Morgunblaðið - 16.11.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997 17
Synir duftsins
vekja athygli
erlendis
FYRSTA skáldsaga Arnalds Ind-
riðasonar, Synir duftsins, er komin
út. í kynningu segir að Arnaldur
Indriðason sé landsmönnum að
góðu kunnur íyrir skrif sín í Morg-
unblaðið um
kvikmyndir og
erlendar met-
sölubækur:
„Hvors tveggja
gætir í bók
hans; lesandan-
um finnst oft
sem hann sé að
„lesa“ kvik-
mynd. Sagan
hefst á því að
maður á miðjum aldri fyrirfer sér á
geðsjúkrahúsi. A sama tíma er eldri
maður brenndur til bana í öðrum
enda bæjarins. Dauðsföll þessi
tengjast á sjöunda áratugnum þeg-
ar sá eldri var barnakennari og sá
yngri nemandi hans. Á yfirborðinu
er sagan einfóld en áleitnai- spurn-
ingar kvikna að lestri loknum. Er
réttlætanlegt að fórna einstakling-
um fyrir heildina? Hversu langt má
ganga í tilraunum á fólki? Hvers
virði eru mannslíf?"
Bókin hefur vakið athygli er-
lendra aðila. Hún var kynnt á bóka-
stefnunni í Frankfurt í október
enda þótt hún væri ekki enn komin
út. Bókaforlög í Hollandi, Finnlandi
og Danmörku óskuðu eftir for-
kaupsrétti að bókinni, japönsk um-
boðsskrifstofa fór fram á að taka
upp samstarf við útgefandann um
að fá að kynna bókina fyrir útgef-
endum í Áustur-Asíu og þekktur
breskur umboðsmaður, sem tvö ár í
röð hefur annast sölu á eftirsótt-
ustu bókum bókastefnunnar í
Frankfurt, hefur ákveðið að taka
hana upp á sína arma í Evrópu og
Ameríku og loks hefur þýskt kvik-
myndafyrirtæki óskað eftir for-
kaupsrétti á rétti til að gera þriggja
þátta sjónvarpsseríu eftir bókinni.
Fáheyrt er að íslensk skáldsaga
veki slíka athygli áður en hún kem-
ur á markað.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Synir duftsins er 295 síður prent-
unnin í Odda. Hún kostar 3.480 kr.
Aðalhlutverk
í skoskri leik-
ritaupptöku
LEIKKONAN Bergljót Arnalds
leikur aðalhlutverkið í leikritinu
Dóttir sjávarkonungsins eftir
orkneyska skáldið George
Mackay Brown sem gefið verður
út á geisladisk og snældu hjá
skoska útgáfu-
fyrirtækinu
Saltire Soci-
ety. Upptökur
fara fram í Ed-
inborg í nóv-
ember en áætl-
aður útgáfu-
dagur er í
byrjun næsta
árs.
Höfundur
verksins, ljóðskáldið George
Mackay Brown, lést á síðasta ári
og er leikrit hans gefið út til
minningar um þetta höfuðskáld
Orkneyja. Félagið Saltire Soci-
ety stendur vörð um skoska
menningu og gefur m.a. út
skáldsögur á snældum en þetta
er í fyrsta sinn sem gefið er út
leikrit.
Verkið fjallar um þriggja ára
stúlku, dóttur Eiríks 2. konungs
yfir Noregi, sem varð drottning
yfir Skotlandi á 13. öld. Þegar
hún var sjö ára var ákveðið að
sameina Skotland og England
með því að gifta hana Eng-
landsprinsi. Á leiðinni frá Nor-
egi til Englands fékk hún
lungnabólgu og dó. Verkið ger-
ist á ferð drottningar til Eng-
lands. Um borð í skipinu upplifir
drottningin unga frelsið í fyrsta
sinn og lætur sig dreyma um að
losna undan skyldum sínum við
hirðina og lifa fábrotnu lífi.
Dóttir Sjávarkonungsins var
áður flutt á Edinborgarhátíðinni
1993 og fór Bergljót þá einnig
með hlutverk drottningarinnar.
Bergljót stundaði leiklistarnáin í
Edinborg. Leikstjóri verksins,
Marillyn Gray, sá Bergljóti leika
á skólasýningu og bauð henni
hlutverk drottningarinnar. „Ég
held að það hafi meðal annars
verið vegna norræns útlits míns
sem leikstjórinn ákvað að bjóða
BergUót
Arnalds
mér hlutverkið og íslenski
hreimurinn nýtist líka ágæt-
lega,“ segir Bergljót.
Sýningin hlaut mjög góða
dóma á sínum tíma og því var
ákveðið að ráðast í þetta til-
raunaverkefni. Bergljót segir að
til að byrja með fari upptökurn-
ar til dreifíngar í Skotlandi,
hvað svo sem síðar verði.
„Fávitinn“
sýndur í bíó-
sal MÍR
RÚSSNESKA kvikmyndin „Fávit-
inn“ verður sýnd í bíósal MIR,
Vatnsstíg 10, í dag sunnudaginn 16.
nóvember kl. 15.
Kvikmyndin er frá árinu 1958 og
byggð á fyrri hluta samnefndrar
skáldsögu Fjodors Dostojevskís,
sem komið hefur út á íslensku í þýð-
ingu Ingibjargar Haraldsdóttur.
Undirtitill myndarinnar er
„Natasha Fiíippovna", sem er ein af
aðalpersónunum í sögunni og í
myndinni leikin af Borisovu, en Jak-
ovlév leikur Myshkin fursta. Leik-
stjóri er Ivan Pyriev, sá hinn sami
og leikstýrði myndinni „Kúb-
an:Kósakkar“.
íslenskur texti. Aðgangur ókeyp-
is.
-♦-♦-♦■
Hobert-mynd
frumsýnd í Nor-
ræna húsinu
GUNNAR Carlsson yfirmaður
Leiklistar- og kvikmyndadeildar
sænska sjónvarpsins í Gautaborg
frumsýnir nýja sænska kvikmynd í
Norræna húsinu í dag sunnudaginn
16. nóvember kl. 19.00. Einnig mun
hann sitja fyrir svörum varðandi
sænska kvikmyndagerð og samstarf
við íslendinga.
Myndin heitir á sænsku Spring
för livet eða Hlauptu eins og þú ætt-
ir lífið að leysa! Handritshöfundur
og leikstjóri er Richard Hobert og
meðal leikenda eru Lena Endre og
Göran Stangertz.
Það er Islensk-sænska félagið
sem gengst fyrir vökusamtalinu við
Gunnar Carlsson á sænsku.
í TILEFN1150 ÁHA AFMÆLIS SIEMENS NÚ í ÁR S'lBmenS í 150 áí
bjóöum við í nóvemberýmis Siemens heimilistæki á
sérstöku afmælisverði meðan birgðir endast.
Þú lendir sannarlega í afmælisveislu ef þú kemurtil
okkar og kaupir þér tæki.
Gríptu gæsina meðan hún gefst!
SIEMENS
elcftffftv með S/emens
. 1U; Fjölvirkur bakstursofn með klukku. hb 28020EU
Afmælistilboð
[Þú sparar 9.627 kr.]
V.
49.SOO lcr. stgr.
tu2p Fjölvirkur+ undirbyggður bakstursofn með klukku
tog bakstursvagni. he48021
^ú^sparar12T598k^ 69.SOO lcr. Stgr.
Keramíkhelluborð með áföstum rofum. eí9602ieu
Afmælistilboö
[Þú sparar 8.697 kr.]
V
49.SOO lcr. stgr.
Icæluiwn o<jr frystum meö Siemens
4É þ Rúmgóður kæliskápur með aðskildu frystihólfi. ks28V02
Afmælistilboö
[Þú sparar 10.185 kr.]
49.SOO lcr. stgr.
5 1 Einstaklega sparneytin 247 lítra frystikista. GT2BK04
Afmælistilboö
[Þú sparar 8.560 kr.]
39.SOO lcr. stgr.
þvoum upp með Siemens
Velvirkog hljóðlátfjögurra kerfa uppþvottavél. se34200
Afmælistilboö
•e e 1iÍ5- 0|
[Þú sparar 5.114 kr.]
59.SOO lcr. stgr.
þtfoum og þurrUum með Siemens
Þægileg þvottavél með 800 sn./mín. þeytivindingu.
___________WM 20820SN
Afmælistilboö
[Þú sparar 5.814 kr.]
49.SOO lcr. stgr.
Frábær þurrkari með stóru lúguopi. wtbiooofg
Afmælistilboö
[Þú sparar 9.255 kr.]
49.SOO lcr. stgr.
ryUsugum með Siemens
>Létt og lipur 1300 W ryksuga á ótrúlegu verði. vsb2aoo
Afmælistilboö
[Þú sparar 3.020 kr.]
9.900 lcr. stgr.
Sérstök 1500 Wafmælisryksuga. VS72A06
Afmælistilboö
[Þú sparar 4.005 kr.]
V.
14.900 kr.stgiT^)
UMBOÐSMENN OKKAR A LANDSBYGGÐINNI:
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Snœfollsbær:
Blómsturvellir
Grundarfjörður:
Guðni HalTgrlmsson
Stykkishólmur:
Skipavík
Búðordalur:
Asubúö
Siglu fjörður:
Torgiö
Akuroyri:
Ljósgjafinn
Húsavik:
Öryggi
Vopnol,
Rarmagn
Neskaupstaður:
Rafalda
Royöorf jörður;
Rafvólaverkst. Árn
Bruiðdalsvik:
Stefón N. Stefánsson
Höfn í Hornafirði:
Króm og hvítt
Hvolsvöllur:
Rafmagnsverkst. KR
Hella:
Gilsá
Selfoss:
Árvirkinn
Grindavík:
Rafborg
Garður:
Raftœkjav. Sig Ingvarss,
Kof lavik:
Ljósboginn
Hafnarfjörður:
Rafbúö Skúla. Álfaskeiöi
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000
www.tv.is/sminor