Morgunblaðið - 06.12.1997, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guðjón A. Krístjánssop forseti Farmanna- og fiskimannasambands fslands
LÁTTU hann vita hvar Dabbi keypti ölið, herra. Hann vill ekki leyfa okkur að hafa
þræla, við eigum að fara að veiða kvótann okkar sjálfir . . .
Hlutafélag um skrif-
stofu- og atvinnuhús
næði borgarinnar
NEFND um sölu borgareigna hefur
til athugunar tillögu um að stofnað
verði hlutafélag, Bústaðir hf., sem
falið verði eignarhald á öllu almennu
skrifstofu- og atvinnuhúsnæði borg-
arinnar og til að annast umsýslu allra
annarra fasteigna borgarinnar í um-
boði hennar. Þá mun þjónustusamn-
ingur um rekstur á mötuneyti Ráð-
hússins vera á lokastigi og síðar verð-
ur undirbúinn þjónustu- eða leigu-
samningur um rekstur Prentstofu
Reykjavíkur.
Þetta kom meðal annars fram í
ræðu borgarstjóra við fyrri umræðu
um fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1998. Sagði borgar-
stjóri að tillagan um Bústaði hf.
tæki til þess að leiga verður reiknuð
og innheimt af öllu húsnæði borgar-
innar, en markmiðið væri að skapa
sérhæfða rekstrareiningu um fast-
eignamál. Starfshópurinn sem vann
tillöguna telur ástæðulaust að rekstr-
arverkefni eins og fasteignaumsýsla
sé vistuð innan stjómsýslu borgar-
innar. Tillaga starfshópsins hefur
verið lögð fram í borgarráði til kynn-
ingar, en nefnd um sölu borgareigna
hefur ekki tekið endanlega afstöðu
til hennar. Sagði borgarstjóri að það
yrði væntanlega gert innan skamms.
Borgarstjóri benti á að þegar hafa
verið gerðir samningar um rekstur
sem borgin hefur haft með höndum,
svo sem við KSÍ um rekstur mann-
virkja og nýrrar stúku og endurbygg-
ingu eldri mannvirkja á Laugardals-
velli og við ÍBR um hönnun og bygg-
ingu yfir skautasvellið í Laugardal
og tekur ÍBR við rekstri skautahall-
arinnar um áramót. Sagði Ingibjörg
jafnframt að öldrunarþjónustudeild
Félagsmálastofnunar væri að ganga
frá samningum um að Skógarbær
tæki að sér rekstur félags- og þjón-
ustumiðstöðvarinnar Árskóga, ásamt
félagslegri heimaþjónustu við aldr-
aða íbúa hverfisins og að samið hafí
verið við Félag eldri borgara um að
annast rekstur þjónustusels við
Þorragötu.
10 mánaða
fangelsi fyr-
ir brot gegn
stjúpdóttur
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
mann í Reykjavik í 10 mánaða fang-
elsi fyrir að hafa gerst sekur um
kynferðislega áreitni gagnvart 11
ára dóttur sambýliskonu sinnar í
nokkur skipti á síðastliðnu ári.
Maðurinn er fyrir Hæstarétti
sakfelldur fyrir að hafa að nætur-
lagi farið inn í svefnherbergi stúlk-
unnar og strokið henni innan klæða
og utan.
í dómi Hæstaréttar segir að
maðurinn hafí brotið gegn því trún-
aðartrausti sem ríkja átti milli hans
og stúlkunnar og innan allrar fjöl-
skyldunnar. Maðurinn hafði um
árabil búið með móður stúlkunnar
og átti með henni þijú börn.
Héraðsdómur hafði dæmt mann-
inn til 7 mánaða fangelsisvistar, og
skilorðsbundið fjóra mánuði, en
Hæstiréttur taldi hæfilega refsingu
10 mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi.
Ef 1>Ú
lielnr smakkað
vJólasílclina
írá íslenskum matvælum
veistu að jcílin eru
ekki langt undan
-/>«
(<iannkalLad jóla<*kap!
ISLENSK MATVÆLI
IMýtt tímarit um vísindi
Aðgengileg um-
fjöllun fyrir alla
aldurshópa
NÝTT tímarit um vís-
indi kom út í síðasta
mánuði eftir
tveggja ára undirbúning.
Markmiðið er að það komi
út mánaðarlega segir Guð-
bjartur Finnbjörnsson rit-
stjóri tímaritsins, sem jafn-
framt er gefíð út á Norður-
löndunum og í Evrópu.
- Hvers vegna
ákvaðstu að gefa tímaritið
út?
„Við Hilmar Sigurðsson
fengum hugmyndina fyrir
tveimur árum. Báðir höfum
við verið búsettir erlendis
og þekkjum því tímaritið
Illustreret Videnskab vel,
en það er langvinsælasta
mánaðartímarit á Norður-
löndum og jafnframt gefíð
út í Frakklandi og Þýska-
landi. Við veltum þessu
fyrir okkur því samskonar
blað hefur ekki verið gefíð út fyrr
á íslandi. Við hófum síðan undir-
búning og samningaviðræður við
útgefendur erlendis og blaðið er
gefíð út samtímis á Islandi og í
fyrrgreindum löndum."
- Eruð þið með viðskiptaleyfi?
„Já, efnið kemur að utan, bæði
myndir og greinar, en síðan er
hugmyndin sú að hafa íslenskt
efni í blaðinu líka. Það verður
gert í samvinnu við Háskólann
og Rannsóknaráð íslands. Þetta
verður ekki stór hluti, kannski
flórar síður í hveiju blaði helgað-
ar íslenskum rannsóknum, en þar
virðist vera mikil gróska um þess-
ar mundir,"
- Hvað er ritstjómin stór?
„Ég er með tvo til þijá þýðend-
ur sem þýða greinar í hvert blað.
Fyrirtækið er lítið ennþá í sjálfu
sér og við reynum að gera þetta
sem mest sjálfír. Það tekur tíma
að vinna svona tímarit upp og
þess vegna reynum við að spara
sem mest. Ég kem nálægt öllu í
rekstrinum, afla auglýsinga, les
prófarkir og allt þar á milli.“
- Hvernig hafa viðtökurnar
verið?
„Þær hafa verið mjög fínar og
viðbrögðin verið mjög góð. Þetta
blað er almenningsvænt, ef svo
má að orði komast, því þar er um
að ræða auðvelda og skemmtilega
umfjöllun um vísindi, alls ekki
þurra. Þeir sem horfa mikið á
Discovery-sjónvarpsstöðina
þekkja þessi efnistök. Aðal blaðs-
ins er líka mikið af vönduðum og
góðum myndum og því ættu allir
að fínna eitthvað við ___________
sitt hæfí. Það hefur
líka sýnt sig að áskrif-
endahópurinn er mjög
fjölbreyttur, sá yngsti
er sjö ára og sá elsti
91 árs. Unglingar lesa ”““
blaðið líka mikið sem og fólk í
öllum aldurshópum. Upplagið er
um 7.000 eintök sem stendur og
áskrifendur orðnir um 2.000.
Þetta er í raun blað sem allir fjöl-
skyldunni geta lesið.“
- Er blaðið með sérstaka rit-
stjómarstefnu?
„Ekki aðra en þá að fræða al-
menning um ýmsa skemmtilega
hluti. Blaðinu er skipt niður í fasta
dálka, til að mynda einn sem nefn-
ist spurningar og svör. Þar er
spumingum lesenda um allt milli
himins og jarðar svarað, til dæm-
is af hveiju himininn er blár, af
hveiju karlmenn fá skalla, eða
bara hvað sem er. Þeim er síðan
Guðbjartur Finnbjörnsson
► Guðbjartur Finnbjörnsson
fæddist í Reykjavík árið 1961.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti árið 1983 og prófi frá
Kennaraháskóla íslands árið
1988. Að því búnu bjó hann í
Svíþjóð og Danmörku í ein fjög-
ur ár en hélt síðan aftur heim
til íslands. Þá lagði hann stund
á nám í hagnýtri fjölmiðlun við
Háskóla íslands og lauk prófi
árið 1995. Guðbjartur hefur
unnið sem lausamaður í blaða-
mennsku fyrir dagblöð og tíma-
rit og er nú ritsljóri tímaritsins
Lifandi vísindi sem kom út i
fyrsta skipti í lok síðasta mán-
aðar. Sambýliskona Guðbjarts
er Esther Ósk Armannsdóttir
og eiga þau eitt bam.
Markmiðið að
vísindi séu lif-
andi og
skemmtileg
svarað á stuttu og einföldu máli
í blaðinu. Sem stendur eru ein-
ungis í blaðinu svör við spurning-
um erlendra lesenda en ef íslensk-
ir áskrifendur og lesendur senda
okkur spurningar munum við
senda þær til sérfræðinga og fá
svör við þeim. Blaðið er ennþá í
þróun. Fyrsta tölublaðið er ný-
komið út og annað á leiðinni eftir
hálfan mánuð og við eigum eftir
að fikra okkur áfram með þetta."
- Hafa stelpur jafn mikinn
áhuga á blaðinu og strákar?
„Við höfum fengið þær upplýs-
ingar að utan að tæpur helmingur
lesenda sé konur. Það er erfitt
að segja nákvæmlega til um ald-
ursdreifingu en svo virðist sem
--------- blaðið sé nokkurs kon-
ar fjölskyldublað.
Yngri börnin sem ekki
eru orðin fyllilega læs
virðast hafa gaman af
því að kíkja á myndim-
ar og þeir sem eldri eru
geta alltaf fundið eitthvað við sitt
hæfí. Þetta tímarit er því með
dreifðasta aldurshóp lesenda sem
ég veit til.“
- Hver eru framtíðaráformin?
„Þau eru að halda útgáfunni
áfram. Við eram rétt nýbyrjaðir
og framhaldið lítur vel út. Undan-
farna tvo mánuði höfum við innt
gífurlega mikla vinnu af hendi
og lagt nótt við dag því það er í
svo mörg horn að líta. Viðtökur
hjá áskrifendum hafa verið góðar
svo við eram komnir með góðan
grundvöll. Það vantar bara
herslumuninn og ég tel að tímarit-
ið Lifandi vísindi sé komið til þess
að vera á íslandi."