Morgunblaðið - 16.11.1997, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
HUGH Whitemore er
höfundur leikritsins,
sem frumsýnt var í
Comedy Theatre um
miðjan október og heitir Afsagnar-
bréf (A Letter of Resignation).
Nafnið er sótt til afsagnar
Profumos, sem var vamarmálaráð-
herra í ríkisstjórn Macmillans og
varð að segja af sér 1963 eftir að
hann hafði logið að þinginu um
samband sitt við vændiskonuna
Christine Keeler, en háttsettur
starfsmaður sovézka sendiráðsins
átti líka vingott við hana. Þunga-
miðja leikritsins er þó framhjáhald
eiginkonu Macmillans og áhrif þess
á hann sem mann og stjórnmála-
mann. Það liggur í loftinu að vegna
þessa hafí hann ekki getað tekið á
máli Profumo með þeim hætti, sem
ef til vill hefði bjargað honum og
ríkisstjóm hans. Leikritið gerist
sumarkvöld eitt 1963 í Skotlandi,
þar sem Macmillan-hjónin era í fríi
til veiða. Þangað koma ritari for-
sætisráðhemans og starfsmaður
leyniþjónustunnar til þess að skýra
Macmillan frá afsögn Profumos
vamarmálaráðherra vegna sam-
bands hans við vændiskonuna
Christine Keeler. I frásögn þeirra
félaga er málið rakið það ítarlega,
að jafnvel þeir, sem ekki þekkja til
raunveraleikans, fá af því góða
mynd. Það kemur fram í máli for-
sætisráðherrans, að hann hefur
aldrei getað hert sig upp í það að
ræða framhjáhald Profumos við
hann persónulega, heldur fékk
hann til þess annan ráðherra, sem
ekkert varð ágengt. Þess vegna var
aldrei gripið í taumana, heldur
málið látið dankast áfram þar til
það nú springur í ósannindum
Profumos og afsögn hans.
Þeir félagar, ritarinn og leyni-
þjónustumaðurinn, sem Julian
Wadham og John Wamby leika,
hverfa af sviðinu tii að fá sér eitt-
hvað í gogginn hjá ráðskonunni,
sem Doreen Andrew leikur. For-
sætisráðherrann situr einn eftir og
lætur hugann hvarfla til baka til
þess, að kona hans segist þunguð
eftir annan mann, sem hún sé ást-
fangin af og að hún geti ekki hugs-
að sér að slíta því sambandi.
Macmillan biður hana um að yfír-
gefa sig ekki og það verður úr að
þau halda hjónabandinu og hún
fram hjá því. Þetta atriði þeirra
hjóna var eitt það viðkvæmasta í
leikritinu. Það er Clare Higgins
sem fer með hlutverk lafði Dorothy
Macmillan og innileikinn í þessu
atriði var mjög svo fallegur.
Leikritinu vindur svo fram ýmist
í samtíð eða að forsætisráðherrann
rifjar upp eldri atvik. Edward Fox
fer afburða vel með hlutverk
Macmillans, raddbeitingin og per-
sónusköpunin era framúrskarandi.
Reyndar sá ég í blöðum að brezkir
gagnrýnendur líktu honum sumir
við skjálfandi rostung, en einn
sagði þó, að hann væri meiri
Maemillan en Macmillan hefði
nokkurn tímann verið sjálfur! Ein-
ræður hans og móralskar vanga-
veltur um breytta tíma og hnign-
andi siðferði verða aldrei leiðinleg-
ar, því þær eru kryddaðar gaman-
sögum svo áhorfendur ná að stikla
á hlátursteinum yfír straumþung-
ann.
Þetta er frásögn um mannlega
reisn, þrátt fyrir tog milli tveggja
heima og ráðvillu gagnvart breytt-
um siðferðilegum gildum. En þótt
efnið kunni að virka þungt, er leik-
ritið bráðskemmtilegt. Edward
Fox er óhemju sterkur á sviðinu,
en hinir leikaramir fara líka á
kostum í sínum hlutverkum.
Bretum þykir Profumo-málið
æði margtuggið orðið og mál að
linni. En það skerpti örugglega á
erindi leikritsins við Breta nú, að
það var framsýnt um svipað leyti
og íhaldsmenn héldu flokksþing
sitt og William Hague leiddi þá til
nýrrar siðvæðingar, sem hökti nú
aðeins þegar einn þingmaður
íhaldsflokksins, Piers Merehant,
sagði af sér vegna (ástar-) sam-
bands við 18 ára aðstoðarkonu
sína.
JUDI Dench fékk gdða dóma fyrir leik sinn í hlutverki leikkonunnar Esme Allen í Sýn Amys hjá Royal
National Theatre. Með henni á myndinni er Samantha Bond, sem leikur dóttur hennar, Amy.
Leikhúsmolar
úr Lundúnaferð
Brezki leikarinn
Edward Fox fer með
hlutverk Harolds
Macmillans í nýju leik-
riti á sviði Comedy
Theatre í London.
______Freysteinn_____
Jóhannsson fór í leik-
húsið og segir frá sýn-
ingunni og fleiru, sem
boðið er upp á í leik-
húsum Lundúnaborgar
þessa dagana.
EDWARD Fox fer á kostum í hlutverki Harolds Macmillans í nýju
leikriti á sviði Comedy Theatre í London.
Hinar konunglegu tignir
Edward Fox lék á sínum tíma
Játvarð VIII við góðan orðstír, en
hann sagði af sér konungdómi 1936
til að giftast Wallis Simpson. Og nú
er á fjölum Playhouse Theatre
leikritið Hinar konunglegu tignir
(,,HRH“) eftir Snoo Wilson, sem
segir af hertogahjónunum af
Windsor við landstjórastörf á Ba-
hamaeyjum.
Bretar tóku til þess að það væri
vart við hæfí að auka á erfiðleika
konungsfjölskyldunnar með því að
hefja sýningar á leikritinu skömmu
eftir lát Díönu prinsessu og ævi-
söguírafársins, sem á eftir kom, og
í kjölfarið á söngleiknum Alltaf
(Always), sem fjallaði um konung-
inn fyrrverandi, konu hans og kon-
ungsfjölskylduna með þeim hætti,
að þeim konunglegu var ekki
skemmt. Reyndar gekk söngleik-
urinn víst líka fram af almenningi,
þannig að sýningartíminn varð
hlutfallslega mun styttri en kon-
ungdómur Játvarðs VIII.
Stelur senunni
Með hlutverk hertogans fer Cor-
in Redgrave, en það er Amanda
Donohoe í hlutverki Wallis sem
sögð er stela senunni. Hún þykir
túlka með einstæðum hætti beiska
fyririitningu í garð mannsins, sem
afsalaði sér krúnunni, gat ekki
tryggt henni konunglegan titil, en
virðist ala með sér
vonir um að komast
aftur til hásætis fyrir
tilstilli Hitlers.
Litið leikkonulán
Leikkonan Judi
Dench hefur lengi
verið í miklu uppá-
haldi hjá mér. Það bar
því vel í veiði, þegar
ég átti leið um
London á dögunum,
að hún var að leika í
Sýn Amy (Amy’s Vi-
ew) hjá Royal
National Theatre og
hlaut fyrir hástemmt
lof gagnrýnenda.
Því miður reyndist þetta eina
sýningin í London, sem uppselt var
á allar sýningai’ fram í nóvember
og miðar aldrei á lausu. Til stendur
að leikritið verði tekið upp í öðra
leikhúsi, annað hvort í þessum
mánuði eða strax á nýju ári og þótt
Judi Dench verði þá ekki í leikara-
hópnum er engu að síður ástæða til
að sjá leikritið.
Leikritið er eftir David Hare og
leikstjóri er Richard Eyre, sem nú
hefur látið af starfi Þjóðleikhús-
stjóra. Það gerist á 15 áram og
fjallar um samband leikkonu, sem
Judi Dench leikur, við sína nán-
ustu, einkum dóttur og tengdason.
Segja má að ég hafi ekki notið
leikkonuhylli í þessari ferð, því
önnur leikkona, sem
mér er kær, var sýnd
veiði en ekki gefin. Eg
hafði lesið, að Maggie
Smith væri væntanleg
á svið Theatre Royale
í A Delicate Balance
eftir Edward Albee,
en þetta leikrit færði
honum hans fyrstu
Pulitzer-verðlaun. En
svo fór, að framsýnt
var í vikunni eftir að
ég fór frá London.
Leikstjóri er Anthony
Page, en þau Maggie
Smith hafa áður unnið
saman með góðum ár-
angri í leikriti eftir Albee.
Þessu leikriti hefur oft verið líkt
við fyrri verk Albees; Hver er
hræddur við Virginiu Woolf? Text-
inn þykir reyndar ekki eins safa-
ríkur, en siðferðiskreppan hins
vegar verri.
Maggie Smith leikur drykkfelld-
an kvensvark sem hefur setzt upp
hjá systur sinni og mági (Eileen
Atkins og John Standing) og einnig
koma við sögu fullorðin dóttir
þeirra hjóna, sem enn leitar skjóls
hjá pabba og mömmu þegar hjóna-
bandið ýfist og loks leita vinahjón
þeirra þarna athvarfs.
Wilde um víðan völl
Nýjasta leikrit Toms Stoppards
Að uppgötva ástina (The Invention
Oscar Wilde
of Love) þykir afbragðsgott. Það er
sýnt á Cottesloe-sviði Þjóðleikhúss-
ins og fjallar um skáldið og fræði-
manninn A. E. Housman. John
Wood leikur hann á efri áram, þeg-
ar hann lítur um öxl yfir farinn veg
og rökræðir við sjálfan sig tvítugan
um ástina, lífið og listina. Hlutverk
unga Housman er í höndum Paul
Rhys. Housman varð ástfanginn af
samstúdent sínum við Oxford, en sá
endurgalt ekki tilfínningar hans,
heldur kvæntist og flutti til Ind-
lands. Housman hélt tilfinningum
sínum alla tíð hjá sér, en fann þeim
farveg í ljóðum sínum.
Oscar Wilde hélt hins vegar
hvergi aftur af sér. Hans mál æxl-
uðust þannig að hann var dæmdur
í fangelsi fyrir samkynhneigð og
áreitni við unga menn. Housman
sendi Wilde bók, þegar sá síðar-
nefndi losnaði úr fangelsi. Þeir
hittust aldrei í raun, en Stoppard
kemur á fundi þeirra í leikritinu og
varpar þar með fram þeirri spurn-
ingu, hvor viðbrögðin séu betri við
bælingu, að sleppa fram af sér
beizlinu, eins og Wilde gerði, eða
að halda aftur af sér að dæmi
Housmans.
Oscar Wilde er víðar á ferðinni í
London en í leikriti Stoppards.
Kvikmynd um ævi hans, Wilde, var
framsýnd í síðasta mánuði. Hún
hlaut mikla umfjöllun í fjölmiðlum
og margt var sagt og skrifað um
lífshlaup Wildes, en minna um
skáldskapinn. Einn gagmýnandi
sagði, að það væri barnalegt að
hefja Oscar Wilde til skýjanna, þar
sem hann, ef hann væri á lífi nú,
ætti á hættu að vera á bamaníð-
ingalistanum í Bretlandi.
Bamabam skáldsins talaði hart
gegn kvikmyndinni og sagðist hafa
hafnað boði framleiðenda um að
vera þeim til ráðgjafar, vegna þess
að kvikmyndin legði of mikla
áherzlu á samkynhneigð Wildes, en
hins vegar fengju aðrar hliðar hans
og skáldskapurinn ekki að njóta
sannmælis. Það var svo ef til vill
tilviljun að um líkt leyti og kvik-
myndin var framsýnd kom út ný
ævisaga Wildes, einmitt eftir þetta
bamabarn hans.
Það er Stephen Fry sem leikur
Oscar Wilde í kvikmyndinni. Hann
er sjálfur frægur fyrir orðheppni,
hefur skrifað bækur og þykir hafa
útlitið og margt annað með sér í
hlutverkið.
Fyrst líf Oscars Wildes er nú svo
mjög til umfjöllunar með Bretum,
má ekki minna vera en að hann
birtist okkur í eigin penna. Sjálfur
var hann enginn fyrirmyndareigin-
maður, en leikrit skrifaði hann og
eitt þeirra, Fyrirmyndareiginmað-
ur (An Ideal Husband) er nú sýnt í
Haymarket Theatre Royal. Leik-
stjóri er Peter Hall og það era
Martin Shaw og Kate O’Mara sem
leika aðalhlutverkin.
í Reykjavík
og London
I eina tíð var það tæpast til, að
sömu leikhúsverk væra á fjölunum
í Reykjavík og London og ár gátu
liðið þar á milli svo ekki sé nú talað
um kvikmyndirnar.
Nú er öldin önnur. Margar kvik-
myndanna sem era sýndar í
London má samtímis sjá hér og svo
vill til, að tvö leikrit sem nú era
sýnd í Reykjavík geta menn líka
séð í London; Listaverkið, sem
sýnt er nú í Loftkastalanum, geng-
ur enn í London á sviði Wyndhams
Theatre, og þeir sem hafa séð Hár
og hitt í Borgarleikhúsinu geta séð
brezka útgáfu þess í Duchess
Theatre í London. Og óperan
Svona eru þær allar (Cosi fan
tutte), sem nú er sýnd í Islenzku
óperunni er líka sungin í London.
Þá er söngleikurinn Yndisfríð og
ófreskjan (Beauty and the Beast)
sýndur í The Dominion Theatre, en
stutt er í að ný brezk leikgerð
þessa ævintýris verði framsýnd í
Þjóðleikhúsinu. Og leikrit Bens
Eltons, Poppkorn, sem Þjóðleik-
húsið í Reykjavík sýnir í vetur, er
nú sýnt á sviði Apollo Shaftesbury í
London.