Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
s
I
*
1
I
]
I
I
I
5
1
i
]
c
c
8
c
c
c
c
c
i
c
-f
________MINNINGAR
JÓNAS
GUÐVARÐARSON
+ Jónas Guðvarð-
arson fæddist á
Sauðárkróki 17.
október 1932. Hann
andaðist á Landspít-
alanum 29. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðvarður
Steinsson, bQstjóri,
vélstjóri og síðar
bóndi á Selá og Kleif
á Skaga, og kona
hans Bentína Þor-
kelsdóttir, ættuð úr
Reykjavík.
Jónas kvæntist 5.
desember 1953 Hall-
dóru Guðmundsdóttur, farar-
stjóri og húsmóðir, f. 8. mars
1933 í Reykjavík. Foreldrar henn-
ar eru Jakobína Grímsdóttir, veit-
ingamaður í Reykjavík, og Guð-
mundur Kristinn sjómaður og síð-
ar húsvörður í Landsbankanum
í Reykjavík. Jónas og Halldóra
eignuðust þijú börn, þau eru:
Björg, flugfreyja, f. 21.5. 1952,
og hún tvær dætur. Bergur Grím-
Enn hefur dauðans armur
ætt minni slegið sár,
særir því hjartað harmur,
hm'ga af aupm tár.
(Kristján Jónsson)
Elskulegur bróðir minn, Jónas, hef-
ur fengið lausn frá þrautum þeim sem
hijáði hann síðastliðin þijú ár. Jónas
var mér meira en bróðir því þegar
hann fæddist sló ég eign minni á
hann, þess vegna fannst mér hann
vera mitt bam. Árið 1947 kom hann
til mín og fór ekki frá mér fyrr en
hann stofnaði sitt eigið heimili. Á
meðan hann var í Flensborg fékk
hann mikla löngun til að mála. Aldrei
gleymi ég þeirri gleði þegar hann gaf
mér fyrstu myndina sem hann mál-
aði, og seinna urðu þær fleiri. Hann
sýndi mér þakklæti sitt í svo mörgu,
hann bauð mér í mína fyrstu ferð til
Spánar og mörg falleg bréf fékk ég
frá honum á meðan hann var við
myndlistamám í Barcelona á Spáni.
Oft kom ég til þeirra hjóna á
þeirra fallega heimili í Stekkjarkinn
17 og í fallega garðinn þeirra sem
var þeim til sóma enda fengu þau
verðlaun fyrir hann, og voru þau
sammála um að fegra allt í kringum
sig, því þau voru miklir fagurkerar,
og eiga Dóra og bömin þeirra marg-
ar fagrar minningar frá þeim árum.
Ég bið Guð að styrkja þau í þeirra
miklu sorg að sjá á eftir góðum eig-
inmanni og föður.
„Vinátta er eitt af því fallegasta
sem þú getur eignast og eitt af því
besta sem þú getur orðið. Vinur er
lifandi fjársjóður og ef þú átt einn
slíkan, þá átt þú eina verðmætustu
og gjöf lífsins. Vinur er sá sem
stendur alltaf við hlið þér gegnum
gleði þína og sorgir. Vinur er sá sem
þú getur alltaf treyst á, sá sem þú
getur alltaf opnað þig fyrir, sú dá-
samlegasta persóna, sem alltaf trúir
á þig á sinn einstæða hátt. Vinuer
er sem heilagur, vinur er sem bros.
Vinur er hönd sem heldur í þína,
sama hvar þú ert, sama hve langt
eða stutt er á milli ykkar. Vinuer
er sá sem er alltaf til staðar og sýn-
ir þér - alltaf umhyggju. Vinur er
tilfínning um eilífa tryggð. Vinur eru
þær dyr sem alltaf standa þér opn-
ar. Vinur er sá sem þú getur gefið
lykilinn þinn. Vinur er það besta sem
þú getur eignast og það besta sem
þú getur orðið.“ (Höf. ók.)
Halldóra systir.
Fyrsta æskuminning mín, þá fjög-
urra ára gutti, var þegar þau giftu
sig, Dóra systir mín og Jónas Guð-
varðarson. Ég man líka að það var
hellirigning og ég fékk að fara með
í ieigubílnum frá prestinum. Þá vann
Jónas á Keflavíkurflugvelli, hjá Kan-
anum og kom stundum heim með
amerísk hasarblöð sem þá voru fátíð.
Þá varð maður vinsælastur í hverf-
inu. Hann málaði líka fyrir lítinn mág
á skjöldinn og sverðið áður en haldið
ur, innanhússarki-
tekt í Palm Desert í
Kalifomíu, f. 6.4.
1954, kona hans er
Janes Linn Spry, og
eiga þau tvo syni.
Jónas Bragi, gler-
listamaður, f. 12.10.
1964, kona hans er
Catherina Margaret
Dodd og eiga þau tvo
syni.
Jónas varð gagn-
fræðingur árið 1949
frá Flensborg, lauk
meiraprófi bílsljóra
1957, var við mynd-
listamám í Myndlist-
arskóla Reykjavíkur 1963-1968
og Escuela massana í Barcelona
1968-1969. Hann var skrifstofu-
stjóri hjá Sölunefnd vamarliðsins
1964-1968, fararstjóri á Mallorca
hjá Sunnu 1969-1971 og hjá Úr-
val 1971-1977 jafnframt farar-
stjóri hjá Flugfélagi íslands og
síðan Flugleiðum til 1978. Út-
för Jónasar hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
var til orustu á Klambratúni, beina-
grind á grímubúninginn og ótal
margt fleira sem litlum gutta var
nauðsyn í þá tíð og enginn var pabb-
inn tiltækur til að framkvæma svona
bráðnauðsynlega hluti. Brátt fæddust
bömin þeirra sem voru mér líkt og
yngri systkini og öll bjuggum við
undir sama þaki á Háteigsveginum.
Átta manns í þriggja herbergja íbúð.
Jónas og Dóra hófu brátt að
byggja sér hús í Hafnarfírði. Stein
fyrir stein var hlaðið hús og tók
mörg ár. Unninn fullur langur vinnu-
dagur og síðan byggt á kvöldin og
um helgar. Allt lék þetta í höndunm
hans. Hvert verk var hugsað til enda
áður en hafist var handa. Húsið í
Stekkjarkinn 17 var að öllu leyti
þeirra verk frá fyrstu teikningu til
síðustu pensilstroku og bar höfund-
um sínum fagurt vitni. Smám saman
rýmkaðist um þröngan fjárhag og
Jónasi voru falin betur launuð störf.
Ég minnist hans sem skrifstofu-
manns hjá heildsölu á gömlum blöðr-
uskóda og skrifstofustjóra hjá Sölu-
nefndinni á flottri amerískri drossíu.
En í Jónasi sló hjarta listamanns.
Með daglegu amstri hversdagsins
málaði hann og teiknaði í fátíðum
frístundum, var í Handíða- og mynd-
listarskólanum, fór á söfn og mynd-
listarsýningar, var frístundamálari
með drauma. Sýndi stundum með í
samsýningum og þótti efnilegur.
Það var svo árið 1968 að traustu
og vellaunuðu starfi var sagt upp.
Húsið góða leigt og Jónas og Dóra
fluttu til Spánar með börnin sín þijú,
Björgu, Birgi Grím og Jónas Braga.
Barcelona var fyrsti áfangastaður,
virtur listaskólinn tekinn með
trompi. Síðan fluttu þau sig um set
til Palma á Mallorca. Þar var annar
skóli stundaður af engu minni ákefð.
Jónas málaði og sköpunargleðin
blómstraði, lífsins var notið með
jafningjum, sýningar með frægum
málurum víðsvegar um Spán og lof-
samlegir dómar. Eiginkonan prútt-
aði á útimörkuðum um verð á lif-
andi hænsfugli, fersku grænmeti eða
öðrum varningi sem síðan endaði í
pottunum hjá fjölskyldunni í litlu
íbúðinni fyrir ofan bílaþvottastöðina
í hjarta Palmaborgar.
Þetta voru dýrðardagar, lifað var
að hætti innfæddra og sól skein í
heiði og rautt var í glasinu. Þá voru
íslenskar ferðaskrifstofur nýfarnar
að fara með skipulagðar hópferðir
til Mallorca. Þeim hjónum voru strax
falin störf við fararstjórn og næstu
sumur fóru í ótrúlegt amstur í þjón-
ustu þúsunda íslenskra sólarlandaf-
ara. Lítill frítími gafst til listsköpun-
ar þau sumur en spánskir vetrardag-
ar þess betur nýttir. Börnin uxu úr
grasi og ákvörðun var tekin um að
halda heim. Spánn var kvaddur með
söknuði eftir nokkurra ára samfellda
dvöl og haldið heim í rigninguna.
Fyrsta verk eftir heimkomuna var
að sýna afrakstur Spánardvalar.
Þvílík sýning! Biðröð var eftir því
að fá að kaupa myndir og nær öll
verkin í Bogasal Þjóðminjasafnsins
seldust á augabragði. Gagnrýnendur
þóttust skynja ferskan tón í verkum
Jónasar. í nokkur ár eftir heimkom-
una starfaði hann eingöngu við list-
sköpun og fararstjórn. Hélt nokkrar
sýningar, gekk vel og lifði á list sinni.
Svo tóku við önnur störf með mynd-
listinni, en minningar Spánaráranna
yljuðu á dimmum slagveðursdögum
á íslandi og gerðu tilveruna stundum
léttbærari. Börnum sínum og vinum
var hann dijúgur er þau hófu sinn
búskap, og var oft ótrúlegt að sjá
hvað hann gat skapað mikið úr litl-
um efnum.
Hann var einfari seinni árin, vann
mest einn að list sinni og hugðarefn-
um, blandaði lítt geði við aðra lista-
menn en gat verið hrókur alls fagn-
aðar á góðri stundu. Eftir hann
liggja ótal listaverk og skreytingar
um allt land og engin tala er yfir
verk hans í útlöndum. Fyrir um fímm
árum greindist hann með krabba-
mein. Tóku þau hjónin þeim tíðind-
um með æðruleysi og höfðu á tíma-
bili nokkra von um bata. Þegar ljóst
var að tíminn var að að renna út,
undirbjó hann dauða sinn af sömu
vandvirkni og önnur verk, baðst
undan frekari læknishjálp og kvaddi
með reisn þetta líf með eiginkonu
og fjölskyldu sér við hlið.
Hans verður sárt saknað en verk
hans munu halda minningunni á loft
um ókomin ár.
Kæri mágur, hafðu þökk fyrir
samfylgdina.
Bragi Guðmundsson.
Elsku pabbi minn, þessir síðustu
dagar hafa verið eiifiðir. Nýlega
kvöddum við Hiddý vinkonu okkar
og nú kveð ég þig með trega í hjarta.
Það er sárt að uppgötva þá stað-
reynd að fá ekki oftar að snerta
þig, heldur bara að finna fyrir ná-
vist þinni í hjarta mínu. Allt í kring
er minningin um þig, þú varst ótrú-
legur maður, pabbi minn.
Við áttum samfylgd í 45 ár, við-
burðarík ár, og minnist ég þess að
sjaldan hafir þú setið auðum höndum
bróðurpartinn af þeim tíma. Þú varst
listamaður af Guðs náð og handlag-
inn með eindæmum. Ég mun aldrei
gleyma dúkkurúminu sem þú smíð-
aðir handa mér eða tveggja hæða
bensínstöðinni sem Birgir bróðir
fékk ein jólin þegar við vorum lítil.
Peningar voru af skornum skammti
þá sem ekki kom að sök hjá okkur
því alltvarð að listaverki í höndunum
á þér. í dag er gjarnan haft að orði
að öll þau þúsund viðvik sem þú
hefur gert á heimili mlnu séu ekki
bara snilld heldur „kjarnorkuheld“.
Æskuheimili okkar í Stekkjarkinn
17 bar handverki þínu glöggt vitni.
Til að geta klárað húsið réð mamma
sig sem ráðskona í sveit með tvo
gemlinga. Þú hins vegar lifðir á rúg-
brauði og skyri í Firðinum, og heima-
smfðaðir heilt hús, vers go!
Eftir tíu ára búsetu í Hafnarfírði
og fyrstu einkamálverkasýningu þína
í Bogasalnum var ákveðið að salta
Frón í bili, halda til Spánar í mynd-
listarnám í Escuela Masana í Barcel-
ona, 16 ára stúlkan var ekki ánægð
með hugmyndina, en var dregin með
þrátt fyrir kröftug mótmæli sín. Það
var upphaf að stórfelldu lífsævintýri
fyrir okkur öll, ekki síst fyrir ungling-
inn með fylusvipinn. Árin okkar í
Barcelona og síðar á Mallorca í frum-
bemsku íslensku „sólarferðanna" eru
mér ógleymanleg.
En eggið fór frá hænunni og upp-
lifði misjafna daga. Alltaf varst þú
samvinnuþýður og sýndir skilning,
sama hvað eggið tók sér fyrir hend-
ur. Um þetta leyti átti listagyðjan
hug þinn allan og þá naust þú þín
og hélst málverkasýningar hér heima
og á Spáni. Síðan tóku við árin í
Uthlíðinni, bamabörnin og brauðst-
ritið. Alltaf þótti stelpunum mínum
gott að vera hjá þeim gömlu í Út-
hlíð. Þú varst þeim ávallt traustur
og góður afi. En krabbameinið lætur
ekki að sér hæða, það hefur nú lagt
þig að velli eftir tveggja ára stríð.
Ég kveð þig með þakklæti og
söknuð í hjarta en veit að hvíldin
er þér kærkomin.
Far þú í guðs friði.
Þín,
Björg.
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 61~*
Faxafeni 5 - Sími 533 2323
to!vukjor@itn.is
Trust
TOLVUBUNAÐUR
Irust Intel Pentium 166 MMX
Abit TX móðurborð - 32 Mb EDO minni - 512 Kb skyndiminni
4,3 Gb Quantum harður diskur - 2 Mb S3 Trio 64 V2 skjákort
24 x Toshiba geisladrif - Trust Soundwave 300W 3D hátalarar
15" Trust Precision Viewer skjár - 33.600 Baud utanáliggjandi mótald
Trust Intel Pentium 200 MMX
Abit TX móðurborð - 32 Mb ED0 minni - 512 Kb skyndiminni
6,4 Gb IBM Deskstar UDMA diskur - 2 Mb S3 Trio 64 V2 skjákort /
24 x Toshiba geisladrif - Trust Soundwave 300W 3D hátalarar
15" Trust Precision Viewer skjár - 33.600 Baud utanáliggjandi mótald
Það nýjasta og flottasta á
heimabíómarkaðjoum
a. .
Tá Creative Labs
Með DVD-drifinu getur þú horft á kvikmyndir i tölvunni þinni í ótrúlegum gsðum, spilað
nýjustu leikina á svo raunverulegan hátt að hárin rísa og svo getur þú tengt tækið við
sjónvarpið og þá ertu kominn með þitt eigið kvikmyndahús!
Þú finnur kraftinn i leikjunum með þessum pinna því hann
tekur verulega í þegar mikið gengur á!
Allir viðskiptavinir
fá frábæran jólageisladisk með Sixties
í kaupbæti sé keypt fyrir meira en kr. 1.000,
Internet Kit fylgir öllum
tölvum og prenturum
.Tölvukjör
ÍOlVUr
verslun
heimilanna