Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 16

Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 16
16 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nærri 1.700 manns hafa þjálfað sig hjá HL-stöðinni Morgunblaðið/Þorkell YFIRLÆKNIR HL-stöðvarinnar er Þorkell Guðbrandsson og yfirsjúkraþjálfarar þær Auður Ólafsdóttir og Sólrún Óskarsdóttir. ÁÐUR en þjálfun hefst fara menn í þolpróf og ýmsar mælingar eru síðan gerðar einu sinni á ári. Hér mælir íris Marelsdóttir Jón Guð- mundsson. Endur- hæfing eykur lífs- gæði og ævilengd UM 300 manns stunda um þessar mundir reglulega þjálfun hjá HL- stöðinni við Hátún í Reykjavík, end- urhæfingarstöð fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Alls hafa milli 1.600 og 1.700 manns fengið endurhæfingu og þjálfun hjá stöðinni þau tæpu 10 ár sem hún hefur starfað. Nýlega var haldinn 100. fundur fram- kvæmdastjómar stöðvarinnar. „Fólk sem hefur fengið hjarta- og lungnasjúkdóma er ekki lengur af- skrifað heldur eru viðhorfin þau að það fái bata og geti með þjálfun bæði aukið Iífsgæði sín og ævilengd," seg- ir Guðmundur Steinbach, einn stjómarmanna stöðvarinnar er Morgunblaðsmenn litu inn í stöðina. Guðmundur segist sjálfur vera gott dæmi um mann sem fengið hefur hjartasjúkdóm, raunár tvisvar, en hefur eftir sem áður stundað sína vinnu og farið til rjúpna þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. „Endurhæfing er mjög mikilvæg, hún hefst eiginlega strax eftir að- gerð og best er ef fólk heldur áfram þjálfun enda sýnir það sig að menn finna að hún gerir þeim gott,“ segir Guðmundur ennfremur. Hagstæður rekstur HL-stöðin var stofnuð af Lands- samtökum hjartasjúklinga, Hjarta- vemd og SÍBS. Hún hóf starfsemi í apríl 1989 og leigir nú hjá íþróttafé- lagi fatlaðra. Hefur ekki verið lagt í aðrar fjárfestingar en í þjálfunar- og mælitækjum. Guðmundur segir rekstrarkostnað í lágmarki, telur hann innan við 50% af því sem stjómvöld þyrftu annars að greiða fyrir þjónustuna. Mánaðargjald fyrir þjálfun er 4.000 kr. en 15% afsláttur er veittur ellilífeyrisþegum og ör- yrkjum. Gjaldið hefur verið óbreytt lengi og segir Guðmundur stjómina ákveðna í að hækka það ekki en reyna á þess í stað að fá hærri fram- lög frá ríki og sveitarfélögum. Á næsta ári stefnir í hallarekstur að óbreyttu auk þess sem leggja verður fram fjármagn til endumýj- unar tækja. Þá hefur stöðin fengið góðan stuðning gegnum árin frá hreyfingum Lions- og Kiwanismanna svo og frá Verkstjórasambandinu. Ríkið tekur þátt í greiðslu kostn- aðar við frumþjálfun sjúklinga eftir aðgerðir en skjólstæðingar greiða sjálfir þegar að viðhaldsþjálfun kem- ur. „Rökin fyrir stuðningi sveitarfé- laga em meðal annars þau að fólk kemur fyrr til starfa eftir aðgerðir, getur starfað lengur og þannig ættu skatttekjur þeirra að aukast og út- gjöld vegna félagslegrar þjónustu að lækka,“ segir Guðmundur Steinbach. Starfsemi HL-stöðvarinnar fer fram síðdegis undir stjóm lækna og sjúkraþjálfara. Yfirlæknir er Þorkell Guðbrandsson sem gegnir hálfri stöðu og á móti honum eru þrír læknar með viðvem en læknir er alltaf viðstaddur meðan þjálfun fer fram, m.a. til að bregðast við ef bráðatilvik koma upp. Yfirsjúkra- þjálfarar era Auður Ólafsdóttir og Sólrún Óskarsdóttir sem deila með sér einni stöðu og með þeim starfa tíu sjúkraþjálfarar sem verktakar. Reynum að anna eftirspum Þremenningamir sem stýra dag- legu starfi stöðvarinnar segja hana fullnýtta og að á síðustu ámm hafi það alltaf sýnt sig að aðsókn aukist þegar boðið sé uppá viðbótartíma þannig að alltaf er reynt að anna eft- irspum þeirra sem óska eftir þjálf- un. Þegar þjálfun hefst em menn teknir í þrekpróf og öll þjálfun fer fram undir eftirliti. Árlega em skjól- stæðingar síðan vegnir og mældir á ýmsa vegu og veitt er hvers konar ráðgjöf um mataræði og annað sem máli skiptir. Þau benda á að nýlegar rannsóknir frá Heidelberg í Þýska- landi bendi ákveðið til þess að þeir sem stunda reglulega þjálfun eftir t.d. hjartasjúkdóma séu betur stadd- ir og ólíklegra að þeir fái sjúkdóm á ný heldur en þeir sem ekki em í þjálfun. Ummæli um Raftækj a ver slun Islands ómerk HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt ómerk ummæli sem höfð vom eftir framkvæmdastjóra Radíóbæjar hf. í Morgunblaðinu í nóvember í fyrra um starfsemi Raftækjaverslunar íslands hf. Dómurinn hafnaði því sjónarmiði að ummælin væru á ábyrgð Morg- unblaðsins enda hefði fram- kvæmdastjórinn viðurkennt að í ummælunum hefði komið efnis- lega fram það sem hann hefði sagt við blaðamanninn sem tók viðtalið við hann og hann hefði í málatil- búnaði sínum reynt að sýna fram á réttmæti ummælanna. Raftækjaverslun íslands fór fram á að þrenn ummæli fram- kvæmdastjóra Radíóbæjar yrðu dæmd dauð og ómerk. I fyrsta lagi ummæli um „að forsvars- menn þess fyi-irtækis hafi reynt að sölsa undir sig umboðið fyrir Aiwa á sölusýningu í Þýskalandi fyrir ári. Það hafi mistekist en Radíóbær hafi ekki séð ástæðu til að eiga í viðskiptum við umrætt fyrirtæki eftir það.“ I öðra lagi ummælin „það hefur tekið misjafnlega langan tíma að stöðva þessa aðila en oftast þarf ekkert að gera því þessi fyrirtæki em sjálfdauð í flestum tilvikum“ pg í þriðja lagi „Raftækjaverslun Islands býður ekki upp á neina varahluta- eða viðgerðaþjónustu." Af hálfu Raftækjaverslunarinn- ar og framkvæmdastjóra hennar var farið fram á eina milljón í miskabætur, að framkvæmda- stjóri Radíóbæjar yrði dæmdur til þyngstu refsingar og til að greiða 150 þúsund kr. til að standa straum af kostnaði við birtingu forsendna og niðurstöðu dómsins í Morgunblaðinu. Óviðurkvæmileg ummæli Dómarinn, Sigríður Ingvars- dóttir, sagði að þótt ummælin hefðu verið slitin úr samhengi og ekki höfð rétt eftir stæði það ekki í vegi fyrir að þau yrðu dæmd ómerk. Ummælin um að Raf- tækjaverslunin hafi reynt að sölsa undir sig umboð hafi, að því er fram hafi komið, verið að nokkm leyti efnislega rétt eftir fram- kvæmdastjóranum höfð og væm óviðurkvæmileg. Þá sagði fram- kvæmdastjórinn að þau ummæli gætu ekki verið rétt eftir honum höfð að Radíóbær hefði ekki séð ástæðu til að eiga viðskipti við Raftækjaverslunina eftir það. Aldrei hafi verið um nein viðskipti milli fyrirtækjanna að ræða, hvorki fyrir né eftir. Dómurinn sagði að telja yrði ummælin ósönn og óviðurkvæmileg. Þá sagði í dóminum að ummæl- in um að það gæti tekið misjafn- lega langan tíma að stöðva þessi fyrirtæki, gæti átt við aðra en Raftækjaverslunina. Þó væri ljóst af framsetningu þeirra að ákveð- inn dómur væri felldur yfir fyrir- tækjum sem líkt og Raftækja- verslunin byðu vörur á lægra verði en aðrir. Ummælin fælu því í sér misgjörð í garð Raftækja- verslunarinnai- og væm óviður- kvæmileg. Að sömu niðurstöðu komst dómarinn varðandi um- mæli um varahluta- og viðgerða- þjónustu, enda byði Raftækja- verslunin slíka almenná þjónustu. Framkvæmdastjóri Radíóbæj- ar var sýknaður af miskabóta- kröfu, þar sem ósannað væri að ummælin hefðu falið í sér ólög- mæta meingerð í garð Raftækja- verslunarinnar. Þá var refsikröfu vísað frá þar sem hún hefði ekki stoð í lögum og krafa um greiðslu kostnaðar vegna birtingar dóms var ekki tekin til greina. Hins vegar ber framkvæmdastjóranum að greiða 60 þúsund krónur í málskostnað. Á móti kom, að Raf- tækjaversluninni var gert að greiða Radíóbæ hf. 25 þúsund krónur í málskostnað, þar sem málshöfðun á hendur félaginu hafi verið þarflaus. Jóhann G. Berg- þórsson áfrýjar JÓHANN G. Bergþórsson, hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði Gunnar Inga Gunnarsson í ærameiðingar- máli sem Jóhann höfðaði á hendur honum. „Áfrýjunin byggir á því að full- yrðing Gunnars Inga um að Jóhann hafi valdið gjaldþroti fjölda fjöl- skyldna sé röng og ósæmileg. Gunnar Ingi gerði enda enga til- raun til að gera ummælin sennileg, hvað þá að sanna þau fyrir dómi,“ segir í yfirlýsingu frá Bjarna Þór Óskarssyni, lögmanni Jóhanns. „Dómarinn rökstyður m.a. niður- stöðu sína með því að Jóhann verði að þola slíkan áburð þar sem hann sé þátttakandi í stjómmálum. Sú niðurstaða stenst ekki, annars veg- ar þar sem hann er rangur og hins vegar þar sem það sem borið er á Jóhann snertir ekld þau opinbem störf sem hann sinnir vegna stjóm- málaþátttöku sinnar," segir enn- fremur. Trúðar, blöðrur og aðrar vættir MY]\PLIST Listmunasala Fold MÁLVERK Haraldur Bilson. Opið 9-18. Sýningin stendur til 7. desember. MYNDIR Haraldar Bilson era unnar af nokkurri nákvæmni og em tæknilega vel frá- gengnar, en viðfangseínin og meðferð þeirra eiga sér hins vegar fyrirmyndir í verkum naíflistamanna og frístundamálara. Það er þessi þverstæða sem laðar áhorfandann að myndunum og í þeim bestu fær hann nokkuð fyrir sinn snúð því þar má greina undir ein- feldningslegu yfirborðinu tilraun til átaka, til- raun til að vinna úr tilfinningu eða einhverri hugmynd. Hins vegar bera margar myndirnar þess vitni að í það heila sé málverkaframleiðsla Bil- sons orðin að einhvers konar vana og felist í því að raða saman í mynd eftir mynd sömu minnunum: Trúðum, flugdrekum, hestum, blöðram, blómum og dansandi fólki. Stemmn- ingin er ögn þjóðsagnakennd og minnir frek- ar á frásögn af skemmtilegu sveitaballi en mynd af ballinu sjálfu. Þannig er dálítil dulúð í þessum myndum - eins konar magískur realismi - sem virkar eins og húmor, eins og brandari sem málarinn og áhorfandinn eigi einir að skilja. Þessi aðferð við framsetningu frásagnar, hvort heldur í myndlist eða bókmenntum, hef- ur oft gefið góða raun, en þó aðeins að eitt- hvað búi undir: Einhver persónuleg átök, mórölsk sannfæring eða pólitískur skilningur. Þetta skortir tilfinnanlega í flestum myndum Bilsons og því verða þær vart meira en skreytimyndir eða eins og eftirmyndir af öðr- um, skarpari myndum sem málarinn málaði einhvemtíma í fymdinni en er hættur að muna af hverju. Maður fær það óneitanlega á tilfinninguna að það sé kominn tími til að Bil- son skipti um stíl og reyni að ögra þannig bæði sjálfum sér og áhorfendum aftur. Bilson mun vera af íslensku bergi brotinn og hefur eitthvað dválist hér uþþi eins og ein myndin á sýningunni ber greinilega með sér. I þeirri mynd má sjá sólarlag bak við svartar klettaeyjar og dökkan blágrænan sjó. I for- gmnni er síðan svört fjara og fjöranni sjáum við stóran svartan hest æða ógnandi yfir myndflötinn. Undan hestinum hleypur svart- klæddur maður skelfingu lostinn og veifar höndunum fyrir ofan höfuð sér. Allt er svart og ógnandi nema bindi svartklædda manns- ins; það er í mörgum skæram litum. Þessi mynd heitir „Nykur“ og er tilvísun í íslenska þjóðsögu. Hún er nokkuð skemmtileg fyrir það að Bilson tekur allt öðravísi á þjóðsög- unni, og á íslensku landslagi, en íslenskir mál- arar hafa gert. Sýn hans er önnur og þess vegna nokkuð frískandi; hann sér til að mynda húmor í sögunni þar sem íslendingar sæju flestir ekkert aðhlátursefni. Ef eftir þessari mynd mætti dæma gæti hugsast að frekari dvöl á íslandi og viðfangsefni á borð við íslenskar þjóðsögur væri einmitt það sem Bilson þyrfti til að endurnýja sig í listinni. Jón Proppé

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.