Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997 57
FÓLK í FRÉTTUM
MYNPBÖNP
Tvær
Athöfnin
(La Cérémonie)
Drama
★★
Framleiðandi: Yvon Crenn. Leik-
sljóri: Claude Chabrol. Handritshöf-
undar: Claude Chabrol og Caroline
Eliacheff eftir sögu Ruth Rendell.
Kvikmyndataka: Bernard Zitterman.
Tónlist: Matthieu Chabrol. Aðalhlut-
verk: Sandrine Bonnaire, Isabelle
Huppert, Jacqueline Bisset og Jean
Pierre Cassel. 101 mín. Frakkland.
MK2 Prod./Háskólabíó. Útgáfud: 4.
nóv. Myndin er bönnuð börnum innan
16 ára.
I f
SOPHIE er ráðin sem þerna til
auðugrar fjölskyldu. Hún kynnist
bréfberanum Jeanne og reynast
þær eiga margt sameiginlegt svo
sem dulda fortíð.
Það hefur löngum sýnt að Claude
Chabrol hefur
sérstakan áhuga
á morðingjum og
er það einnig
hér. Reyndar fær
áhorfandinn ekki
að vita hvort
þessar stúlkur
hafi banað ein-
hverjum áður en
þær kynntust,
þótt ýjað sé að
því. Reyndar er allt á huldu með
þær og allir endar lausir hvað
þeirra persónur varðar; hvað þær
vilja og hvers vegna þær verða vin-
konur. Þótt sagan sé eftir Ruth
Rendell er fléttan ekki það áhuga-
verð að hér hefði þurft að grafa
mun dýpra í persónulýsingunni.
Sophie og Jeanne eru hins vegar
skn'tnar, dónalegar og þar með fjar-
rænar. Fjölskyldan sem Sophie
vinnur fyrir er einnig frekar tepru-
leg og óaðlaðandi. Ahorfandinn er
því skilinn eftir úti í kuldanum, og
kemur lítið við hvað er að koma fyr-
ir þetta fólk.
Leikararnir eru fínir og Sandrine
Bonnaire og Isabelle Huppert eru
með betri leikkonum Frakka í dag.
Gamlar kempur eins og Jean Pierre
Cassel og Jacqueline Bisset setja
heimilislegan svip á myndina, en
þrátt íyrir það fá þau því ekld
breytt að myndin er bæði langdreg-
in og ómarkviss.
Hildur Loftsdóttir.
Ótímabær
andlátsfrétt
MEXÍKÓSKA skáldið Octavio Paz
kom fram í sjónvarpi á dögunum til
að hrekja ótímabærar sögusagnir
I um dauða sinn og gerði það með
glæsibrag. „List-
in að deyja er list-
in að vera í felu-
leik. Þetta er ein-
hver sá viðkvæm-
asti og erfiðasti
leikur sem hægt
er að leika og því
verða menn að
kunna að leika
hann vel,“ sagði
hið aldna skáld
rámri röddu. Orðrómurinn komst á
| kreik vegna ummæla evrópskrar
fréttastofu sem dró hann til baka
samdægurs. „Það hryggir mig að
þeim sem eru ákveðnir í að drepa
mig skuli liggja svona mikið á,“
sagði Nóbelsskáldið léttur í lund.
Paz hefur verið veikur um ein-
hvem tíma en ekki hefur verið
greint frá því hvað hrjáir hann.
Þekktasta verk hans utan Mexíkó
er bókarlöng ritgerð um sálartetur
mexíkósku þjóðarinnar sem heitir
I „The Labyrinth of Solitude" eða
Völundarhús einverunnar.
MAUREEN Rorech og EmUy Kass, starfsmenn listasafnsins í Tampa, fýrir framan kjólana.
Sýning
á kjólum
Díönu
►SÝNING á kjólum Díönu heit-
innar prinessu var opnuð í lista-
safninu í Tampa í Flórída nú í
vikunni. Alls voru fjórtán kjólar
til sýnis og munu þeir verða
sýndir víðs vegar um heiminn á
næstu mánuðum. Kjólarnir voru
keyptir á uppboði hjá Christie’s
en Díana gaf þá sjálf og rann
ágóðinn til góðgerðarmála. Á
sýningunni má einnig fínna tíu
aðra kjóla sem aðrir eigendur
hafa lánað.
M ern það hlutabréfalíaupm
84.000 kr. í endurgf eiðslu
á næsta ári
Um áramótin rennur út sá tími sem fóik hefur til
að tryggja sér skattaendurgreiðslu vegna hluta-
bréfakaupa. Hjón sem fjárfesta fyrir 260.000
kr. og fullnýta þar með hámark vegna skatta-
endurgreiðslu fá um 64.000 kr. til baka á
næsta ári.
Við hjálpum þér við að nýta skattaafsláttinn. Þú
getur t.d. keypt með lágri útborgunafjárhæð og
dreift kaupverðinu á boðgreiðslur - í allt að 12
mánuði.
Fjárvangur hefur tíma fyrir þig.
Almenni hlutabréfasjóðurinn sem Fjárvangur
rekur er valkostur sem þúsundir íslendinga hafa
nýtt sértil að tryggja sér skattaafslátt með lágmarks-
áhættu vegna þeirrar áhættudreifingar sem felst
í fjárfestingu í mismunandi atvinnugreinum. Fyrir
þá sem vilja dreifa fjárfestingu sinni í íslenskum
sjávarútvegsfyrirtækjum býðst Hlutabréfa-
sjóðurinn íshaf, sem er í vörslu Fjárvangs.
Tryggðu þér
skattaafsláttíiin nóna
Hafðu samband við sérfræðinga Fjárvangs og
leitaðu ráða um hagstæðustu ávöxtunina.
Síminn er 540 5060. Þú getur einnig sent okkur
tölvupóst: mottaka@fjarvangur.is
FJÁRVANGUR
L 0 G GIL T VEHOBRÉFAFYRIRTÆKI
Fjárvangur hf.. Laugarvegi 170-172, 105 Reykjavík, sími 540 5060. fax 540 5061. www.fjarvangur.is