Morgunblaðið - 06.12.1997, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 65
I
I
I
)
i
I
i
3
1
i
3
j
i
j
R
1
I
3
I
1
ð
FRÉTTIR
Þingeyri
Ný íþróttamiðstöð vígð
Hátíð í Kjama
í Mosfellsbæ
MOSFELLINGAR halda í dag
daginn hátíðlegan í Kjarna í Mos-
fellsbæ, með samfelldri lista- og
menningardagskrá frá kl. 11 til
kl. 17.
Dagskrá hátíðarinnar er eftir-
farandi: Kl. 11 leikur lúðrasveit,
kl. 13 syngur Álafosskórinn, tísku-
sýning er kl. 13.30 og að því loknu
syngur Diddú af nýju plötu sinni
kl. 14. Steinunn Sigurðardóttir les
úr bók sinni, HANAMI, kl. 14.30,
Bubbi syngur lög af plötu sinni,
Trúir þú á engla, kl. 15, Fjögur
K. leika kl. 15.30, Reykjalundar-
kórinn syngur kl. 16 og kl. 16.15
verður haldin tiskusýning.
Eyvindur Pétur Eiríksson
kynnir bók sína Landið handan
fjarskans sem fékk bókmennta-
verðlaun Laxness árið 1997 og
einnig verða tvær listakonur frá
Heildversluninni LÍN með sýni-
kennslu í skreytingagerð.
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ Þingeyringa
verður vígð laugardaginn 6.
desember við hátíðlega athöfn í
húsinu og hefst athöfnin kl. 14.
Við sama tækifæri verður þess
minnst að Grunnskóli Þingeyringa
fagnar aldarafmæli á þessu ári og
Tónlistarskóli Þingeyringa er tíu
ára.
Salur íþróttamiðstöðvarinnar
miðast við stærð körfuboltavallar
eða 14x26 m og er salargólfið
20x30 m. Til viðbótar allri íþrótta-
starfsemi er salurinn einnig ætlað-
ur til samkomuhalds auk tónlistar-
flutnings og hverskyns sýninga.
Einnig er mögulegt að gestir á
tjaldsvæðinu geti fengið hann til
afnota. Allt var þetta haft til hlið-
sjónar við hönnun salarins, einkum
í efnisvali og hljómburði. Hægt er
að draga út áhorfendapalla í saln-
um eftir þörfum og gert er ráð
fyrir að hægt verði að skipta saln-
um í tvær einingar.
Sundlaugin var tekin í notkun
áður en salurinn komst í gagnið,
eða 27. maí 1995. Hún er
8,2x16,67 m að stærð en sjálfur
sundlaugarsalurinn er 12x21 m.
Sundlaugin er léttbyggð og klædd
plastdúki. Botnplatan er staðsteypt
og á hana eru reistar stálhliðar.
Fyllt er að lauginni með malarfyll-
ingu. Salargólfið er klætt gang-
stéttarhellum en undir þeim eru
hitalagnir. í laugarsalnum er heit-
ur pottur og í framtíðinni er gert
ráð fyrir því að salurinn opnist út
á afgirt, sólríkt og skjólgott útivist-
arsvæði.
Jólahlutavelta
Sjálfsbjargar
SJÁLFSBJÖRG félag fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12,
verður með jólahlutaveltu, lukku-
pakka- og kaffisölu laugardag og
sunnudag 6.-7. desember kl. 14 í
félagsheimilinu Hátúni 12.
Allur ágóði rennur til málefna
fatlaðra og uppbyggingar á félags-
starfi fatlaðra.
Allir velkomnir.
—---♦ » ♦----
Bann við jarð-
sprengjum
Island styður
samninginn
RÁÐUNEYTISSTJÓRI utanríkis-
ráðuneytisins, Helgi Ágústsson,
undirritaði á fímmtudag alþjóða-
samning um bann gegn notkun,
geymslu, framleiðslu og flutningi
á jarðsprengjum sem beint er gegn
fólki og um eyðileggingu þeirra.
Undirritunin fór fram á alþjóða-
ráðstefnu í Ottawa þar sem eru
saman komnir fulltrúar 125 ríkja
til að fylgja samningnum úr hlaði.
---------♦ ♦ ♦
Bæklingur um
nónhressingu
LEIKSKÓLINN Skólatröð í Kópa-
vogi er heilsuleikskóli í samvinnu
við Heilsueflingu sem er sam-
starfsverkefni heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis og Land-
læknisembættis.
Eitt af verkefnum heilsuleik-
skólans er gerð bæklings um nón-
hressingu. Bæklingurinn er unninn
í samvinnu við Borghildi Sigur-
bergsdóttur næringarráðgjafa og
gefinn út af Heilsueflingu. Til-
gangurinn með útgáfunni er að
leggja áherslu á mikilvægi þessar-
ar máltíðar og einnig að auðvelda
starfsfólki leikskóla að setja saman
fjölbreyttan og hollan matseðil.
t)emanjáklúbbur
INNISERÍUR
lOljósa kr. 99,-
20 ljósa kr* 179,,-
35 ljósa kr, 359
50 ljósa kr. 490,-
lOOljósakr. 899,-
7 perur í
Aðventuljós kr«
Aðventuljós kr. 999,-
gluggamyndir
Ik, 999*«*
UTISERIUR
40 ljósa kr. 895
80 ljósa kr« 1299
120 ljósa kr, 2249
160 ljósa kr. 2990
240 ljósa kr. 3990
4801jósa kr. 7990
20 ljosa með stærri
skrúfaðar perur
kr« 2950««
Aðventuljós (12V)
íbíla SkTrV 2,99^
Grenilengja
2.75m kr.
^ Hvergi meira úrval -
■ 'íÍÉ- r*"
hvergi betra verð
Sogskálar fyrir
glugga.
SÉRTILBOÐ