Morgunblaðið - 06.12.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 31
Reuters
VEL virtist fara á með þeim Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, og Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, er þeir hittust
í París í gær.
Albright ræðir við Netanyahu í París
Ahersla á frek-
ari viðræður
París. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, hitti Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, á skyndifundi í París í
gær. Að fundinum loknum sagðist
Albright hafa lagt áherslu á mikil-
vægi þess að leiðtogar ísraels og
Palestínumanna hraði frekari friðar-
viðræðum, en þær sigldu í strand
eftir að Netanyahu heimilaði ný-
byggingar gyðinga á palestínsku
landi í Austur-Jerúsalem í mars.
Aður hafði Netanyahu sagt að það
tæki stjórn sína nokkrar vikur að
ganga frá smáatriðum nýrrar áætl-
unar um brottflutning ísraelskra
hersveita frá hernumdu svæðunum.
Israelsstjóm samþykkti nýlega að
bjóða Palestínumönnum 6-8%
þeirra landsvæða Vesturbakkans
sem enn eru undir ísraelskri stjórn.
Henni hefur hins vegar ekki tekist að
koma sér saman um smáatriði til-
boðsins sem Palestínumenn hafa sagt
langt frá þvi að vera fullnægjandi.
Albright, sem mun hitta Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í
Genf í dag, sagði að hún myndi
hvetja hann til að taka tilboð Isra-
elsmanna alvarlega.
Kohl áhyggjufullur
Netanyahu átti einnig fund með
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakka, og Hubert Vedrine, utan-
ríkisráðherra þeima, í gærmorgun.
Eftir fundinn sagðist hann hafa
reynt að gera þeim ljóst að ísraelum
væri alvara með friðarviðleitni sinni
og að það væri rangt að þeir beittu
brögðum til að tefja friðarviðræður.
Hann sagði Evrópuþjóðir hafa mik-
ilvægu hlutverki að gegna í friðar-
viðræðunum en lagði þó áherslu á að
helstu bandamenn Israela, Banda-
ríkjamenn, gegndu höfuðhlutverki
sem sáttasemjarar í deilunni.
Netanyahu hitti einnig Helmut
Kohl, kanslara Þýskalands, á meðan
á Parísardvöl hans stóð. Eftir fund
þeirra sagðist kanslarinn hafa lýst
yfír vaxandi áhyggjum af gangi frið-
arviðræðnanna fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Aðstoðarmenn hans vísuðu
því hins vegar á bug að ágreiningur
hefði komið upp á milli leiðtoganna.
ERLENT
Sænski ríkissaksóknarinn vill endurupptöku Palme-málsins
Ný vitni hafa sann-
fært saksóknarann
Kaupmannaliöfn. Morgnnblaðiö.
VITNI sem hafa breytt framburði
sínum eru helsta forsenda beiðni
Klas Bergenstrand, ríkissaksókn-
ara Svía, til Hæstaréttar um að
Christer Pettersson verði dreginn
fyrir rétt í þriðja sinn, ákærður
fyrir að hafa myrt Olof Palme for-
sætisráðherra 28. febrúar 1986.
Pettersson var dæmdur í lífstíð-
arfangelsi í júlí 1989 fyrir morðið í
undirrétti, einkum þar sem Lis-
beth Palme benti á hann sem
morðingja manns síns. I nóvember
sama ár var hann sýknaður í
Hæstarétti, þar sem ekki þótti
liggja ljóst fyrir hver ástæðan
hefði verið fyrir morðinu né hefði
morðvopnið fundist. Pettersson
fékk síðar greiddar skaðabætur
frá ríkinu í maí 1990 upp á rúmar
þrjár milljónir íslenskra króna.
A blaðamannafundi ríkissak-
sóknara í gær gætti mikillar van-
trúar blaðamanna á að nýju vís-
bendingarnar dygðu til að sann-
færa Hæstarétt um upptöku máls-
ins og sama tóns gætti i umfjöllun
sænskra fjölmiðla í gær. Það gæti
tekið Hæstarétt allt að hálft ár að
afgreiða beiðnina.
„Getur þú kannski útvegað
morðvopnið?" spurði Jan Daniels-
son ákærandi í Palmemálinu, þeg-
ar blaðamaður nokkur spurði van-
trúaður hvernig hægt væri að taka
málið upp aftur án morðvopns og
einungis með gamlan framburð
vitna. Danielsson segir framburð
fjögurra vitna undirstöðu beiðn-
innar nú. Tvö vitni bera nú að þau
hafi séð Pettersson í nágrenni við
morðstaðinn kvöldið, sem Palme
var myrtur. Þar sem bæði vitnin
þekktu Pettersson er ósennilegt að
þeim skjátlist.
Annað þessara vitna er leigu-
bílsstjóri er stundaði ólöglegan
akstur og sagði frá því sem hann
hefði séð þegar búið var að sýkna
Pettersson 1989, en þá þótti ekki
hægt að aðhafast frekar. Þriðja
vitnið keyrði bíl í námunda við
morðstaðinn á milli klukkan 23-24
þetta kvöld, þegar maður með
byssu hljóp í veg fyrir bílinn, svo
bflstjórinn neyddist til að nema
staðar. Viðkomandi er viss í sinni
sök. Fjórða vitnið sá sveittan
mann koma hlaupandi á móti sér
um líkt leyti og er sömuleiðis viss
um að það var Pettersson.
Danielsson segist harma að vitn-
in hafi ekki komið
fram fyrr, en segir að
þau hafi öll skýringu á
hvers vegna þau hafi
ekki vitnað fýrr. Þau
beri við ótta, til dæmis
ef skipulögð samtök
hefðu staðið að baki
morðinu og hafi einnig
ýmsar persónulegar
ástæður fyrir að hafa
ekki viljað koma fram
áður. Auk þessa hafa
tveir menn, er nú eru
látnir, skilið eftir sig
vitnisburð í málinu.
Annar var fyrrum
samfangi Petterssons,
sem sagðist hafa borið
hatur til samfélagsins og ætlað að
myrða bæði Karl Gústaf Svíakon-
ung og Palme.
Pettersson hafi verið sama sinnis
og samfanginn því fengið Petters-
son til að framkvæma ódæðisverk-
ið. Fyrir tilviljun hafi Palme orðið
fyrra fómarlambið, en þeir síðan
ekki þorað að halda áfram. I réttar-
höldunum eyðilagði þessi maður
fjarvistarsönnun Petterssons, en
vitnaði annars ekki gegn honum.
Hinn maðurinn sagði frá því í
myndbandsupptöku á á banabeði
að hann hefði látið Pettersson í té
vopn, en aldrei fengið það til baka.
Hugsanleg morðástæða:
Hatur á samfélaginu
A sínum tíma komst Hæstirétt-
ur að þeirri niðurstöðu að engin
ástæða lægi að baki morðinu, sem
sýnt hefði verið fram á. Danielsson
sagðist í gær álíta að Pettersson,
sem ekki bjó langt frá morðstaðn-
um, hefði farið að heiman um
kvöldið með byssu og verið á leið
að kaupa eiturlyf, en hann var
þekktur í undirheimum Stokk-
hólms og á langan afbrotaferil að
baki. Hann hefði svo af tilviljun
séð Palme og ákveðið að ráða hon-
um bana. Morðið hefði ekki verið
skipulagt. Einnig sagði Danielsson
að ýmislegt hefði komið fram
undafarin ár, sem fyllti upp í
myndina af Pettersson.
A fundinum kom
fram að beiðnin nú er
lögð fram að vandlega
yfirveguðu ráði. Fyrir
ári hafi það verið hug-
leitt, en þá ekki þótt
nægilega sterkar for-
sendur fyrir því að
Hæstiréttur yrði við
slíkri beiðni. Síðan
hefðu hins vegar bætst
við nýjar vísbendingar.
Ymsir blaðamenn
drógu í efa að upplýs-
ingarnar dyggðu, þar
sem þær væru í raun
ekki nýjar, en Daniels-
son undirstrikaði að
það væri samspil nýs vitnisburðar
og eldri, sem gerði þá vissa í sinni
sök.
Pettersson er frjáls ferða sinna,
þar sem hann hefur ekki verið
ákærður enn. Lars Nylén lög-
regluforingi vildi ekki gefa upp í
gær hvaða ráðstafanir væru gerð-
ar til að vernda Pettersson, ef ein-
hver fyndi hjá sér þörf til að gera
upp við hann sakir persónulega.
Hann hefur ekki fengist til að
ræða við fjölmiðla nú, en reyndi á
sínum tíma að gera sér mat úr
málaferlunum og seldi fjölmiðlum
viðtöl. I umræðu sænskra fjöl-
miðla í gær gætti tortryggni lög-
fræðinga og annarra um að Hæsti-
réttur gæti heimilað upptöku
málsins á þessum forsendum. Sten
Andersson náinn vinur Palmes og
fyrrum utanríkisráðherra sagðist í
samtali við sænska útvarpið ekki
trúa öðru en að saksóknari mæti
aðstöðuna rétt og sagðist vona að
málið yrði á endanum upplýst, því
það hefði grafið mikið undan trú
Svía á yfirvöldum, sem ekki væri
þjóðinni hollt.
Christer
Pettersson
Bretar taka við forsæti í ESB um áramót
Blair heitir breyt-
ingum og umbótum
London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að ríkisstjórn
hans myndi leitast við að stýra
Evrópusambandinu á braut breyt-
inga og umbóta á fyrri hluta næsta
árs, en Bretland fer þá með forsæti
í ráðherraráði sambandsins.
Blair kynnti í gær áherzlur Bret-
lands á blaðamannafundi í Wa-
terloo-brautarstöðinni. Eurostar-
hraðlest, skreytt nýju merki, sem á
að vera táknrænt fyrir forsætistíð
Bretlands, rann inn á stöðina í upp-
hafifundarins. I merkinu eru
fimmtán stjörnur, sem skólabörn í
öllum ríkjum ESB voru fengin til
að mála. Forsætisráðherrann sagði
Eurostar-lestirnar og Ermar-
sundsgöngin öflug tákn um tengsl
Bretlands við önnur Evrópuríki.
Prófsteinn á Bret-
landog Evrópu
„Eg lít á forsætistímabil Bret-
lands sem prófstein á Bretland og
Evrópu,“ sagði Blair. „Það er próf-
steinn á hæfni Bretlands til að taka
forystuhlutverkið í Evrópu og
prófsteinn á getu Evrópu til að
bregðast við þörfinni fyrir breyt-
ingar og umbætur."
Blair sagðist vilja nota það tæki-
færi, sem forsæti í ESB veitti, til
að sýna heiminum nútímalegt, öfl-
ugt og kraftmikið Bretland. Evr-
ópusambandið þyrfti að taka þátt í
harðri samkeppni á hnattrænum
markaði og bregðast við óskum
Austur-Evrópuríkjanna, sem
knýðu nú dyi-a.
Forsætisráðherrann lagði
áherzlu á að stefna stjórnar hans
væri ólík Evrópustefnu fyrrver-
andi ríkisstjórnar Ihaldsflokksins,
sem oft var ein í andstöðu við önn-
ur rfld ESB. Hann sagði að á
næsta ári myndu Bretar sýna að
þeir gætu veitt ESB forystu og að
endi væri bundinn á „hik, hálf-
velgju og Evrópuandúð fortíðar-
innar“.
Reuters
TONY Blair og kona hans Cherie í hópi barna frá ölluni ríkjum ESB,
sem tóku þátt í að hanna merki forsætistíðar Bretlands í ESB.
Áherzla á að EMU takist vel
Blair sagði að Bretland legði
áherzlu á að tiyggja að Efnahags-
og myntbandalag Evrópu (EMU)
færi vel af stað, jafnvel þótt Bretar
myndu ekki eiga aðild að því fyi-st
um sinn. „Það er hagur okkar allra
að myntbandalagið takist vel. Við
munum gera okkar til að tryggja
að svo verði,“ sagði hann.
Blair sagðist vilja fara hina
svokölluðu „þriðju leið“ í atvinnu-
málum með því að gera fólk hæfara
til fjölbreyttra starfa. „Það er til
leið á milli gamaldags ríkisafskipta
og frjálshyggju og hana verðum við
að fara,“ sagði hann.
Forsætisráðherrann sagði land-
búnaðarstefnu Evrópusambands-
ins rándýra sóunarstefnu og krafð-
ist breytinga á henni. Hann sagðist
einnig vilja skera upp byggða-
styrkjakerfi sambandsins. Þá lof-
aði Blair harðari baráttu gegn
glæpum, eiturlyfjum og mengun.