Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 42

Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 42
42 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ 'H > í s » ( t Elsku hjartans mamma mín, systir, amma, langamma og tendamamma, ÓLÖF ARNBJÖRG JÓNSDÓTTIR frá Vestra Skagnesi, Mýrdal, Kaplaskjólsvegi 55, lést miðvikudaginn 12. nóvember. Sigríður Jóna Clausen, Aðalheiður Jónsdóttir, Eyjólfur Þórður Þórðarson, Ólöf Arnbjörg Þórðardóttir, Aðalheiður Elín Þórðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir, Jón Hlynur Gunnlaugsson, Gunnlaugur Jónsson, Jóna Ingunn Pálsdóttir, Pétur Ragnar Pétursson, Halldór Hafsteinsson, Einar Þráinsson, Karen Ósk Hrafnsdóttir og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir okkar og afi, GARÐAR H. SVAVARSSON kaupmaður, Vakursstöðum I, Vopnafirði, (Brekkubyggð 12, Garðabæ), verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðju- daginn 18. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Hulda Guðrún Guðjónsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Haukur Geir Garðarsson, Katrín Sæland Einarsdóttir, Sigríður Huld Garðarsdóttir, Karl Eggertson, Heimir Garðarsson, Katrín Karlsdóttir, Skúli Garðarsson, Sigþrúður G. Sigfúsdóttir og barnabörn. t Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, HAUKUR ÞORSTEINSSON rafvirkjameistari, sem andaðist fimmtudaginn 6. nóvember síðastliðinn, verður jarðsunginn þriðjudaginn 18. nóvember. Kveðjuathöfn verður frá Fossvogskirkju kl. 10.30. Jarðsett verður að Breiðabólsstað í Fljótshlíð sama dag kl. 14.00. Rútuferð frá Fossvogskirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Valgerður Hauksdóttir, Níels Rask Vendelbjerg, Þorsteinn Hauksson, Steinunn Sigurðardóttir, María G. Hauksdóttir, Steinar Guðsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU SVEINBJÖRNSDÓTTUR, Engihjalla 11, Kópavogi. Svava Hauksdóttir, Hilmar Adolfsson, Ragnheiður Hauksdóttir, Gunnar Guðmundsson, Sveinbjörn Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýnt hafa okkur vináttu, hlýhug og samúð vegna fráfalls og útfarar eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR ÓLAFSSONAR fyrrv. verkstjóra hjá Mjólkursamsölunni, Kópavogsbraut 59, Kópavogi. Sigríður Pálsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Lilja Ólafsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir, Guðmundur Ólafsson. HARALDUR HARALDSSON + Haraldur Har- aldsson var fæddur 11. október 1958. Hann lést af slysförum hinn 7. nóvember síðastlið- inn. Hann var sonur Guðbjargar Ragn- arsdóttur, f. 3.2. 1930, dóttur Ragn- ars Guðmundsson- ar, fyrrv. spari- sjóðsstjóra, og Reg- ínu Magnúsdóttur; og Haraldar Gísla- sonar, fyrrv. fram- kvæmdarstjóra Sambands sveitarfélaga á Suð- urnesjum, f. 28.9. 1928 d. 29.1. 1983, sonar Gísla Jónssonar, fyrrv. alþingismanns, og Hlín- ar Þorsteinsdóttur. Börn þeirra, auk Haraldar, eru: Ragnar, Margrét og Gísli. Guð- björg og Haraldur slitu sam- Minn Jesú, andláts orðið þitt í mínu hjarta geymi. Verði það einnig síðast mitt er sofna ég burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku litli bróðir minn er farinn heim til Guðs þar sem pabbi tekur á móti honum. Halli var litli bróðir minn. Hann var sá fjórði í röðinni af stórum systkinahóp. Hann hafði svo gott hjarta og vildi öllum vel. Orlögin höguðu því svo að hann hafði mest samband við mig, sem hann kallaði alltaf „Möggu systir“, en hann elskaði systkinin sín öll heitt og vildi halda hópnum saman, en allir voru komnir út og suður, til Ameríku, Danmerkur, út á land. Allir nema ég og Halli sem bjuggum lengst af í Hlíðunum. Því deildum við gleði og sorg með bömunum okkar og mökum. Núna ertu dáinn og kemur ekki inn úr dyrunum hress og ferskur, með bros á vör og athug- ar hvað sé í pottunum, hvort Gunn- ar sé duglegur í skólanum, Gísli sé þægur og Hulda passi sig á strákun- um. Hringir ekki með jöfnu millibili og spyrð: „Er ekki allt í lagi Magga mín?“ eða „Hefurðu nokkuð heyrt frá systkinunum, er ekki allt í lagi hjá mömmu?“ Þú varst alltaf svo góður við mömmu og hafðir svo náið samband við hana. Alltaf varstu boðinn og búinn að hjálpa og tilbú- innað veija þá sem minna máttu sín. Eg sakna þín óskaplega, elsku bróðir, og bið Guð að geyma og varðveita þig þangað til við hittumst á ný. Bömunum þínum litlu, Þómnni og Halla, ætla ég að líta eftir fyrir þig áfram eins og þú hefur oft beð- ið mig og saman munum við öll minnast þín í kærleika og þökk. Þín systir, Margrét Haraldsdóttir og fjölskylda. „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til vistir. Systkini Haraldar sam- mæðra eru: Gunn- ar Asgeir og Reg- ína Sól, börn Guð- bjargar og Gunn- ars Bjarnasonar, fyrrv. hrossarækt- arráðunautar. Systkini samfeðra eru: Soffía, Ingólf- ur og Björn Hlyn- ur, börn Haraldar og Bjargar Ing- ólfsdóttur. Haraldur eign- aðist tvö börn, Þór- unni og Harald, með Sigrúnu Þorsteinsdóttur sem var sam- býliskona hans til margra ára. Þau slitu samvistir. Útför Haraldar fer fram frá Háteigskirkju á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ (Jóh. 3 :16.) Elsku Halli minn. Það er sárt að sjá þig yfirgefa þennan heim. Þú varst yndisleg sál. Ég mun aldrei gleyma prakk- arasvipnum sem kom á þig þegar þú varst að stríða. Þú varst alltaf að segja sögur og þá var alltaf leikið með og maður gat hlegið endalaust. Þegar þú komst í heimsókn í Stigahlíðina var alltaf kátt á hjalla. Því fleiri því betra. Þú varst mikill fjölskyldumaður, vildir helst hafa alla ættina í kringum þig eins og hún lagði sig. Okkur kom vel saman, þú ráð- þagðir mér um lífið og tilveruna. Ég á margar góðar minningar um þig sem ég mun aldrei gleyma því að þær voru svo spes. Guð blessi þig elsku besti frændi minn. Þín verður sárt saknað. Þín frænka, Hulda. „En ég, Drottinn, er Guð þinn frá Egyptalandi; annan Guð en mig þekkir þú ekki og enginn frels- ari er til nema ég. Það var ég sem hélt þér til haga í eyðimörkinni, í landi þurrkanna." (Hósea 13, 4-5.) Það er erfitt að trúa því að hann Halli bróðir minn sé horfinn frá okkur. Halli átti alltaf stóran hlut í mínu hjarta eins og flestra sem kynntust honum. Hann var góður vinur og hafði alltaf lag á að róa órótt hjarta. Halli var góður gestgjafi og ómissandi í öllum fjölskylduboðum, þar sem hlutverk hans var ætíð að vera skemmtilegur. Það átti Halli ekki erfitt með því hann var fæddur grínisti og gerði óspart grín að sjálfum sér og öðrum. Við Halli áttum margar yndislegar stundir saman, þar sem við bæði göntuðumst og töluðum um alvar- + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, LILJU G. ODDGEIRSDÓTTUR, Háaleitisbraut 103, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks deildar 11- E á Landspítalanum fyrir ómetanlega tímum. Ólafur H. Ólafsson, Baldína H. Ólafsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Ólafur E. Ólafsson, Jóhanna Reynisdóttir, Oddgeir H. Ólafsson, Ásta Sigurðardóttir, barnabörn. legri hluti. Þau eru ófá samtölin sem við áttum saman í einrúmi og ræddum öll heimsins mál, því hjá Halla var ekki komið að tómum kofanum. Halli var greindur og víðsýnn maður sem hafði ákveðnar skoðanir á hlutum hvort sem um var að ræða málefni líðandi stund- ar eða lífið sjálft. Halli var alltaf svo jákvæður og' vildi öllum vel. Halli var gefandi og vildi láta gott af sér leiða og það gerði hann. Hann hafði mikla verndartilfinningu gagnvart börn- um sínum, systkinum og foreldrum og vildi gera sitt besta til að vera góður faðir, sonur og bróðir. Elsku Halli minn, ég sakna þín og á erfitt með að skilja_ að ég muni ekki sjá þig aftur. Ég veit að þú munt fylgjast með mér og halda áfram að gefa mér ráð, en það verður á annan hátt en áður. Ég bið Guð að vernda og blessa fallegu börnin þín tvö, Þórunni og Harald, og styrkja þau í lífinu. Þín systir, Regína Gunnarsdóttir. Elsku Halli, það tekur mig sárt að þurfa nú að senda þér hinstu kveðju. í samskiptum okkar og í huga mínum var einkum tvennt sem einkenndi þig. Annars vegar varstu með eindæmum stríðinn og slepptir aldrei góðu tækifæri til að striða iitiu systur. Sérstakiega er mér minnisstætt þegar þú fannst upp á því á unglingsárum mínum að kalla mig ýmist Fíu fúlu eða Fíu fúlegg og hafðir gaman af hversu illa ég tók því. Hins vegar einkenndust sam- skipti okkar af verndartilfinningu þinni. Við systurnar höfðum oft gaman af hversu heilagar við gát- um verið í þínum augum. Hápunkt- urinn var þó þegar þú varst einn með okkur þremur og gekkst vask- lega fram í að vernda okkur og veija í alla staði. Halli minn, lífið fór ekki alltaf um þig mjúkum höndum og þú veist vel að á stundum þraut okkur þrek til að styðja þig og styrkja. Nú leiðir hann pabbi gamli þig aftur og það á ljúfari leiðum, en seinna verðum við saman á ný, við aðrar og betri aðstæður. Þangað til mun ég ylja mér við minningarn- ar. Soffía. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, . og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Elsku Halli, ástin mín. Ég vil þakka þér fyrir þau kynni sem ég hafði af þér. En, Halli, þú kenndir mér svo mikið, þú varst svo mikill diplómat og sagðir alltaf það besta um alla. Þú kenndir mér að elska, og það er nokkuð sem ég gleymi aldrei. Og ég mun búa að því sem þú kenndir mér. Ég veit hversu vænt þér þótti um börnin þín, þau voru þér efst í huga, og þú beiðst eftir því að þú kæmir heim og að við tvö sam- an gætum reynst þeim vel. Ég kynntist þér, og þú varst maðurinn sem ég hafði þráð allt mitt líf, og ég hlakkaði til framtíðarinnar með þér. Við ætluðum að gifta okkur. Ástin mín, ég bið Guð að varð- veita þig og blessa. Ég elska þig. Sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.