Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 60
,>50 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MINNIIVIGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Arnþór Angan-
týsson skóla-
stjóri var fæddur
að Selvík á Hauga-
nesi 8. nóvember
1949. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
föstudaginn 28.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar Arn-
þórs voru Dagmar
^ Þorvaldsdóttir frá
Gilsbakka á Ar-
skógssandi, f.
25.11.1916, d. 1972,
og Angantýr Elías
Jóhannsson frá Selá, f. 23.8.
1915, d. 1983. Systir Arnþórs
er Þóra, f. 4.3. 1939.
Arnþór og eftirlifandi kona
hans Kolbrún Ólafsdóttir, f. 28.
júní 1953, hófu sambúð 1972. Á
jóladag 1978 gengu þau í hjóna-
band. Þau eignuðust fjögur
börn. Þau eru: 1) Arnar Már,
f. 12. nóv. 1973. Hann er í sam-
búð með Ragnheiði Valdimars-
dóttur frá Dalvík og saman eiga
þau dótturina Onnu Rósu sem
fædd er 4. nóv. 1995. 2) Almar
Örn, f. 17. febrúar 1977. 3)
Dagmar Erla, f. 8. apríl 1983.
4) Edda Björg, f. 5. maí 1991.
Arnþór ólst upp hjá foreldrum
sínum í Selvík á Hauganesi. Frá
blautu barnsbeini stundaði
hann störf tengd
sjónum yfir sumar-
tímann allt fram að
1987. Hann lauk
skyldunámi í Ár-
skógarskóla og tók
gagnfræðapróf frá
Dalvíkurskóla 1966.
Um tíma vann á
skrifstofu hjá KEA.
Hann stundaði nám
við Samvinnuskól-
ann á Bifröst á ár-
unum 1970-1972 og
lauk þaðan sam-
vinnuskólaprófi.
1972-73 kenndi
hann við Árskógarskóla en
1973-5 var hann í námi við
framhaldsdeild Samvinnuskól-
ans í Reylgavík og lauk þaðan
stúdentsprófi. 1975 hóf hann
aftur störf við Árskógarskóla
og lauk kennaraprófi í fjarnámi
nokkru síðar. Arnþór varð
skólastjóri Árskógarskóla 1984
og var í því starfi til dauðadags
en skólaárið 1996-1997 var
hann í orlofi og stundaði nám
í gæðastjórnum við Rekstrar-
deild Háskólans á Akureyri.
Amþór gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir sveitunga sína
og stéttarfélög.
Útför Arnþórs verður gerð
frá Stærri-Árskógskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
„Undir lapaðan'si
syndir fiskurinn minn
ásamt fiskinum þínum.
Veiðitíminn er úti.“
(Ingi St.)
Þar sem veiðitíminn er nú úti
langar okkur veiðifélagana og
maka okkar að kveðja þig með
örfáum orðum. „Skjótt skipast veð-
ur í lofti,“ segir máltækið. í dag
eru nákvæmlega fjórir mánuðir síð-
an við fórum í síðasta og árangurs-
ríkasta veiðitúrinn okkar saman.
Þar varst þú aflaklóin og fjögurra
ára starfsþjálfun bar árangur.
Silfruðu vatnabúarnir urðu loksins
að lúta í lægra haldi. Við náðum
að gera það sem við höfðum svo
oft talað um í veiðifélaginu; að
vera allir saman og upplifa veiðiæs-
inginn og veiðigleðina í árangurs-
ríkri veiðiferð.
Okkur langar að þakka þér hve
þú gafst okkur mikla gleði og vin-
áttu og lagðir mikið af mörkum til
félagsskaparins okkar. Gilti þá einu
hvort við höfðum tjaldað í Siggu-
staðaskógi eða sátum yfir kræsing-
um á heimili einhverra okkar, hvort
við stóðum með stöng í hönd á
árbakkanum eða sungum við gítar-
leik og munnspil einhvers staðar
úti í náttúrunni. Alltaf varst þú
eins; gefandi, glaður og reifur með
hnittnar athugasemdir í réttum
takti við tilefnið. Fyrir það viljum
við þakka og allt annað.
Nú skiljast leiðir að sinni. Kollu
og öðrum ástvinum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum guð að gefa þeim styrk
í sorginni.
Blessuð sé minning þín, vinur.
Veiðifélagar og makar.
„Vel sé þér, vinur,
þótt vikirðu skjótt
Frónbúum frá
í fegri heima“...
Góður vinur og félagi er horfinn
á braut. Við munum sakna hans
sárt eins og fleiri. Honum hefur
verið ætlað hlutverk annars staðar.
Því verðum við að vera án hans
um stund en minningarnar um
góðan dreng og ánægjulegar sam-
verustundir tekur enginn frá okkur.
Arnþór eða Addi eins og hann
var oftast kallaður ólst upp og átti
heima lengst af í litlu sjávarþorpi,
Hauganesi, þar sem lífið snerist
löngum um saltfisk. Eins og aðrir
krakkar í plássinu byijaði hann í
línuvinnunni um leið og hann náði
upp fyrir stampbrúnina og fljótlega
eftir ferminguna fór hann á skakið
á sumrin með frændum sínum,
Kristjáni og Jóa, á Draupni EA 70.
Það var góður skóli í sjómennsku,
og vandvirkni og nákvæmni höfð
í fyrirrúmi. Seinna var hann með
mági sínum Árna Óla á trillunni
Trausta. í nokkur ár átti Arnþór
sjálfur trillu, Villa, sem hann nýtti
til færaveiða á sumrin þar til fyrir
u.þ.b. 10 árum.
Þegar Arnþór var á fímmta ári
tók faðir hans við stjórn útibús
KEA á Hauganesi. Það var reist á
móti æskuheimili hans, Selvík.
Ekki er ósennilegt að það hafi haft
áhrif á framhaldskólanám hans því
1972 lauk hann Samvinnuskóla-
prófi frá Bifröst. Eftir það kenndi
hann eitt ár við Árskógarskóla, en
fór síðan í nýstofnaða framhalds-
deild Samvinnuskólans í Reykjavík
og lauk þaðan stúdentsprófí 1975.
Að því loknu kom hann aftur til
starfa við Árskógarskóla og á
næstu árum lauk hann kennara-
prófi að mestu með fjarnámi. Hann
tók við skólastjórastarfi af undirrit-
uðum og var þar réttur maður á
réttum stað. Hann var farsæll,
vandvirkur og samviskusamur í
starfi. Ekki minnumst við hans
öðruvísi en í miklu jafnvægi og í
góðu skapi. Síðasta skólaár bjó
hann sig undir að mæta kröfum
tímans með því að fara í orlof og
stunda nám í gæðastjórnun við
Háskólann á Akureyri.
Arnþór var virkur félagi i Lions-
klúbbnum Hræreki og var bar í
t
Litli drengurinn okkar,
ARON ÖRN,
lést að morgni fimmtudagsins 4. desember.
Jóhann Örn Logason,
María Greta Einarsdóttir.
+ Móðir okkar,
ALFA HJALTALÍN,
Skarðshllð 10e,
Akureyri,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 4. desember. Börnin.
t
Elskuleg móðir mín, amma okkar og systir,
MARGRÉT HÓLMGEIRSDÓTTIR
frá Hellulandi,
Aðaldal,
Dyrhömrum 8,
Reykjavík,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 3. desember.
Karen Hólmgeirs Jóhannsdóttir,
Benedikt Rúnar, Margrét Rós,
Sara Jamí,
systkini hinnar látnu
og fjölskyldur þeirra.
“S
t
innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför föður okkar,
ÞORSTEINS STEFÁNSSONAR,
Ósi,
Skilmannahreppi.
Sérstakar þakkir til Guðlaugar Westmann fyrir
vináttu og umhyggju.
Stefán Jónas, Sigurður, Engilhert,
Helgi Ómar, Ólafur, Sigríður
og fjölskyldur.
ARNÞÓR
ANGANTÝSSON
stjóm oftar en einu sinni. Hann var
endurskoðandi hreppsreikninga í
fjölda ára, varamaður í hrepps-
nefnd í nokkur ár og í stjórn síns
stéttarfélags í Norðurlandi eystra
urn^ skeið.
Á meðan Arnþór var við nám í
Bifröst kynntist hann verðandi eig-
inkonu sinni Kolbrúnu Ólafsdóttur.
Þau hófu sambúð 1972 og fljótlega
eftir að Arnþór kom alfarið til
starfa við Árskógarskóla byggðu
þau sér framtíðarheimili að Klapp-
arstíg 13 á Hauganesi þar sem þau
bjuggu lengst af. Þau giftu sig á
jólum 1978. Þau voru samrýnd og
samhent og þau var gott heim að
sækja. Arnþór hafði yndi af því sem
hann var að gera hveiju sinni, hvort
sem um var að ræða leik eða starf.
Hann var vinmargur og kom sér
alls staðar vel með glaðlyndi, nett-
um húmor og góðum ráðum.
Fjölskyldan ferðaðist mikið yfir
sumarið á ferðabílnum og var þá
oft glatt á hjalla bæði á vegum úti
og í náttstað, t.d. þegar munnspilið
var dregið fram. Ekki var Arnþór
síðri þegar við veiðifélagamir og
makar komum saman til að und-
irbúa glímuna við konung breið-
unnar með hátíðahöldum að vetri,
og síðan í hópi veiðifélaganna á
árbakkanum að sumri. Það var
dýrmætt að fá að kynnast Arnþóri
og eiga hann að vini.
Að leiðarlokum langar okkur
hjón að þakka áratuga samvinnu
og vináttu til sjós og lands, í leik
og starfi. Far þú í friði, vinur, og
hafðu þökk fyrir allt. Við biðjum
guð að blessa og styrkja Kollu og
aðra ástvini og gefa þeim styrk í
sorginni.
... „Ljós var leið þín
og lífsfögnuður;
æðra eilífan
þú öðlast nú.“
(Jónas Hallgrimsson.)
Blessuð sé minning Arnþórs
Angantýssonar.
Rósbjörg og Birgir.
Okkur langar í örfáum orðum
að minnast félaga okkar Arnþórs
Angantýssonar skólastjóra, sem
fallinn er frá langt um aldur fram.
Starfsvettvangur hans var Árskóg-
arskóli í Eyjafírði. Hann var starfs-
samur og hafði lifandi áhuga á
vinnu sinni og fjölmörgum hugðar-
efnum sínum.
Fyrir starfsfélaga hans og vini
til margra ára er margs að minn-
ast og sakna. Hann bar með sér
góðan þokka sem laðaði fólk að
honum, þannig að það treysti hon-
um til að leiða bæði samstarf og
leik. Arnþór bar ætíð hag skólans
fyrir bijósti og rækti starf sitt af
mikilli trúmennsku. Virðing hans
fyrir samstarfsfólki og nemendum
var ómetanleg. Glaðværð, lipurð
og lagni einkenndu hann og þannig
leiddi hann mál til lykta að allir
urðu sáttir. Með honum var Ijúft
að starfa og við sem höfum starfað
með honum til fjölda ára minnumst
hans sem okkar yfirmanns, en ekki
síður sem samstarfsmanns, félaga
og vinar.
Orð mega sín lítils á stundu sem
þessari. Harmafregnin er komin og
komið er að kveðjustund.
Við sendum innilegar samúðar-
kveðjur til allrar fjölskyldu hans.
Samstarfsfólk við
Árskógarskóla.
í minningu bekkjarbróður
„Tíminn sem var er nú minning.
Þess tíma sem var nú minnst er
með gleði. Tíminn sem var kemur
ekki aftur. Seinna átti að vera
meiri tími en enginn hafði þann
tíma. Hvers vegna? Samt er tími
hvers dags jafn langur og þá. Minn-
ingin um tímann sem var mun allt-
af lifa. Með þökk í huga fyrir tím-
ann sem var.“ (María J. Einarsd.)
Við erum í blóma lífsins. Við
erum að heíja nám í Samvinnuskól-
anum að Bifröst haustið 1970. Við
erum 40 ungmenni sem hittumst
þarna i fyrsta sinn og komum viðs
veerar að af landinu. Á Bifröst
myndast sterk tengsl milli nem-
enda, ekki síst vegna þess að á
þessum árum var einungis farið
burt af staðnum um stórhátíðar og
við urðum eins og stór fjölskylda.
Að námi loknu dreifðumst við aftur
um landið en tengslin héldust. Við
hófum lífsbaráttuna, vinnan kallar
- börnin fæðast og tíminn líður.
Við erum ung og hittumst öðru
hveiju. Þess á milli teljum við okk-
ur vita hvert af öðru og allt gengur
vel hjá öllum. Allt í einu hriktir í
þessari áhyggjulausu vitneskju um
að allt gangi vel hjá öllum. í lok
ágúst fáum við þær fréttir að hann
Addi okkar hafí fengið krabbamein
í nýra og gengist undir aðgerð en
læknarnir eru bjartsýnir. Bjartsýn-
ir? Gott - við erum það líka því
við erum jú í blóma lífsins. Aðeins
þremur mánuðum síðar er öllu lok-
ið og við skiljum ekki hvernig þetta
getur gerst, við sem erum enn svo
ung. Allt leit svo vel út og allir
voru bjartsýnir. Við getum ekki
áfellst læknana en við erum sár út
í almættið fyrir að taka hann frá
okkur svona ungan.
Oft er talað um að í lífsbarátt-
unni gleymum við þeim sem næst
okkur standa og því sem máli skipt-
ir. Það verður ekki sagt um hann
Adda okkar. Hann mundi vel eftir
að rækta sína fjölskyldu og sjálfan
sig. Hann hefur verið einna ötulast-
ur okkar við að bæta við þekkingu
sína. Hann fór í framhaldsdeild
Samvinnuskólans og tók síðan
Kennaraháskólann utanskóla til að
öðlast þau réttindi og nú síðastlið-
inn vetur var hann í háskólanum á
Akureyri.
Hans aðalstarf hefur verið
kennsla og síðan skólastjórn í
heimabyggð sinni á Árskógsströnd,
auk þess að aðstoða hana Kollu
sína við hennar fyrirtæki. Þau hafa
staðið þétt saman í starfi og leik
ásamt börnunum sínum fjórum.
Og í þeirra myndarlegu fjölskyldu
er komin lítil afastelpa.
Við erum kannski ekki lengur
svo ung. Gráum hárum hefur að-
eins fjölgað og kollvik hækkað og
afa- og ömmutitlarnir hafa sest á
suma. Við verðum að reyna að
sætta okkur við að almættinu hafi
legið svona mikið á að fá hann
Adda okkar til æðri starfa. Og
kannski skiljum við líka að hann
hafi verið talinn hæfastur okkar til
þess.
Elsku Kolla, þú ert ung og sterk
og áfram standið þið þétt saman,
þú og börnin ykkar og við stöndum
með ykkur.
Við eigum öll góðar minningar
um þennan hægláta og ljúfa bekkj-
arbróður og biðjum Guð að blessa
hann og leiða á ljóssins vegum.
Fyrir hönd bekkjarsystkina,
Sigurlaug Halldórsdóttir.
Úr djúpura geimsins
er dagurinn risinn og slær
dýrlegum roða
á óttuhimininn bláan,
- og lof sé þér, blessaða líf,
og þér, himneska sól,
og lof sé þér, elskaða jörð,
að ég fékk að sjá hann.
(Guðm. Böðvarsson)
Með þessum fátæklegu orðum
og fáu línum langar okkur að
kveðja Arnþór vin okkar og starfs-
félaga. En á milli orðanna og á
milli línanna er miklu, miklu meira
sem hvert okkar vildi segja og gera.
Öll áttum við gott og mikið sam-
starf við Adda sem ávallt var reiðu-
búinn þegar eftir því var kallað.
Við söknum góðs vinar og vonum
að minningin um hann hjálpi okkur
að vinna með sorgina og söknuðinn
„og lof sé þér elskaða jörð, að ég
fékk að sjá hann“.
Kolbrúnu og börnum þeirra, svo
og ættingjum og vinum sendum
við samúðarkveðjur og óskum þess
að guð ykkar megi styrkja og
hjálpa ykkur.
Kveðja frá skólastjórum
við utanverðan Eyjafjörð
og Félagi skólastjóra á
Norðurlandi eystra
ÍFSNEl.