Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 46

Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 46
46 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Friður við Langá SÍST ætlaði ég mér að standa í nágranna- krytum á opinberum vettvangi í upphafi að- ventu, en fréttin á bls. 3 í Degi sl. föstudag um málaferli Langár ehf. gegn undirrituð- um, stærsta eiganda félagsins, er ekki sann- leikanum samkvæm. Nágranni minn og fyrrum samstarfsaðili Runólfur Ágústsson í Laufási við Langá hef- ur frá því að leiðir okk- ar skildu varðandi út- leigu Langár, ítrekað veist að mér á opinber- um vettvangi m.a. gegnum Alþýðu- blaðið, DV og nú síðast Dag. Það er dapurlegt þegar ungur og ágætlega greindur piltur er haldinn slikum hefndarhug að bitnar mest á þeim sem standa honum næst og honum þykir vænst um, en ekki undirrituð- um meintum óvildarmanni hans. Nokkur atriði til skýringar. 1. I febrúar sl. áttum við Runólf- ur fund á heimili tengdaforeldra hans á Litlu-Brekku um framhalds- samstarf um Langá, þar sem samn- ingstímabil var á enda. Þar kom ákveðið fram að færi árleigan yfir 16 milljónir á ári væru þau hætt og myndu breyta veiðiheimilinu að Langárfossi í bændagistingu þar sem hins vegar veiðimenn fengju ekki þjónustu. 2. Eg skynjaði fljótlega að ekki voru heilindi að baki hugmyndum um frekara samstarf og fékk það síðar að mínu mati staðfest. Eg ákvað því að bjóða sjálfur í ána alla með fulltingi góðra vina, með því skilyrði að veiðifélagið byggði veiðihús. Þetta tilboð upp á 23.000.000 kr. lagði ég fram á aðal- fundi félagsins í apríllok, þar sem einnig var lagt fram undirritað til- boð frá Langá ehf., sem ég átti ekki aðild að að semja, sem hljóð- aði upp á 17.700.000 kr. 3. Áðalfundur ákvað þá að bjóða veiði í Langá 1998-2002 út á al- mennum markaði. Mitt tilboð lá áfram nær óbreytt á borðinu allan tímann. Akveða átti hvaða tilboði af 6, sem bárust, yrði tekið 21. júní, þar á meðal var tilboð frá þeim Runólfi og Stefáni Ólafssyni ásamt Áma Baldurssyni upp á 23.300.000. með húsbótum á Langárfosshús- inu. 18. júní komu aldursforsetarnir í veiðifélaginu, Einar Jóhannesson á Jarðlangsstöðum og Jóhannes Guðmundsson veiðifélagsformaður á Ánabrekku fram með sáttatillögu um að ég leigði 5 stangir, en Run- ólfur og Stefán og Árni Baldursson hefðu 7 og ekki yrði byggt veiði- hús. Þrátt fyrir efasemdir en með von um að halda frið féllst ég á þessa tillögu og að leggja hana fyr- ir Stefán Ólafsson. Það gerði ég samdægurs á fundi í Búðarkletti í Borgarnesi og tók Stefán því vel, en sagðist eðlilega þurfa að ræða við sína menn og Runólfur væri f A T1 í U M t I f t s ’f > l f Frönsk hönnun framleidd í Tékklandi staddur á Spáni. Hann myndi veita þessari til- lögu sitt brautargengi. Næstu þrjá sólar- hringa beið ég og fékk einungis þau svör frá þeim tengdafeðgum, Jóhannesi og Stefáni, að málið væri í skoðun en óljóst um lyktir. Um kvöldmatarleytið 20. júní brast mig þol- inmæði, enda aðeins 1- 2 klukkustundir í stjórnarfund í veiðifé- laginu sem taka átti Ingvi Hrafn tilboðin til umfjöllun- Jónsson ar- Ég hafði einnig vit- neskju um að meðan ég beið svara væru félagarnir að kanna fylgi við sitt tilboð, sem var eins og fyrr segir 300 þúsund krón- um hærra en mitt og hvort þeir þyrftu yfirleitt nokkuð að vinna með mér. Eg tilkynnti Einari á Jarðlangsstöðum og stjórn veiðifé- lagsins að ég félli frá samþykki um sáttatillöguna og vildi láta atkvæð- in ráða. Heimsókn þeirra Stefáns og Jóhannesar til mín þá seint um kvöldið með samþykki við sáttatil- löguna breytti þar engu um, trún- aðarbrestur var orðinn staðreynd. 4. 21. júní samþykktu nágrann- ar okkar við Langá með 10 atkvæð- um gegn 3 að byggja veiðihús og 9 atkvæðum gegn 4, að leigja ána mér og minni fjölskyldu. 5. Skömmu eftir að ég lagði til- boð mitt fram barst mér krafa og Það er hryggilegt, seg- ir Ingvi Hrafn Jonsson, þegar annars góðir drengir eru svo tapsár- ir, að þeir tapa áttum. síðar stefna frá fyrirtæki mínu Langá ehf., þar sem ég á 45% hlut en þeir Runólfur og Stefán sín 27,5% hvor, um ógreidda dráttar- vexti af umsömdum leigugreiðsl- um. Eg bar ábyrgð á helmingi leig- unnar á þremur gjalddögum vegna 7 stanga á mið- og fjallsvæði, þeir hinum helmingnum vegna 5 stanga á því neðsta. Hér skal tekið fram að félagið lagði mér vitanlega aldrei út fyrir mínum leigugreiðsl- um þótt þær drægjust stundum einhverja daga og jafnvel vikur vegna greiðslutafa erlendis frá. Eg lét Jóhannes á Ánabrekku og Vífil Oddsson stjórnarmann vita og fylgjast með. Einu sinni skiptum við Runólfur á gjalddögum sem voru á mismunandi tímum. Langá ehf. hefur aldrei verið af veiðifélag- inu krafið um dráttarvexti og hef ég með höndum kvittun undirrit- aða af allri stjórn Veiðifélags Langár fyrir fullnaðaruppgjöri. Stjórnin vissi allan tímann að ég stóð fyrir mjög kostnaðarsömum og tímafrekum framkvæmdum til að gera fjallsvæði Langár að boð- legri vöru, sem að vísu hefur skilað sér nú með miklum ágætum. 6. Þegar öll kurl eru komin til grafar, gæti ég skuldað Langá ehf. nokkra tugir þúsunda og félagar mínir jafnvel einnig, en aðalfundur hefur ekki verið haldinn í félaginu sl. 2 ár né heldur lagðir fram end- urskoðaðir reikningar. Þurfti lög- maður Langár ehf. vegna þessa, að biðja um frest í Héraðsdómi Reykjavíkur fram á næsta ár í þessu máli. Rétt er að láta þess getið að lögmaðurinn minn hefur ítrekað boðið lögmanni Langár ehf. að kaupa þeirra hlut og yfirtaka fé- lagið með öllum meintum skuld- bindingum. Einnig hafa fleiri mæt- ir menn í héraði reynt að koma á sáttum, en allt hefur komið fyrir ekki, hefndarhugur virðist knýja menn áfram. Alla vega vita menn þá að málið snýst ekki um peninga. 7. í júlímánuði bjó Runólfur til forsíðuviðtal við sjálfan sig í Al- þýðublaðinu heitnu sem flokks- bróðir hans af Þjóðviljanum sáluga Sdór. tók upp á forsíðu DV í sam- ráði við Elínu Hirst þar sem ég var með stríðsletri sakaður um óheil- indi og rýtingsstungur í bakið og yfirvofandi gjaldþrot. Ég mátti þó segja álit mitt á herlegheitunum, sem hvorki Alþýðublaðið né Dagur sáu ástæðu til að bjóða. Ég kaus að segja sem minnst til að reyna að halda frið. Gekk maður undir manns hönd heima í sveitinni að þakka mér fyrir að láta þetta svo til kyrrt liggja. 8. Það er hryggilegt þegar ann- ars góðir drengir eru svo tapsárir að þeir tapa áttum. Runólfur hefur í sumar farið víða um sveitina, veif- að jafnvel brúnum umslögum sem hann segir innihalda milljónatuga ábyrgðir frá Sparisjóði Mýrasýslu til að reyna að fá menn til að rifta veiðisamningum og semja við sig. Þannig munaði 1 atkvæði að hon- um tækist að fá felldan nýgerðan 5 ára samning Veiðifélags Norðurár og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. 9. Næstu daga verður grunnur- inn að nýju veiðihúsi við Langá steyptur og er verktaki að umsjón með byggingu hússins fyrir Kross- stál ehf. Stefán Ólafsson stjórnar- formaður Langár ehf. Byggingin gæti ekki verið í höndum betri eða vandvirkari manns, en ansi er erfitt að sæta hefndaraðgerðum af hans hálfu á sama tíma og hann er að byggja húsið. 10. Ekki veit ég hvað þarf að gera til að leiða þeim fyrir sjónir hversu fánýtt er að láta svona, fyrrum vinir og samherjar í sveit- inni. Mér finnst mál að linni. Ég er sem fyrr tilbúinn til að kaupa hluti þeirra tengdafeðga í Langá ehf. og losa þá úr öllum meintum skuld- bindingum og innsigla það með þéttu nágrannahandtaki svo allir geti átt góð jól, lausir úr fjötrum hefndarhugs. Höfundur er fréttastjóri á Matthildi FM885 og leigutaki Langár á Mýr- ■ ■ VERKFÆRA TOSKUR -margar stærðir SKEIFUNNI 3E-F SÍMI581 2333 • FAX 568 0215 Kvennaat- hvarf í 15 ár í DAG eru liðin 15 ár frá því að Kvennaat- hvarfíð var opnað í litlu timburhúsi í Reykjavík, eða 6. desember 1982. Þá var hugmyndin að kvennaathvarf í Reykjavík þjónaði að- eins höfuðborgarsvæð- inu og suðvesturhomi landsins og að fleiri kvennaathvörf myndu spretta upp úti á lands- byggðinni. Slík hafði þróunin verið annars staðar, t.d., voru á þess- um tíma hátt í 30 kvennaathvörf í Nor- egi. Norðlenskar konur opnuðu síðan kvennaathvarf á Akureyri árið 1984. Það var aðeins starfrækt í um það bil eitt ár en reynslan sýndi að konur kusu fremur að fara út fyrir I Kvennaathvarfið í Reykjavík, segir Ásta Júlía Arnardóttir, koma konur alls staðar að af landinu. heimabyggðina, þ.e. til Reykjavík- ur, en dveljast þar. Eignir Kvenna- athvarfsins á Akureyri runnu síðan til Kvennaathvarfsins í Reykjavík. Á síðustu árum hefur Kvennaat- hvarfið verið starfrækt í varanlegu húsnæði, sem það eignaðist með stuðningi þjóðarinnar, en í október 1992 var staðið fyrir söfnun meðal landsmanna undir kjörorðunum „Allir með tölu“. Rekstur Kvennaathvarfsins er í dag að mestu fjármagnaður af ríki, Reykjavíkurborg og öðrum sveitar- félögum, en einnig hafa í gegnum árin komið til framlög og stuðning- ur í ýmsu formi frá einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum. I Kvennaathvarfið í Reykjavík koma konur alls staðar að af land- inu. Það er opið allan sólarhringinn, allan ársins hring. Þangað geta kon- ur komið til dvalar og í viðtöl eða hringt til að fá aðstoð eða upplýs- ingar. í Athvarfinu er enginn sem leggur konur inn og enginn sem út- skrifar þær. Konumar koma þegar þær, að eigin mati, þurfa þess og fara þegar þær eru tilbúnar til þess. Markmið Samtaka um kvennaat- hvarf eru eftirfarandi: 1) Að reka athvarf, annars vegar fyrir konur og börn þeirra, þegar dvöl í heimahúsi er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeld- is eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna og hins veg- ar fyrir konur sem verða fyrir nauðgun. 2) Að veita ráðgjöf og upplýsing- ar, efla fræðslu og umræðu um of- beldi innan fjölskyldu, m.a. til að PCIlímogfúgueíni Ásta Júlia Arnardóttir T"J~|.....I n'TT' wÍiwrflT- Stórhöfða 17, við Gullinbró, símt 567 4844 Ofiiö sunnudaga kl. 13-17 Nýbýlavegi 30, simi 554 6300. Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! auka skilning í þjóðfé- laginu á eðli ofbeldis og afleiðingum þess og stuðla að því að þjóðfé- lagið, lög þess og stofn- anir, verndi og aðstoði þá er slíkt ofbeldi þola. Margar konur búa við ofbeldi á heimilum sínum. Það getur birst í ýmsum myndum og verið bæði líkamlegt og andlegt. Fjöldi kvenna býr við ofbeldi án þess að bera þess sýnileg merki. Ofbeldið læðist oft hægt inn í sambandið en getur einnig þróast á skömmum tíma og þrífst í skjóli friðhelgi heimilisins. Hvað hefur Kvennaathvarfið upp á að bjóða? - Húsaskjól og stuðning til sjálfs- hjálpar. - Nafnleynd og trúnað. - Samskipti við konur með svipaða reynslu. - Bamastarf fyrir þau börn sem ekki geta sótt eigin leikskóla eða skóla. - Viðtalsþjónustu sem konur utan Athvarfsins geta nýtt sér og síma- þjónustu sem er opin allan sólar- hringinn. Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt og er ætíð á ábyrgð geranda. Frásagnir þeirra kvenna sem í Athvarfið koma eru aldrei dregnar í efa. Konumar em sérfræðingar í eigin málum, sem þarfnast tímabundið stuðnings til sjálfshjálpar og það era þær sem ráða ferðinni. Að losna úr ofbeldi er „ferli“ sem er einstakt fyrir hverja konu. Tilgangurinn er að konur finni eigin styrk til sjálfshjálpar og öðlist nýja fæmi til að takast á við lífið á uppbyggilegan hátt, án ofbeldis. Þegar Kvennaathvarfið tók til starfa fyrir 15 áram hafði ofbeldi á heimilum lítið verið rætt opinberlega hér á landi og fáir gerðu sér grein fyrir að um útbreitt samfélagsvanda- mál væri að ræða. Því miður er ekk- ert sem bendir til þess að ofbeldið sé að minnka, en það sem hefur áunnist er að viðhorf fólks hefur breyst og þeir era orðnir fáir sem segja: „slíkt gerist ekki hér“. Fræðsla og kynning er mjög mik- ilvægur þáttur í starfsemi Samtaka um kvennaathvarf. Markvisst hefur verið unnið að því að kynna starfs- hætti Kvennaathvarfsins fyrir ýms- um aðilum, er tengjast starfseminni með óbeinum hætti. Því betur sem aðilar þekkja starfshætti hver ann- ars því meiri líkur era á gagnkvæm- um skilningi, virðingu og trausti. Einnig hefur fræðsla farið út til hinna ýmsu hópa þjóðfélagsins en skólarnir hafa í auknum mæli beðið um fræðslu fyrir nemendur sína og þá sérstaklega í framhaldsskólum. Ennfremur hafa nemendur af hinum ýmsu skólastigum, sem era að vinna að verkefnum sem tengjast ofbeldi gegn konum og bömum, verið dug- legir að afla sér upplýsinga á skrif- stofu Samtaka um kvennaathvarf. Einnig hafa Samtökin reglubundið staðið fyrir námskeiðum fyrir hinar ýmsu starfsstéttir. Samtök um kvennaathvarf era með í undirbúningi fræðslu- og kynningarátak sem stefnt er að á næsta ári og verður væntanlega far- ið um land allt. Það hefur sýnt sig í gegnum árin að fræðsla og kynning er ómetanleg, hún skilar sér ekki að- eins til þeirra kvenna sem þurfa að leita til Kvennaathvarfsins heldur til almennings og það er hann sem er svo mikilvægur í allri umræðunni, því það er fyrst og fremst umræðan sem stuðlar að viðhorfsbreytingu. Höfundur er fræðslu- og kynning- iirfulltrúi Samtaka um kvennaat- hvarf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.