Morgunblaðið - 06.12.1997, Síða 72

Morgunblaðið - 06.12.1997, Síða 72
72 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Þórður og Þröstur Reykjanesmeistarar ÞÓRÐUR Bjömsson og Þröstur Ingimarsson sigruðu í Reykjanes- mótinu í tvímenningi, sem fram fór í félagsheimilinu Mána við Sand- gerðisveg um sl. helgi. Þeir fengu 38 stig yfir meðalskor eða einu stigi meira en Svala K. Pálsdóttir og Vignir Sigursveinsson sem lentu í öðru sæti. Óli Þór Kjartansson og Garðar Garðarsson urðu síðan í þriðja sæti með 19 stig. Þátttakan í mótinu var afar dræm, aðeins 13 pör, og af því til- efni þykir dálkahöfundi ástæða til að setja ofaní við þá aðila sem bera ábyrgð á að auglýsa mótið; annars vegar þá sem eru í forsvari fyrir Reykjanesmótin og hins vegar stjórnendur bridsfélaganna á svæð- inu. Mótið var ekkert auglýst í fjöl- miðlum og a.m.k. á Suðurnesjum var umfjöllun á spilakvöldum lítil sem engin. Dræm þátttaka í bridsmótum almennt Það hefír borið við undanfarið að þátttaka í mótum almennt hefir verið léleg og því nauðsynlegt að halda vel utan um starf bridsfélag- anna. Þá er endurnýjun í bridsfélög- unum mjög lítil þessi árin og spum- ing hvort ekki sé tími til kominn að áhugamenn (prímusmótorar) hittist og ráði ráðum sínum um hvað gera skal. Staða bridssam- bandsins hefir styrkst á undanförn- um árum. Sambandið er komið í glæsilegt eigið húsnæði sem gefur alla möguleika til vaxtarbrodds. Þá má nefna kraftinn í Suðurnesja- mönnum sem byggðu ásamt hesta- mönnum gott 300/m húsnæði und- ir sína starfsemi. Ahugi bridsspilar- anna virðist fyrir hendi en það vant- ar farveginn og stjórnendurna til þess að laða nýtt fólk að félögunum. SaumaSu sjálf fyrir jólin Mikið úrval af glæsilegum samkvæmisefnum. Góðu verðin eru hjá okkur. textilline Laugavegur 101, sími 552 1260. STEINAR WAAGE f SKÓVERSLUN \ Unglingaskórnir í ár Verð 4.995,- Teg:81769 Stærðir: 40-46 Litir: Svartir, brúnir, bláir og grænir JUNdLA ffðÖJiV Teg: 3067 * Stærðir: 36-41 Litir: Svartir, rauðir.grænir og bláir JUN6LA$ð^V Teg: 3092 Stærðir: 36-41 Litir: Svartir, rauðir, grænir og gulir PÓSTSENDUM SAMDÆGURS. V STEINAR WAAGE^ skóverslun/ SlMI 551 8519 ^ STEINAR WAAGE S K Ó V E R S L U N / SÍMI 568 9212 J Yfir 1.200 notendur iD KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 www.treknet.is/throun TIIJJOÐ líjtíi nu/tuUtó tufu Qutuuvu JnyimwiAionwt Suðurveri, sími 553 4852 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Velferðarkerfið og heilbrigðis- þjónustan MAÐUR hefur lesið það og heyrt, bæði í blöðum og öðrum fjölmiðlum, hvað heilbrigðisþjónustan væri góð hér á landi, svo góð að ástæða er til að auglýsa það í útlandinu og hvetja þarlenda til að nýta sér þessa ódýru og frábæru þjónustu, sem við höfum upp á að bjóða. En það fylgir ekki sögunni að það þurfí að taka númer og bíða síðan í nokkra mán- uði, eða ár, eftir því að komast í aðgerð, jafnvel þó bráðnauðsynleg sé, og að hér er þrefað við „hjúkkumar“, sjúkraliðana og læknana um launamálin ár eftir ár. Síðan er hótað að loka öllum spítölum vegna peningaleysis. Tryggingastofnun neit- ar að borga sinn hlut í aðgerðum og allt stendur fast. Þetta er sá veruleiki sem blasir við okkur lands- mönnum núna, þrátt fyrir að við höfum, í áratugi, greitt sérstakt trygginga- iðgjald til Tryggingastofn- unar, sem átti að veita okkur örugga og góða heil- brigðisþjónustu á komandi ámm. Þá kemur rúsínan: Nú getum við farið í aðgerð til annarra EES-landa og komist í biðröðina þar, það er að segja, ef Trygginga- stofnun samþykkir að borga. Er ekki eitthvað að svona stjórnarháttum? Þarf ekki að koma upp sérstakri stofnun fyrir þá herra sem svona stjórna? Ég bara spyr. Jón Friðþjófsson. Reykjavík menningarborg? MIG langar að bera upp þá spumingu hvernig hægt sé að hugsa sér að Reykja- vík verði ein af menningar- borgum Evrópu fyrst búið er að gera gamla miðbæinn að helvíti. Gamall Reykvíkingur. Þakkir til Ólínu fyrir frábæra pistla ÉG VIL þakka henni Ólínu Þorvarðardóttur fyrir frá- bæra pistla sem hún flytur á þriðjudögum í morgunút- varpi rásar 2, og útnefna hana „rödd skynseminnar" á þeim fjölmiðli. Pistlarnir hennar era vel samdir og einstaklega vel fluttir. Nú síðast talaði hún um jóla- kvíða, sem afleiðingu af kaupæði fólks fyrir jólin. Aður hefur hún talað um ýmis velferðarmál. Ég hef ekki hlustað mikið á morg- unútvarpið fyrr en nú í haust, en nú er ég farinn að leggja á minnið hvenær gistlar Ólínu era fluttir. Ég vil leggja til að útvarp- ið endurflytji þessa pistla, eins og gert er með svo margt annað gott útvarps- efni. Sighvatur Guðmunds- son, Æsufelli 2. Banna spilakassa BJÖRGVIN Kristbergsson hringdi og sagði að honum fyndist að banna ætti alla spilakassa og getrauna- leiki, sem ekki væru bein- línis til styrktar líknarmál- um eða öðrum góðum mál- efnum. Fólk getur ánetjast svona leikjum, þannig að ekki ætti að hafa of mikið á boðstólum af þessu dóti. Tapað/fundið Flísjakki í óskilum FLÍSJAKKI, rauður, merktur Einar Orri, fannst í Engjaseli sl. miðvikudag. Uppl. í síma 892-9494. Lyklakippa týndist LYKLAKIPPA með mörg- um lyklum á, týndist sl. þriðjudag í Holtagörðum, við Ikea eða Bónus. Þeir sem hafa orðið varir við hana hafi samband í síma 554 0970. Drengjaúlpa týndist í Hafnarfirði GUL og dökkblá drengj- aúlpa (8 ára) týndist við Litlu tjömina í Hafnarfirði við 10-11 sl. sunnudag. Þeir sem hafa orðið varir við úlpuna hafi samband í síma 567 2702, vs. 555 0192 eða 899 7167 (Sigurður). Svart kvenmanns- reiðhjól týndist SVART kvenmannsreið- hjól, Kalkoff 3ja gíra, týnd- ist við Sólvallagötu aðfara- nótt laugardags. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið hafi samband í síma 551 9438. HÖGNIHREKKVÍSI SKAK Umsjón Margeir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur. STAÐAN kom upp á fyrsta opna meistaramóti Bæ- heims sem fram fór í nóv- ember. Rustem Dautov (2.595), Þýskalandi, var með hvítt og átti leik, en Josh Waitzkin (2.435), Bandaríkjunum, hafði svart. 22. Rf6+!! — gxf6 23. Bxe5 — Bxc3 Eftir 23. — fxe5 24. Dh5 verður hvíta sóknin ekki stöðvuð. T.d. 24. — e4 25. Dxh6 — De5 26. Rxe4! - f5 27. Hg3+ - Dxg3 28. Rxg3 — Bxel 29. Dg6+ - Kh8 30. Rh5 og vinnur eða 24. — Bc5 25. Hg3+ - Kh7 26. Hh3 og svartur er varnarlaus) 24. Hg3+ - Kh8 25. De3 - Bd2 26. Bxf6+ - Kh7 27. Hg7+ - Kh8 28. Dg3 og svartur gafst upp. Rússarnir Khalif- man og Episín sigruðu á mótinu með 7'A vinning af 9 mögulegum. Ellefu skák- menn komu næstir með 7 v., þ.á m. þeir sem tefldu þessa skák. Víkveiji skrifar... VÍKVERJA barst á fimmtudag bréf frá Óskari Magnússyni, forstjóra Hagkaups, vegna Vík- verjapistilsins þann dag. Bréf for- stjóra Hagkaups er svohljóðandi: „Sæll Víkveiji. Eg hef þegar gert ráðstafanir til þess að hægt sé að borga fyrir lottó- miða með debetkorti. Astæðan fyrir þessu rugli er tækniþvæla og að- greining á lottói og öðrum viðskipt- um okkar en auðvitað skiptir það þig engu máli. Mér þykir leitt að þetta skyldi koma upp en sjálfur hafði ég ekki hugmynd um þetta furðufyrirkomulag. Um leið og mér dettur ekki í hug að bera í bætifláka fyrir þetta get ég ekki iátið hjá líða að gera smá athugasemdir við skrif þín. Mér finnst satt að segja stóryrðin með miklum ólíkindum. Dæmi: ..hugsaði Hagkaupi þegjandi þörf- ina.“ Annað dæmi: „Þessi framkoma er óþolandi...“. Og þriðja: „En lengi skal manninn...reyna...“ Að síðustu: „Þetta er viðskiptahroki." Er þetta ekki dálítið jafnvægislaust að skrifa svona þótt maður verði fyrir mót- læti, jafnvel þótt vitleysislegt sé? Kveðja Óskar Magnússon" FORSTJÓRI Hagkaups á heiður skilinn fyrir viðbrögðin við Víkveijapistlinum. Það er afskap- lega ánægjulegt, þegar menn bregðast við með þessum hætti og leiðrétta vitleysuna. Um stóryrðin er það að segja að þegar menn eiga mikil viðskipti við fyrirtæki eins og Hagkaup og líkar vel, geta móttökur sem þær sem Víkveiji fékk í vikunni hlaupið í skap hans sem annarra. Það hlýtur forstjór- inn að skilja - þess vegna er og mikilvægt fyrir stjórnendur Hag- kaups sem annarra fyrirtækja að hafa hluti sem þessa í lagi. En hafi Óskar Magnússon þökk fyrir viðbrögðin. xxx MEIRA um greiðslur með debet- korti: Kunningi Víkveija fór til skattstjórans í Reykjavík fyrr í vikunni til að fá ljósrit af skattfram- talinu sínu. Kunninginn bar upp erindi sitt við starfsmann skattsins og heyrði að við næsta afgreiðslu- borð var viðskiptavinur í sömu er- indagjörðum. Sá fékk ljósritið sitt afhent á undan kunningja Víkveija og hugðist greiða uppsett gjald, 200 krónur, með debetkorti. Starfsmað- urinn tjáði honum að skatturinn tæki ekki debetkort, en í þetta sinn slyppi hann án þess að borga. Við- skiptavinurinn gerði sig ánægðan með það og fór með ljósritið sitt. Þegar svo kom að kunningja Vík- veija dró hann upp debetkortið sitt og sagði sem var, að hann væri ekki með aðra greiðslumiðla á sér. Þá brá svo við að starfsmaður skattsins, sem afgreiddi kunningj- ann, sagði að skatturinn tæki ekki debetkort og kunninginn yrði að fara í næsta hraðbanka, taka út peninga og koma aftur. Kunninginn maldaði eitthvað í móinn og benti á fordæmið frá næsta afgreiðslu- borði, en fékk þau svör að það væri ófrávíkjanleg regla að fólk borgaði fyrir ljósritin. Kunningi Víkveija var heldur súr yfir þessu. í fyrsta lagi þótti honuin embætti skattstjórans aftarlega á merinni að taka ekki við nútímaleg- um greiðslumiðli á borð við debet- kort. í öðru lagi fannst honum auð- vitað fyrir neðan allar hellur að við- skiptavinir skattsins fengju mis- munandi meðferð eftir því hvaða starfsmaður afgreiddi þá. Starfs- reglur starfsmanna skattstjóra eru augljóslega ekki á hreinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.