Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 2
1
2 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Forsætisráðherra furðar sig* á
viðbrögðum ríkisskattstjóra
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
kvaðst í gær furða sig á þeirri
ákvörðun Garðars Vilhjálmssonar
ríkisskattstjóra að biðja ríkisendur-
skoðun að rannsaka hvað sé hæft í
ummælum um misbeitingu valds
skattstjóra á íslandi eða embættis
ríkisskattstjóra.
„Eg veit ekki hvemig ríkisendur-
skoðun á að finna út úr því,“ sagði
Davíð í gærkvöldi. „Það er dálítið
sérkennileg leið, svo ekki sé meira
sagt. Enn meira kemur mér á óvart
ef ríkisskattstjóri hefur ekki sjálfur
heyrt um nein slík tilvik á sínum
langa ferli. Það finnst mér satt að
segja ótrúlegt og ég átta mig ekki á
þessum viðbrögðum.“
í erindinu, sem ríkisskattstjóri
sendi Sigurði Þórðarsyni ríkisend-
urskoðanda á miðvikudag, sagði að
Segir þau undirstrika þörfína
á aðhaldi við skattyfirvöld
undanfama daga hefðu birst í fjöl-
miðlum ummæli um kvartanir þess
efnis að einstakir aðilar í skattkerf-
inu sýndu skattborgumm ósann-
gimi og ætla mætti að starfsmenn
skattkerfisins misbeittu valdi sínu.
Garðar Vilhjálmsson sagði í Morg-
unblaðinu í gær að í þessari um-
ræðu hefði ekkert dæmi verið nefnt
um að skattstofan hefði misbeitt
valdi sínu.
Segir dæmin um aðferðir skatt-
heimtunnar ekki skorta
Davíð Oddsson sagði að ekki væri
skortur á dæmum um aðferðir
skattheimtunnar.
„Fjölmörg dæmi hafa borist,
bæði til mín og annarra, en við get-
um ekki farið að greina frá því opin-
berlega, sem fólk segir við okkur,“
sagði forsætisráðherra. „En sé
þetta viðhorf ríkisskattstjóra, sem á
auðvitað ekki aðeins að gæta hags-
muna skattstofunnar heldur skatt-
greiðenda, er ég ennþá sannfærðari
en ella um nauðsyn þess að koma á
fót embætti, sem gætir hagsmuna
skattgreiðenda."
Davíð sagði í ræðu á flokksráðs-
og formannafundi Sjálfstæðis-
flokksins fyrir viku að ástæða væri
til að athuga hvort stofna bæri emb-
ætti umboðsmanns almennings
gagnvart skattyfirvöldum.
Hann sagði í gær að hann hefði
fengið mun sterkari viðbrögð við
þessum ummælum en hann hefði
átt von á.
„Eg hef fengið mjög sterk við-
brögð,“ sagði hann. „Sterkari en ég
átti von á og er undrandi á því. Eg
hef sjálfur heyrt fjölmörg dæmi
gegnum tíðina þannig að ég þarf
ekki að efast um nauðsyn þess að
aðhalds sé gætt vegna þess að
þama er um að ræða fólk með mikið
vald. Við mig hafa talað einstakling-
ar og fulltrúar fyrirtækja og dæm-
in, sem þau lýsa, eru sum ótrúleg.
Öll mál hafa tvær hliðar, en það er
heilmikil óánægja með framgang
mála.“
Alvarleg't
umferðar-
slys á ein-
breiðri brú
ÞRÍR slösuðust illa þegar tveir
fólksbílar lentu í hörðum árekstri á
einbreiðri brú yfir Laxá í Miklaholts-
hreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi
um hádegi í gær. Mikil hálka var á
veginum. Hinir slösuðu voru fluttir
með þyrlum til aðhlynningar á
Sjúki-ahús Reykjavíkur.
Tilkynnt var um slysið til lögregl-
unnar í Stykkishólmi klukkan 13.05
en ásamt henni fóru á staðinn tveir
sjúkrabílar. Sagði lögreglan að flug-
hált hefði verið en bjart og gott veð-
ur er slysið varð.
Hjón voru í öðrum bílnum og ung-
ur piltur í hinum og slösuðust þau öll
illa. Sjúkrabílamir fluttu fólkið frá
slysstað fyrsta spölinn en jafnframt
var óskað eftir þyrlum. TF-SIF,
þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti
einn hinna slösuðu að Hítará og
þyrla vamarliðsins var fengin til að
taka hina tvo í Borgarnesi og lenti
hún á knattspymuvellinum þar.
Ekki var unnt að nota TF-LÍF
vegna bilunar.
Misbreiðar brýr
Á 10 km vegarkafla á þjóðveginum
austan við Vegamót eru þrjár nýleg-
ar brýr, allar misbreiðar og segir
lögreglan í Stykkishólmi það kunna
að valda nokkrum ruglingi meðal
ökumanna. Vestasta brúin er yfir
Grímsá, rétt austan við Vegamót og
er hún þríbreið. Tvær akreinar em á
brúnni yfir Fáskrúð en yfir Laxá er
einbreið brú eins og víða á þjóðveg-
um landsins. Lögreglan segir hana
ágætlega merkta og aðkomuna góða
en oft virðist sem ökumenn meti ekki
fjarlægðina eða aðstæður rétt.
Banaslys varð á þessari brú fyrir um
tveimur árum.
----------------
Bein útsending
til Bandaríkjanna
SVÆÐISÚTVARPSSTÖÐIN
WGCH Greenwich Radio í Connect-
icut í Bandaríkjunum sendir út þátt
í beinni útsendingu frá Reykjavík í
dag kl. 14 að íslenskum tíma og
verður þátturinn samtímis sendur út
á Netinu og á Aðalstöðinni.
Þátturinn verður klukkustundar
langur og hyggjast umsjónarmenn-
irnir, hjónin Sheila og Les Russo,
lýsa því sem fyrir augu ber í miðbæ
Reykjavíkur, svo sem veðrinu og
jólastemmningunni á Ingólfstorgi á
löngum laugardegi og taka viðtöl við
íslenska jólasveina.
Að sögn Sheilu er hlustendahópur
þáttarins á aldrinum 25-55 ára og
era konur þar í meirihluta.
Morgunblaðið/Júlíus
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF SIF, flutti einn þeirra þriggja sem slösuðust á Snæfellsnesi á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Vinnslustöðin
Hráefni
tryggt í
sjö vikur
VINNSLUSTÖÐIN í Vest-
mannaeyjum hefur tryggt sér
rússafisk til vinnslu fram í febr-
úar næstkomandi og hefur fyr-
irtækið því dregið til baka til-
kynningu um rekstrarstöðvun
frá og með næstu áramótum, en
þá hefðu um 200 starfsmenn
þess í Vestmannaeyjum og Þor-
lákshöfn misst kauptryggingu.
Að sögn Sighvats Bjamasonar,
framkvæmdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar, verður því full
vinna hjá fyrirtækinu á næst-
unni nema lögbundna frídaga
um jól og áramót.
„Þetta er nægilegt hráefni og
með viðunandi arðsemi. Það var
búið að vera að vinna í þessu en
afurðaverð þótti ekki nægilega
gott til þess að þetta gæti verið
áhugavert," sagði Sighvatur.
Hann sagði að á fimmtudag
hefði komið upp nýr flötur á
málinu og teldi fyrirtækið sig nú
geta unnið hráefnið þannig að
eitthvað væri upp úr því að hafa.
Öll skip stöðvast í
vélstjóraverkfalli
Hann sagði að kæmi til verk-
falls vélstjóra, þar sem miðað er
við verkfall á skipum með vélar-
stærð yfir 1500 kílówöttum,
myndu öll skip Vinnslustöðvar-
innar stöðvast.
,Að vísu eigum við þrjá báta
með minni vélum, en yfirleitt er
nú tíðin þannig í janúar að þeir
gera nú ekki mjög mikið. En
með þessu náum við að tryggja
húsinu hráefni og getum þá
frekar nýtt okkur þau tækifæri
sem gefast á markaðnum fyrir
ferskt hráefni af bátunum og
aukið þar með framlegð útgerð-
arinnar,“ sagði Sighvatur.
Fundað um
loðnu í Kaup-
mannahöfn
FTRSTI samningafundur ís-
lands, Noregs og Grænlands um
endurskoðun samnings land-
anna um loðnuveiðar mun fara
fram í Kaupmannahöfn 16. des-
ember næstkomandi.
Jóhann Sigurjónsson, sendi-
heira og aðalsamningamaður
Islands í fiskveiðimálum, segist
ekki gera ráð fyrir samkomulagi
á Kaupmannahafnarfundinum,
líklegt sé að menn byrji á að
fara yfir stöðuna og að hvert
land lýsi sjónarmiðum sínum.
Héraðsdómur Reykjaness dæmir um manndráp og rán í Heiðmörk
Bræðurnir voru dæmdir
*
í
sextán og átta ára fangelsi
TVÍBURARNIR Sigurður Júlíus og Ólafur
Hannes Hálfdánarsynir voru í gær dæmdir í 16
og 8 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Lárasi
Agústi Lárassyni að bana í Heiðmörk aðfaranótt
fimmtudagsins 2. október. Dómurinn dæmdi Sig-
urð til fangelsisvistar þrátt fyrir umsögn geð-
læknis, sem taldi hann haldinn geðklofa og að
sakhæfi hans væri því skert. Bræðumir eru 25
ára.
Héraðsdómur Reykjaness taldi sannað að Sig-
urður hefði lagt á ráðin um að ræna Lárus heit-
inn og Ólafur fallist á ráðabruggið. Því næst
hefðu þeir ekið með Lárus upp í Heiðmörk, þar
sem hann hefði yfirgefið bifreiðina og falið sig
um stund. Bræðurnir hefðu leitað hann uppi, ráð-
ist í sameiningu á hann, yfirbugað hann og dregið
að bílnum. Sigurður hefði játað að hafa við þessar
aðfarir teldð upp 13 kg steinhnullung og keyrt
hann í tvígang í höfuð Lárusar. „Dómurinn telur
ljóst, með tilliti til umfangs og þyngdar steinsins,
ákomustaðar högganna, áverka á líkama Lárusar
og aðferðar Sigurðar við atlöguna að öðra leyti,
að honum hafi eigi getað dulist að árásin myndi
leiða til dauða Lárusar," segir í dóminum.
Ótrúverðugur framburður Ólafs Hannesar
Dómurinn taldi þann framburð Ólafs ótrúverð-
ugan, að hann hefði óvart ekið yfir Lárus heitinn.
„Við yfirheyrslur hjá lögreglu og fyrir dómi hef-
ur framburður Ólafs verið reikull og óstöðugur
og hefur hann sýnilega í auknum mæli leitast við
að leyna þátttöku sinni í þeim hörmulegu atburð-
um sem áttu sér stað aðfaranótt 2. október sl.,“
segir héraðsdómur, en telur að sýnilegur vafi sé
fyrir hendi um hvort huglæg afstaða Ólafs hafí
verið með þeim hætti, sem áskilið sé í 211. grein
hegningarlaga, um manndráp, og beri að virða
þann vafa honum í hag.
Við ákvörðun refsingar vísar dómurinn til þess
álits geðlæknis, að Sigurður muni örugglega
skynja þýðingu refsingar, en hins vegar muni
áhrif refsivistar hafa slæmar afleiðingar á þróun
geðsjúkdóms hans. Dómurinn telur „eigi var-
hugavert að telja að refsing yfir ákærða Sigurði
muni bera árangur. Umsögn geðlæknisins girðir
eigi fyrir þessari niðurstöðu.“
Sigurður Júlíus Hálfdánarson vár dæmdur í 16
ára fangelsi. „Verknaður Sigurðar virtur heild-
stætt var ógnvekjandi og olli hörmulegum dauð-
daga. Ljóst er af framburðum ákærðu að Lárus
Ágúst hafði verið yfirbugaður líkamlega í þeim
tilgangi að ræna hann þegar hrottafengin árás
Sigurðar átti sér stað.“
Virt var Ólafi Hannesi til málsbóta að hann gaf
sig af sjálfsdáðum fram við lögreglu daginn eftir
atburðinn og var hann dæmdur til 8 ára fangels-
isvistar.
Þá vora bræðurnir dæmdir til að greiða allan
sakarkostnað, auk þess að greiða ekkju og sonum
Lárusar Ágústs bætur.