Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997 43
SÍMON
JÓNSSON
+ Símon Jónsson
fæddist í
Reykjavík 5. nóvem-
ber 1931. Hann lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 10.
nóvember síðastlið-
inn. Hann var sonur
hjónanna Jóns Sím-
onarsonar bakara-
meistara og Hann-
esínu Á. Sigurðar-
dóttur. Símon var
yngstur þriggja
systkina. Eftirlif-
andi systkjni eru:
Sigurður Ó. Jóns-
son, kvæntur Önnu K. Linnet,
og Jóhanna G. Jónsdóttir, gift
Ólafi Maríussyni.
Símon var starfsmaður
Landsbanka íslands til margra
ára. Menntun sína hlaut hann í
Kennaraskóla íslands og lauk
hann þar námi sem fullgildur
kennari.
Símon var ógiftur og barn-
laus. Útförin fer fram frá Foss-
vogskirkju á morgun, mánudag,
og hefst athöfnin klukkan 10.30.
Símon, mágur minn hefur lokið
göngu sinni. Við söknum hans og
kveðjum hann með þakklæti. Þakk-
læti fyrir að vera með okkur allt
okkar lífshlaup, í gleði og sorg.
Símon hafði kviku listamannsins,
hafði mikið yndi af göfugri tónlist
og fallegri myndlist. Þó að hann
skapaði ekki list sjálfur, mátti sjá
á heimili hans hve mikill listunn-
andi hann var. Heimili
hans var sérstakt.
Símon átti ekki börn
sjálfur en hann fylgd-
ist vel með uppvexti
og þroska systkina-
barna sinna. Hann
gladdist ekki síður en
foreldrar þeirra, þegar
vel gekk á hátíðar- og
heiðursdögum þeirra.
Símon var heim-
spekilega hugsandi og
þegar undur og stór-
merki alheimsins voru
til umræðu var hann í
essinu sínu.
Símon trúði staðfastlega á líf
eftir þetta líf og var óhræddur við
umbreytinguna.
Megi ljós hins hæsta sem öllu
ræður, vísa honum veginn.
Ólafur Maríusson.
Látinn er á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur elskulegur mágur minn, Sím-
on Jónsson. Hann var sonur hjón-
anna Hannesínu Á. Sigurðardóttur
og Jóns Símonarsonar, bakara-
meistara. Símon var yngstur
þriggja systkina en þau eru Jó-
hanna Guðrún og Sigurður, sem er
elstur. Símon var nýorðinn 66 ára
er hann lést 10. nóvember, en af-
mælisdagurinn hans var 5. nóvem-
ber. Við Símon vorum miklir og
góðir vinir, nánast eins og systkin.
Hann var ljúfur og góður í við-
móti, ég veit að ég á eftir að sakna
hans mikið. Símon var sannkallaður
MAGNHILD ENGER
STEFÁNSSON
+ Magnhild Enger Stefánsson
fæddist í Noregi 7. nóvem-
ber 1910. Hún lést á Elliheimil-
inu Grund 26. október síðastlið-
inn. Bálför Magnhild fór fram
í kyrrþey 3. nóvember.
Þriðjudaginn 14.4. 1992 birtist
grein í Dagblaðinu á íþróttasíðu
með yfirskriftinni: „Ég barðist fyrir
mömmu.“
Þetta var á íslandsmóti fatlaðra
í borðtennis og Elsa Stefánsdóttir
„kom, sá og sigraði".
Hún vann íjögur gull á þessu
móti og hún vann þau fyrir móður
sína, sem lá þungt haldin á Elli-
heimilinu Grund.
Núna, fímm árum seinna, fékk
móðir Elsu loksins frið. Hún dó 26.
október sl.
Hver var móðir Elsu Stefánsdótt-
ur? Við vitum öll hvað Elsa hefur
verið stórkostlegur íþróttamaður
fatlaðra og er jafnvel enn í dag,
en hvað vitum við um móður henn-
ar?
Móðir Elsu var Magnhild Stef-
ánsson. Hún fæddist í Noregi 1910
og giftist 1935 heiðursmanninum
Stefáni Stefánssyni.
Stefán var bóksali hjá Eymunds-
son í mörg ár og var síðan sjálfstæð-
ur bóksali á Laugavegi 8.
Elsa og ég kynntumst fyrir 50
árum og hefur vinátta okkar haldið
fram á daginn í dag, þó að ég búi
erlendis.
Magnhild, móðir Elsu og eigin-
kona Stefáns, var hlédræg kona.
Hún stóð aldrei í fremstu röð á
opinberu sviði, en hún stóð alltaf
með fjölskyldu sinni. Hún var ótrú-
lega sterk og hugrökk kona, og húr
tók á móti örlögum lífsins eins og
hetja. Mörg önnur móðir hefði misst
kjarkinn eftir árið 1955, þegar
mænuveiki fór yfir ísland og náði
tökum á eldri dóttur hennar, á Elsu
vinkonu. Magnhild gafst ekki upp.
Hún var alltaf jákvæð og hvatti
dóttur sína að lifa áfram, já, að lifa
lífinu eins og heilbrigð kona.
Og Elsa fylgdi þessu ráði móður
sinnar. Hún er vel gift í dag, góðum
manni, Garðari Steingrímssyni, og
þau hjónin eiga einn son, Stefán
Hinrik.
Hjónin Magnhild og Stefán héldu
upp á gullbrúðkaup sitt þremur
mánuðum áður en Stefán dó á jóla-
dag 1985.
Hjónin Magnhild og Stefán voru
samhent í daglegu lífi og báru mikla
umhyggju - ekki aðeins fyrir fjöl-
skyldunni, heldur líka fyrir náttúr-
unni.
Þau áttu lítinn sumarbústað í
Grafarvogi og eyddu þar margri
góðri stund. Þau elskuðu bæði garð-
yrkju og enn í dag standa falleg
og sterk birkitré í Grafarvogi, sem
þau hjónin settu í jörð fyrir tugum
ára.
Sumarbústaðurinn er horfinn, en
ósk mín er, að þessi birkitré megi
standa í mörg ár til minningar um
Magnhild og Stefán.
Hjónin Magnhild og Stefán Stef-
ánsson eru loksins sameinuð. Guð
blessi þau.
Mér þótti vænt um þessi hjón.
Lieselotte Singer-Guðjónsson.
listunnandi. Safnaði allskonar mál-
verkum eftir þekkta listamenn og
öðrum listmunum ásamt góðum og
merkum bókum. Heimili hans í
Sólheimum 23 lýsir því vel hve
mikill fagurkeri hann var, enda var
það eins og maður væri að koma á
listasafn. Snyrtimennskan var líka
í fyrirrúmi hjá honum enda átti
hann ekki langt að sækja hana.
Hann var einnig mikill tónlistarunn-
andi og átti mikið og gott safn af
hljómplötum með þekktum óperu-
söngvurum. Hann hélt mikið upp á
Maríu Callas, Tebaldi og Pavarotti
og fleiri þekkta listamenn. Þá var
hann einnig mikill bókamaður og
víðlesinn og ekki kom maður að
tómum kofunum hjá honum er við
ræddum um uppruna hans og ætt-
ir. Þá var hann sko í essinu sínu
enda var hann brunnur af fróðleik
um það efni.
Ég vil þakka Símoni, mági mín-
um, fyrir vináttu og hlýju sem hann
hefur sýnt mér og mínum frá því
að við kynntumst fyrst. Með sárum
söknuði kveð ég þig og þakka þér
samfylgdina.
Guð blessi þig, Símon minn.
Þín mágkona,
Anna
Það er margs að minnast þegar
hugsað er til Símonar frænda. Frá
því ég man eftir mér hefur Símon
alltaf verið með í öllu hjá fjölskyldu
minni og eru margar gleðistundirn-
ar á Bræðró hjá ömmu og afa í
minningunni frá því ég var lítill.
Símon ólst upp á Bræðraborgarstíg
16 og bjó í foreldrahúsum þar til
hann eignaðist sitt eigið heimili,
fyrst á Framnesveginum og síðar í
Sólheimum 23.
Símon starfaði hjá Landsbanka
íslands í tugi ára og síðustu árin
var hann fulltrúi í víxladeild aðal-
bankans í Austurstræti. Símon
frændi, eins og við frændsystkinin
kölluðum hann alltaf, var mikill list-
unnandi og fagurkeri eins og hans
fallega heimili bar vott um. Hann
hafði gaman af því að ferðast og
gerði mikið af því í gegnum tíðina,
en síðastliðin þrjú ár hefur heilsan
hamlað því.
Hann lést fyrir aldur fram úr
krabbameini eins og allt of margir
ættingjar og vinir okkar hafa gert,
en hann bar sig eins og hetja í
gegnum sín erfiðu veikindi og þeg-
ar við hittum hann síðast þá dáðist
hann að þessu frábæra fólki sem
vinnur við lækningar, hjúkrun og
þjálfunarstörf. Ég og hluti fjöl-
skyldu minnar er því miður erlendis
þegar hann verður kvaddur hinstu
kveðju á morgun, en héðan þar sem
við erum, kveðjum við Símon
frænda í hjörtum okkar. Blessuð
sé minning hans.
Símon Ólafsson og fjölskylda.
isdrykkjur
'VsWA9ohð/ið
GflPi-mn
Simi 555-4477
ALFHEIÐUR
ÁSTMARSDÓTTIR
+ Álfheiður Ástmarsdóttir
fæddist í Reykjavík 7. mars
1985. Hún lést á heimili sínu,
Hraunteigi 19 í Reykjavík, 5.
nóvember síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Hall-
grímskirkju 12. nóvember.
Álfheiður frænka, það var synd
að þú skyldir veikjast og fara svona
ung, aðeins 12 ára gömul. Þegar
við fréttum þetta fannst okkur
skrýtið að þú værir farin til himna.
Okkur brá og vildum ekki trúa
þessu. Foreldrar þínir og bróðir
voru heppin að eiga þig, svona góða
og hjálpsama. Stundum stríddu
Guðjón og Björn bróðir þinn þér
vegna þess að þú tókst að þér öll
börn hvenær sem þú gast verið með
þeim. Öllum sem þekktu þig þótti
vænt um þig. Svo varst þú svo
mikill prakkari. Ég man er þið átt-
uð heima í Mosfellsbæ og þú ætlað-
ir að saga fótinn undan stól. En
pabbi þinn sá þig og stoppaði leik-
inn, enda sat hann í stólnum. Eftir
þessa erfiðu daga fyrir foreldra þína
og bróður var þetta á endanum
besta lækningin. Megi Guð styrkja
fjölskyldu þína í gegnum lifið.
Þú sagðir okkur einu sinni, að
þú ætlaðir að verða ljósmóðir eða
hjúkrunarkona er þú yrðir stór.
Þess vegna fínnst okkur við hæfí
að enda þessa minningargrein um
þig með þessu fallega versi úr sálmi
eftir langömmu okkar sem hún
hefur ort til þín.
Hún vildi hjálpa og huggun ljá
og hjúkra þeim er veika sá.
Við engla söng og lífsins ljós,
nú lifir þessi fagra rós.
(Rósa B. Blöndals.)
Þínir frændur,
Guðjón, Sævar og
Arnar Ingólfssynir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíð-
um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað
við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
KRISTÍN GUÐLEIFSDÓTTIR ÓLAFSSON,
lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 12. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá kirkju Sankt Lukas Stiftelsen fimmtudaginn
20. nóvember kl. 13.30.
Vinum á íslandi, er vildu minnast hennar, er bent á Samband íslenskra
kristniboðsfélaga.
Felix Ólafsson,
Kristinn Fridrik, Pia, Felix, Magnús, Ólafur, Karen,
Hanna Kristín, Eva, Anna, Michael, Sarah
og systkini hinnar látnu.
t
Ástkær faðir okkar og sonur,
HARALDUR HARALDSSON,
lést föstudaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn
17. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Guðbjörg Ragnarsdóttir,
Þórunn Haraldsdóttir,
Haraldur Haraldsson.
t
Bróðir okkar,
SÍMON JÓNSSON,
til heimilis f Sólheimum 23,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morg-
un, mánudaginn 17. nóvember, kl. 10.30.
Sigurður Ó. Jónsson,
Jóhanna G. Jónsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
AGNESAR KRAGH,
Seljahlíð.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Selja-
hlíðar, Hjallaseli 55.
Hanna Fríða Kragh, Sveinn Jónsson,
Páll Júlfusson, Mai Wongphoothon,
Hans Kragh Júlfusson, Guðrún Alfonsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.