Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 62
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Ástkær vinkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÁSTHILDUR PÉTURSDÓTTIR, Melabraut 50, Seltjarnarnesi, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu- daginn 4. desember. Ásgeir Nikulásson, Björgvin Pálsson, Sigrún Stella Karlsdóttir, Margrét Pálsdóttir, Júlía Björgvinsdóttir, Elísabet Björgvinsdóttir, Páll Bergmann, Sverrir Egill Bergmann, Ásthildur Björgvinsdóttir, Stefanía Björgvinsdóttir, Sara Margrét Bergmann. t Ástkær eiginmaður minn, JÓNAS GUÐMUNDSSON, Sléttuvegi 13, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 9. desember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Jóhannsdóttir. t Innilegar bakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður afa og langafa, KRISTJÁNS KARLS HANNESSONAR fyrrv. bónda á Kollsá. Ingiríður Daníelsdóttir, Erla Karlsdóttir, Ásdís J. Karlsdóttir, Steinar T. Karlsson, Margrét H. Karlsdóttir, Daníel Karlsson, Indriði Karlsson, Sveinn Karlsson, Sigurhans Karlsson, Karl Ingi Karlsson, Sigurður Þórólfsson, Eiríkur Bjarnason, Björk Magnúsdóttir, Sigurður Þórðarson, Helga Stefánsdóttir, Herdís Einarsdóttir, Guðný Þorsteinsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Steinunn Matthíasdóttir og fjölskyldur. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNASAR GUÐVARÐSSONAR, Úthlíð 8, Reykjavík. Sérstakar þakkirtil starfsfólks Landspítalans á 12G og gjörgæsludeildar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeir, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag fslands. Halldóra Guðmundsdóttir, Björg Jónasdóttir, Birgir Grímur Jónasson, Janet Spry, Jónas Bragi Jónasson, Catherine Dodd og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SELMU ÁSMUNDSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Eir. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð, suður- gangi, á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða Halldór Á. Árnason, Þórarinn Arnórsson, Sjöfn Arnórnsdóttir, Dúna Halldórsdóttir, Nína Brá Þórarinsdóttir, fris Hrund Þórarinsdóttir, Marion Arnórsson, Rannveig Þorvarðardóttir, Kristinn Bergsson, Úlfur R. Halldórsson, Styrmir Snær Þórarinsson, Arnór Bergur Kristinsson, Kristinn Kriistinsson. ELISABET GUÐRUN GUÐMUNDSDÓTTIR + Elísabet Guðrún Guð- mundsdóttir fæddist í Engi- hlíð í Langadal 11. júni 1902. Hún lést 22. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Stefánsdóttir og Guð- mundur Einarsson er bjuggu þar. Systkini hennar voru: Vil- borg, síðar húsfreyja á Miðgili í sömu sveit. Sigurður Einar, barnakennari og Jakobína Sig- rún. Elísabet var yngst þeirra. Utför Elísabetar Guðrúnar fór fram frá Blönduóskirkju 28. nóvember. Afmælis- o g minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálk- sentimetrar í blaðinu). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þijú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í text- amenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í sím- bréfi - 569 1115 - og í tölvu- pósti (minning@mbl.is). Vin- samlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Ég get ekki stillt mig um að reyna að minnast í nokkrum orðum frænku minnar, Betu. Svo lengi höfum við átt samleið, allt frá æskuárum mínum og til hennar hinsta dags svo að segja. Beta var móðursystir mín og átti heima á næsta bæ við foreldra mína og var mikill samgangur á milli bæjanna. Hún ólst upp með foreldrum sínum og systkinum, þeim Sigurði og Jakobínu, en Vil- borg giftist Árna föður mínum og fluttist að Miðgili. Þær systur Jak- obína og Elísabet stunduðu báðar nám í Húsmæðraskólanum á Blönduósi á sínum yngri árum, einnig lærðu þær saumaskap í Reykjavík, enda voru þær systur allar mjög hagar í höndunum, man ég að þær kunnu bæði að knipla og baldíra, sem var þó ekki á allra færi. Sigurður fór til mennta á Akur- eyri, og varð síðan um mörg ár barnakennari sveitarinnar og sveitanna í kring og var af öllum talinn mikill afbragðsmaður og ein- hver sá besti kennari sem þekkt- ist. Faðir þeirra, Guðmundur afi, lést um aldur fram eftir erfið veik- indi. Hann var smiður góður bæði á tré og járn. Eftir lát afa bjó amma með börnum sínum þremur í Engihlíð. Sigurður lést um fimm- tugsaldurinn og eftir það bjuggu mæðgurnar áfram. Amma tók til fósturs ungan dreng, Ástvald Kristófersson, mik- inn efnispilt, og ólst hann upp í Engihlíð og var þeim mikil stoð í uppvextinum. Hann var oft leik- bróðir okkar systranna og öllum þótti vænt um Adda á báðum heim- ilunum. Hann fór svo ungur menntaveginn og býr nú á Seyðis- firði ásamt fjölskyldu sinni. Eftir lát ömmu voru þær orðnar einar eftir á heimilinu, Bína og Beta, en þær bjuggu samt ótrauð- ar áfram og gengu í öll verk jafnt úti sem inni, en oft höfðu þær þó ráðsmann tíma og tíma til hjálpar. Síðast og lengst var hjá þeim Helgi Jónsson frá Sauðanesi, sérstaklega vandaður og dyggur maður. Þær systur giftust ekki og áttu engin börn, en við, dætur Villu systur þeirra, vorum þeim sem þeirra börn, og alltaf var jafngott að koma til þeirra. Þær kölluðu okkur alltaf litlu stúlkurnar á Miðgili, og oft var kátt á hjalla hjá þeim, einkum á jólunum, því þá skiptust heimilin á heimsóknum og var þá mikið spilað og spjallað. Árið 1964 brugðu þær búi og fluttu niður á Ós, eins og kallað var, enda voru húsakynni { Engi- hlíð þá orðin mjög léleg. Keyptu þær lítið hús á Blönduósi, Lindar- brekku, og héldust ávallt í hendur og hjálpuðust að enda mjög sam- rýndar, þó ólíkar væru að ýmsu leyti. Unnu þær aðallega að handa- vinnu fyrir fólk, enda völundar í höndunum og jafnvígar á prjón, hekl og saumaskap. Einnig lásu þær mikið og voru fróðar um margt. En heilsu þeirra var orðið þannig háttað að þær áttu erfitt með alla aðdrætti og útréttingar og tók ég að mér að létta undir með þeim á því sviði. Kom ég því mjög oft í Lindarbrekku og átti með þeim margar góðar stundir. Bína mín lést árið 1980 og eftir það bjó Beta ein í húsinu sínu í mörg ár, meðan heilsa og kraftar leyfðu. En þar kom að hún varð að gefast upp og flutti þá á Elli- deild Héraðshælis Húnvetninga. Þar undi hún hag sínum vel, aðal- lega við lestur og að hlusta á út- varp. Sjónin bagaði hana þó mjög hin síðari ár. Hennar mesta yndi var þó ef góðir kunningjar litu inn til hennar til að spjalla, því andlegu þreki hélt hún til hins síðasta, mátti heita. Rifjaði hún þá oft upp gamla daga og sagði mér sögur af dýrunum sínum, sem voru henn- ar bestu vinir. Söng og músík unni hún mjög, einkum þótti henni gam- an að hlusta á harmóníku og orgel- spil, enda spilaði hún nokkuð á hvort tveggja á yngri árum. Oft hafði hún yfir vísur og kveðskap sem lék henni létt á tungu. Minnis- stæð varð mér vísa sem hún gerði þá komin langt yfir níræðisaldur- inn. Hún átti vel við aðstæður og er svona: Ellin skerðir, orkan dvín unga herðir svitinn. Spari-ferðafötin mín fara að verða slitin. Ég veit að hún myndi vilja þakka vinum sínum og samferðafólki margar gleðistundir og vináttu, og sérstaklega þökkum við báðar starfsfólki Héraðshælisins langa og góða þjónustu og hjálp. Svo þakka ég þér, elsku Beta mín, fyrir allt og mæli ég þar fýr- ir munn okkar systra allra. Vertu guði falin að eilífu. Þín frænka, Anna Árnadóttir. SVERRIR JÓNSSON + Sverrir Jóns- son fæddist í Óspaksstaðaseli í Húnavatnssýslu 6. desember 1937. Hann lést 15. októ- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Húsavíkur- kirkju 25. október. Okkur setti hljóð þegar dyrabjallan hringdi laust fyrir miðnættið og fýrir utan dyrnar stóð séra Pálmi, með þær sorgarfréttir að Sverrir bróðir væri dáinn. Þegar ég sest niður til að skrifa nokkur kveðjuorð, streyma minningarnar fram í hugann ogerfitt er að brjót- ast út úr þeim. Ég sem ætlaði að skreppa norður til Húsavíkur og gleðjast með honum og fjölskyldu hans á afmælisdegi hans 6. desem- ber. 60 ár. Það voru líka síðustu orðin milli okkar þegar Sverrir kom við hjá mér síðast í septem- ber. Sjáumst 6. des. nema verði stórhríð. Kæri bróðir, saman munum við öll minn- ast þín í kærleika og þökk. Ég reið um sumaraftan einn á eyðilegri heiði. Þá styttist leiðin löng og ströng, því ljúfan heyrði eg svanasöng, já, svanasöng á heiði. Á fjöllum roði fagur skein. Og fjær og nær úr geimi að eyrum bar sem englahljóm í einverunnar helgidóm þann svanasöng á heiði. Svo undurblítt ég aldrei hef af ómi töfrazt neinum. I vökudraum ég veg minn reið og vissi ei, hvernig tíminn leið við svanasöng á heiði. (Steingn'mur Thorsteinsson.) Kveðja. Þín systir, Jóhanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.