Morgunblaðið - 16.11.1997, Page 56
56 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
%
FÓLK í FRÉTTUM
Varúlfur
í París
JULIE Delpy hefur leikið undir
stjórn margra þekktra evrópskra
leikstjóra, t.d. Kryztofs
Kieslowskis og Bertrands Tavieni-
ers, en þegar kemur að bandaríska
kvikmyndamarkaðinum gæti hún
verið algjör ný-
liði. Hún stóð
sig ágætlega í
mynd Richards
Linklaters
„Before Sun-
rise“ á móti
Ethan Hawke
og reyndi sitt
besta í hinni
mislukkuðu
„Killing Zoe“ en
tilboðin hafa
ekki streymt
inn frá
Hollywood.
Delpy hefur
samt ekki gefið
Bandaríkja-
markað upp á bátinn. Næst fá bíó-
gestir að sjá hana í hryllingsmynd-
inni ,An American Werewolf in
Paris“, sem Anthony Waller leik-
7. stýrir (kannski sumir muni eftir
íyrirmyndinni, „An American Wer-
ewolf in London"?). Delpy leikur
þar Parísarstúlku sem breytist í
varúlf þegar tunglið er fullt.
FRÍÐA breytist i
Dýrið. Julie
Delpy skiptir um
ham í „An Amer-
ican Werewolf in
Paris“.
Tilboð
óskast
Mercedes Benz 300 SE
árg. 1990. Bíll með öllum
hugsanlegum búnaði.
Verð kr. 2.900.000.
Jaguar XZ6 4,2 árg. 1990.
Bíllinn er sem nýr.
Verð kr. 2.950.000.
Upplýsingar í síma 896 1216.
ERLENDAR
Sigríður
Beinteisdóttir
fjallar um „Lets Talk About
Love“ með Celine Dion sem
kemur út á þriðjudag.
★★★
Mjög svo eigu-
legur gripur
EIN ástsælasta söngkona dagsins
í dag Celine Dion hefur sent frá
sér nýjan geisladisk, „Lets Talk
About Love“. Við fyrstu hlustun
greip hún mig ekki alveg eins og
sú fyrri, „Falling Into You“, gerði,
enda erfitt að toppa þvílíka met-
söluplötu sem hún var. Þessi plata
er öðruvísi að því leyti að hún er
ekki alveg eins róleg og tilfinn-
ingarík eins og sú fyrri, en engu að
síður vinnur hún vel á og mikið af
fallegum og góðum lögum.
„Let’s Talk About Love“ hefur
að geyma 16 lög, þrettán ný og 3
endurgerð lög. Á þessari plötu er
ekki hægt að setja út á söng eða
útsetningar frekar en á hennar
fyrri plötum, enda fær hún fær-
ustu menn með sér, til að útsetja
bæði söng og tónlist.
Celine reynir við ýms-
ar nýjungar á þessari
plötu eins og t.d. í lag-
inu „Treat Her Like a
Lady“ þar sem hún
blandar saman söng
og rappi og tekst
mjög vel upp. I því
lagi syngur Diane
King með henni en
Diane er höfundur
þess. í laginu
„Amar haciendo el
amor“ syngur Dion
á spænsku og ferst
það alveg ágætlega
úr hendi þó svo und-
irrituð kunni nú betur
við að heyra
syngja á ensku eða á
móðurmáli sínu frönsk-
unni. Annars er þetta
gott lag og eflaust
hugsað fyrir suður-
amerískan markað
þar sem allt þarf að
vera á spænsku.
Einnig er að finna
á plötunni dúett
með Luciano Pav-
arotti þar sem þau
syngja saman,
gamla lagið „I
Hate You Then I
Love You“ og
gera alveg óað-
finnanlega.
Gamla Leo
Sayer lagið JHp
„When I Need
You“ fær nýja
útsetningu og fer Celine Dion nú
betur með það en hann gerði á sín-
um tíma að mínu mati.
Laginu „Love Is In the Way“
sem var áður í flutningi Billy Port-
er eru gerð mjög góð skil og fara
söngur og útsetning mjög vel sam-
an. Carole King og Bee Gees eiga
hvor sitt lagið á plötunni, mjög fín
lög þó svo að ég hafi heyrt betri
lög eftir þessa höfunda. Topplag
plötunnar finnst mér hins vegar
vera dúettinn með Barbru
Streisand sem er vel samið og
skemmtilega útsett lag. Ég verð
CELINE Dion og Barbra
Streisand syngja dúett.
að nefna það að
þetta er það besta
sem undirrituð
hefur heyrt
Barbru
Streisand
syngja.
Sísta
plötunnar
finnst mér vera
„Why Oh Why“
en annars er
platan fín og mjög
svo eigulegur grip-
ur, en fyrir minn
smekk hefði ég viljað
fá meira af svona fal-
legum lögum eins og
voru á fyrri plötunni
„Falling Into You“
þar sem hæfileikar
Celine nýtast til
fullnustu og rödd-
in fær að njóta
\ sín.
Þegar ég tók
við diskinum
fannst mér
eitt mjög
sniðugt og
Cehne þad Var að
Dion mm diskurinn
er svartur
eða algjör
nd
stæða
þann fyrri sem var
hvítur, „góð hugmynd". Ég gef
honum þrjár stjörnur af fjórum
mögulegum.
Eráfenai
»ar»damál i ÞiWjj f iöisKyWH?
AL-ANON samtökin á Islandi 25 ára
AL-ANON samtökin voru stofnuð á íslandi þann 18. nóv. 1972
og verða því 25 ára 18. nóv. nk.
AL-ANON er félagsskapur ættingja og vina alkóhólista.
Við trúum að alkóhólismi sé fjölskyldusjúkdómur og að breytt viðhorf geti stuðlað að bata.
AL-ANON samtökin hafa aðeins einn tilgang, að hjálþa aðstandendum alkólhólista.
Opinn afmælis- og kynningarfundur verður þriðjudaginn 18. nóvember
í Bústaðakirkju og hefst kl. 20.00.
Kaffiveitinar verða að fundi loknum.
Allir velkomnir.
Tíu ára afmæli Mosfellsbæjar
KÓR leikskólans Hlíðar söng
fyrir gesti á hátíðinni.
List ungu
kynslóð-
arinnar
LISTAHÁTÍÐ unga fólksins var
haldin um sfðustu helgi í Gagn-
fræðaskóla Mosfellsbæjar. Hátíð-
in var haldin í tilefni af 10 ára af-
mæli Mosfellsbæjar og í boði
ungu kynslóðarinnar var mynd-
list, tónlist, leiklist, dans og bók-
menntir.
„Það voru fengin börn í leik-
skólanum, grunnskólanum og
gagnfræðaskólanum í Mosfellsbæ
til að sjá um allt á hátíðinni. Þau
sýndu listaverk sín og kynntu
sjálf atriðin. Nemendur 10. bekkj-
ar máluðu til dæmis veggmynd og
sáu um kaffisölu á sunnudeginum.
Auk myndlistarsýningar var boð-
ið upp á tónlistaratriði þar sem
skólahljómsveitin spilaði, boðið
var upp á fiðluleik og yngstu
börnin sungu,“ sagði Hallfríður
Jóhannsdóttir leikskólakennari.
Listahátíðin var vel sótt og
voru foreldrar barnanna þar
fremstir í flokki. „Börnin gerðu
listaverkin sérstaklega fyrir há-
tíðina og fannst mjög spennandi
Morgunblaðið/Hallfríður Jóhannsdóttir
ANNA Jóna leikskólakennari
á Klettahlíð skoðar myndirn-
ar með Jóhanni Frey.
að sjá verkin sín á sýningunni og
voru mjög stolt. Þau yngstu voru
sérstaklega spennt yfir afrakstr-
inum og voru dugleg að sýna
hver ætti hvaða verk. Yngstu
krakkarnir voru með kórsöng
sem vakti mikla athygli," sagði
Hallfríður.
Tíu ára afmæli Mosfellsbæjar
hefur verið fagnað með ýmsum
hætti á árinu og var listahátíð
unga fólksins liður í þeim hátíð-
arhöldum. Á myndunum má sjá
að unga kynslóðin er ekki síður
listræn en hin eldri.
NEMENDUR 10. bekkjar máluðu veggmynd í Gagnfræðaskólanum.
Út með Spice Girls
►SPICE Girls stúlkurnar fengu óbliðar móttökur þegar þær komu
fram á Ondas verðlaunahátíðinni í Barcelona nú í vikunni. Áhorfend-
ur hrópuðu „út, út“ samhljóma með ljósmyndurum á meðan þær
komu fram. Ástæðan ku vera sú að Spice Girls stúlkurnar neituðu að
koma fram ef ljósmyndarar fengju að vera upp við sviðið. Og því fór
sem fór.