Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Þáttur Bandaríkjamanna í samningum um efnahagsaðstoð við Suður-Kóreu gagnrýndur
„Bandaríkin höfðu
IMF í vasanum“
Seoul, Tókýd, Kuala Lumpur. Reuters.
BANDARÍSK stjórnvöld tóku
virkan þátt á bak við tjöldin í
samningaviðræðum um skilyrði
fyrir veitingu rúmlega 4.000 millj-
arða króna efnahagsaðstoðar AI-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) til
Suður-Kóreu, að því er suður-
kóreskir embættismenn greindu
frá í gær. Lim Chang-yuel, fjár-
málaráðherra landsins, viðurkenndi
að hefði Bandaríkjunum ekki verið
friðþægt hefði ekki fengist sam-
þykki fyrir aðstoð frá sjóðnum.
„Við verðum að horfast í augu
við þann veruleika að áætlun sem
Bandaríkjamenn eru ekki sáttir við
mun varla fást samþykkt af stjóm
IMF, jafnvel þótt vinnuhópur og
framkvæmdastjóri IMF séu sam-
þykkir," sagði Lim á fréttamanna-
fundi í gær, þar sem hann gerði
grein fyrir þeim skilyrðum um
opnun markaða sem fylgdu aðstoð-
inni.
Lim hafði verið spurður um
komu aðstoðarfjármálaráðherra
Bandaríkjanna, Davids Liptons, til
Seoul er samningaviðræður suður-
kóreskra stjómvalda við IMF
stóðu sem hæst nú í vikunni. Suð-
ur-kóreskir fjölmiðlar höfðu í gær
eftir þai’lendum embættismönnum
að stjómvöldum hefði verið nauð-
ugur einn kostur að ganga til
samninga við Bandaríkjamenn um
leið og samið var við IMF.
Bandaríkin hafa þrýst á Suður-
Kóreu með að opna fjármagns-
markaði í landinu og ryðja úr vegi
viðskiptahindrunum, einkanlega í
bflasölu innanlands. I október hót-
uðu Bandaríkjamenn viðskipta-
þvingunum vegna bílasölumálsins.
Kóreskt viðskiptadagblað sagði í
fyrirsögn í gær að Bandaríkja-
menn hefðu haft IMF í vasanum.
„IMF-viðræðumar um sldlyrði að-
stoðarinnar til Kóreu vom ekkert
annað en bandarísk aðgerð," sagði
blaðið. „Bandaríkin höfðu fullan
sigur.“
Fjármálaráðherrann sagði að
Bandaríkjamenn hefðu fyrst og
fremst gegnt því hlutverki í samn-
ingaviðræðunum að ganga úr
skugga um að endanlegt samkomu-
lag fengist viðurkennt á alþjóða-
vettvangi. Ellefu ríki, auk Alþjóða-
bankans og Þróunarbanka Asíu,
leggja fram fé til aðstoðarinnar.
Camdessus
vongóður
Samkvæmt áætlun IMF um end-
urskipulagningu fjármálakerfisins
í Suður-Kóreu verða illa stæðar
fjármálastofnanir látnar verða
gjaldþrota og erlendum bönkum
gert kleift að stofna útibú í landinu
frá og með miðju næsta ári. Með
þeim hætti á að auka frelsi á mörk-
uðum. Michel Camdessus, fram-
kvæmdastjóri IMF, sagði í viðtali
við Reuters Financial Televison í
gær að hann vonaðist til þess að
Suður-Kórea yrði síðasta Asíuríkið
sem sækti um aðstoð frá sjóðnum.
Hann kvaðst þó engan veginn viss
um að svo yrði.
Camdessus sagðist telja að að-
stoðin við Suður-Kóreu væri nægi-
lega mikil og að áætlaðar umbætur
væru nógu róttækar til þess að trú
á landið yxi á ný. Hagkerfi Suður-
Kóreu hefði marga kosti, til dæmis
sterka fjárhagsstöðu, núverandi
staða væri nærri því að vera í jafn-
vægi, og þá „gífurlegu atorku“ sem
einkenndi framkvæmdir og fólk í
landinu.
Camdessus sagðist vona að ef
umbótaáætluninni yrði hrint í
framkvæmd yrði hnignunarskeið í
Suður-Kóreu stutt, einungis fáir
mánuðir, og lagði hann áherslu á
að þetta þyrfti ekki að þýða að
samdráttur yrði á því tímabili.
Troðfull búð af húsgögnum
á góðu verði! ^sss===s:
JÍJJJJ
usqoqn
Hjá okkureru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávísuná staðgreiðsiu
Nýkomin sending af
Reuters
Hæsta jólatré í Evrópu
í AÞENU er nú verið að skreyta
hæsta jólatré í Evrópu, sem
stendur á Syntagmatorgi í
miðborginni, rúmlega 36 metra
hátt. Þegar allt verður komið
heim og saman munu 180 þúsund
ljósaperur í öllum litum prýða
tréð.
ZIOVL • NÝTT GLER •
íslensk myndlist •
• Nýtt úrval af plaggötum
í mörgum stærðum,
einnig í country-stíl
• Innrammaðir speglar
eftir þínu máli.
• Úrval ramma úr tré og
áli auk rammalista.
Opið í dag kl. 11-18
Sunnudag kl. 13-18
RAMMA
MIÐSTOÐIN
Glært
Matt
Súper gler
• Glært gler sem ekki glampar á.
Innrömmun á 2 dögum til ióla.
Sérverslun með innrömmunarvörur
Sigtúni 10 (Sóltún), sími 511 -1616.
I