKUBYRJUN kvaddi þennan
heim einn áhrifamesti knatt-
spyrnuþjálfari aldarinnar, Arg-
entmumaðurinn Helenio Herr-
era. Hann lést í Feneyjum 81
árs að aldri og var í fullu fjöri
fram á síðasta dag, fylgdist
m.a. grannt með því sem var
að gerast hjá liðinu sem stóð
hjarta hans næst, Internazi-
onale frá Mílanó. Það lið gerði
hann þrívegis að Ítalíumeistara
og tvívegis að Evrópumeistara
á sjöunda áratugnum en leik-
stíll líðsins átti eftir að hafa
gífurleg áhrif, sterkur varnar-
leikur og skyndisóknir og var
það leikafbrigði sem ítalir
nefna „catenaccio11 aðalsmerki
ítalskrar knattspyrnu langt
fram á níunda áratuginn.
Vegna þess hve leiðinlegt hið ít-
alska vamarafbrigði gat orðið
fyrir áhorfendur var Herrera oft
■■■■■■ legið á hálsi fyrir að
EinarLogi hafa þróað það.
Vignisson Hann var hins vegar
skrifar alltaf jafn stoltur af
því að vera faðir
þess og fram á gamals aldur fuss-
aði hann ævinlega yfír því ef aðrir
þjálfarar voru taldir hafa lagt eitt-
hvað í púkkið. En jafnframt sór
hann af sér að hafa skemmt knatt-
spymuna fyrir áhorfendum. „Mér
datt þetta í hug þegar ég var sjálf-
ur leikmaður í Frakklandi. Og mun-
ið að ég var sóknarsnillingur! Ég
spilaði þetta kerfi með Inter af því
að ég var með einhveija bestu bak-
verði knattspyrnusögunnar, þá
Facehetti og Burgnich sem gátu
sótt fram á leifturhraða og svo var
ég með lata snillinga eins og Su-
arez og Mazzola sem þurftu að
hvíla sig á milli þess sem þeir settu
mörkin. Þjálfararnir sem öpuðu
þetta eftir gerðu það hugsunar-
laust, reyndu að búa til kerfi sem
hentaði ekki mannskapnum. Það fór
auðvitað allt í vitleysu öllum til
sárra leiðinda."
Glæstur ferill
Helenio Herrera fæddist í Arg-
entínu 1916 en fluttist ungur með
fjölskyldu sinni til Frakklands þar
sem hann gerðist atvinnumaður og
lék m.a. 2 landsleiki fyrir Frakk-
lands hönd eftir að hafa skipt um
ríkisfang. Hann hóf þjálfun þar eft-
ir að ferli hans Iauk en flutti sig
fljótlega yfir til Spánar þar sem
hann gerði Atletico Madrid tvívegis
að meisturum og endurtók síðan
leikinn með Barcelona þar sem hann
var með einhverja bestu framheija-
Iínu allra tíma Kubala, Kocsis, Eva-
risto, Czibor og Luis Suarez en
þann síðastnefnda tók hann með
sér til Inter þegar hann var rekinn
frá Barcelona eftir að liðið hafði
beðið hrapallegan ósigur fyrir Real
Madrid í Evrópukeppninni. Hann
var þekktur fyrir skap og sérvisku
á Spáni en taldi sig sjálfur hafa
verið í allt of miklum málamiðlunum
og á Ítalíu skyldi hann ganga alla
leið, gera hlutina eingöngu eftir
eigin höfði. Og ekki var hægt að
kvarta yfír árangrinum, Inter varð
mesta stórveldi í heiminum á sjö-
unda áratugnum og titlamir urðu
margir eins og minnst var á í upp-
hafi. Eftir átta ár var þó komin
þreyta í liðið og Herrera hvarf á
braut til Roma sem bauð honum
ævintýralegustu laun sem nokkur
knattspymuþjálfari hafði kynnst.
Hann var þar í fimm ár, sneri eitt
ár aftur til Inter en undi sér ekki
þar og tók að þjálfa Rimini í ann-
arri deild. Hann þjálfaði síðast
Barcelona eina leiktíð 1980 en
sagðist vera orðinn of gamall fyrir
hasarinn og vildi hætta þessu.
Sérwitur „pabbi“
Þótt gaman sé að velta fyrir sér
glæstum ferli Herrera og áhrifum
hans sem þjálfara em það þó sög-
umar af sérvisku hans og tiktúram
sem lengst kunna að lifa. Herrera
leit á sig sem föður leikmannanna
og það var ekkert í lífi þeirra sem
var honum óviðkomandi. Hann
PressLink
HELENIO Herrera, elnn áhrlfamestl knattspyrnuþjálfari ald-
arlnnar. Herrera var 81 árs, en enn í fullu fjörl og fylgdist
með gangl mála í knattspyrnuheiminum til hlnsta dags.
Ekki landsleikirá næstunni
LANDSLIÐ íslands í knattspyrnu
kemur ekki saman til æfingaleiks
fyrr en eftir að dregið hefur verið
í Evrópukeppni landsliða eftir
áramót, en Guðjón Þórðarson,
landsliðsþjálfari, stefndi að því í
haust að fá einhveija leiki fyrr.
Eggert Magnússon, formaður
KSI, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ekki væri í bígerð að
leika æfíngaleiki á næstunni.
„Það var rætt um að sjá til þar
til eftir að dregið hefur verið í
riðla í undankeppni Evrópu-
keppninnar,“ sagði Eggert en
dregið verður sunnudaginn 18.
janúar. Eggert sagði ennfremur
að ekkert væri um að vera hjá
landsliðum um þessar mundir þvi
allir héldu að sér höndum þar til
eftir að dregið hefði verið. „Þar
sem næsta ár er það sem við
köllum HM-ár er rétt að hafa í
huga að þá gerast oft óvæntir
atburðir og við höfum stundum
leikið við mjög sterk lið þau ár
sem HM er,“ sagði Eggert og er
skemmst að minnast æfingaleiks
landsliðsins í Brasilíu fyrir HM í
Bandaríkjunum 1994.
Aðspurður hvort landsliðsþjálf-
arinn færi ekki fljótlega á ferðina
til að skoða íslenska knattspyrnu-
menn sem leika erlendis, eins og
til hefði staðið, sagði Eggert:
„Það verður ekki fyrr en eftir
áramótin. Það er miklu meira vit
í að gera það þegar nær dregur
keppnistímabilinu.“
HANDKNATTLEIKUR
KA mætir Badel Zagreb í Króatíu í dag
Spenningur í
mannskapnum
KA leikur annan leik sinn í
Meistaradeild Evrópukeppn-
innar í handknattleik í dag, mætir
Badel 1862 Zagreb frá Króatíu í
Zagreb. KA-menn fóra til Kaup-
mannahafnar á föstudag og gistu
þar eina nótt en héldu síðan í gær-
morgun til Zagreb og leikurinn
verður í kvöld klukkan sjö að stað-
artíma, klukkan fimm að íslenskum
tíma.
„Þetta leggst bara vel í okkur,“
sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA,
í samtali við Morgunblaðið. „Það
er spenningur í mannskapnum enda
lítum við fyrst og fremst á þátttöku
okkar í keppninni sem skemmtilega
viðbót við önnur verkefni í vetur.
Zagreb er með mjög sterkt lið
og því alveg ljóst að róðurinn verð-
ur þungur fyrir okkur. Ég hef séð
myndbandsupptöku frá leik liðsins
í síðustu umferð en þá var það
reyndar alls ekki sannfærandij sigr-
aði þó [Gereali Triste frá Italíu]
með tveimur mörkum en var meira
yfir lengstum og því fannst mér
eins og það léki ekki á fullu. Það
verður öragglega leikið á fullu á
móti okkur í Zagreb," sagði Atli.
Nú hafa nokkrir leikmenn hjá
þér verið meiddir. Hvernig er
ástandið?
„Það verður að segjast eins og
er að það er fremur bágborið hjá
sumum. Leó [Orn Þorleifsson] og
Hilmar [Bjarnason] era báðir með
í för en það verður að koma í ljós
á sunnudaginn hvort eitthvað verð-
ur hægt að nota þá. Sigtryggur
[Albertsson] hefur verið veikur að
undanförnu þannig að við vonum
bara hið besta,“ sagði Atli.
Hann sagði að liðið kæmi heim
á miðnætti á mánudagskvöld og að
búið væri að fresta leik liðsins við
Víking á miðvikudaginn. „Við erum
ánægðir með að fá leiknum frestað
því annars hefði þetta orðið ansi
strembið," sagði Atli.
Morgunblaðið/Keli
KARIM Yala, alsfrski leikmaðurinn hjá KA, brýst í gegnum
vörn Hauka í deildarleik félaganna í vikunni. Yala og samherj-
ar hans sækja króatíska llðið Badel 1862 Zagreb heim í dag.
Lauda vill
rauð spjöld
NIKI Lauda, þrefaldur heims-
meistari á árum áður í Formulu
1 kappakstrinum, segistvilja
breytingar á reglum keppninn-
ar. Hann segir að ökuþórarinir
þurfi meira aðhald og best væri
ef hægt væri að kalla þá af
keppnisbrautinni gerist þeir of
kærulausir eða djarfir við akst-
urinn. Hann vill sem sagt fá
rautt spjald í Formulu 1, ekki
ósvipað því sem notað er í knatt-
spyrnu.
Halldór
þjálfar Fylki
HALLDÓR Svavarsson hefur
verið ráðinn yfirþjálfari hjá
karatedeild Fylkis. Halldór er
margfaidur íslands- og Norður-
landameistari í íþróttinni. Hann
er jafnframt landsliðsþjálfari.
Halldór hefur æft, þjálfað og
keppt fyrir Karatefélag Reykja-
víkur undanfarin 14 ár og hef-
ur fjóram sinnum verið valinn
karatemaður ársins. Hann æfir
Okinawa Goju ryu karate, sem
er iðkað af 50 þúsund einstakl-
ingum um heima allan.